Morgunblaðið - 09.06.2021, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 09.06.2021, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. JÚNÍ 2021 Umræður á Alþingi í gærsýndu glöggt að farið er að styttast í kosningar. Hver þing- maður stjórnarandstöðunnar af öðrum fór í ræðustól og flestir spurðu forsætisráðherra spurn- inga sem þeir töldu að yrðu til vand- ræða fyrir VG fyrir kosningar. Hálend- isþjóðgarðurinn svokallaði er eitt þessara mála og var sótt að for- sætisráðherra úr báðum áttum vegna hans og var það viðbúið með það vandræða- mál. - - - Annað mál sem var athygl-isverðara og forsætisráð- herra var spurð um í tvígang er svokallað stjórnarskrármál. Þar sameinuðust Viðreisn og Píratar – og fetuðu í fótspor formanns Sam- fylkingarinnar um liðna helgi – um að sækja að forsætisráðherra fyrir að gera ekki nóg í því máli að þeirra mati. - - - Nú eru allra síðustu dagarþingsins og ýmislegt sem þarf að afgreiða á skömmum tíma. Svo kemur sumarið, þá kosningar. Augljóst er að engar forsendur eru til að afgreiða breytingar á stjórnarskrá svo vit sé í. Og engin ástæða. - - - Fyrir liggur að sá ákafi sem erí þessum þremur óláns- flokkum, Samfylkingu, Pírötum og Viðreisn, að umbylta stjórnar- skránni er lítið annað en popúl- ismi og þráhyggja frá því að van- hugsuð umræða og vinna af þessu tagi fór hér fram á árunum 2009- 2013. - - - Öll þau áform reyndust illa unn-in og vinstristjónin fékk mik- inn skell þegar hún var kvödd. Er ekki mál að þessu linni? Katrín Jakobsdóttir Mál að linni STAKSTEINAR Umferð ökutækja á hringveginum jókst verulega í seinasta mánuði eða um 8,4% miðað við sama mánuð fyrir ári. Svipaða sögu er að segja af um- ferðinni á höfuðborgarsvæðinu sem jókst um átta prósent í maímánuði en í sama mánuði í fyrra dróst um- ferðin saman um 9,5% í fyrstu bylgju faraldurs kórónuveirunnar. Í frétt á vef Vegagerðarinnar er bent á að útlit sé fyrir að yfir allt þetta ár gæti umferðin á hringveg- inum aukist um átta prósent miðað við síðasta ár en umferðin yrði þó engu að síður um sex prósentum minni í ár en á árinu 2019, sem var metár í umferðinni. Á höfuðborgarsvæðinu hefur um- ferðin aukist það sem af er þessu ári um tíu prósent. Er útlit fyrir að yfir allt árið muni umferðin aukast um 8,5% að mati sérfræðinga Vegagerð- arinnar en verði engu að síður 2,5% minni en hún var á árinu 2019. Á hringveginum jókst umferðin í maí mest yfir umferðarteljara á Austurlandi um rúm 23%, en í fyrra varð þar tæplega 40% samdráttur í sama mánuði. Minnst jókst umferð yfir lykiltelj- ara á og í grennd við höfuðborgar- svæðið eða um 5%. Af einstökum stöðum jókst umferð mest á Mýr- dalssandi, um rúm 50%. Umferðin jókst verulega í maí - Ekki er talið að umferðin yfir allt árið nái að slá út metumferðina 2019 Morgunblaðið/Sigurður Bogi Bílar Umferðin jókst um 8% á höf- uðborgarsvæðinu í maímánuði. Tafir hafa orðið á því að þjónusta Símans verði aðgengileg á ljósleið- ara Gagnaveitu Reykjavíkur en samkomulag þess efnis var kynnt í júlí í fyrra. Fyrirtækin sömdu um að Síminn leigi aðgang að ljósleiðara- kerfi Gagnaveitunnar og við það tækifæri var boðað að vinna við tæknilegan undirbúning þessa væri hafin en þjónusta Símans yrði að- gengileg á ljósleiðara GR í byrjun þessa árs. „Innleiðingin við að koma okkur inn á kerfi GR hefur tafist en nú er verið að vinna í því fullum fetum. Áætlað er að Síminn fari inn á kerfi GR á þriðja ársfjórðungi 2021,“ seg- ir Guðmundur Jóhannsson, sam- skiptafulltrúi Símans. „Heimsfaraldur og forgangsröðun verkefna hefur haft hvað mest að segja um þessa seinkun, en einnig að innleiðingin er tæknilega flókin og tíma tók að greina verkefnið í þaula svo hún verði sem best úr garði gerð,“ segir Guðmundur enn frem- ur. Þegar samningurinn var kynntur í júlí í fyrra kom fram í máli Erlings Freys Guðmundssonar, fram- kvæmdastjóra Gagnaveitu Reykja- víkur, að ljósleiðarakerfi fyrir- tækisins myndi ná til 107 þúsund heimila í lok síðasta árs. Ekki þarf því að fjölyrða um að það geti gagnast mörgum neytendum að geta haft val um ljósleiðara. Orri Hauks- son, forstjóri Símans, sagði að samn- ingurinn væri gleðiefni fyrir neyt- endur. „Hið víðfeðma ljósleiðaranet GR er það stærsta sinnar tegundar á Íslandi og hefur verið það eina sem við höfum ekki nýtt til að sinna við- skiptavinum okkar með beinum hætti.“ hdm@mbl.is Síminn fer inn á kerfi GR í haust - Ljósleiðari sem nær til 107 þúsund heimila á Íslandi Morgunblaðið/Ómar Þétt net Ljósleiðari Gagnaveit- unnar nær til 107 þúsund heimila. Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.