Morgunblaðið - 09.06.2021, Qupperneq 14
14
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. JÚNÍ 2021
Vetrarsól er umboðsaðili Sláttuvélar& sláttuorf
Snjóblásarar
Askalind 4 | Kópavogi | Sími 564 1864 | vetrarsol.is
Gulltryggð gæði
Sláttutraktorar
40 ár
á Íslandi
Af hverju er Sam-
fylkingunni svona illa
við Reykjavíkur-
flugvöll?
Allir vita að borgar-
fulltrúar Samfylking-
arinnar vilja flugvöll-
inn í burtu úr borginni,
en átti ekki flokkurinn
líka stuðningsmenn úti
á landi í síðustu kosn-
ingum? Mig minnir
það.
Í um 20 ár hefur Samfylkingin
barist fyrir því að loka Reykjavík-
urflugvelli. Aðalrökin hafa verið að
það brýnt sé að búa til lóðir fyrir
þjóðina, sem vill búa í Vatnsmýrinni.
Hin þjóðin, sem býr utan 101 og
Kvosarinnar, virðist ekki skipta
máli. Það er tómahljóð í röksemda-
færslunni.
Öllu skynsömu fólki er ljóst að
staðsetning Reykjavíkurflugvallar í
Vatnsmýrinni er afar ákjósanleg,
eiginlega að öllu leyti. Þar er hann
öruggastur með tilliti til veðurs og
nálægð hans við þjóðarsjúkrahúsið
er einstök. Þetta er gagnlegt fyrir
landsmenn alla, sem kunna að þurfa
að komast þangað þegar líf liggur
við. Það þekkja því miður margir.
Höfuðborgin dregur til sín meira
og minna alla sérfræðilækna þjóð-
arinnar og fólk á landsbyggðinni
þarf þjónustu þeirra eins og borg-
arbúar og tími fólks úti á landi er
dýrmætur, ekkert síður en höfuð-
borgarbúa. Stór hluti þjónustu í
landinu og nánast öll stjórnsýsla
þjóðarinnar er í Reykjavík; aragrúi
stofnana og opinberra embætta, sem
landsmenn allir þurfa að eiga jafnan
aðgang að. Þar á meðal eru Land-
helgisgæslan og al-
mannavarnir, sem hafa
miðstöðvar sínar við
flugvöllinn.
Það vekur svo aðra
spurningu:
Hvers vegna er óvíst
um athafnasvæði fyrir
Landhelgisgæsluna?
Um árið seldi ráð-
herra Samfylking-
arinnar borgarstjóra
Samfylkingarinnar
land í Skerjafirði fyrir
smánarpening. Landið
er innan girðingar flugvallarins og
þar er viðkvæm, og reyndar einstök
strandlengja. En tilgangurinn helg-
ar meðalið og ekkert skal til sparað
við að þrengja svo að flugvellinum að
hann verði í lokin illnothæfur.
Eftir að Valsmönnum var tryggð-
ur byggingarréttur austan megin
vallarins, á Hlíðarenda, er aðeins
eitt svæði eftir sem getur tryggt
Landhelgisgæslunni, sjúkraflugi og
almannaflugi landsmanna athafna-
svæði til frambúðar. Það er suðvest-
urhluti neyðarbrautarinnar, sem bú-
ið er að eyðileggja.
Er Samfylkingunni
(og Viðreisn) líka illa
við Landhelgisgæsluna?
Í umræðum um lokun flugvallar í
Vatnsmýri hefur meirihluti Sam-
fylkingarinnar falið sig á bak við
hugmyndir um að flytja völlinn í
Hvassahraun. Sú hugmynd ætti nú
að vera endanlega úr sögunni vegna
eldsumbrotanna, sem allir lands-
menn fylgjast með.
Nú síðast kom fram í fjölmiðlum,
að dómsmálaráðuneytið hafi óskað
eftir því bréfleiðis fyrir þremur ár-
um, í júlí 2018, að Landhelgisgæsl-
unni yrði tryggt athafnasvæði á
Reykjavíkurflugvelli. Pawel Við-
reisnarfulltrúi virðist samt sem áður
þeirrar skoðunar að til framtíðar
verði Gæslan best sett á elds-
umbrotasvæði í Hvassahrauni.
Hvar er ríkisstjórn
Íslands og Alþingi?
Það yrði óafturkræft skemmd-
arverk, sem erfitt er að meta til fjár,
ef suðvesturendi neyðarbrautar-
innar verður lagður undir gæluverk-
efni Samfylkingarinnar í borginni.
Landhelgisgæslan, almannavarnir
og almannaflug á landinu eiga ský-
lausa kröfu til þess að ríkisstjórn Ís-
lands og Alþingi stöðvi það óheilla-
verk.
Ömurlegt afturhald
Það er svo reyndar grátbroslegt
að fyrirætlanir Samfylkingarmeiri-
hlutans í borginni taka ekkert mið af
því að með tilkomu rafmagns-
flugvéla verður bylting gengin yfir
innan örfárra ára, sem mun breyta
viðhorfum til flugvalla, ekki síður en
flugs. Það þarf fólk með framsýni að
leiðarljósi til að taka ákvarðanir fyr-
ir framtíðina, en ekki forpokað aft-
urhald, því áður en við er litið verður
flugið orðið umhverfisvænsti ferða-
mátinn.
Samfylkingin og Landhelgisgæslan
Eftir Friðrik
Pálsson » Pawel Viðreisnar-
fulltrúi virðist samt
sem áður þeirrar skoð-
unar að til framtíðar
verði Gæslan best sett á
eldsumbrotasvæði í
Hvassahrauni.
Friðrik Pálsson
Höfundur er áhugamaður um öryggi
landsmanna og rafmagnsflug.
Því ber að fagna
þegar ungt og kraft-
mikið fólk gefur kost
á sér í stjórnmálin.
Framundan er próf-
kjör Sjálfstæðis-
flokksins í Suðvest-
urkjördæmi og er
mikilvægt að á
listann veljist öflugur
hópur frambjóðenda
með fjölbreytta
reynslu að baki og á
ýmsum aldri. Guðbjörg Oddný
Jónasdóttir, varabæjarfulltrúi í
Hafnarfirði, býður sig fram í
fyrsta sinn til Alþingis. Hún er
ung fjölskyldukona sem á und-
anförnum árum hefur getið sér
gott orð fyrir dugnað og skýra
framtíðarsýn í störfum sínum fyrir
heimabæinn sinn Hafnarfjörð. Þar
hefur hún verið fulltrúi Sjálfstæð-
isflokksins í fræðslu- og fjöl-
skylduráði, íþrótta- og tómstunda-
nefnd, stjórn Markaðsstofu
Hafnarfjarðar og gegnir nú for-
mennsku í menningar- og ferða-
málanefnd.
Það er styrkur fyrir Sjálfstæð-
isflokkinn að ung og skelegg kona
eins og Guðbjörg Oddný, sem hef-
ur hugrekki til að taka slaginn,
bjóði sig fram í prófkjöri flokksins
í Suðvesturkjördæmi. Hún setur á
oddinn málefni fjölskyldunnar og
er ég því sammála að rödd fjöl-
skyldufólks megi vera skýrari og
markvissari á hinu háa Alþingi. Ég
treysti Guðbjörgu Oddnýju mjög
vel til að vera þessi
rödd og standa vörð
um þau mikilvægu og
fjölbreyttu mál. Fjöl-
skyldan og börnin eru
framtíðin og líklega
aldrei verið mikilvæg-
ara að hlúð sé vel að
þeim, að reynt verði
að einfalda líf fjöl-
skyldufólks og skapa
aðstæður þar sem best
er að búa og starfa.
Guðbjörg Oddný hefur
þessa hugsjón og
byggir hugmyndir sína og stefnu á
grunngildum sjálfstæðisstefnunnar
sem gengur út á frelsi ein-
staklingsins og að allir fái að njóta
sín á eigin forsendum. Ég veit að
hún hefur náð vel til yngri kjós-
enda flokksins og mun gera það
áfram þegar kosið verður til Al-
þingis í haust. Því styð ég Guð-
björgu Oddnýju í 4. sætið.
Styðjum Guðbjörgu
á Alþingi
Eftir Magnús
Gunnarsson
Magnús
Gunnarsson
»Hún er ung fjöl-
skyldukona sem á
undanförnum árum hef-
ur getið sér gott orð fyr-
ir dugnað og skýra
framtíðarsýn í störfum
sínum fyrir heimabæinn
sinn.
Höfundur er fyrrverandi oddviti
Sjálfstæðisflokksins og bæjarstjóri í
Hafnarfirði.
magnus@haukar.is