Morgunblaðið - 08.06.2021, Side 22
22 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. JÚNÍ 2021
Smáauglýsingar
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
.Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
.Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
.Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
.Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
.Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Byggingavörur
Harðviður til húsabygginga
Sjá nánar á www.vidur.is
Vatnsklæðning, panill, pallaefni,
parket, útihurðir o.fl. Gæði á góðu
verði. Eurotec A4 harðviðarskrúfur.
Penofin harðviðarolía.
Indus ehf., Óseyrarbraut 2, Hf.
Upplýsingar hjá Magnúsi í símum
6600230 og 5611122.
Ýmislegt
Tískuverslunin Smart
Grímsbæ/Bústaðavegi
Skyrtur st. 12 -28
netverslun www.gina.is
Sími 588 8050.
- vertu vinur
Raðauglýsingar
Nauðungarsala
Uppboð
Einnig birt á www.naudungarsolur.
Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim
sjálfum, sem hér segir:
Lágafell, Eyja- og Miklaholtsh, fnr. 211-3411 , þingl. eig. Þórður
Ingimar Runólfsson og Áslaug Sigvaldadóttir, gerðarbeiðandi Eyja-
og Miklaholtshreppur, miðvikudaginn 16. júní nk. kl. 10:30.
Ræktunarstöðin Lágafe, Eyja- og Miklaholtsh, fnr. 228-0330 , þingl.
eig. Þórður Ingimar Runólfsson, gerðarbeiðendur Eyja- og Mikla-
holtshreppur og Sjóvá-Almennar tryggingar hf., miðvikudaginn
16. júní nk. kl. 10:00.
Kaldakinn, Dalabyggð, fnr. 211-6762 , þingl. eig. Hjörtur Egill
Sigurðsson, gerðarbeiðandi Húsnæðis- og mannvirkjastofnun,
miðvikudaginn 16. júní nk. kl. 13:00.
Sýslumaðurinn á Vesturlandi
7 júní 2021
Uppboð
Einnig birt á www.naudungarsolur.is.
Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim
sjálfum, sem hér segir:
Grundargata 45, Grundarfjarðarbær, fnr. 211-5084 , þingl. eig. Nadia
Di Stefano og Agatino Farinato, gerðarbeiðandi ÍL-sjóður, þriðju-
daginn 15. júní nk. kl. 11:00.
Snoppuvegur 6, Snæfellsbær, fnr. 225-7359 , þingl. eig. AIG stál slf.
og Arnór Ísfjörð Guðmundsson, gerðarbeiðendur Vátryggingafélag
Íslands hf. og Snæfellsbær, þriðjudaginn 15. júní nk. kl. 12:20.
Fossárvegur 18, Snæfellsbær, fnr. 233-6220 , þingl. eig. Arnór Ísfjörð
Guðmundsson og Ólafía Þorsteinsdóttir, gerðarbeiðandi SaltPay IIB
hf., þriðjudaginn 15. júní nk. kl. 12:00.
Sýslumaðurinn á Vesturlandi
7 júní 2021
Félagsstarf eldri borgara
Árskógar Smíðastofa með leiðb. kl. 9-16. Opin vinnustofa kl. 9-12.
Handavinna kl. 12-16. Hádegismatur kl. 11.40-12.50. Kaffisala kl. 14:30-
15.30. Heitt á könnunni, Allir velkomnir. Grímuskylda og það þarf að
skrá sig í viðburði eða hópa: 411-2600.
Bústaðakirkja Sumarhátíð eldri borgara í Fossvogsprestakalli
verður haldin í Grensáskirkju miðvikudaginn 9. júní kl. 14-15.30.
Skráning er í síma 528 8510 í síðasta lagi á mánudagsmorgun 7. júní.
Garðabæ Hægt er að panta hádegismat með dagsfyrirvara, meðlæti
síðdegiskaffinu er selt frá 13:45 -15:15. Poolhópur í Jónshúsi kl. 9:00.
Gönguhópur fer frá Jónshúsi kl. 10:00. Stólajóga kl. 11.00 í Jónshúsi.
Hvassaleiti 56-58 Morgunkaffi og spjall frá 8:30-10:30.
Útvarpsleikfimi kl. 9:45.
Korpúlfar Morgunleikfimi 9:45 í Borgum. Boccia kl 10 í Borgum.
Helgistund í Borgum kl. 10:30. Hádegisverður 11:30 til 12:30.
Spjallhópur í Borgum kl. 13. Sundleikfimi með Brynjólfi í
Grafarvogssundlaug kl. 14. Minnum á að félagsvist hefst á ný á
morgun miðvikudag kl. 13 og verður alla miðvikudaga í sumar.
Sjáumst í sumarskapi.
Seltjarnarnes Vatnsleikfimi í sundlauginni kl. 07.10 og svo aftur kl.
18.40. Pútt á flötinni við Skólabraut kl. 10.30. Kylfur og boltar á
staðnum. Allir velkomnir. Skráningarblöð liggja frammi vegna
ferðarinnar í Grasagarðinn í Laugardal þriðjudaginn 15. júní.
mbl.is
alltaf - allstaðar
200 mílur
✝
Einar fæddist í
Reykjavík 13.
febrúar 1928 og
lést á Hrafnistu á
Sléttuvegi 26. maí
2021.
Foreldrar hans
voru Rósa Stein-
unn Guðnadóttir
húsmóðir, f. 17.
maí 1899, d. 15.
september 1991,
og Hannes Ein-
arsson fiskmatsmaður, f. 11.
mars 1896, d. 7. ágúst 1970.
Heimili þeirra var á Ránargötu
33 sem þau byggðu og bjuggu
þar alla sína hjúskapartíð.
Systkini eru Guðni Hann-
esson, f. 4.4. 1925, d. 30.12.
2016, Guðný, f. 12.3. 1930. Upp-
eldissystir þeirra er Ellen M.
Sveins, f. 26.4. 1929.
Einar átti við veikindi að
stríða síðustu æviárin og dvaldi
á Hrafnistuheimilum síðustu
þrjú ár ævi sinnar og á Hrafn-
istu Sléttuvegi frá 2020.
Einar naut umhyggju kærr-
ar vinkonu, Birgittu Puff, f.
23.10. 1937, f. í Þýskalandi. Þau
kynntust í starfi aldraðra á
Vesturgötu 7 árið 2012 og naut
Einar félagsskapar hennar
bæði hér á landi og í ferðum ut-
anlands.
Einar kvænist Katrínu Pét-
1993, börn þeirra eru Emanúel
og Karin. Birnir Snær, f. 4.12.
1996, í sambúð með Snædísi
Arnarsdóttur, f. 21.2. 1997 og
eiga þau óskírða dóttur. Aron
Skúli, f. 28.10. 1998.
Sigurþór, f. 24.4. 1987, Katr-
ín, f. 10.10. 1988, maki Kjartan
Andri Baldvinsson, f. 6.5. 1988.
Dætur þeirra eru Helena Dís og
Teresa Rós.
3) Margrét Rósa, f. 15.7.
1957, er gift Sigurði H. Óla-
syni, f. 17.8. 1955, synir henn-
ar og Stefáns Stefánssonar eru
Pétur, f. 2.6. 1986, í sambúð
með Hrefnu Lind Einars-
dóttur, f. 19.2. 1991, og Hann-
es, f. 11.3. 1989, í sambúð með
Lilju Björk Sigmundsdóttur, f.
10.10. 1988.
Einar lauk samvinnuskóla-
prófi og var fulltrúi hjá Veiði-
málastofnun. Frá 1988 til 2003
framkvæmdastjóri hjá Lands-
sambandi veiðifélaga.
Einar skrifaði margar grein-
ar um veiðimál og yfirlit um
vatnasvæði og fossa í veiðiám.
Helstu áhugamál voru í þágu
bindindismála. Einar var virk-
ur félagi í stúkunni Einingu nr.
14. Var einn af stofnendum ÍÚT
og tók þátt í norrænu samstafi
þeirra. Var í Samtökum frjáls-
lyndra vinstri manna, m.a. rit-
stjóri málgagns þeirra, Frjálsr-
ar þjóðar.
Útförin fer fram frá Dóm-
kirkjunni í dag, 8. júní 2021,
klukkan 13.
ursdóttur 25.8.
1950, f. 13.6. 1924,
d. 16.11. 2005.
Katrín var frá
Syðri-Hraundal í
Mýrasýslu. Einar
og Katrín bjuggu
lengst af í Ak-
urgerði 37 sem þau
byggðu og fluttu í
árið 1954. Þau
hófu búskap árið
1950 á Ránargötu
29 í nágrenni æskuheimilis Ein-
ar.
Börn þeirra eru:
1) Hannes, f. 11.10. 1950,
synir hans og Ragnheiðar
Gísladóttur eru Einar, f. 16.1.
1971, d. 7.6. 2019 og Grétar, f.
10.6. 1972. Sonur Grétars og
Ástu Einarsdóttur er Einar
Tómas. Hannes og kona hans
Linda Buanak, f. 1.1. 1969, eiga
synina Svein Tilapong, f. 10.6.
1993, og Stefán, f. 3.4. 1995, í
sambúð með Gunnari Erni Sig-
urbjörnssyni, f. 12.1. 1985.
2) Pétur, f.27.5. 1952. Eig-
inkona hans er Kristín Sig-
urþórsdóttir, f. 18.12. 1953.
Börn þeirra eru:
María Pálsdóttir, f. 7.9. 1974,
maki Ingi Rúnar Gíslason og
börn þeirra eru: Tanja Rós, f.
13.8. 1994, í sambúð með Guð-
mundi Þór Júlíussyni, f. 29.12.
Lífið er stundum skrýtið og
þegar farið er yfir okkar sögu
þá er svo mikill hlýhugur sem
fylgir því að minnast þín en nú
ertu farinn og góðu minning-
arnar lifa til eilífðar.
„Passaðu þig á honum
pabba,“ sagði Margrét þegar
hún kynnti mig fyrir þér og
sagði jafnframt að hann þyldi
nú ekki svona kjaftaska eins og
mig.
En frá fyrsta samtali þá átt-
um við vel saman; Einar
ástríðufullur fræðari um allt
sem tengdist honum og ég gríð-
arlega forvitinn um það sem
hann hafði gert og af nógu var
að taka til að spjalla um.
Einar var mikill gæðamaður í
alla staði og það var ekki hægt
annað en dást að honum fyrir
umhyggju og þolinmæði í
hverju sem hann tók sér fyrir
hendur og vandamál sem hann
þurfti að leysa úr fyrir aðra
voru leyst á besta veg. Oft blés
á móti en það var bara leyst.
Sérstaklega ber að hafa í
huga þolinmæði Einars gagn-
vart krökkunum og unga fólk-
inu, hvernig hann hafði þolin-
mæði í að kenna og skýra
hlutina og þá vitna ég nú helst
til barnabarna hans er mér
næst stóðu, þeirra Hannesar og
Péturs, sem Einar átti svo mik-
ið í og lagði svo mikið af mörk-
um til að þeir báðir lærðu að
virða þekkingu afa síns og nátt-
úrlega Katrínar ömmu sinnar í
Akurgerðinu. Það var alltaf tími
fyrir þá og Margréti mömmu
þeirra, já og alla sem tengdust
þeim og sennilega hefur hvert
barna og barnabarna hans sömu
sögu að segja, allir virtu Einar
Hannesson fyrir þægilega fram-
komu og hógværð hans, svo
ekki sé minnst á að aldrei var
talað illa eða niður til nokkurs
manns nokkurn tíma, það var
einkenni Einars.
Einar var þekktur innan
bindindishreyfingarinnar og var
einn stórtemplara og bara það
að kynnast honum gaf manni
aðra sýn á þau samtök.
Einar var inni í allri þjóð-
félagsumræðu og hafði skoðanir
á öllum málum enda með inn-
byggðan skynjara á umræðuna
hverju sinni, hann var ekki allt-
af sammála og lét skoðanir sín-
ar gjarnan í ljós.
Einar minn, það væri hægt
að skrifa langar rullur um hið
mikla ágæti þitt en í mínu tilviki
er mikil gæfa að hafa fengið að
kynnast þér og umgangast þessi
ár. Þú ert kvaddur með virktum
sem höfðingi og það mun frá
mér fylgja þér þar til við
kannski hittumst og ég geti sagt
þér það sjálfur.
Sigurður Hilmar Ólason.
Látinn er heiðursmaðurinn
og bindindisfrömuðurinn Einar
Hannesson.
Við vorum félagar í St. Ein-
ingunni nr. 14 í IOGT og varði
vinátta okkar og samstarf í
bindindisstarfi yfir 60 ár.
Margs er að minnast frá því
starfi, en hæst ber samstarf
okkar í starfi Íslenskra ung-
templara, en Einar var einn
stofnenda þess félagsskapar ár-
ið 1958. Við vorum þeirrar
ánægju aðnjótandi að starfa
saman að fjölmennu Norrænu
ungtemplaramóti í Reykjavík
1966. Við fórum saman með
Einari og Katrínu konu hans á
norrænt ungtemplaramót í Sví-
þjóð sumarið 1968 með fleiri
hjónum, félögum í IOGT.
Einar var mjög ritfær, hafði
enda fengist við blaðamennsku
á yngri árum,
Nútíminn, blað bindindis-
manna, naut skrifa hans í blað-
ið.
Einar starfaði við Veiðimála-
stofnun í yfir 40 ár, hafði m.a.
samskipti við öll veiðifélög á
landinu. Einar var virtur á
þessu sviði enda reynsla hans á
málaflokknum yfirgripsmikil.
Þeirrar reynslu naut ég í rík-
um mæli þegar ég var leigutaki
laxveiðiánna Dunkár í Dölum og
Núpár í Eyjahreppi. Það var
sko ekki sama hvernig staðið
var að sleppingu seiða. Einar
hóf ekki laxveiðar fyrr en með
undirrituðum í Dunká en hafði
gaman af. Margar ferðir fórum
við saman vestur og nokkrar
bráðfyndnar sögur eru til á
prenti um m.a. eldamennsku
okkar félaganna.
Einar var formaður Bindind-
is- og umferðarmálasýningar og
réð undirritaðan sem fram-
kvæmdastjóra þessarar fyrstu
sýningar nýrra bíla árin 1961 og
1962.
Það var gaman að ferðast
með Einari og Katrínu m.a. um
Vestfirði. Einar kunni skil á
hverri sprænu leiðarinnar og
stjórnum veiðifélaga svæðanna.
Á sparidögum eldri borgara á
Hótel Örk fékk ég Einar til að
flytja fyrirlestra um laxveiðiár á
Íslandi og þótti gestum mikið
koma til kunnáttu hans er hann
rakti nöfn á ám hringinn í
kringum landið.
Aldrei fann ég fyrir 16 ára
aldursmun okkar Einars, enda
var hann alla tíð síungur og
skemmtilegur.
Síðustu árin eignaðist Einar
góða vinkonu, Birgittu Puff, og
var gaman að fylgjast með þeim
rækta vináttu sína og samskipti,
en hún var Einari stoð og stytta
í veikindum hans. Þau fóru með
okkur í skemmtiferðaskipasigl-
ingu um Eystrasaltið fyrir
nokkrum árum.
Fyrir hönd félaga í st. Ein-
ingunni nr. 14 flyt ég þakkir
fyrir mikið og farsælt starf Ein-
ars fyrir stúkuna og bindind-
ishugsjónina.
Við leiðarlok er þakkað fyrir
samstarf og samveru eldri tíma
og innilegar samúðarkveðjur
sendum við til Birgittu og fjöl-
skyldna barna Einars.
Minningin um góðan og
traustan heiðursmann lifir.
Gunnar Þorláksson og
Kolbrún Hauksdóttir.
Fallinn er frá Einar Hann-
esson 93 ára gamall. Einar hóf
störf hjá embætti veiðimála-
stjóra árið 1947. Þar starfaði
hann náið með veiðimálastjóra,
Þór Guðjónssyni, næstu áratugi.
Á starfstíma Einars þróaðist
starfsemi veiðimálastjóra mikið
og náði að lokum til stjórnsýslu,
rannsókna og ráðgjafar í veiði-
málum. Átti Einar drjúgan þátt
í því. Einar var ritfær vel og
skrifaði mikið um veiðimál og
áttu skrif hans ríkan þátt í að
efla veiðimálin. Einar var mjög
tryggur starfsmaður og átti
auðvelt með að umgangast fólk
sem kom sér vel í samskiptum
við veiðiréttarhafa og stang-
veiðimenn um land allt. Auk
mikils áhuga á veiðimálum var
Einar virkur félagi í Góðtempl-
arahreyfingunni og reyndist þar
öflugur liðsmaður líkt og í veiði-
málunum.
Talsverður vöxtur varð í
starfi Veiðimálastofnunar á átt-
unda og níunda áratug síðustu
aldar og hófum við undirrituð
störf þá. Þar með hófust kynni
okkar af Einari. Í fyrstu tók
hann okkur unga fólkinu af
ákveðinni varúð en smá saman
komst á gagnkvæmt traust.
Einar hafði létta lund og naut
sín vel innan um fólk. Oft var
glatt á hjalla í kaffitímum og
var Einar þar hrókur alls fagn-
aðar.
Í starfi sínu þurfti hann að
hafa samskipti við fólk um land
allt í síma og á þeim tíma var
sambandið oft lélegt og þurfti
því að tala hátt. Þann sið lagði
Einar aldrei af og talaði alltaf
hátt í síma. Höfðu sumir á orði
að nóg væri fyrir hann að opna
gluggann og myndi þá heyrast
út á land. Einhverju sinni tók
starfmaður sig til og hermdi eft-
ir Einari á kaffistofunni. Ekki
vildi betur til en að Einar kom
að honum við þá iðju og sagði
„þegiðu hermikrákan þín“ og
hló svo dátt að öllu.
Eftir giftusamt starf á Veiði-
málastofnun starfaði Einar hjá
Landssambandi veiðifélaga og
skilaði þar góðu starfi. Sam-
skiptin við Einar héldu því
áfram og það var gott að finna
hvað hann bar mikið traust til
okkar sem áfram vorum á Veiði-
málastofnun og sýndi tryggð við
stofnunina alla tíð.
Við kveðjum góðan dreng og
fyrrum vinnufélaga og sendum
fjölskyldu Einars hugheilar
samúðarkveðjur. Blessuð sé
minning Einars Hannessonar.
Sigurður Guðjónsson,
Guðni Guðbergsson,
Magnús Jóhannsson,
Sigurður Már Einarsson og
Þóra Vignisdóttir.
Löngum og farsælum æviferli
er lokið. Vinur minn og fyrrver-
andi samstarfsmaður Einar
Hannesson er látinn í hárri elli.
Samstarf okkar hófst þegar ég
tók við formennsku í Landssam-
bandi veiðifélaga sumarið 2000.
Þá hafði Einar, sem var á átt-
ræðisaldri, lýst því yfir að hann
myndi láta af störfum sem
framkvæmdastjóri landssam-
bandsins. Mitt fyrsta verk var
að óska eftir því að hann endur-
skoðaði ákvörðun sína um að
hætta og halda starfinu áfram
um sinn. Ég þurfti ekki að bíða
svarsins lengi og með okkur
tókst vinátta og samstarf sem
seint verður fullþakkað. Einar
markaði djúp spor í sögu veiði-
mála á Íslandi. Hann vann sem
fulltrúi veiðimálastjóra á Veiði-
málastofnun í 41 ár. Á þeim
vettvangi kom hann að stofnun
margra veiðifélaga og var
óþreytandi að ráðleggja og leið-
beina um starf þeirra. Eftir
hann liggur fjöldi blaðagreina
og rita sem geyma ómetanlegan
fróðleik um þróun veiðimála á
Íslandi. Árið 1988 hefur Einar
síðan störf sem framkvæmda-
stjóri Landssambands veiði-
félaga. Átti hann stóran þátt í
mótun á starfi Landssambands-
ins og stýrði skrifstofuhaldinu
af mikilli festu enda reglumaður
í hvívetna. Einar var bindind-
ismaður og lét til sín taka á
þeim vettvangi. Hann var einatt
hrókur alls fagnaðar á aðalfund-
um okkar og sjálfur lifandi
sönnun þess að hægt er að
skemmta sér vel án áfengis.
Einar var mikill persónuleiki.
Hann var kvikur í hreyfingum
og það sópaði að honum á
mannamótum. Í einkalífi var
hann gæfumaður. Þau hjónin
Einar og Katrín voru mjög sam-
rýnd í leik og starfi. Saman
ferðuðust þau víða og hann
sagði mér að þessar ferðir voru
oft ekki skipulagðar lengra en
svo að bílaleigubíll væri til reiðu
á erlendri grund og síðan réði
kylfa kasti hvar gist yrði næstu
nótt. Svona var Einar, áræðinn
heimsmaður. Einar helgaði
veiðimálum alla starfsævi sína
og það er því táknrænt að hann
skuli vera borinn til grafar í
júní, sem er á sama tíma og
veiðiréttareigendur koma jafnan
saman á aðalfundi Landssam-
bands veiðifélaga. Að leiðarlok-
um er þakklæti efst í huga. Það
er mér dýrmætt að hafa kynnst
Einari og ég þakka vináttu hans
og umhyggju í öllum samskipt-
um okkar. Fjölskyldu Einars
votta ég samúð mína við fráfall
hans.
Óðinn Sigþórsson.
Einar Hannesson