Morgunblaðið - 08.06.2021, Síða 8

Morgunblaðið - 08.06.2021, Síða 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. JÚNÍ 2021 DUXIANA Reykjavik | Ármuli 10 | Reykjavik | +354 5 68 99 50 | www.duxiana.is GÆÐI OG ÞÆGINDI SÍÐAN 1926 DUX 1001 - VÍÐÞEKKT ÞÆGINDI Byggt á fyrsta DUX rúminu sem var framleitt árið 1926, þetta er sannarlega það sem draumar eru byggðir á. Páll Vilhjálmsson blaðamaðurfjallar um tæknirisana sem farnir eru að ákveða hvað má segja og hvað ekki. Þó segjast þeir ekki vera fjölmiðlar og ekki bera ábyrgð á efninu sem á þeim er birt. Um afleiðingar þessarar stýringar tæknirisanna á því sem þar birtist nefnir Páll áhuga- verð dæmi: „Naomi Wolf er þekktur bandarískur femínisti. Reikningi hennar á Twitter var lokað, segir BBC, þó ekki vegna femínískra staðhæfinga. Wolf, sem sagt, er sökuð um að dreifa rangfærslum um bólusetn- ingar við Kínaveirunni. - - - Fyrir skemmstu mátti ekkisegja á Twitter, og heldur ekki á Facebook, að uppruni veir- unnar væri á rannsóknastofu í Wuhan í Kína, en ekki kjötmark- aði. Tæknirisarnir og kínversk stjórnvöld voru sammála um að tilgátan um rannsóknastofuna væri bannorð. - - - Nú er komið á daginn að upp-runa veirunnar má að öllum líkindum rekja til rannsóknastofu. Afleiðingarnar verða heims- pólitískar, segir dálkahöfundur Telegraph. - - - Rangfærslur Wolf um bóluefniðeru, samkvæmt BBC, að öll- um líkindum einmitt það, rang- færslur. En það þóttu líka allar kenningar um að Kínaveiruna mætti rekja til rannsóknastofu. Þangað til þær reyndust (líklega) sannar. - - - Tæknirisar eins og Twitter ogFacebook eru ekki heppileg- ustu aðilarnir til að ákveða hvað er rétt og hvað rangt.“ Páll Vilhjálmsson Heppilegir skoðanastjórar? STAKSTEINAR Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ Þorbjörg Sigurðar- dóttir, húsmóðir og fv. kaupmaður, lést á hjúkrunarheimilinu Ljósheimum á Selfossi laugardaginn 5. júní, 94 ára að aldri. Þorbjörg fæddist á Eyrarbakka 24. mars 1927. Fljótlega eftir fæðingu fluttist Þor- björg á Selfoss með for- eldrum sínum, þeim Sigurði Óla Ólafssyni fyrrv. alþingismanni (1896-1992) og Kristínu Guðmundsdóttur húsmóður (1904- 1992). Systir Þorbjargar er Sigríður Ragna Sigurðardóttir, f. 25.9. 1943, gift Hákoni Ólafssyni verkfræðingi. Þorbjörg giftist Kolbeini Inga Kristinssyni, fyrrv. kaupmanni, f. 1.7. 1926, d. 30.11. 2010, hinn 16. apríl 1949 og átti með honum farsælt hjónaband í 62 ár. Kjörsonur Þor- bjargar og Kolbeins er Sigurður Kristinn viðskiptafræðingur, f. 11.2. 1960, kvæntur Eddu D. Sigurðar- dóttur snyrtifræðingi, f. 11.12. 1958. Börn Sigurðar og Eddu eru Eva Katrín, Andrea Þorbjörg og Kristín Edda. Barnabörn þeirra eru sex tals- ins. Þorbjörg gekk í Kvennaskólann í Reykjavík og eignaðist þar nokkrar lífstíðarvinkonur sem stofnuðu saumaklúbb sem starfaði í tæplega 75 ár. Hún var einnig í saumaklúbbi með æskuvinkonum frá Sel- fossi um margra ára skeið. Þorbjörg og Kol- beinn fluttu til Reykja- víkur árið 1955 og voru búsett þar í tæp 30 ár. Þau ráku saman versl- unina Kostakjör í Skip- holti 37 á árunum 1964- 1974 ásamt foreldrum Þorbjargar. Eftir að Kolbeinn tók við starfi kaupfélagsstjóra hjá Höfn á Selfossi árið 1975 fluttu þau hjónin í kjölfarið aftur á Selfoss og bjuggu þar til æviloka. Þorbjörg var mikil fjölskyldumann- eskja og tók einnig mikinn þátt í fé- lagsstarfi. Hún gekk ung í skáta- hreyfinguna sem hún bar ávallt mikinn hlýhug til. Þá var hún félagi í Oddfellow-reglunni og stúkunni Þóru á Selfossi og tók þátt í kvenfélags- störfum bæði í Reykjavík og á Sel- fossi. Hún var einnig mikill golfunn- andi eftir miðjan aldur og þau hjónin léku golf nánast allan ársins hring meðan líf og heilsa leyfði. Þorbjörg lét sér einnig annt um myndlist og málaði mikið síðustu áratugina og var m.a. félagi í Myndlistarklúbbi Selfoss. Eftir að Kolbeinn lést árið 2010 flutti Þorbjörg í Grænumörk 5. Þegar heilsu hennar tók að hraka flutti hún á hjúkrunarheimilið Ljósheima. Andlát Þorbjörg Sigurðardóttir Á fundi skipulagsfulltrúa Reykjavíkur fyrir skömmu var tekin til afgreiðslu fyrirspurn a2f arkitekta ehf., dagsett 17. maí 2021, um breyt- ingu á deiliskipulagi Kringlubæjar 2. áfanga vegna lóðarinnar númer 14 við Ofanleiti (Ham- borgarabúlla Tómasar). Í fyrirspurninni felst niðurrif á núverandi byggingu og í staðinn komi lítið fjölbýlishús ásamt bílakjallara, norðar á lóðinni. Málinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra. Fram kemur í gögnum málsins að fyrirspurnin er send inn í umboði eigandans, SHP consulting ehf. í Mosfellsbæ. Hugmyndin sé sú að í stað Hamborgarabúllunnar yrði reist lítið íbúðarhús með 6-8 íbúðum ásamt bílakjallara undir húsinu. Byggingin sem fyrir er yrði rifin og ný bygg- ing reist norðar í lóðinni, nær götunni Ofanleiti. Það væri gert til að skyggja minna á aðliggjandi byggð og skapa skjólgott svæði til suðurs fyrir svalir og verandir. Mikil áherla verði lögð á vandaðar íbúðir og góðar lausnir. „Óskað er eftir afstöðu skipulagsfulltrúa til þessarar tillögu áður en lengra er haldið,“ segir í fyrirspurninni. Í húsinu Ofanleiti 14 var upphaflega söluturn. Síðar var innréttaður hamborgarastaður í hús- inu, sem er örskammt frá Verslunarskólanum. sisi@mbl.is Hamborgarar víki fyrir íbúðum Morgunblaðið/sisi Ofanleiti 14 Hamborgarabúllan mun mögulega hverfa í framtíðinni og íbúðarhús rísa í staðinn.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.