Morgunblaðið - 09.06.2021, Page 16
16 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. JÚNÍ 2021
✝
Sigríður F.
Jónsdóttir
fæddist á Flateyri
við Önundarfjörð
27. maí 1937. Hún
lést á Land-
spítalanum 27. maí
2021.
Foreldrar Sig-
ríðar voru Jón
Ólafur Kristjánsson
skipstjóri, fæddur á
Alviðru í Dýrafirði
1876, d. 1966, og Arnfríður Lára
Álfsdóttir, fædd í Hjarðardal
ytri í Önundarfirði 1896, d.
1980. Jón og Arnfríður eign-
uðust þrjú börn; Guðrúnu Mar-
íu, f. 1933, d. 1957, Sigríði og
tvíburabróður hennar Stefán
Guðna, f. 1937. Systkini sam-
feðra eru: Kristjana Vigdís, f.
1904, d. 1984, og Gunnar Gils, f.
1910, d. 1979. Móðir þeirra og
fyrri kona Jóns var Guðrún
María Gilsdóttir. Systkini sam-
mæðra eru: Ebeneser, f. 1916, d.
1937, Sólveig, f. 1917, d. 1918,
Álfheiður, f. 1920, d. 2010, og
Arngrímur Vídalín, f. 1921, d.
2017. Faðir þeirra og fyrri mað-
ur Arnfríðar var Guðjón Jör-
undsson.
Árið 1956 giftist Sigríður
Guðna Albert Guðjónssyni
rennismíðameistara, f. 16. maí
úar 1958. Eiginmaður hennar er
Viðar Böðvarsson, f. 1951. Dótt-
ir þeirra er: a) Rakel, f. 1978. 3)
Arnfríður Lára, f. 5. júlí 1960.
Eiginmaður hennar er Svein-
björn Lárusson, f. 1959. Börn
þeirra eru: a) Vera, f. 1981. b)
Marta, f. 1988. c) Símon Guðni, f.
1995. 4) Kristín, f. 7. júní 1964.
Sonur hennar og manns hennar
Einars Vignis Sigurðssonar, f.
1964, er: a) Benedikt Leó, f.
2002. Börn Einars af fyrra sam-
bandi eru Valgerður Brynja, f.
1985, og Pálmar Dan, f. 1988. 5)
Jóna Björk, f. 31. mars 1967.
Börn hennar og eiginmanns
hennar Jóns Marinós Jónssonar,
f. 1964, eru: a) Sonja Sigríður, f.
1994, og b) Sölvi Steinn, f. 1997.
Að loknum barnaskóla á Flat-
eyri dvaldi Sigríður hjá Álfheiði
systur sinni á Ísafirði og stund-
aði nám við Gagnfræðaskóla
Ísafjarðar. Sigríður vann fram-
an af ævi ýmis hlutastörf á Suð-
ureyri og í Reykjavík, samhliða
barnauppeldi, en fór að fullu út
á vinnumarkaðinn upp úr fer-
tugu þegar dæturnar voru
komnar vel á legg. Hún starfaði
síðustu fimmtán ár starfs-
ævinnar í Landsbankanum og
þar áður í þjónustuÍbúðum aldr-
aðra á Dalbraut 27.
Útför Sigríðar verður gerð
frá Neskirkju í dag, 9. júní 2021,
og hefst athöfnin klukkan 13.
Slóð á streymi er:
www.skjaskot.is/sigridur/.
Virkan hlekk á streymið má
finna á:
www.mbl.is/andlat/.
1931, d. 21. febrúar
2013, frá Suðureyri
við Súgandafjörð.
Foreldrar hans
voru Rebekka
Kristín Guðnadótt-
ir, f. 1882, d. 1964,
og Guðjón Hall-
dórsson, f. 1881, d.
1960.
Sigríður kynntist
Guðna ung að árum
og fyrstu búskapar-
árin dvöldu þau í Reykjavík þar
sem hún stundaði nám í Hús-
mæðraskóla Reykjavíkur. Þau
voru búsett á Suðureyri 1958-
1966 en fluttust þá aftur til
Reykjavíkur. Þau bjuggu lengi á
Nesvegi 63 og frá 2011 á Sléttu-
vegi 29. Sigríður dvaldi tvö síð-
ustu æviárin á hjúkrunar-
heimilinu Seltjörn á Seltjarnar-
nesi.
Sigríður og Guðni eignuðust
fimm dætur. Þær eru: 1) Re-
bekka Kristín, f. 29. febrúar
1956. Eiginmaður hennar er
Anders Gundhus, f. 1956, og
eiga þau soninn b) Christoffer, f.
1992. Dóttir Rebekku af fyrra
hjónabandi er: a) Tinna Guð-
mundsdóttir, f. 1981. Börn And-
ersar af fyrra hjónabandi eru
Daniel, f. 1981, og Caroline, f.
1983. 2) Anna Ólafía, f. 19. jan-
Það er einkennilegt til þess að
hugsa að Sigríður tengdamóðir
mín hafi kvatt þetta tilverusvið.
Hún hefur verið hluti af lífi mínu
meiri hluta ævinnar, verið þátt-
takandi í gleði og sorg og haft
áhrif. Sigríður vildi hafa röð og
reglu á hlutunum og sagði stund-
um í gamansömum tón: „Nú er
þetta orðið eins og hjá fólki.“
Þegar hún bauð til veislu var
hvergi til sparað, veisluborðið
svignaði undan kræsingum og
tryggt var að enginn yfirgæfi
samkvæmið án þess að hafa feng-
ið sér tvisvar eða oftar á diskinn.
Hún hélt margar veislur fyrir
dætur sínar og eftirminnilegust
er brúðkaupsveislan okkar Önnu
sem haldin var á heimili hennar, á
Nesveginum, með þátttöku nán-
ustu fjölskyldu okkar beggja. Þar
var nóg af öllu en þar sem veiting-
arnar voru aðkeyptar treysti hún
því ekki að það yrði nóg og var því
að smyrja vestfirskar hveitikökur
skömmu áður en veislugestir
mættu á staðinn.
Undir yfirborði fyrirmyndar-
húsmóðurinnar leyndist bráð-
greind kona með frjóan hug og
framkvæmdavilja. Hún og Guðni,
eiginmaður hennar, tóku þá
ákvörðun að flytja frá Suðureyri
við Súgandafjörð meðan dæturn-
ar voru ungar, meðal annars til að
tryggja þeim góða menntun.
Flutningur milli landshluta hefur
örugglega verið stærra skref á
þessum tíma en hann er í dag og
ber vitnisburð um vilja til að
standa sig og tryggja sínu fólki
allt það besta.
Heimilið einkenndist af smekk-
vísi sem dætur hennar hafa allar
Sigríður Friðrikka
Jónsdóttir
✝
Oddhildur
Benedikta Guð-
björnsdóttir fædd-
ist 1. október 1937
að Felli í Kollafirði
í Strandarsýslu.
Hún lést á Land-
spítalanum Foss-
vogi þann 29. maí
2021
Foreldrar henn-
ar voru Guðbjörn
Benediktsson, f.
29.8. 1898, d. 20.5. 1990, og Guð-
rún Björnsdóttir, f. 9.4. 1906, d.
11.10. 1997.
Systur Oddhildar eru: 1) Ingi-
björg Þuríður, f. 20.7. 1928, d.
12.6. 2008, 2) Gerður Guðbjörns-
dóttir, f. 29.11. 1931, d. 2.2.
2020, 3) Ingveldur Gunnars
Guðbjörnsdóttir, f. 11.6. 1942.
Árið 1959 giftist Oddhildur
Sigurði G. Sigurðssyni, f. 1.12.
1937, d. 9.11. 2015.
Eignuðust þau
þrjár dætur. 1)
Dýrfinna Hrönn, f.
15.4. 1957. Maki
Oddur Theodór
Guðnason og dætur
þeirra eru Nína
Hildur, Rakel
María og Guðrún
Día. 2) Guðrún
Birna, f. 12.6. 1959.
Maki Kristján
Gunnar Pálsson. Börn þeirra
eru Sigurður Arnar, Páll Karel
og Ásthildur Anna. 3) Ingibjörg
Erla, f. 16.1. 1961. Börn hennar
eru Ásta Þórunn og Ingvar.
Barnabörn Oddhildar og Sig-
urðar eru átta talsins og lang-
ömmubörnin 21.
Útför hennar fer fram frá
Grafarvogskirkju í dag, 9. júní
2021, klukkan 13.
Nú kveðjum við yndislegu
mömmu okkar Oddu. Hún lést
laugardaginn 29. maí 2021.
Mamma var besta móðir sem
hægt var að hugsa sér. Hún var
vinnuþjarkur mikill, alltaf með
jafnaðargeð og sérstaklega ástrík,
bæði við börn og dýr. Þær voru
ófáar ferðirnar sem hún fór út í
náttúruna til að vera innan um
dýrin. Söngelsk var hún og spilaði
á gítar. Seinni árin fannst henni
ekkert skemmtilegra en að spila
fyrir börnin.
Mamma átti yndislega foreldra
og systur og var glatt á hjalla þeg-
ar þau hittust. Átti hún góðar og
traustar vinkonur. Hún var góður
kokkur og natin við allt sem hún
tók sér fyrir hendur. Alltaf vildi
hún allt fyrir okkur gera sem hún
gat en sagði stundum „spyrjið þið
pabba ykkar“. Það var erfiðara en
stundum kom já.
Flestalla laugardaga áttum við
góðar stundir með mömmu og
tókum til og hlustuðum á Óskalög
sjúklinga. Hún dekraði við okkur
á þessum dögum þegar hún átti frí
frá vinnu. Mamma bakaði og gaf
krökkunum í blokkinni á
Álfaskeiðinu nýbökuð vínar-
brauð út um eldhúsgluggann. Hún
kallaði okkur
ýmsum gælunöfnum, kallaði
okkur oft ljósin sín.
Árin eftir að pabbi dó urðum
við enn samrýndari og vildum við
allt fyrir hana gera. Við fórum
ýmsar ferðirnar með henni til út-
landa. En árið 2019 fórum við
systur og Oddur til Spánar því við
vissum að heilsu hennar var farið
að hraka eftir stóru hjartaað-
gerðina 2017. Það var yndislegur
tími þessi síðasta utanlandsferð
okkar.
Daginn fyrir andlátið átti hún
góðan dag, fór til kirkju og í skírn,
en svo kom kallið mjög óvænt.
Elsku mamma okkar, við munum
sakna þín og takk fyrir allt.
Ég sendi þér kæra kveðju,
nú komin er lífsins nótt.
Þig umvefji blessun og bænir,
ég bið að þú sofir rótt.
Þó svíði sorg mitt hjarta
þá sælt er að vita af því
þú laus ert úr veikinda viðjum,
þín veröld er björt á ný.
Ég þakka þau ár sem ég átti,
þá auðnu að hafa þig hér.
Og það er svo margs að minnast,
svo margt sem um hug minn fer.
Þó þú sért horfin úr heimi,
ég hitti þig ekki um hríð.
Þín minning er ljós sem lifir
og lýsir um ókomna tíð.
(Þórunn Sigurðardóttir)
Vertu nú yfir og allt um kring
með eilífri blessun þinni
sitji guðs englar saman í hring
sænginni yfir minni.
(Sigurður Jónsson frá Presthólum)
Þínar dætur,
Dýrfinna, Guðrún og
Ingibjörg.
Amma mín, nú er komið að
kveðjustund. Þó að þú værir búin
að eiga þín æviár þá átti ég ekki
von á því þegar ég kom með
mömmu og Matthildi Rósu til þín
vikuna fyrir andlátið að það yrði
síðasta skiptið sem ég fengi að
hitta þig. Mér þykir vænt um að
hafa getað átt þá stund með ykkur
og þú varst svo ánægð að sjá
minnstu skottuna mína sem lék á
als oddi eins og hún er vön. Við
kíktum á fuglana og löbbuðum um
og Matthildi Rósu fannst svo gam-
an að fá að sitja á göngugrindinni
hjá langömmu Oddu þegar við
gengum um gangana.
Ég á margar góðar minningar
sem ég geymi í hjartanu og ylja
mér við í framtíðinni. Þú varst svo
óendanlega góð kona og gerðir allt
fyrir alla og fjölskyldan var þér
svo mikilvæg. Þú varst svo stolt af
öllum börnunum þínum, barna-
börnunum og barnabarnabörnun-
um og varst dugleg að segja þeim
hvað þau eru yndisleg og dugleg.
Þegar ég var lítil var ég stund-
um hjá ykkur afa í Lækjarkinn-
inni og þú dansaðir í kringum mig
og lést allt eftir mér. Ég man svo
vel eftir því að við fórum í sól og
blíðu að skoða hestana saman og
eitt sinn ákvað ég að fara í gegn-
um rör með læknum sem þér leist
nú ekki á í fyrstu. En í gegnum
rörið fórum við og þér fannst svo
skondið að hugsa til þess að ég
hafi sko ekki ætlað að gefa mig.
Þegar við vorum að fara að sofa
fékk ég að sofa í þínu rúmi og þú
last fyrir mig úr bláu ljóðabókinni
þinni sem mér fannst svo notalegt.
Þú signdir mig líka alltaf og fórst
með bænirnar og það veitti mikið
öryggi og hlýju fyrir litla stelpu
sem vissi nú ekki alveg hvort það
væri til einhver Guð.
Þú talaðir alltaf svo fallega til
mín og okkar allra sem stóðum
þér næst. „Guð geymi þig dýrðin
mín“ man ég sérstaklega eftir að
hafa heyrt þig svo oft segja og
þykir svo vænt um þau orð. Þessi
setning hljómar í huga mér þessa
dagana og henni gleymi ég aldrei.
Ég veit að þú munt fylgja mér
og skottunum mínum fjórum og
passa upp á okkur eins og engl-
arnir í bæninni sem þú kenndir
mér amma mín.
Elsku amma Odda. Guð geymi
þig.
Þín
Nína Hildur.
Elsku amma Odda mín ég
minnist þín með hlýju og ást. Ég
trúi því að nú sértu búin að fá góða
hvíld og sért komin á góðan stað
hjá englunum.
Á svo góðar minningar með þér
amma mín úr Hafnarfirðinum.
Eins og allir vita þá voru allar
dætur þínar þrjár, Día, Gunna og
Imba, svo miklar mömmustelpur
og hittust svo oft hjá þér og afa í
Lækjarkinninni í Hafnarfirði
ásamt barnabörnunum þínum.
Þar man ég eftir að við tókum all-
ar saman slátur og einnig þótti
allri stórfjölskyldunni svo vænt
um jólaboðið góða sem þið afi
hélduð saman á hverju ári yfir há-
tíðirnar vel fram á efri ár. Man
hvað mér fannst íslensku sviðin
sem ég fékk bara hjá þér ótrúlega
góð. Þú varst svo mikil húsfreyja
og svo gestrisin og í rauninni allt
sem þú töfraðir fram var alveg
æðislegt, hvort sem það voru
heimalagaðar kótilettur (sem voru
þær bestu) eða karamellusósan
þín góða. Amma, þú ert konan
sem kynnti mig fyrir ljóðum og er
ég þér svo þakklát fyrir það. Man
þegar við vorum bara tvær saman
þegar ég var lítil stúlka, þá hélstu
á mér í fanginu og fórst með eitt af
uppáhaldsljóðunum þínum, „Kon-
an sem kyndir ofninn minn“. Oftar
en ekki féllu niður tár við ljóða-
lesturinn en við báðar erum mikl-
ar tilfinningaverur. Einnig þegar
við vorum bara tvær man ég eftir
að hafa gengið með þér með til-
hlökkun meðfram læknum og að
hesthúsunum í Hafnarfirði þar
sem við fórum með brauð til að
gefa hestunum, strjúka þeim og
tala við þá, þú varst svo mikill
dýravinur, elsku amma mín. Fyrir
vikið varð ég svo áhugasöm um
hesta að ég „vældi“ út úr foreldr-
um mínum tvö hestanámskeið fyr-
ir fermingaraldur. Á svo ótal-
margar góðar minningar með þér
sem ég er endalaust þakklát fyrir.
Takk elsku amma mín, elska
þig.
Hitti þig næst hjá englunum.
Þitt barnabarn,
Rakel María.
Oddhildur
Benedikta
Guðbjörnsdóttir
- Fleiri minningargreinar
um Oddhildi Benediktu Guð-
björnsdóttur bíða birtingar
og munu birtast í blaðinu
næstu daga.
✝
Sóley Ómars-
dóttir fæddist í
Reykjavík 8. júní
1969. Hún lést 1.
apríl 2021 á líknar-
deild í Stokkhólmi.
Foreldrar hennar
eru Ragnheiður M.
Blöndal, f. 9. mars
1943, og Ómar
Kjartansson, f. 22.
ágúst 1946.
Systkini Sóleyjar
eru: a) Róbert, f. 9. mars 1965,
sambýliskona hans er Anna Thor-
sell, f. 5. október 1964. Börn Ró-
berts eru Max Tindri, f. 18. des-
ember 2002, Simon, f. 22. febrúar
2006, og Miranda, f. 18. nóvember
2008. b) Saga, f. 8. desember
1973, eiginmaður hennar er Matt-
hías H. Johannessen, f. 6. desem-
ber 1973. Börn þeirra eru Har-
aldur, f. 10. mars 2004, Daníel, f.
10. mars 2004, Tómas, f. 17. maí
2007, og Eva, f. 23. apríl 2012. c)
Sturla, f. 8. desember 1973, eigin-
kona hans er Anna Hulda
Sigurðardóttir, f. 13. júní 1976.
Börn Önnu eru Salma Björk, f. 8.
2002, og Sara Kristín, f. 5. febr-
úar 2004.
Sóley fæddist í Reykjavík en
flutti ásamt fjölskyldu sinni til
Uppsala í Svíþjóð sjö ára gömul.
Fjölskyldan flutti aftur til Íslands
sex árum síðar. Sóley tók stúd-
entspróf frá Menntaskólanum í
Reykjavík árið 1989 og flutti þá
aftur til Svíþjóðar og bjó þar
þangað til hún hóf nám í lækn-
isfræði við Háskóla Íslands 1991.
Hún útskrifaðist með embættis-
próf í læknisfræði 1997 og byrj-
aði að vinna á Landspítalanum.
Að kandídatsárinu loknu flutti
hún ásamt Guðjóni og syni þeirra
til Svíþjóðar og hóf sérfræðinám
í barnalækningum við Karol-
inska spítalann í Stokkhólmi. Sól-
ey hlaut doktorsgráðu í barna-
lækningum 12. júní 2015 og vann
sem yfirlæknir á barnagigt-
ardeild Karolinska þar til hún lét
af störfum sökum veikinda.
Útför Sóleyjar fer fram frá
Silverdalskapellet í Sollentuna í
Stokkhólmi í dag, 9. júní 2021,
klukkan 10.30 að íslenskum tíma.
Athöfninni verður streymt á:
tinyurl.com/soley2021
Virkan hlekk á streymið má
finna á:
www.mbl.is/andlat
febrúar 1999, og
Grétar Víðir, f. 7.
júní 2001. d) Kjart-
an Már, f. 29. maí
1981, eiginkona
hans er Inga Maren
Rúnarsdóttir, f. 3.
mars 1983. Börn
þeirra eru Sóley, f.
24. janúar 2016, og
Edda, f. 11. apríl
2019.
Sóley giftist eig-
inmanni sínum, Guðjóni G. Kára-
syni, 27. júní 1998. Foreldrar
Guðjóns voru Sigríður Guðjóns-
dóttir, f. 3. mars 1940, d. 2. ágúst
2015, og Kári Steingrímsson, f. 4.
október 1941, d. 16. júní 2015.
Bróðir Guðjóns er Steingrímur
Kárason, f. 6. janúar 1968, eigin-
kona hans er Þórhildur Einars-
dóttir, f. 1. október 1966. Börn
þeirra eru Sonja, f. 8. mars 1999,
og Ragnhildur, f. 7. febrúar
2002.
Börn Sóleyjar og Guðjóns eru
Ómar Kári, f. 8. apríl 1998, sam-
býliskona hans er Sara Tanner, f.
10. maí 2000, Íris María, f. 1. júlí
Í örstutta stund á morgnana,
milli svefns og vöku, nær hug-
urinn að blekkja mig. Þá ertu
enn á lífi og allt er mögulegt. Þú
varst fjórum árum eldri og ég
leit svo upp til þín. Þú vissir svo
margt og alltaf hægt að fá ráð
hjá þér. Þegar ég kláraði grunn-
skólann var aldursmunurinn
milli okkar horfinn, þú varst
ekki bara systir mín heldur líka
besta vinkona mín. Þú ert það
enn. Við vorum saman í Svíþjóð í
tvö sumur þegar ég var í
menntaskóla, unnum þar og
skemmtum okkur, áttum okkar
ævintýri. Við lærðum saman, þú
fyrir clausus í læknisfræðinni og
ég fyrir jólapróf í MR. Þú skip-
aðir mér að læra allar sannan-
irnar fyrir stærðfræðina utan-
bókar. Hafðir mun meiri aga en
ég til að sitja við.
Okkur tókst framan af að búa
nálægt hvor annarri, fyrst í
miðbæ Reykjavíkur, síðar í
Lindahverfi Kópavogs. Við Matti
fluttum til Kaupmannahafnar og
þið Guðjón til Stokkhólms. Fjöl-
skyldurnar okkar stækkuðu. Á
sumrin komum við alltaf öll til
ykkar. Þetta var okkar tími.
Sundlaugin, trampólínið, litla
húsið í garðinum, Guðjón á grill-
inu og fullur frystir af ís. Þú átt-
ir allt í skápunum sem okkur
vantaði; bílstóla, meðferð við
kanínubiti, aukareiðhjól, með-
ferð við biti frá bróður, barna-
kerru, aukahjól, meðferð við
brenninetlu, leikföng fyrir alla
aldurshópa, dýr til að klappa,
bæði þín eigin og úr næstu hús-
um. Draumaheimur.
Fyrir fimm árum kom svo
skellurinn, ristilkrabbamein. Við
vorum öll sannfærð um að þetta
færi vel, þú sterk sem ljón. Þér
Sóley Ómarsdóttir
Lokað
Skrifstofa Foldar fasteignasölu er lokuð frá
hádegi í dag vegna útfarar
SIGRÍÐAR FRIÐRIKKU JÓNSDÓTTUR
Fold-fasteignasala
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
ODDNÝ EYJÓLFSDÓTTIR,
lést á hjúkrunarheimilinu Skjóli í Reykjavík
föstudaginn 28. maí. Útförin hefur farið fram
í kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Ólína Ágústa Jóhannesdóttir Kjartan Georg Gunnarsson
Jóhannes Ágúst Jóhanness.
Anna Margrét Jóhannesd. Högni Hróarsson
barnabörn og barnabarnabörn