Morgunblaðið - 08.06.2021, Blaðsíða 29
MENNING 29
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. JÚNÍ 2021
Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is
TRYGGÐU ÞÉR
MIÐA INNÁ
SÝND MEÐ
ÍSLENSKU TALI.
SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI
THE WASHINGTON POST
ROGEREBERT.COM
TOTAL FILM
USA TODAY
THE SEATTLE TIMES
THE GUARDIAN
GEGGJAÐ FRAMHALD AF EINUM ÓVÆNTASTA
SPENNUÞRILLER SÍÐUSTU ÁRA
HROLLVEKJANDI SPENNUMYND
THE WRAP FILM
SÝNDMEÐ ÍSLENSKU TALI
Sjónvarpsverðlaun bresku kvik-
mynda- og sjónvarpsakademíunn-
ar, Bafta, voru afhent um helgina
og stóð Michaela Coel uppi sem
helsti sigurvegari þeirra. Coel
hlaut verðlaunin fyrir besta hand-
rit, leikstjórn og bestu leikkonu í
aðalhlutverki fyrir þáttaröð sína I
May Destroy You sem hlotið hefur
mikla athygli og lof á undanförnum
mánuðum. Einnig hlutu þættirnir
verðlaun sem besta stutta þáttaröð-
in. Coel hlaut fyrir tveimur vikum
hin sérstöku fagverðlaun Bafta,
Bafta Craft Awards, fyrir handrit
þáttanna og leikstjórn.
Af öðrum helstu siguvegurum
nýliðinnar helgar ber að nefna Paul
Mescal sem verðlaunaður var sem
besti leikari í aðalhlutverki fyrir
leik sinn í Normal People og dans-
hópurinn Diversity hlaut verðlaun
fyrir atriði sem nauðsynlegt væri
að sjá. Hópurinn túlkaði með dansi
drápið á Goerge Floyd í Bandaríkj-
unum og Black Lives Matter-
hreyfinguna. Atriðið var sýnt í
hæfileikakeppninni Britain’s Got
Talent.
Kvikmyndabálkur Steves
McQueens, Small Axe, halut flestar
tilnefningar en aðeins ein verðlaun,
fyrir besta leikara í aukahlutverki,
Malachi Kirby, sem lék í kvikmynd-
inni Mangrove. Besta leikkona í
aukahlutverki var Rakie Ayola fyr-
ir leik sinn í Anthony sem segir af
Anthony Walker, 18 ára enskum
dreng af jamaískum uppruna sem
var myrtur af kynþáttahatara árið
2005. Heildarlista verðlaunahafa
má finna á vef BBC.
Margverðlaunuð Michaela Coel í I May Destroy You. Hún hefur hlotið fjölda verðlauna
fyrir þættina og nú síðast Bafta-sjónvarpsverðlaunin þar sem verðlaunin voru fern.
Coel margverðlaunuð á Bafta-hátíð
Nýjar alþjóðlegar heimildar-
myndir verða sýndar á heimild-
armyndahátíðinni IceDocs sem
hefst 24. júní á Akranesi og lýkur
þann 27. Hátíðin verður nú haldin í
þriðja sinn og fyrr en hin síðustu
ár, í júní í stað júlí. Auk sýninga á
heimildarmyndum verður boðið
upp á ýmsa viðburði sem fjallað
verður um síðar.
Nú liggur fyrir hvaða myndir
verða sýndar þótt einhverjar eigi
eftir að bætast við dagskrána. Þær
sem staðfestar hafa verið eru eft-
irfarandi:
Gunda eftir Viktor Kossakovski
fjallar um gyltuna Gundu og segir
í tilkynningu að myndin hafi fengið
mikil viðbrögð og þyki mikilvægt
innlegg í vegan-umræðuna. Hefur
leikarinn Joaquin Phoenix m.a.
vakið athygli á henni.
President frá Danmörku er eftir
Camillu Nielsen og vann til verð-
launa á Sundance-hátíðinni fyrr á
árinu. Hún fjallar um forsetakosn-
ingar í Zimbabve og hefur hlotið
mikið lof.
The Wall of Shadows frá Pól-
landi er eftir Elizu Kubarska og
Moniku Braid. Er hún í tilkynn-
ingu sögð áhrifamikil mynd um
pólska fjallagarpa sem fá sherpa
sér til leiðsagnar í göngu upp á
heilagt fjall.
Adolescentes frá Frakklandi er
eftir Sébastien Lifshitz og var val-
in besta heimildarmyndin á César-
verðlaununum frönsku í ár. Hún
fjallar um samband tveggja ung-
lingsstúlkna af ólíkum uppruna og
fylgir lífi þeirra eftir í nokkur ár.
Lost Boys frá Finnlandi er eftir
Sadri Cetinkaya og Joonas Neuv-
onen og ein tekjuhæsta heimildar-
mynd allra tíma í Finnlandi. Hún
segir af nokkrum körlum sem fara
í ferðalag um Kambódíu sem ein-
kennist af taumlausri eiturlyfja-
notkun og samneyti við vændis-
konur.
Croc of Gold: A few rounds with
Shane McGowan eftir Julien
Temple er framleidd af leikaranum
víðfræga Johnny Depp. Sögu tón-
listarmannsins Shanes McGowans
er fléttað saman við sögu Írlands
og sjálfstæðisbaráttu Norður-Íra,
segir í tilkynningu.
Fleiri heimildarmyndir hátíð-
arinnar verða kynntar á næstunni
og fara allar kvikmyndasýningar
fram í Bíóhöllinni á Akranesi og
viðburðir verða á fleiri stöðum,
m.a. í Akranesvita. Af einstökum
viðburðum má nefna tónleika með
hljómsveitinni Flott, GusGus og
DJ Sturlu Atlas.
Heimasíðu hátíðarinnar má
finna á slóðinni icedocs.is.
Svínssaga Úr heimildarmyndinni Gunda sem fjallar um samnefnda gyltu.
Lost Boys Eiturlyf og vændi í Kambódíu í finnsku myndinni Lost Boys.
Svín og Shane McGowan
- Dagskrá heimildarmyndahátíðarinnar IceDocs tekur á
sig mynd - Haldin á Akranesi í þriðja sinn 24.-27. júní
Rithöfundurinn
Andri Snær
Magnason hlýtur
hin virtu ítölsku
verðlaun Tiziano
Terzani Int-
ernational Liter-
ary Prize fyrir
bók sína Um
tímann og vatn-
ið. Í umsögn
dómnefndar seg-
ir m.a. að Andri Snær minni okkur
mannfólkið á að líf okkar og til-
vera sé náttúrunni háð og hún
biðji okkur að fylgja sínum takti.
„Um tímann og vatnið er neyð-
arkall til heimsbyggðarinnar,
skrifað á auðskilinn, áhrifaríkan
og nákvæman hátt sem dýpkar
skilning okkar á stærð vandamáls-
ins,“ segir þar meðal annars um
bókina sem á ítölsku ber titilinn Il
tempo e l’acqua. Bókin kom út á
Ítalíu í fyrra í þýðingu Silviu
Cosimini og hefur notið mikilla
vinsælda þar í landi, að því er seg-
ir í tilkynningu. Terzani-verðlaun-
in voru fyrst afhent árið 2004 og
heiðra minningu ítalska blaða-
mannsins og rithöfundarins Tizi-
ano Terzani sem var þekktur fyrir
alþjóðlegt sjónarhorn sitt og
ferðasögur sem hafa selst í millj-
ónum eintaka um allan heim.
Verðlaunin verða afhent í byrjun
júlí á Vicino/Lontano-hátíðinni í
Udine.
Andri Snær hlýtur Terzani-verðlaunin
Andri Snær
Magnason