Morgunblaðið - 08.06.2021, Blaðsíða 15
15
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. JÚNÍ 2021
Sjósundið heillar Sjóböð hafa orðið æ vinsælli tómstundaiðja nú á síðustu árum og vildi hún Bessý ekki láta sitt eftir liggja. Skellti hún sér því í sjósund við Granda og kannaði aðstæður.
Árni Sæberg
Ríkinu er óheimilt
að tryggja sjálfu sér
einkaaðstöðu á mörk-
uðum þar sem sam-
keppni á að ríkja.
Þetta er svo mikil-
vægt prinsipp að
settar hafa verið evr-
ópskar reglur um
samkeppni í heil-
brigðisþjónustu. Ef
lengri biðraðir mynd-
ast en til þriggja mánaða er okk-
ur heimilt að fara út úr biðröð-
inni á kostnað sjúkratrygginga.
Ekki eftir þriðja mánuð, eins og
margir halda, heldur strax, ef
biðröðin er lengri en þrír mán-
uðir. Þar með styttist bið ann-
arra. Vitað er að fæstir vilja fara
utan á sjúkrahús, flest fólk setur
allt sitt traust á lækninn sinn og
treystir sér ekki til að vera sjúk-
lingar á erlendu tungumáli. Þess-
ar náttúrulegu samkeppnishindr-
anir veita ríkinu vernd fyrir
erlendri samkeppni sem ekki er
unnt að fjarlægja.
Nú eru heilbrigðismálin að
„springa framan í“
ráðherrann. Málefni
Klínikurinnar í Ár-
múla vega ekki
þungt, en hafa af-
hjúpað sósíalískar
kreddur hennar. Nú
aukast vandræði
hennar til muna því
Læknamiðstöðin í
Domus Medica verð-
ur lögð niður og
bráðadeild Landspít-
alans er sögð við að
komast í þrot. Hjúkr-
unarfræðinga vantar á 500 vaktir
á deildinni í sumar og fjórir
læknar hafa hætt störfum þar,
það sem af er ári. Formaður Fé-
lags bráðalækna segir að ekki
verði hægt að tryggja öryggi
sjúklinga á deildinni að óbreyttu.
Sósíaldemókratinn Göran Pers-
son var forsætisráðherra Svíþjóð-
ar fyrir aldarfjórðungi. Hann
kom hingað eftir „hrun“ og gaf
okkur góð ráð. Ég fékk að hitta
hann ásamt fleirum eina kvöld-
stund. Hann var m.a. spurður um
einkarekstur í heilbrigðisþjón-
ustu. „Við urðum að taka þá
ákvörðun að samþykkja hann,“
sagði Persson. Hann var ekki
bundinn af kreddum, gat kyngt
stoltinu, enda fela „blandaða
hagkerfið“ og „velferðarríkið“,
sem eru sænsk að uppruna, í sér
að einkarekstur þrífst samhliða
ríkisrekstri. Síðan þá er tvíþætt
sjúkratrygging í Svíþjóð eins og
í öðrum Evrópuríkjum. Fólk get-
ur víða í Evrópu valið um að
greiða u.þ.b. 50 evrur á mánuði í
viðbótartryggingu fyrir aðgang
að einkarekinni heilbrigðisþjón-
ustu. Í raun munu atvinnurek-
endur greiða þennan kostnað
víðast hvar fyrir starfsmenn sem
dýrt er að missa frá vegna veik-
inda. Um leið fara þeir út úr bið-
röðum ríkisrekstrarins og stytta
þar með bið og þjáningar ann-
arra. Þetta gengur auðvitað
þvert á þá jafnaðarhugsjón að
allir skuli þjást jafn mikið og
jafn lengi.
Markaðsbúskapur er þannig að
vörur og þjónusta eru boðin fram
gegn verði á samkeppnismarkaði.
Mikilvæg skilaboð felast í mark-
aðsverðinu til þess sem fram-
leiðir eða veitir: Hann þarf að
standa sig, vera samkeppnisfær.
Sé þessari virkni kippt úr sam-
bandi verður ráðstöfun verðmæta
ómarkviss og geðþóttaleg. Sov-
étskipulaginu, svonefndum áætl-
anabúskap, var ætlað að starfa
án nokkurrar markaðstengingar
og þar með án þess aðhalds og
ábyrgðar í verðmætaráðstöf-
uninni sem samkeppnin ein veit-
ir. Sjúkrasamlög voru lögð niður
í heilbrigðisráðherratíð Svavars
Gestssonar. Síðan er ekki aflað
sérstakra tekna til heilbrigðis-
mála og þar með varð til tekju-
laus starfsemi, sem er bara ill-
viðráðanlegur útgjaldaliður í
augum fjárveitingavaldsins.
Reynt er að taka skynsamlegar
ákvarðanir en þær verða alltaf
geðþóttalegar og verri en þær
sem samkeppni á opnum markaði
framkallar. Flestir viðurkenna að
rándýrar hátæknilækningar
kosta svo mikið að þær yrðu
óviðráðanlegar tekjulitlu fólki.
Þess vegna stöndum við öll sam-
an um að standa straum af þeim í
hinu blandaða hagkerfi. Ef
sjúkrasamlög væru enn starfandi
væru til tekjur til að kaupa heil-
brigðisþjónustu fyrir hina
tryggðu. Ef við byðum frjálsar
viðbótartryggingar myndu marg-
ir fara út úr biðröðum hins op-
inbera og stytta bið annarra um
leið.
Augljóst er að ráðherrann
lærði ekkert af falli Berl-
ínarmúrsins og hruni Sovétríkj-
anna. Hún hefur samt sjálf alið
allan sinn aldur í svonefndu
„blönduðu hagkerfi“ og „velferð-
arríki“ þar sem efnahags-
starfseminni er ætlað að vera
samkvæmt markaðslögmálum, en
vera þó til fyrir allt fólkið í land-
inu. Samt skilur hún ekki neitt,
hún gengur hiklaust á glerveggi,
aftur og aftur. Hún er of stolt til
að viðurkenna mistök. Það stytt-
ist í kosningar. Hún og hennar
flokkur munu ganga til þeirra blá
og marin með þungan bagga á
bakinu, hafandi „stungið höfðinu
í steininn“.
Eftir Ragnar
Önundarson »Nú eru heilbrigðis-
málin að „springa
framan í“ ráðherra
málaflokksins.
Ragnar Önundarson
Höfundur er lífeyrisþegi.
Að stinga höfðinu í steininn