Morgunblaðið - 04.06.2021, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 04.06.2021, Qupperneq 12
12 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. JÚNÍ 2021 algengari. Þær bjóða upp á fleiri möguleika í plöntuvali og gefa mun lengri tíma til að njóta sólar og blómstrandi gróðurs. Þar þarf sérstaklega að gæta að loftun þannig að það verði ekki allt of heitt fyrir plöntur eða að þær ofþorni.“ Allt sem blómstrar er vinsælt núna Hvaða tré og runnar eru vinsælir núna í garðana? „Allt sem blómstrar er vinsælt núna. Ég get nefnt rósakirsi, rósir og japanskvist. Sí- grænar plöntur eru líka alltaf vinsælar eins og dvergfura, einitegundir og ýviður sem er barrtré af ýviðarætt.“ Sumarblómin eru alveg sérstaklega gef- andi að mati Guðmundar. „Þau bjóða upp á blómskrúð allt sumarið. Það er svakalega spennandi að prufa sig áfram með að blanda í ker og stóra blóma- potta. Ég mæli með að blanda saman hæð og litum. Bæði fíngerðum og stórum blómum. Hangandi og uppréttum en einnig mismun- andi blaðlitum og ilmi. Úrvalið af tegundum er mikið og tegundir eins og sólboði, tóbakshorn og blómahorn eru með fjöldann allan af litum innan hverr- ar tegundar og alltaf að bætast við litir. Það eru stöðugt að tínast inn nýjar tegundir og litaafbrigði sem gaman er að fylgast með. Hortensía hefur komið sterk inn und- anfarin ár en hún er það stór að hún er oft- ast bara ein í potti.“ Hvaða gerðir af útipottum er fólk að fá sér núna og hverju mælir þú með því tengdu? „Leirpottar í ýmsum litum hafa notið sí- aukinna vinsælda umfram plastpotta. Ég ráðlegg fólki að gæta þess að það standi ekki vatn í pottinum yfir veturinn til að koma í veg fyrir að þeir springi í kuldanum.“ Gaman að rækta það sem er vinsælt að borða Hvað með matjurtagarða, áttu ráð tengt þeim? „Mitt algengasta ráð er að rækta það sem þið eruð viss um að nota eða langar sér- staklega að prófa að rækta. Að velja teg- undir og magn út frá því. Matjurta- og kryddjurtarækt hefur verið að færast yfir í ræktun í pottum og kerjum. Það er til dæmis auðvelt að rækta krydd- jurtir, salat og til dæmis grænkál í stórum potti eða leirkeri uppi á svölum eða á pall- inum hjá grillinu.“ Guðmundur er á því að garðrækt eigi það sameiginlegt með ýmsum listformum að maður þarf að læra, sjá og upplifa fegurðina og síðan að kunna að njóta hennar. Garður með fallegum litríkum blómum í potti er góð hugmynd. Það er auðvelt að finna sumarblóm við hæfi. Sumir velja að setja gul blóm í pott fyrir framan húsið. Það er auðvelt að gera sætar svalir í sumar með litríkum bleikum, rauðum og hvítum sumarblómum. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Guðmundur leggur rækt við blóm og ber í garðinum sínum. Fáðu faglærðan meistara í garðinn www.meistari.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.