Morgunblaðið - 08.06.2021, Síða 2

Morgunblaðið - 08.06.2021, Síða 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. JÚNÍ 2021 Með því að heimsækja heimasíðu okkar ferdaskrifstofaeldriborgara.is þarftu aðeins að smella á „Sumarleikur 2021“ og þú tekur sjálfkrafa þátt í happadrætti þar sem vinningar verða dregnir út vikulega í allt sumar. Í boði eru 10 ferðavinningar að upphæð 25.000 kr. hver í einhverja af þeim ferðum sem við stöndum fyrir. Sumarleikur 2021 10 ferðavinningar í boði Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Þóra Birna Ingvarsdóttir thorab@mbl.is Heilbrigðismál, stjórnarskrármálið og lífskjarasókn í kjölfar kórónu- veirukreppunnar voru á meðal þess sem bar á góma í eldhúsdagsumræð- um á Alþingi, sem fram fóru í gær. Mörkuðu þær einnig tímamót fyrir þær sakir að Steingrímur J. Sigfús- son, forseti þingsins, flutti þar sína síðustu eldhúsdagsræðu, en hann hyggst hætta í stjórnmálum eftir kosningarnar í haust. Ítrekað hafnað eigin gildum Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, tók fyrstur til máls. Gagnrýndi hann stjórnar- samstarfið harðlega og sagði ríkis- stjórn Sjálfstæðisflokks, Framsókn- arflokks og Vinstri-grænna ekki hafa reynst vel og tveir stjórnar- flokkanna hefðu ítrekað hafnað eigin stefnu og jafnvel grunngildum flokk- anna á kjörtímabilinu. Vék Sigmundur Davíð meðal ann- ars að stöðu heilbrigðiskerfisins og sagði hana bágborna, þar sem bið- listar lengdust og fólk væri sent utan í aðgerðir sem myndi kosta þrefalt minna að framkvæma hér á Íslandi. Nefndi hann sérstaklega fyrirhug- aða lokun Domus Medica sem dæmi um að frjáls félagasamtök virtust ekki velkomin í „hið nýja marxíska heilbrigðiskerfi“. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar, vék einnig að málefnum Domus Medica í ræðu sinni og sagði það til marks um hvernig Sjálfstæðisflokkurinn hefði setið hjá og ekki gert neinar athuga- semdir þegar þrengt var að einka- rekstri í heilbrigðisgeiranum. „Ef einhæfara, óskilvirkara, ójafnara og dýrara heilbrigðiskerfi er fórnarkostnaðurinn fyrir meintan pólitískan stöðugleika, þá er sá póli- tíski stöðugleiki ekki mikils virði,“ sagði Þorgerður Katrín um stjórnar- samstarf ríkisstjórnarflokkanna. Lífskjörin ekki tekin að láni Guðlaugur Þór Þórðarson, utan- ríkis- og þróunarsamvinnuráðherra, sagði hins vegar að Íslendingar gætu leyft sér að horfa bjartsýnir fram á veg, en þeir mættu þó ekki leyfa sér að halda að allt yrði gott á nýjan leik af sjálfu sér. Varaði Guðlaugur Þór við lausn- um stjórnarandstöðunnar, og sagði að lífskjör yrðu ekki fengin að láni með aukinni skuldsetningu ríkis- sjóðs. Steingrímur J. Sigfússon var síð- asti ræðumaður Vinstri-grænna og sagðist hafa gaman af því að standa aftur í sömu sporum og hann gerði sem nýliði á þinginu fyrir rúmum 35 árum. Fjallaði Steingrímur um starf ríkisstjórnarinnar til eflingar Al- þingi, og þakkaði fyrir gott sam- starf. Þá vék hann orðum að trausti til Alþingis, sem hefði aukist um 16 prósentustig á síðustu tveimur ár- um, sem væri mjög jákvæð þróun. „Traust og virðing Alþingis er áunn- ið fyrirbæri,“ sagði Steingrímur og beindi orðum sínum sérstaklega að þingmönnum. Sagði hann eðlilegt að takast á og gagnrýna það sem væri gagnrýni- vert, en varaði við því að það væri ómaklegt og skaðlegt að úthrópa Al- þingi og tala niður sitt eigið starf í leiðinni. „Það er heiður að vera al- þingismaður Íslendinga. Því fólki sem hingað inn er kosið er sýndur mikill trúnaður, því er falin mikil- vægasta samfélagsþjónusta lýðræð- isfyrirkomulagsins.“ Traust og virðing þings eru áunnin Morgunblaðið/Eggert Jóhannesson Síðasta ræðan Steingrímur J. Sigfússon fjallaði um traust til þingsins í síðustu eldhúsdagsræðu sinni, en hann hyggst kveðja þingstörfin í haust. - Staða heilbrigðiskerfisins var stjórnarandstöðunni hugleikin - Skaðlegt að úthrópa eigin starf „Okkar maður er laus úr sóttkví. Hér hefur Héðinn verið í á annað ár en nú heldur hann aftur út, endur- bættur og allur hressari,“ segir Helgi Gíslason myndhöggvari. Hann hefur haft með höndum við- gerð á styttunni af Héðni Valdi- marssyni (1892-1948) alþingis- manni og verkalýðsleiðtoga, sem frá 1955 hefur staðið við verka- mannabústaðina við Hringbraut í Reykjavík. Standmyndin var tekin niður fyrir nokkrum misserum og flutt á verkstæði Helga í Gufunesi til viðgerðar. Styttan er í þremur einingum og voru boltarnir sem festa þær saman endurnýjaðir. Einnig var bronsið sem styttan er úr fægt og vaxborið. „Útilistaverk þurfa viðhald, enda óvarin, til dæmis fyrir rigningu,“ segir Helgi sem reiknar með að Héðinn verði settur á sinn fyrri stall í Vesturbæ innan tíðar. sbs@mbl.is Viðgerðum á Héðni er lokið Morgunblaðið/Sigurður Bogi Viðgerðir Helgi við styttuna af Héðni, sem brátt fer á sinn fyrri stall. Nýr áfangi við uppbyggingu í Vita- borg í miðborginni er að hefjast með endurbyggingu gamalla húsa við Hverfisgötu 88 og 90. Húsin eru hluti af gamla þorpinu en húsið Hverfisgata 90 var ónýtt, þar með talið burðarvirkið, að sögn Atla Kristjánssonar, framkvæmda- stjóra Rauðsvíkur. Vitaborg sækir nafn sitt í vita- þorpið sem nefnt var eftir gamla vitanum sem Vitastígur heitir eftir. Fyrsti áfanginn í Vitaborg fór í sölu vorið 2019 en um var að ræða 70 íbúðir á Hverfisgötu 85-93. Samkvæmt söluvefnum vita- borg.is eru þær uppseldar. Næsti áfangi fór í sölu á síðasta ári en um var að ræða tvö þriggja íbúða hús, Hverfisgötu 84 og 86, og svo Hverfisgötu 92, sem skiptist í eitt framhús og tvö bakhús, alls 24 íbúðir. Íbúðirnar á Hverfisgötu 84 og 86 eru seldar og búið er að selja sjö íbúðir af 24 á Hverfisgötu 92 skv. söluvefnum. baldura@mbl.is Rauðsvík heldur áfram uppbyggingu við Hverfisgötu Gamalt hús verður endurgert Morgunblaðið/Árni Sæberg Við Hverfisgötu Með uppbyggingunni á að skírskota til gömlu byggðarinnar um leið og byggðin er þétt. Bílakjallari er undir nýja hverfinu.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.