Morgunblaðið - 08.06.2021, Side 11
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. JÚNÍ 2021
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Í borgarkerfinu er til afgreiðslu
umsókn Garðheima um að byggja
nýja garðyrkjumiðstöð og verslun á
lóð sem fyrirtækinu var úthlutað í
fyrra að Álfabakka 6 í Mjódd í
Breiðholti.
Núverandi aðstaða Garðheima við
Stekkjarbakka þarf að víkja fyrir
íbúðabyggð. Því munu Garðheimar
flytja suður fyrir verslunarmiðstöð-
ina í Mjódd, á lóð sem liggur nálægt
Reykjanesbrautinni, í nágrenni við
svæði ÍR-inga.Til stóð að bílaum-
boðið Hekla myndi flytja starfsemi
sína á þessi lóð en ekkert varð af
þeim áformum. Hekla verður áfram
við Laugaveg.
Í erindi Garðheima er sótt um
leyfi til að byggja garðyrkju-
miðstöð, stálgrindarhús, klætt ál-
samlokueiningum og gleri á lóð nr.
6 við Álfabakka. PK arkitektar hafa
teiknað húsið. Heildarstærð verður
7.375 fermetrar. Byggingin verður
á einni hæð ásamt millihæð, sem
mun hýsa skrifstofu og matsal
starfsfólks. Þetta verður fyrst og
fremst garðyrkjumiðstöð en þar
verður einnig að finna plöntu- og
gjafavöruverslun, ásamt tilheyrandi
stoðrýmum auk útleigurýna fyrir
tengda starfsemi svo sem versl-
unarrekstur og veitingastarfsemi.
Aðkoma að byggingunni verður frá
nýrri framlengingu Álfabakka.
Fram kemur í leyfisumsóninni að
leitast verði við að velja vistvænar
lausnir við byggingu hússins og lág-
marka neikvæð umhverfisáhrif.
Byggingin verður framleidd í Hol-
landi. Stálgrind og klæðningar
verða flutt til landsins í einingum og
byggt á staðnum. Litur útveggja
verður dökkgrár.
Í umsögn verkefnastjóra hjá
skipulagsfulltrúa Reykjavíkur kem-
ur fram að við yfirferð málsins voru
skoðaðir helstu þættir, s.s. bygging-
armagn, bíla- og hjólastæði, hæðir
húsa o.fl. Virðist sem það sé allt í
samræmi við gildandi deiliskipulag.
Gerðar eru nokkrar ábendingar um
frekari útfærslu. Umsóknin fer nú
til lokaafgreiðslu hjá byggingafull-
trúa borgarinnar.
Á heimasíðu Garðheima kemur
fram að um sé að ræða fjölskyldu-
rekið fyrirtæki með áherslu á allt
sem tengist grænum lífsstíl,
plöntum, blómum, skreytingum,
gjafavöru, gæludýravörum og garð-
yrkjutækjum og tólum. Hinn 2. des-
ember 1999 voru Garðheimar opn-
aðir í núverandi mynd við Stekkjar-
bakka 6 í Reykjavík.
Nýir Garðheimar rísa í Mjóddinni
- Hafa sótt um leyfi
til að byggja 7.375
fermetra hús við
Álfabakka 6
Nýir Garðheimar Byggingin sem rísa mun í Mjóddinni verður alls 7.375 fermetrar. Hún verður framleidd í Hollandi og einingarnar verða fluttar til landsins.
Sími 555 2992 og 698 7999
Hátt hlutfall Omega 3 fitusýra
Gott fyrir:
• Maga- og þarmastarfsemi
• Hjarta og æðar
• Ónæmiskerfið
• Kolesterol
• Liðina
Læknar mæla með selaolíunni
Selaolían fæst í: Apótekum, Þín verslun Seljabraut, heilsuhúsum, Fjarðarkaupum, Fiskbúðinni Trönuhrauni, Hafrúnu og Melabúð
Óblönduð
– meiri virkni Selaolía
Ég heyrði fyrst um Selaolíuna í gegnum kunningja minn en
konan hans hafði lengi glímt við það sama og ég, - stirðleika
í öllum liðum og tilheyrandi verki. Reynsla hennar var það góð
að ég ákvað að prufa. Fyrstu tvo mánuðina fann ég litlar
breytingar, en eftir þrjá mánuði var ég farin að geta gengið
niður stiga á vinnustað mínum sem ég hafði ekki getað
áður. Ein góð „aukaverkun“ fylgdi í kjölfarið, ég var
með frekar þurra húð um allan líkamann, en eftir
að ég fór að nota Selaolíuna hvarf sá þurrkur og
húð mín varð silkimjúk. Ég hef nú notað
Selaolíuna í eitt og hálft ár og þakka henni
bætta líðan og heilsu.
Guðfinna Sigurgeirsdóttir.
„Eftir þrjá mánuði var ég farin að geta gengið niður stiga
á vinnustað mínum sem ég hafði ekki getað áður.“
Hólmfríður María Ragnhildardóttir
hmr@mbl.is
Ísland er í 10. sæti yfir vænleg-
ustu lönd í Evrópu til að ferðast
um á bíl í fríinu sínu ef marka má
úttekt sem norska heimasíðan mo-
mondo.no birti á dögunum. Matið
byggist á 17 ólíkum þáttum í sex
mismunandi flokkum þar sem
meðal annars er tekið mið af
kostnaði, öryggi, umferð, innvið-
um, náttúru og veðri. Löndin fá
einkunn fyrir hvern þátt fyrir sig
og byggist lokastig þeirra á vegnu
meðaltali sem er sett fram á skal-
anum 1 upp í 100.
Fallegasta náttúran
Á listanum er að finna 31 Evr-
ópuland og er Portúgal þar efst
með 100 stig en Ungverjaland sit-
ur í neðsta sæti með eitt stig. Ís-
land er með 64 stig í 10. sæti eftir
lokaútreikning en allar Norður-
landaþjóðirnar á listanum komust í
efstu 10 sætin að Noregi undan-
skildum sem lenti í 28. sæti. Fær-
eyjar og Grænland eru ekki tekin
með í matinu.
Mælist Ísland hæst af öllum
löndum á náttúru- og umhverfis-
mælikvarðanum með 6,6 af 7
mögulegum í einkunn. Það er einn-
ig talið Íslandi til tekna að hér á
landi er lægsta tíðni umferðar-
óhappa á hverja 100 þúsund íbúa
eða 16,6, og loftmengun er lítil.
Það ætti þó ekki að koma neinum
á óvart að veðurmælikvarðinn er
það sem dregur einkunn Íslands
niður en hér á landi eru bæði
mesta úrkoman og fæstu sólardag-
arnir á hverju ári.
Í þeim verðflokkum sem tekið er
mið af í matinu mælist Ísland
hvergi hæst en að meðaltali er
hæsta bensínverðið í Hollandi,
hæsta verð fyrir gistingu í Sviss
og mesti kostnaðurinn við að leigja
bíl var í Noregi.
Há einkunn fyrir
kennileiti og verð
Auk Portúgals skoruðu Spánn
og Lúxemborg einnig hátt í þess-
ari úttekt en þessi lönd áttu það
öll sameiginlegt að vera með fjölda
spennandi kennileita, fallega nátt-
úru og hagstætt verð.
Ísland vænlegt
til bílaferðalaga
- Ísland skorar hátt í nýrri úttekt
- Fallegasta náttúran en veðrið slakt
100
95
91
75
74
72
69
67
65
64
62
58
58
56
54
53
53
51
46
41
39
38
34
33
30
27
25
24
22
17
1
Bestu Evrópulöndin til að fara í bílafrí skv. momondo í Noregi
Röð á lista momondo og fjöldi stiga Bestu vegirnir
Minnsta sólskinið, klst. á ári
Mesta úrkoman, mm á ári
Besta veðrið m.t.t. úrkomu og sólskins
Mesta náttúrufegurðin
St
íg
ás
ka
la
nu
m
1-7
St
íg
ás
ka
la
nu
m
1-7
Kr
.á
lít
ra
H
ei
m
ild
:m
om
on
do
.n
o
1. Portúgal
2. Spánn
3. Lúxemborg
4. Þýskaland
5. Svíþjóð
6. Slóvenía
7. Finnland
8. Danmörk
9. Ítalía
10. Ísland
11. Grikkland
12. Slóvakía
13. Sviss
14. Austurríki
15. Frakkland
16. Belgía
17. Holland
18. Eistland
19. Litháen
20. Lettland
21. Pólland
22. Búlgaría
23. Tyrkland
24. Bretland
25. Írland
26. Úkraína
27. Rúmenía
28. Noregur
29. Tékkland
30. Rússland
31. Ungverjaland
Land Úrkoma Sólskin
1 Spánn 636 2.800
2 Grikkland 652 2.770
3 Portúgal 854 2.770
4 Tyrkland 593 2.220
5 Rússland 460 2.040
6 Búlgaría 608 2.180
7 Ítalía 832 2.370
8 Rúmenía 637 2.120
9 Ungverjaland 589 1.990
10 Úkraína 565 1.960
Ódýrustu löndin
1 Úkraína
2 Litháen
3 Rússland
4 Pólland
5 Rúmenía
6 Eistland
7 Búlgaría
8 Tyrkland
9 Lúxemborg
10 Ísland
1 Ísland 1.940
2 Sviss 1.540
3 Noregur 1.410
4 Bretland 1.220
1 Ísland 1.330
2 Noregur 1.370
3 Írland 1.450
4 Bretland 1.530
Dýrasta eldsneytið
1 Holland 239
2 Noregur 237
3 Danmörk 222
4 Finnland 222
5 Grikkland 221
1 Sviss 6,3
2 Holland 6,1
3 Danmörk 5,5
4 Lúxemborg 5,5
5 Spánn 5,5
6 Svíþjóð 5,5
7 Þýskaland 5,5
1 Ísland 6,6
2 Austurríki 6,5
3 Noregur 6,3
4 Spánn 6,3
5 Sviss 6,3
Ísland er tíunda ódýrastaEvrópulandið m.t.t. vegatolla og verðs á eldsneyti,
bílastæðum og gistingu. Eldsneytisverð er áttunda hæst á Íslandi.
Vegakerfið á Íslandi er það
þrettánda besta í Evrópu á
lista momondo