Morgunblaðið - 08.06.2021, Page 10

Morgunblaðið - 08.06.2021, Page 10
10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. JÚNÍ 2021 Viðreisn kynnti um helgina sinn lista í Norðvestur- kjördæmi. Guðmundur Gunnarsson, fyrrverandi bæj- arstjóri Ísafjarðarbæjar, leiðir listann. Í 2. sæti er Bjarn- ey Bjarnadóttir kennari. Starri Reynisson, forseti Uppreisnar, ungliðahreyfingar Viðreisnar, situr í 3. sæti listans og Ingunn Rós Kristjánsdóttir sálfræðinemi er í 4. sæti. Guðmundur kveðst í fréttatilkynningu afar stoltur af því að leiða lista Viðreisnar í kjördæminu og hlakkar til kosningabaráttunnar næstu vikur og mánuði. Listi Við- reisnar er að mestu skipaður fólki af Vesturlandi og Vestfjörðum. Einn frambjóðandi er búsettur á Blöndu- ósi, en enginn í Skagafirði. Heiðurssæti listans, hið sextánda, skipar Sigrún Camilla Halldórsdóttir, formaður Félags eldri borgara á Ísafirði. Í 15. sæti er Pétur G. Markan, samskiptastjóri þjóðkirkjunnar og fv. sveitarstjóri í Súðavík, búsettur í Hafnarfirði. Guðmundur leiðir Viðreisn í Norðvestur Guðmundur Gunnarsson Framboðslisti Framsóknarflokksins í Suðvesturkjör- dæmi fyrir komandi þingkosningar var samþykktur á aukakjördæmisþingi sem haldið var rafrænt um helgina. Prófkjör hafði áður farið fram um efstu fimm sæti listans og gerði kjörstjórn tillögu um önnur sæti listans í samræmi við reglur flokksins. Oddviti listans er Willum Þór Þórsson, þingflokks- formaður Framsóknarflokksins. Í öðru sæti á eftir hon- um er Ágúst Bjarni Garðarsson, bæjarfulltrúi og for- maður bæjarráðs í Hafnarfirði, í þriðja sæti er Anna Karen Svövudóttir, samskiptafulltrúi og ferðamálafræð- ingur, í fjórða sæti er Kristín Hermannsdóttir háskólanemi og í fimmta sæti er Ívar Atli Sigurjónsson, flugmaður og laganemi. Fv. bæjarfulltrúi í Kópavogi, Ómar Stefánsson, er í sjöunda sæti og athygli vekur að tveir fv. þingmenn flokksins skipa síðustu sæti listans; Birkir Jón Jónsson og Eygló Harðardóttir, fv. ráðherra. Fleiri reynslubolta er að finna á listanum, m.a. Einar Sveinbjörnsson veðurfræðing. Framsókn gengur frá lista í Suðvestur- kjördæmi með Willum Þór efstan Willum Þór Þórsson 2021 ALÞINGISKOSNINGAR Reykjavíkurborg hefur auglýst til- lögu að nýju deiliskipulagi fyrir Rauðhóla. Segir á vef borgarinnar, að tilgangurinn sé að bæta alla um- gjörð í kringum umferð gangandi, hjólandi og ríðandi um svæðið til að styðja við góða upplifun fjölbreyttra útivistarhópa af þessu svæði í takt við náttúruna. Markmiðið sé jafnframt að hlúa að svæðinu og stuðla að vernd þess. Rauðhólar eru röð gervigíga sem hafa verið friðlýstir sem fólkvangur síðan 1974, ásamt aðliggjandi svæði í kringum Heiðmerkurveg yfir brúna að Helluvatni. Gert er ráð fyrir að brúin verði endurnýjuð og að þar verði gert ráð fyrir bílaumferð, gangandi og hjólandi og einnig fyrir hestaumferð. Brúin gæti orðið allt að 10-14 m breið en hægt væri að notast við núverandi brúarstæði og fyllingar. Við Heiðmerkurveg er skilgreint eitt bílastæði og við það er aðal- áningarstaður Rauðhóla. Á bíla- stæðinu er gert ráð fyrir 34 bíla- stæðum og tveimur stæðum fyrir rútur. Akstur í gegnum bílastæðið er einstefna, frá austri til vesturs. Við bílastæðið er gönguleið að stofn- stíg. Öll bílastæði, leiðir að þeim og göngufletir verða klædd gegndræpu yfirborði. Morgunblaðið/Eggert Rauðhólar Nýju deiliskipulagi er ætlað að bæta alla umgjörð í kringum umferð um Rauðhólasvæðið. Nýtt deiliskipulag fyrir Rauðhólasvæðið auglýst - Markmiðið að bæta umgjörð í kringum umferð um svæðið Morgunblaðið/Eggert Litadýrð Rauðhólarnir séðir úr lofti eru eins og litríkt málverk á striga. Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Vestfirsku fiskeldisfyrirtækin Arctic Fish og Arnarlax vinna að undirbún- ingi byggingar sameiginlegs laxa- sláturhúss. Hafa þau leitað upplýs- inga um innviði og aðstöðu til að koma slíkri aðstöðu upp á Patreks- firði og Flateyri og ef til vill víðar. Bæði fyrirtækin nýta laxaslátur- hús Arnarlax á Bíldudal. Eldið er að vaxa mikið og þörf á betri aðstöðu. Framleiðslan mun aukast enn frekar þegar laxeldi hefst í Ísafjarðardjúpi. Litið er til ýmissa þátta við stað- arvalið, meðal annars þjónustu og innviða á þeim stöðum sem til greina koma. Þá er það skilyrði að laxeldi sé ekki of nálægt sláturhúsi, vegna hættu á að sjúkdómar breiðist út. Svara spurningum fyrirtækja Bæjarstjórinn á Ísafirði hefur verið að safna upplýsingum til að svara fyrirspurn Arnarlax og Arctic Fish um aðstöðu fyrir laxasláturhús á Flateyri. Tók málið þá stefnu á síð- asta fundi bæjarstjórnar að bæjar- stjóra var falið að ganga til viðræðna við fyrirtækin. Birgir Gunnarsson bæjarstjóri segist hafa skilað grein- argerð um aðstöðuna á Flateyri til fyrirtækjanna í gærmorgun. Birgir segir að fyrirtækin vilji hafa fyrir- sjáanleika inn í framtíðina enda sé þetta mikil fjárfesting. „Við mætum þeim eins og öðrum fyrirtækjum sem til okkar leita. Það verður síðan að koma í ljós hver þeirra niðurstaða verður,“ segir Birgir. Forstjórar fyrirtækjanna kynntu áform sín, meðal annars um laxaslát- urhús á Patreksfirði, fyrir fulltrúum bæjarstjórnar Vesturbyggðar í síð- asta mánuði. Bæjarstjóra og fleiri embættismönnum hefur verið falið að taka saman gögn og upplýsingar vegna málsins. „Bæjarstjórn Vesturbyggðar fagnar því að fyrirtækin sjái tæki- færi í áframhaldandi uppbyggingu í sveitarfélaginu,“ segir í bókun bæjarstjórnar um málið. Flateyri og Patreks- fjörður koma til greina - Laxeldið á Vest- fjörðum hugar að nýju sláturhúsi Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Bíldudalur Laxi pakkað fyrir Evr- ópumarkað í sláturhúsi Arnarlax. HAGI ehf Stórhöfða 37 • 110 Reykjavík • S. 414-3700 • hagi@hagi.is • Hagi ehf HILTI Hágæða vinnuföt í miklu úrvali Sérmerkjum fyrir fyrirtæki Verkfæri og festingar Mikið úrval af öryggisvörum vinnuföt fást einnig í Félag atvinnurekenda (FA) fagnar því að náðst hafi varanlegur samn- ingur um fríverslun á milli Bret- lands og EES-EFTA-ríkjanna, Ís- lands þar á meðal. Félaginu þykir hins vegar miður að vegna „harðr- ar andstöðu hagsmunaaðila í land- búnaði hafi stjórnvöld kastað frá sér tækifæri til að útvíkka fríversl- un með búvörur við Bretland,“ eins og FA orðar það í tilkynningu. Vitnar félagið m.a. til fréttar í Morgunblaðinu í gær, þar sem rætt var við formann Bændasamtakanna um fríverslunarsamninginn. Kom fram að samtökin hefðu fengið upp- lýsingar um gang viðræðna við Breta og tækifæri til að koma á framfæri afstöðu sinni. Furðar fé- lagið sig á aðkomu bænda. „Því er ósvarað hvers vegna Bændasamtökin eru umsagnaraðili í þessum samningaviðræðum en ekki t.d. fulltrúar verslunarinnar, neytenda eða Samkeppniseftir- litið,“ segir félagið m.a. FA undrast aðkomu Bændasamtakanna að fríverslunarsamningi við Bretland

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.