Morgunblaðið - 09.06.2021, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 09.06.2021, Blaðsíða 21
skála í tilefni tímamótanna, en ekki hvað? Svo lofa ég vinum mín- um sumarpartíi þar sem við mun- um fagna lífinu með stæl.“ Fjölskylda Eiginmaður Hönnu er Halldór Bachmann, f. 29.3. 1965, kynning- arstjóri hjá Almenna lífeyris- sjóðnum. Þau búa við Nesveg í Vesturbæ Reykjavíkur og hafa átt heima þar í yfir 20 ár. Foreldrar Halldórs voru Anna Guðmunds- dóttir Bachmann, f. 1.1. 1930, d. 17.5. 2009, húsmóðir, saumakona og verslunarkona, og Halldór Bachmann, f. 2.10. 1921, d. 10.4. 2000, vélsmiður og járnsmiður. Þau gengu í hjónaband 16.12. 1950. Börn Hönnu og Halldórs eru 1) Hrannar Halldórsson Bachmann, f. 17.2. 1996, nemi á mennta- vísindasviði Háskóla Íslands í dip- lómanámi fyrir fólk með þroska- hömlun, býr í foreldrahúsum; 2) Breki Halldórsson Bachmann, f. 24.5. 2003, nemi að hefja þriðja ár á náttúrufræðibraut í Mennta- skólanum við Hamrahlíð, býr í for- eldrahúsum. Fyrir átti Halldór soninn Fannar Halldórsson Bach- mann, f. 6.6. 1989, d. 22.10. 1989, móðir: Kristbjörg Magnúsdóttir. Systkini Hönnu eru Sigurður Narfi Birgisson, f. 8.1. 1973, hrossabóndi, tamningamaður og reiðkennari í Sichelnstein í Þýska- landi, og Þóra Margrét Birgis- dóttir, f. 23.4. 1977, aðstoðar- skólastjóri í Grunnskólanum í Stykkishólmi og einn af eigendum Skúrsins í Stykkishólmi. Foreldrar Hönnu eru Ágústa Þóra Kristjánsdóttir, f. 6.11. 1946, ljósmóðir og Birgir J. Sigurðsson, f. 10.11. 1947, húsgagnabólstrari og starfsmaður í íþróttamiðstöð- inni í Mosfellsbæ. Þau búa í Graf- arvogi í Reykjavík. Þau eru gift og hafa verið það frá því á annan í jólum 1970. Hanna Guðbjörg Birgisdóttir Jakob Narfason sjómaður í Mosfellssveit Etilríður Marta Hjaltadóttir húsmóðir í Mosfellssveit Sigurður Narfi Jakobsson, bústjóri hjá Stefáni Þorlákssyni í Reykjadal, ýtukarl og frístundabóndi í Reykjadal Guðbjörg Sigurjónsdóttir húsmóðir í Reykjadal í Mosfellsdal Birgir Jakob Sigurðsson húsgagnabólstrari og starfsmaður í íþróttamiðstöðinni í Mosfellsbæ, býr í Reykjavík Sigurjón Guðjónsson bóndi í Kollsstaðagerði Guðlaug Þorsteinsdóttir húsmóðir í Kollsstaðagerði á Völlum, S-Múl. Kristófer Bjarni Jónsson sjómaður í Reykjavík Guðjónía Stígsdóttir húsmóðir og verkakona í Reykjavík Kristján Björgvin Kristófersson bifvélavirki í Mosfellsbæ Hanna Andersen húsmóðir í Mosfellsbæ Harald Osvald Andersen klæðskeri í Reykjavík Ágústa Guðmundsdóttir Andersen húsmóðir í Reykjavík Úr frændgarði Hönnu Guðbjargar Birgisdóttur Ágústa Þóra Kristjánsdóttir ljósmóðir í Reykjavík DÆGRADVÖL 21 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. JÚNÍ 2021 „NÚ SÉ ÉG EFTIR ÞVÍ AÐ HAFA SKITIÐ Á BÍLINN ÞINN.“ „ER ÞAÐ RÉTT SEM ÉG HEF HEYRT AÐ ÞÚ VILJIR AÐ STARFSMENN TALI TÆPITUNGULAUST, STÓRNEFUR?“ Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að finna sitt innra skáld. Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann ERTU TIL Í AÐ FARA? ERTU MEÐ AÐGANGSORÐIÐ AÐ NETINU? ARI SÓÐI! ÉG HEF EKKI SÉÐ ÞIGÓRALENGI! HVAR HEFURÐU VERIÐ? Í VARÐHALDI Í DÝFLISSUNNI Í KASTALANUM… ALLT ÞAR TIL HEILBRIGÐISEFTIRLITIÐ LOKAÐI HENNI VEGNAÓVIÐUNANDI HREINLÆTIS! Sveitungi ritunnar“ er ljóð semAnton Helgi Jónsson orti á sjó- mannadaginn og birti á Boðnarmiði: Hann þekktur var meðal þjóðar sem þöguli sjóarinn og ræddi í róðrum gjarnan við rituna, fuglinn sinn. Hann vissi að vænir draumar oft veiðast í huga manns; við rattið einn kóngur ríkti og ritan var drottning hans. Hann lifir þótt lítt hann sjáist, hann lendir í engri vör, er róinn á regindjúpið og ritan hans með í för. Á föstudag orti Hallmundur Guð- mundsson „Snemmsumarljóð“: Ég ilm í mínum nösum nem, næstum öðrum betri. Ilminn skópu skepnur sem, skitu á liðnum vetri. Hér er limra eftir Sigrúnu Har- aldsdóttur: Í morgun var Einar með Einari (sem er endemis gunga og kveinari) að braska úti á Klöpp en braut á sér löpp, nú böðlast hann Einar á einari. Björn Ingólfsson skrifar: „Hér áð- ur fyrr þegar ég var leiðsögumaður með gönguhópum í Fjörðum og á Látraströnd gerðist það einhvern tíma að tvær konur fóru að dragast aftur úr og kvörtuðu yfir því hvað ég væri skreflangur. Ég orti handa þeim stef sem þær gætu sungið sér til hugarhægðar undir laginu „Hann var sjómaður dáðadrengur“, ef þetta gerðist aftur“: Þarna er leiðsögumaðurinn ljóti, mig langar að kasta í hann spjóti. Ef verð ég of sein þá vel ég mér stein og hendi í helvítið grjóti. Guðmundur Arnfinnsson orti á laugardag og kallar „Lágnætti“: Sumarnóttin sveipar jörð, sefur fugl á birkigrein, allt er hljótt um fjöll og fjörð, friðsæl þögnin ríkir ein. Hjörtu manna hægar slá, horfin dagsins þreyta burt, draumaværð á barnsins brá, blærinn strýkur dögg af jurt. Hér yrkir Guðmundur upp á „vestfirsku“: (Ferskeytt, áttþætt) Vind ég strangan fékk í fang fram á Langatanga, á hálu þangi hægði gang, hitti Svanga-Manga. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Ort á sjómannadaginn og snemmsumarljóð

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.