Morgunblaðið - 09.06.2021, Side 20
skólastjóri Álftamýrarskóla. „Þar
starfa ég í hópi frábærra sam-
starfsmanna og nemenda sem hafa
þau áhrif að það er alltaf spenn-
mýrarskóla sem starfaði undir
nafni Háaleitisskóla þar til síðast-
liðið haust þegar skólarnir fengu
aftur sitt fyrra nafn og er hún nú
H
anna Guðbjörg Birg-
isdóttir er fædd 9.
júní 1971 á fæðing-
ardeild Landspít-
alans og bjó alla
sína bernsku í Mosfellssveit/bæ.
„Ég átti frábæra æsku í Mos-
fellssveit, amma og afi í föðurætt
bjuggu í Mosfellsdal sem er para-
dís á jörðu og þaðan á ég frábær-
ar bernskuminningar. Ég fékk að
prófa alls konar sem krakki, var í
ýmsum íþróttum, lærði á fiðlu, fór
í dansskóla, fimleika og djassball-
ett en var alls ekki nein afreks-
manneskja enda með eindæmum
metnaðarlaus fyrir slíku þegar á
reyndi, fannst hins vegar alltaf
skemmtilegt og naut mín vel í
hópi, fannst alltaf gaman alls stað-
ar, líka í skólanum.
Besti skóli bernskunnar var lík-
lega þátttaka í Leikfélagi Mos-
fellssveitar. Það var svo sem ekki
mikið fyrir unglinga að gera í
minni sveit ef þeir kunnu hvorki
handbolta né að blása í lúður. Í
leikfélaginu lærði maður ótrúlega
margt sem ég held að hafi gagnast
mér síðar í lífinu, maður efldist í
samskiptafærni, varð sveigjan-
legur, lærði að meta ólíkar þarfir
fólks, þjálfaðist í framkomu, tján-
ingu og sköpun. Líka í því að
halda geggjuð partý og fagna
góðu verki.“
Hanna gekk í Varmárskóla og
Gagnfræðaskólann í Mosfellsbæ.
Eftir grunnskóla fór hún í
Menntaskólann við Sund og síðan
í Kennaraháskóla Íslands, þaðan
útskrifaðist hún 1996. „Árið 2012
útskrifaðist ég svo með MA-gráðu
frá HÍ í menntunarfræðum með
áherslu á sérkennslufræði en ég
hafði þá einnig lagt stund á nám í
stjórnun menntastofnana við sömu
deild í HÍ.“
Hanna hóf kennslu við Vestur-
bæjarskóla haustið 1996 þar sem
hún starfaði til 2013, fyrst sem
umsjónarkennari, síðan deildar-
stjóri sérkennslu, aðstoðar-
skólastjóri og svo eitt ár sem
skólastjóri. Haustið 2013 var hún
svo ráðin sem skólastjóri yfir sam-
einaðan Hvassaleitis- og Álfta-
andi að vakna á morgnana og
mæta til vinnu.“
Hanna sat í nokkur ár í stjórn
Félags skólastjórnenda í Reykja-
vík og í fagráði Styrktarfélags
krabbameinssjúkra barna.
Hún var um tíma í hlaupahópi
KR en er núna komin á fullt í
golfið. „Ég var mjög lélegur
hlaupari, hljóp reyndar einu sinni
hálft maraþon en var mjög lengi
að því en mikið þótti mér alltaf
gaman að þessu og félagsskapur-
inn var frábær. Eftir að ég varð
mér úti um vottorð um getuleysi í
hlaupum hef ég stundað golf í
nokkur ár, það er algerlega frá-
bær íþrótt og loksins er ég hætt
að segja að ég sé léleg, ég er orð-
in efnileg. Við hjónin erum í Nes-
klúbbnum á Seltjarnarnesi og það
er algerlega frábært. Nú er maður
búinn að vera að hita sig upp fyrir
seinni hálfleik og ég mun koma
sterk til leiks.“
Hanna ætlar að sjálfsögðu að
gera vel við sig í tilefni stórafmæl-
isins. „Ég ætla að fá til mín vin-
konur sem ég hef kynnst í gegn-
um tíðina og aðrar konur sem mér
þykir vænt um og við ætlum að
Hanna Guðbjörg Birgisdóttir, skólastjóri Álftamýrarskóla – 50 ára
Stórfjölskyldan Foreldrar Hönnu, systkinin, makar og börn í Þýskalandi.
Kem sterk inn í seinni hálfleik
Hjónin Hanna og Halldór, alltaf kát.
Systkinin Þóra, Sigurður og Hanna fyrir utan heimili Sigurðar.
20 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. JÚNÍ 2021
70 ára Sveinn er
Skagamaður, fæddur
og uppalinn á Akranesi
og býr þar. Hann vann
til sjós og var útgerð-
arstjóri hjá Haraldi
Böðvarssyni í tæp 30
ár. Sveinn er fjárfestir
og hefur verið að leigja út iðnaðar-
húsnæði en er að minnka við sig.
Maki: Halldóra Friðriksdóttir, f. 1950,
tannsmiður.
Synir: Albert, f. 1969, og Sturlaugur
Friðrik, f. 1976. Barnabörnin eru sex og
eitt langafabarn, sem verður eins árs 17.
júní.
Foreldrar: Sturlaugur H. Böðvarsson, f.
1917, d. 1976, útgerðarmaður og Rann-
veig Böðvarsson, f. 1924, d. 2005, hús-
móðir. Þau voru búsett á Akranesi.
Sveinn
Sturlaugsson
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl ,
Hrútur Gættu þess að blanda þér ekki um
of í málefni annarra því það gæti orðið til
þess að þér yrði kennt um annarra mistök.
Ekki hætta við ferðalög á þeim forsendum
að þú getir farið seinna.
20. apríl - 20. maí +
Naut Það er hætt við að þú lendir í árekstr-
um í dag. Hafnaðu þeim boðum sem þú hef-
ur efni á að hafna og haltu ró þinni hvað sem
á dynur.
21. maí - 20. júní 6
Tvíburar Þótt þú sért gefinn fyrir einveru og
þína torfu máttu ekki loka á allt og alla í
kringum þig. Vertu óhrædd/ur við að segja
fólki að þér þyki vænt um það.
21. júní - 22. júlí 4
Krabbi Þér finnst samstarfsmenn þínir
halda aftur af þér og þig langar til þess að
slíta þig lausan. Notaðu tækifærið og komdu
þínum hjartans málum á framfæri.
23. júlí - 22. ágúst Z
Ljón Þú ættir að velta því fyrir þér hvað þú
getur gert til að bæta samband þitt við
maka þinn og nánustu vini.
23. ágúst - 22. sept. l
Meyja Gættu þess að lofa ekki upp í ermina
í ákafa þínum til þess að leggja vini lið. Ekki
þrasa um það hvernig á að deila einhverju
niður.
23. sept. - 22. okt. k
Vog Þótt nauðsynlegt sé að skoða mál frá
öllum hliðum kemur að því að ákvörðun
verður að taka. Reyndu að fá aðra til að sjá
þína hlið á málinu.
23. okt. - 21. nóv. j
Sporðdreki Ef samband á að haldast þurfa
báðir aðilar að leggja sig fram um að hlúa að
því. Nú er rétti tíminn til að ganga frá laus-
um endum.
22. nóv. - 21. des. h
Bogmaður Þú nýtur þess að vera til þessa
dagana því þú hefur hitt skemmtilegt fólk og
gert margt sem þú hefur ekki upplifað áður.
22. des. - 19. janúar @
Steingeit Gættu þess að lenda ekki í óþarfa
orðaskaki við vin þinn eða vandamann. Þú
munt sjá að misjafn sauður er í mörgu fé.
20. jan. - 18. febr. ?
Vatnsberi Láttu það ekki á þig fá, þótt sam-
skipti þín við suma séu ekki öll á blíðu nót-
unum. Gættu þess þó að gera ekki úlfalda úr
mýflugu.
19. feb. - 20. mars =
Fiskar Þig þyrstir í ævintýri og það er eins
gott því þú munt sannarlega fá nóg af þeim
á næstunni. Vertu sjálfum þér samkvæmur
og þá muntu uppskera laun erfiðis þíns.
30 ára Anna ólst upp
í Hafnarfirði og síðar á
Húsavík en flutti ný-
verið í Hafnarfjörð aft-
ur eftir þriggja ára bú-
setu í Þingeyjarsýslu.
Hún lærði í Noregi,
fyrst umhverfis- og
þróunarfræði og lauk síðan meistara-
gráðu í sérkennslufræðum frá Háskól-
anum í Ósló. Anna vinnur hjá Reykja-
nesbæ og þjónustar flóttafólk.
Maki: Ívar Örn Axelsson, f. 1987, málari
en er í fæðingarorlofi.
Börn: Mattías Inza, f. 2014, Elsa Katrín,
f. 2018, og Kári Björn, f. 2020.
Foreldrar: Sveinbjörn Sigurðsson, f.
1965, sjúkraþjálfari og Elsa Sigríður
Sveinbjörnsdóttir, f. 1961, iðjuþjálfi. Þau
eru búsett í Hafnarfirði.
Anna Sigríður
Sveinbjörnsdóttir
Til hamingju með daginn
Hafnarfjörður Kári Björn fæddist 9.
júní 2020 kl. 06.45. Hann vó 4.136 g
og var 52,5 cm langur. Foreldrar hans
eru Anna Sigríður Sveinbjörnsdóttir
og Ívar Örn Axelsson.
Nýr borgari