Morgunblaðið - 08.06.2021, Qupperneq 13
Skoðið fleiri innréttingar á
innlifun.is
Suðurlandsbraut 26 Sími 587 2700
Opið 11-18 virka daga innlifun.is ALVÖRU ELDHÚS
Sími 555 3100 www.donna.isVefverslun: www.donna.is
Honeywell gæða viftur
Margar gerðir – Láttu gusta umþig!
FRÉTTIR 13Erlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. JÚNÍ 2021
Lyfið Aduhelm, sem nota má til með-
höndlunar á alzheimers-sjúkdómn-
um, var samþykkt af Matvæla- og
lyfjastofnun Bandaríkjanna í gær.
Þetta er í fyrsta sinn í tæplega tvo
áratugi sem nýtt lyf til meðhöndlunar
á þessum sjúkdómi er samþykkt.
Lyfjafyrirtækið Biogen hefur þró-
að Aduhelm. Almennt var búist við
þessari ákvörðun en hún er einnig
umdeild því óháð sérfræðinganefnd,
sem bandaríska lyfjastofnunin skip-
aði, komst að þeirri niðurstöðu í nóv-
ember sl. að ekki væru nægar sann-
anir fyrir því að lyfið gerði tilskilið
gagn, og mælti gegn því að það yrði
leyft.
Aduhelm er ætlað sjúklingum með
tiltölulega mild sjúkdómseinkenni.
Biogen fullyrðir að lyfið hægi á sjúk-
dómnum með því að brjóta niður út-
fellingar eggjahvítuefna, sem mynd-
ast í heilanum.
hmr@mbl.is
Alzheimers-
lyfið Aduhelm
samþykkt
Jeff Bezos, stofnandi bandaríska
stórfyrirtækisins Amazon, tilkynnti í
gær að hann yrði meðal farþega í
fyrsta mannaða geimfari Blue Orig-
in-geimferðafyrirtækisins.
Bezos er stofnandi og eigandi
Blue Origin en hann mun taka með
sér tvo samferðamenn. Annars veg-
ar bróður sinn Mark Bezos og hins
vegar þann sem býður hæst í flug-
sætið á góðgerðaruppboði sem nú
stendur yfir. Áætluð brottför er 20.
júlí.
Ferðin mun vara í tíu mínútur en
af þeim er fjórum mínútum varið ut-
an gufuhvolfs jarðar í rúmlega 100
kílómetra hæð. Þann tíma munu far-
þegar upplifa þyngdarleysi en til
þess að fanga það augnablik hefur
myndavélum verið komið fyrir í far-
rýminu.
Geimflaugin heitir New Shepard
og er nefnd í höfuðið á Alan Shepard
sem flaug í geimnum fyrstur Banda-
ríkjamanna árið 1961. Geimfarið
hefur þegar farið í fjölda ómannaðra
tilraunaferða. Eftir jómfrúarferð
Bezos-bræðra mun almenn sala far-
miða hefjast en heimildarmenn
segja miðana munu kosta um 25
milljónir íslenskra króna.
Blue Origin sækir með þessu á
nýjan markað farþegageimferða, áð-
ur hafði Virgin Galactic byrjað að
selja miða í slíkar ferðir. Miðar Virg-
in kosta tugi milljóna íslenskra
króna en um 600 manns hafa þegar
tryggt sér sæti í þessum ferðum
fyrirtækisins.
Keppinautur Jeffs Bezos um tit-
ilinn ríkasti maður heims, Elon
Musk, hyggst einnig ryðja sér til
rúms á sama markaði með eigin
geimflaugafyrirtæki, SpaceX. Þær
ferðir eiga þó að vera töluvert lengri
en þær sem Blue Origin og Virgin
Galactic hafa áætlað. baldurb@mbl.is
Stefnir á jómfrúarferð
- Jeff Bezos með-
al fyrstu farþega
Blue Origin
AFP
Auðæfi Jeff Bezos er ríkasti maður
heims samkvæmt lista Bloomberg.
Áhrif kórónuveirufaraldursins eru
fjórfalt meiri á alþjóðlegan vinnu-
markað en í fjárhagskreppunni 2008.
Þetta kemur fram í ársskýrslu Al-
þjóðavinnumálastofnunarinnar,
ILO, sem heldur ársfund sinn um
þessar mundir.
Í skýrslunni er áhrifum faraldurs-
ins á hinn alþjóðlega vinnumarkað
lýst og þau sögð vera hörmungar.
„Tilteknir hópar hafa lýst starfs-
upplifun sinni á síðasta ári sem
óþægilegri, leiðigjarnri, stressandi
og gremjuvaldandi. Enn aðrir glíma
við fátækt og ótta og við að lifa af,“
sagði Guy Ryder, forstjóri stofnun-
arinnar, í upphafi ráðstefnunnar.
ILO segir að yfir 100 milljónir
manna hafi farið undir fátæktar-
mörk af völdum faraldursins, vinnu-
stundum hefur fækkað verulega og
framboð af góðum störfum nánast
gufað upp.
Fjöldi atvinnulausra á heimsvísu
gæti náð 205 milljónum árið 2022,
sem er um 18 milljónum fleiri en
töldust atvinnulausir árið 2019. ILO
segir sínar mestu bjartsýnisspár
ekki reikna með að atvinnustig nái
fyrra horfi fyrr en í fyrsta lagi árið
2023. Stofnunin segir vinnumarkað-
inn hafa verið jafn óviðbúinn faraldr-
inum og heilbrigðiskerfi heimsins.
„Gífurleg misskipting í dreifingu
bóluefna og sá gríðarmikli munur
sem er á fjárhagslegu bolmagni ríkja
mun tvöfalda ójöfnuðinn á vinnu-
markaði. Þar er misskipting í staf-
rænum innviðum og tengslum við
umheiminn ekki á bætandi.
Eina lausnin er sú að grípa til vel
ígrundaðra aðgerða til þess að
sporna við langtímaáhrifum og
ójöfnuði innan alþjóðlega vinnu-
markaðarins. Sé ekkert að gert
verða aðstæðurnar misskiptari, stíf-
ari, meira útilokandi og minna sjálf-
bærar,“ hefur AFP-fréttastofan eftir
Ryder.
Ráðstefnunni var aflýst í fyrra en
fer fram í gegnum fjarfundarbúnað í
ár. Fyrri hluti ráðstefnunnar stend-
ur nú yfir og fjallar aðallega um áhrif
faraldursins og umskipti á alþjóða-
vinnumarkaðnum. Seinni hluti henn-
ar fer fram undir lok árs og ber sá
hluti yfirskriftina „ójöfnuður, færni
og símenntun“.
Alls eiga 187 ríki aðild að Alþjóða-
vinnumálastofnuninni en það eru
fyrstu alþjóðlegu samtökin sem Ís-
land gekk í eftir lýðveldisstofnun
1944. Það var Stefán Jóhann Stef-
ánsson, fyrrverandi forsætisráð-
herra og formaður Alþýðuflokksins,
sem lagði fram þingsályktunar-
tillögu um aðildarumsókn á Alþingi í
september 1943 . baldurb@mbl.is
Staðan verri en
í hruninu 2008
- Alþjóðavinnumálastofnunin segir
alþjóðlegan vinnumarkað í molum
Fjölmenni var á hinni frægu verslunargötu Oxford
Street í London í gær, og mátti sjá andlitsgrímu á
stöku andliti, en þó oftar, líkt og hjá þessum vinkon-
um, til taks við hökuna. Delta-afbrigði kórónuveir-
unnar, sem greindist fyrst á Indlandi, er talið vera
um 40% meira smitandi en Alfa-afbrigðið, sem olli
síðustu bylgju í Bretlandi. Nú hafa 41,5% bresku
þjóðarinnar verið fullbólusett. Enn fer smitum þó
fjölgandi; hinn 7. júní var nýgengi innanlandssmita
á hverja 100.000 íbúa 42,1 en var 20,3 sléttum mán-
uði fyrr. Því er hætt við því að breska þjóðin hrósi
happi of snemma.
AFP
Grímurnar falla í skugga nýbylgjunnar