Morgunblaðið - 09.06.2021, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 09.06.2021, Blaðsíða 15
UMRÆÐAN 15 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. JÚNÍ 2021 Vilhjálmur Bjarna- son, fyrrverandi bankaútibússtjóri, há- skólakennari og al- þingismaður, leitar nú að nýju eftir setu á Al- þingi Íslendinga. Hann biður um 3. sæti eða ofar á lista Sjálfstæðisflokksins í Suðvesturkjördæmi. Ég tel þetta þjóð- þrifamál, það er þörf á að fá Vilhjálm aftur á Alþingi. Vinnuþjarkur eins og hann hefur þar margt fram að færa og til að berjast fyrir. Í grein Vilhjálms í Morgunblaðinu 4. júní sl. koma fram nokkur skýr stefnumál hans og viðhorf, í anda sjálfstæðisstefnunnar. Ég treysti engum betur en honum, í góðu sam- starfi við aðra þing- menn Sjálfstæðis- flokksins, sem og aðra þingmenn samstarfs- flokka, til að fylgja mál- um eftir. Ég minnist áratuga samstarfs við Vilhjálm á sviði banka- og fjár- mála, og á sviði sjávar- útvegsins og íslensks atvinnulífs. Oftast var Vilhjálmur fyrstur til að sjá lausnir verkefna og vandamála og vinna þeim fylgi. Ég hafði bæði gagn og gaman af sam- skiptum og samvinnu okkar. Erlend- ir bankamenn voru mjög ánægðir eftir heimsóknir til hans í Vest- mannaeyjum, þar sem þeir sáu ís- lenskt atvinnulíf í hnotskurn undir leiðsögn Vilhjálms. Þær heimsóknir höfðu jafnvel áhrif á lánakjör ís- lenskra fyrirtækja! Og svo hefur Vilhjálmur sjaldgæf- an áhuga á menningu og listum! Er einhver annar frambjóðandi sem deilir þeim áhuga? Við þurfum Vilhjálm Bjarnason aftur á þing! Til þess þarf hann öruggt sæti á lista! Góð kosning í prófkjöri tryggir það! Í þriðja sæti eða ofar! Eftir Guðmund Gíslason Guðmundur Gíslason »Ég tel þetta þjóð- þrifamál, það er þörf á að fá Vilhjálm aftur á Alþingi. Höfundur var forstöðumaður erlendra viðskipta í Útvegsbanka Íslands. Til stuðnings við Vilhjálm Bjarnason Einstaklingar sem hætta sér út í eigin rekstur eru að mínu mati hetjur. Hetjur að því leytinu til að þeir veita öðrum atvinnu og öryggi. Með atvinnuöryggi er ég ekki að vísa bara til þess að þeim ber að greiða starfs- mönnum sínum sann- gjörn laun. Samhliða þessu greiða fyrirtæki einnig í mikilvæga sam- eiginlega sjóði, s.s. mótframlög í líf- eyrissjóði, tryggingargjald, veik- indadaga, laun á lögbundnum frídögum, sjúkratryggingar, upp- sagnarfrest og orlofsrétt. Við þetta vinnu-samband launamanns og at- vinnurekanda myndast skattar sem eru grundvöllur öflugs velferðar- og heilbrigðiskerfis. Sú óvissa sem stundum hefur verið uppi í íslensku samfélagi hef- ur reynst fyrirtækjum erfið. Það á því að vera frumskylda stjórnmála að veita þessum fyrirtækjum fyr- irsjáanleika í sínum rekstri. Það hefur verið miserfitt og má nefna í því sambandi eitt stykki bankahrun og núna seinna kórónufaraldurinn. Í tengslum við kófið vil ég hrósa ríkisstjórninni fyrir sínar aðgerðir undanfarið ár. Ég er sannfærð um að þau risastóru skref sem hafa verið tekin í faraldrinum hafa orðið til þess að færri fyrirtæki fóru í þrot og afkoma einstaklinga og fjöl- skyldna var vernduð. Fyrir þetta þakka ég, og sýnir okkur að það skiptir máli hverjir stjórna, það skiptir nefnilega mjög miklu máli. Mér hugnast ekki hugmyndafræði vinstrimanna, sem felur iðulega í sér hærri skatta og það furðulega viðhorf að fjármunir myndist í skúffum embættismanna en ekki með verðmætasköpun einka- framtaksins. Það er því oft þungbært að hlusta á ýmsar raddir og það jafn- vel innan verklýðsforystunnar að fyrirtækjaeigendur séu iðulega að reyna að svindla á starfsfólkinu frekar en skaffa því lífsviðurværi og öryggi. Vissulega eru svartir sauðir á ýmsum stöðum. Í miðjum faraldr- inum var einnig ákveð- ið að stytta vinnuvik- una. Það má vel vera að slíkt sé auðvelt á ákveðnum vinnustöðum og þá helst hjá ríkis- stofnunum, sem ein- faldlega loka fyrr á daginn og veita þá okk- ur minni þjónustu, á meðan tekjur stofn- ananna, skattféð, drag- ast ekkert saman. En ég vil benda á að fyrir lítil þjónustufyrirtæki sem hafa ein- göngu tekjur af útseldri vinnu er þetta ekki auðvelt og augljóslega hlýst af þessu aukakostnaður sem einhvers staðar þarf að mæta. Ég vil einnig nefna skattþrepin þrjú. Ungt fólk, sem mögulega vill auka við sig vinnu, hikar við yfirvinnu þar sem það er ekki mikill hvati að vinna meira og fara yfir í viðmið hátekjuskattþreps, sem er um 980.000. Þar hækkar skattheimtan um u.þ.b. 10%, þar sem hátekju- skattur er 46,25%. Ég tel að í ljósi launaþróunar þurfi að breyta við- miðum skattþrepanna svo þau dragi ekki úr metnaði fólks að vinna sér inn hærri tekjur. Það er gífurlega mikilvægt að stjórnmálaflokkar taki afstöðu með atvinnulífinu en vinni ekki á móti því með endalausum skattahækk- unum og ófyrirsjáanleika. Að mínu mati tekur Sjálfstæðisflokkurinn, einn flokka, þessa skýru afstöðu, þar sem fólkið innan hans skilur að án öflugs atvinnustigs er enginn grundvöllur fyrir góðu velferðar- kerfi. Hetjur í atvinnulífinu Eftir Karen Elísabetu Halldórsdóttur Karen Elísabet Halldórsdóttir » Það er gífurlega mik- ilvægt að stjórn- málaflokkar taki afstöðu með atvinnulífinu en vinni ekki á móti því með endalausum skatta- hækkunum og ófyrir- sjáanleika. Höfundur er frambjóðandi í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Suðvestur- kjördæmi. kareneha@gmail.com Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins hafa farið mikinn í fjölmiðlum að und- anförnu í tilraun til að sýna fram á að- haldsleysi í rekstri Svf. Árborgar. Fyrir tveimur vikum birtust slíkar greinar þeirra í Morgunblaðinu og í Dagskránni. Einnig birtist í Frétta- blaðinu frétt á sama veg, þar sem fréttamaður hafði verið mataður á röngum upplýsingum. Blaðamað- urinn birti afsökunarbeiðni í Frétta- blaðinu daginn eftir og baðst velvirð- ingar á því sem hann hafði eftir D-listamönnum í Árborg. Það er eitt að rita grein með röng- um upplýsingum og setja nafn sitt undir en allt annað að mata frétta- menn með ósannindum. Fréttamenn verða að fara með réttar upplýsingar en í greinum sínum geta greinarhöf- undar farið rangt með á eigin ábyrgð. Hér verður reynt að rétta af stað- reyndahalla D-listans og greiða úr óreiðu í málflutningi hans. Listin að gjaldfella sinn eigin málflutning Meðvitað eða ómeðvitað hafa bæj- arfulltrúar Sjálfstæðisflokksins beitt þeirri list ítrekað á þessu kjörtímabili að gjaldfella sinn eigin málflutning. D-listafólk fer hamförum í fjölmiðlum og segir óviðunandi að auka skuld- irnar, vegna fjárfestinga sem eru til- komnar vegna aukinnar þjónustu við þann fjölda fólks sem flutt hefur í sveitarfélagið undanfarin ár, fjárfest- ingar í íþróttahúsi, leikskóla og veitu- kerfum. Á sama tíma eru þau tilbúin til að skuldsetja sveitarfélagið upp á nærri hálfan milljarð fyrir bílastæða- hús í einkaframkvæmd. Höldum okkur við staðreyndir Hag- og upplýsingasvið Sambands íslenskra sveitarfélaga tekur ár hvert saman helstu þætti ársreikninga sveitarfélaga landsins. Þar kemur fram að 21 sveitarfélag er skuldsett- ara en Svf. Árborg ef litið er til skulda á hvern íbúa. Dæmi um sveitarfélög sem eru ofar á listanum eru Reykja- víkurborg, Hafnarfjörður, Akureyri, Fjarðabyggð og Hveragerðisbær. Þrátt fyrir fordæmalausar fjárfest- ingar í innviðum eru skuldir Árborg- ar í dag svipaðar og árið 2015. Skuldir sveitarfélaga landsins hafa almennt hækkað töluvert á milli ár- anna 2019 og 2020 vegna áhrifa kór- ónuveirunnar. Hjá Svf. Árborg er skuldaaukningin hinsvegar að mestu tilkomin vegna nauðsynlegra fjárfest- inga og er aukning skuldanna nánast á pari við aukningu eigna í íþrótta- húsi, leikskóla og veitukerfum. Það er beinlínis villandi framsetn- ing hjá bæjarfulltrúum Sjálfstæð- isflokksins að setja fram tölur og ha- laklippt súlurit sem sýna aukningu í tekjum, skuldum og stöðugildum án þess að taka tillit til íbúafjölda. Fæst- um dettur í hug að bera 8.000 manna sveitarfélag saman við 10.000 manna sveitarfélag án tillits til íbúafjölda. Hag- og upplýsingadeild Sam- bands íslenskra sveitarfélaga hefur nýverið lýst miklum áhyggjum af því hve mikið fjárfestingar sveitarfélaga drógust saman á síðasta ári. Það er þeirra mat að miðað við stöðuna í þjóðarbúskapnum hefði verið nauð- synlegt að bæta verulega í fjárfest- ingar. Ef öll sveitarfélög hefðu árið 2020 verið rekin á þann hátt sem minnihlutinn í Árborg hefur viljað gera þá væri enn þyngra hljóðið í Sambandi íslenskra sveitarfélaga og fjármálaráðherra landsins sem talaði fyrir hinu gagnstæða allt síðastliðið ár. Með virðingu og vinsemd Það væri óskandi að bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins hættu að þyrla upp svo miklu ryki að byrgir þeim sjálfum sýn. Við, bæjarfulltrúar meirihlutans í Svf. Árborg, setjum hér fram þá ósk að þeir hætti að bera fram rangar og villandi upplýsingar um málefni sveitarfélagsins, á lands- vísu og innan sveitarfélags. Slíkt er ekki sveitarfélaginu eða íbúum þess til gagns og tæplega D-listanum held- ur, þegar upp er staðið. Tölum um staðreyndir og förum rétt með Eftir Örnu Íri Gunnarsdóttur, S-lista, Eggert Val Guðmundsson, S-lista, Helga S. Haraldsson, B-lista, Sigurjón Vídalín Guð- mundsson, Á-lista og Tómas Ellert Tómasson, M-lista. » Það er eitt að rita grein með röngum upplýsingum og setja nafn sitt undir en allt annað að mata frétta- menn með ósannindum. Tómas Ellert Tómasson Höfundar eru bæjarfulltrúar í Sveit- arfélaginu Árborg. Eggert Valur Guðmundsson Helgi S. Haraldsson Sigurjón Vídalín Guðmundsson Arna Ír Gunnarsdóttir Aldursdreifing ís- lenskrar þjóðar hefur breyst mikið á síðustu áratugum. Fæðingum fækkað og meðalald- urinn hækkað. Um 30% kjósenda eru kom- in yfir sextugt eða 75.000 manns. Margir telja að þessi hópur sé bæði orðinn of stór og þurftafrekur. Krafa samtímans er að aldraðir séu lítt sýnilegir. Fólk á að hætta sem fyrst að vinna, flytja í elliblokk og skipta veraldlegum eigum sínum milli erf- ingjanna. Rosknir borgarar þekkja vel spurningar eins og: „Ertu enn að vinna?“ „Ertu enn að ferðast?“ „Ertu ennþá lifandi?“ Áhrif þessa stóra hóps eru fremur lítil. Sárafáir ellilífeyrisþegar eru í framboði í komandi kosningum og enginn í öruggu sæti. Flokkarnir vilja að gamla fólkið kjósi en láti að öðru leyti sem minnst fyrir sér fara. Enginn skyldi þó efast um andlegt og líkamlegt atgervi gamals fólks. Sighvatur Sturluson barðist vel og drengi- lega á Örlygsstöðum ásamt nokkrum ellilíf- eyrisþegum úr Dala- sýslu 1238. Egill Skalla- grímsson orti Sonar- torrek orðinn vel aldurhniginn. Jón Ara- son fór í herför á Suður- land í ellinni til að berja á lúterstrúarmönnum. Bergþóra Skarphéð- insdóttir hvatti syni sína til mannvíga þótt hún væri nokkuð við aldur. Ekkert þessara höfðingja hefði náð inn á framboðslista stjórnmálaflokkanna þar sem eitt helsta kosningaslagorðið er „kjósum framtíðina“ þótt hún sé jafn ófyrirsjáanleg og gosvirknin á Reykjanesi. Það er mér mikil ánægja að Vil- hjálmur Bjarnason viðskiptafræð- ingur skuli gefa kost á sér til þing- setu í komandi kosningum. Vilhjálmur þekkir vel kjör aldraðra og er djarfur og óhræddur baráttu- maður. Hann hefur alltaf þorað með- an aðrir þögðu. Sveinn frá Elivogum flutti eitt sinn húnvetnskum stórbónda þessa vísu: Ættarsvip af Agli ber’ann orðaleikni Grettis sterka. Spaki Njáll í anda er’ann Ólafur pá til rausnarverka. Ég ætla mér ekki að snúa þessu oflofi upp á Vilhjálm en enginn fram- bjóðenda í Suðvesturkjördæminu kemst nær þessari mannlýsingu en einmitt hann. Vilhjálmur þekkir alla- vega þessa ellilífeyrisþega sem ort er um. Ég vil hvetja sjálfstæðismenn til að kjósa Vilhjálm í öruggt sæti í komandi prófkjöri og sérstaklega eldri borgara. Okkur veitir ekki af að eiga öflugan málsvara eins og Vil- hjálm á þingi. Eftir Óttar Guðmundsson »Ég vil hvetja sjálf- stæðismenn til að kjósa Vilhjálm í öruggt sæti í komandi prófkjöri og sérstaklega eldri borgara. Óttar Guðmundsson Höfundur er læknir og rithöfundur. Til stuðnings Vilhjálmi Bjarnasyni

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.