Morgunblaðið - 08.06.2021, Side 28

Morgunblaðið - 08.06.2021, Side 28
28 MENNING MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. JÚNÍ 2021 HÁDEGISMATUR alla daga ársins Bakkamatur fyrir fyrirtæki og mötuneyti Við bjóðum annarsvegar upp á sjö valrétti á virkum dögum, sem skiptist í, tveir aðalréttir, þrír aukaréttir, einn heilsurétt, einn Veganrétt og hinsvegar er hægt að fá matinn í kantínum fyrir stærri staði sem er skammtað á staðnum. Hólshraun 3, 220 Hafnarjörður · Símar 555 1810, 565 1810 · veislulist@veislulist.is SKÚTAN Matseðill og nánari upplýsingar á veislulist.is Heiða Árnadóttir söngkona og Gunnar Gunnarsson píanóleikari flytja lög franska tónskáldsins Mic- hels Legrand (1932-2019) á tón- leikum í Fríkirkjunni í Reykjavík í kvöld, þriðjdag, kl. 20. Legrand er hvað þekktastur fyrir að hafa sam- ið söngleiki og tónlist við kvik- myndir og verða lögin flutt á ís- lensku. Textarnir voru samdir af Árna Ísakssyni og Braga Valdimari Skúlasyni. Á efnisskránni verða m.a. flutt lögin „What are you doing the rest of your life?“ úr kvikmyndinni The Happy ending, „You must believe in spring“ úr kvikmyndinni The Young Girls of Rochefort, „I will wait for you“ úr söngleiknum The Umbrellas of Cherbourg og „The summer knows“ úr kvikmyndinni Summer of ’42. Miðasala á tónleikana fer fram á tix.is. Flytja lög Michels Legrand í Fríkirkjunni Tónskáld Michel Legrand. Tugir heims- kunnra tónlistar- manna taka nú þátt í herferð fyrir því að greiðslur til þeirra fyrir streymi á tónlist verði hækkaðar. Meðal hinna frægu eru hljóm- sveitirnar The Rolling Stones og Pet Shop Boys og tónlistarmenn- irnir Tom Jones, Van Morrison of Jarvis Cocker. Hefur hið fræga tón- listarfólk ritað undir bréf til Boris Johnson, forsætisráðherra Bret- lands, um hærri þóknun fyrir streymi á lögum og þá bæði til flytj- enda og lagahöfunda. Fyrir herferðinni fara hin ýmsu samtök og hagsmunafélög tónlist- armanna og tónlistarútgefenda. Ber hún yfirskriftina #BrokenRe- cord initiative og hófst í apríl með þátttöku Paul McCartney, Kate Bush, hljómsveitarinnar Led Zep- pelin og fleiri frægðarmenna í heimi tónlistarinnar. Með herferðinni er bent á að tón- listarmenn og -höfundar fái afar lágar greiðslur fyrir streymi á lög- um sínum í veitum á borð við Spoti- fy og fleiri. Berjast fyrir hærri greiðslum af streymi Van Morrison Kristín Heiða Kristinsdóttir khk@mbl.is „Að brenna leirmuni við opinn eld eru frumstæðar brennsluaðferðir sem við viljum halda í heiðri. Við viljum endurvekja og þróa þessar aðferðir fortíðar, hvort sem það er grindarbrennsla, holubrennsla eða tunnubrennsla,“ segir Hrönn Waltersdóttir leirlistamaður, en hún er ein af þeim tíu sem skipa hópinn Brennuvarga sem opnaði sýninguna „Vits er þörf þeim er víða ratar“ á Nýp á Skarðsströnd um liðna helgi. Ásamt Hrönn eru meðal Brennuvarga þær Guðbjörg Björnsdóttir, Hólmfríður Vídalín Arngrímsdóttir, Ingibjörg Klem- enzdóttir, Katrín V. Karlsdóttir, Ólöf Sæmundsdóttir, Steinunn Al- dís Helgadóttir, Þórdís Sigfúsdótt- ir, Hafdís Brands og Arnbjörg Drífa Káradóttir. „Við þessar tíu leirlistakonur búum vítt og breitt um landið, komum frá Ólafsfirði, Selfossi, Hveragerði, Eyrarbakka, Keflavík og Reykjavík. Við sameinumst í áhuga okkar á því að brenna leir í lifandi eldi, en við byrjuðum á því árið 2017 þegar við vorum með vinnusmiðju þar sem við fengum sænskan kennara til okkar, leir- listamanninn Anders Fredholm. Þá vorum við með viðarbrennslu í Ölfusinu og þar kviknaði þessi mikli áhugi og til varð félags- skapurinn Brennuvargar. Við hitt- umst reglulega til að æfa okkur að brenna í ólíkustu brennslum, holu- brennslum, viðarbrennslum, gas- brennslum, rakúbrennslum og fleiri, því þetta eru margar aðferð- ir. Í brennslu við opinn eld er allt- af óvissa hvað kemur út, hvernig askan, loftið og eldurinn hegða sér, hvað við náum háu hitastigi og fleira hefur áhrif á útkomuna. Við leggjum af stað með eitthvað og svo gerist eitthvað skemmtilegt.“ Náttúruöflin taka við Hrönn segir að fyrir sýninguna á Nýp á Skarðsströnd hafi þær brennt munina sína í stórum sér- stökum gas- og viðarbrennsluofni sem þar er staðsettur. „Þessi ofn er sá eini sinnar teg- undar á Íslandi og er með þrjá stóra brennara fyrir gas og við dælum miklu timbri í ofninn, heil- um rúmmetra af harðviði. Bjarn- heiður Jóhannsdóttir er okkur inn- an handar sem ráðgjafi og brennslustjóri ofnsins á Nýp, en hún er ekki félagi í Brennuvörg- um. Núna fyrir þessa sýningu á Nýp notuðum við litarefni í gler- unginn okkar úr héraðinu, úr Búð- ardal og Fagradal, en líka frá Heklu. Þetta eru íslensk jarðefni sem við sækjum út í náttúruna, hreinsum, mölum og blöndum við önnur glerungaefni til að fá ákveðnar áferðir á leirmunina. Það er virkilega mikil spenna sem er í gangi við brennsluna og við verð- um stundum mjög æstar,“ segir Hrönn og hlær. „Þetta krefst mikillar æfingar og því þurfum við að brenna mörg- um sinnum til að ná tökum á þess- um aðferðum, útkoman er svo margbreytileg af því náttúruöflin taka við þegar í ofninn er komið, þar sem loftið og eldurinn, sjálf orka alheimsins leikur á verkin okkar.“ Hún gekk um þvera Evrópu Brennuvargarnir eru með sýn- ingu sinni á Nýp að heiðra minn- ingu Guðríðar Þorbjarnardóttur, landnámskonu og heimshorna- flakkara og er yfirskrift sýningar- innar tilvitnun í Hávamál: „Vits er þörf þeim er víða ratar“. „Hún fæddist árið 980 á Laugar- brekku á Hellisvöllum undir Jökli, sem er ekki langt frá því svæði þar sem við erum með sýninguna. Við viljum halda sögu merkilegra kvenna fortíðar á lofti, en Guð- ríður var einn mesti heimshorna- flakkari miðalda. Hún var ævin- týragjörn kona sem gekk um götur í skinnskóm og sigldi á sjó í opnum báti lengra en nokkur ann- ar sem uppi var á hennar tíð. Hún sigldi nokkrum sinnum milli Grænlands, Ameríku og Noregs og fór að lokum til Rómar að öðlast syndaaflausn. Hún fór átta ferðir um heimshöfin í opnum víkinga- báti og gekk um þvera Evrópu til Rómar og til baka aftur. Konur þessa tíma eru margar týndar, en það er alltaf verið að tala um karl- ana. Við viljum leggja okkar af mörkum til að draga konurnar fram í ljósið og þess vegna heiðr- um við og kynnum Guðríði með sýningunni okkar.“ Brennuvargar heiðra Guðríði - Vilja halda sögu merkilegra kvenna fortíðar á lofti - Leirlistakonur með sýningu á Nýp - Í brennslu við opinn eld er alltaf óvissa hvað kemur út - „Við verðum stundum mjög æstar“ Vasklegar Brennuvargar ásamt brennslustjóra við ofninn á Nýp. Fremri röð f.v.: Katrín V. Karlsdóttir, Hrönn Waltersdóttir, Steinunn Aldís Helgadóttir, Bjarnheiður Jóhannsdóttir (brennslustjóri), Ólöf Sæmundsdóttir, Inga Klemenz. Aftari röð, f.v.: Guðbjörg Björnsdóttir, Hafdís Brands, Þórdís Sigfúsdóttir, Arnbjörg Drífa Káradóttir. Gaman að brenna Gas- og viðarbrennsluofninn á Nýp er sá eini sinnar teg- undar á Íslandi. Hér eru Brennuvargar kátir að störfum við ofninn. Sýning á verkunum verður á Nýp 6.-19. júní og í framhaldinu einnig í Vínlandssetrinu Leifsbúð í Búðar- dal 20. júní til 31. ágúst. Nánar: brennuvargar.com

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.