Morgunblaðið - 04.06.2021, Page 22

Morgunblaðið - 04.06.2021, Page 22
22 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. JÚNÍ 2021 Kaja organic, Kalmansvellir 3, kajaorganic.com, kajaorganic@gmail.com Byggmjólk Eina íslenska jurtamjólkin Sölustaðir: Hagkaup, Fjarðarkaup, Melabúðin, Vegan búðin Fiskkompaní, Frú Lauga, Brauðhúsið og Matarbúr Kaju á Akranesi rómantíkina sem spratt fram á nýjunda áratug síð- ustu aldar þá viljum við líka svolítið af rómantík í garðinn.“ Að ganga um garðinn áður en hann verður til Hvað getur þú sagt mér um verkefnin sem þú set- ur upp í tölvuleikjaforritið? „Það er alltaf að aukast eftirspurnin eftir nýjustu tækni en allt frá því ég kom úr námi þá hefur það verið stefnan hjá mér að vera leiðandi í grafískum út- færslum á teikningum. Við tókum því upp liti í tölvu- teikningum um leið og það var hægt. Þegar þrívíddin var orðin aðgengileg tókum við hana inn og síðustu árin höfum við unnið allt í þrívídd. Til þess að vera áfram leiðandi á þessu sviði, erum við að vinna verk- efni í tölvuleikjagæðum. Við tökum gjarnan stærri verkefnin okkar og vinnum þau þannig að hægt sé að ferðast um þau í sýndarveruleika með hjálp þar til gerðra gleraugna. Fyrir viðskiptavininn er það ómet- anlegt að geta mátað garðinn þannig og ferðast um hann. Þannig fæst tilfinning fyrir rýmunum og flæði á milli svæða auk þess sem hlutverk gróðursins sem byggingarefnis verður skýrara. Í þessum útfærslum er einnig hægt að stilla sól og skugga miðað við árs- tíð og tíma dags ásamt því að slökkva og kveikja ljós.“ Garðar órjúfanlegur hluti hússins Hvað er það nýjasta þegar kemur að garðinum? „Ég er ekki viss um að ég vilji segja frá því en það sem við erum að þróa á teikniborðinu núna gæti verið það sem verður heitast eftir nokkur ár. Garðarnir eru að þróast meira og meira í þá átt að verða órjúf- anlegur hluti hússins. Þannig eru þök yfir hluta svæða með geislahiturum og þá sérstaklega yfir þeim svæðum þar sem verið er að grilla og snæða. Stór gróðurhús eru að koma sterk inn og þá meira sem stofur heldur en ræktunarsvæði. Rafmagnstenglum og ljósum í görðum hefur fjölgað sem gefur tækifæri til að fara með eldhústækin út og reiða fram alls kon- ar góðgæti. Það sem við erum á fullu að þróa núna er kryddjurtabarinn, en eins og ég sagði þá þurfum við að eiga eitthvað inni fyrir næsta ár að tala um.“ Hvað er klassískt og alltaf vinsælt? „Það er grágrýti. Ég held að tilhoggið grágrýti sé það efni sem tengir okkur mest við jörðina og ein- kenni lands og menningar. Flestir þekkja grágrýtið sem steinana sem Alþingishúsið er byggt úr. Það er unnið úr baslatberginu sem liggur undir stórum hluta höfuðborgarsvæðisins. Þetta berg hefur litatóna sem aldrei er hægt að ná fram með tilbúnu efni. Það má nota það í veggi, tröppur, kanta, bekki og jafnvel í að hlaða lítil hús eða skýli.“ Hvernig er þinn eigin garður? „Minn eigin garður er íslenska hálendið. Þar eyði ég, fótgangandi eða á reiðhjóli, eins miklum tíma og ég mögulega get. Þar er viðhald sem ég þarf að sinna í algjöru lágmarki. Sumrin eru einfaldlega þannig að ég vinn eins og brjálæðingur milli þess sem ég sæki með fjölskyldunni minni í íslenska náttúru til að end- urnýja bæði kraft og hugmyndir.“ Hressa garðfólkið vill opinn eld Er fólk að láta gera eldunarstæði úti í garði fyrir sig? „Það er ekkert skemmtilegra en að vera með smá lifandi eld í garðinum. Við gerum gjarnan ráð fyrir þeim möguleika á kvöldsvæðunum og reynum að hafa stéttir sem undirlag frekar en timbur. Það er eins aldrei nóg af geymslum þannig að við höfum hannað ýmsar mögulegar og ómögulegar geymslur. Svo hefur tíðkast alveg frá sjöunda ártugnum að vera með fast- ar innréttingar í görðum. Þar leikur bekkurinn stórt hlutverk. Við höfum verið að þróa þessa bekki lengi og erum nú búin að stilla af bekk sem er í fullkominni hæð með þægilegan halla á baki.“ Hvað gerir það að hafa eldstæði úti að þínu mati? „Ef maður ætlar að eiga nokkurn möguleika á því að fá Jón Jónsson eða annan góðan trúbador í heim- sókn þá verður að vera eldstæði. Þegar sólin er að setjast og loftið kólnar þá er algjör snilld að geta kveikt aðeins upp, dregið fram gítarinn og haldið áfram með fjörið.“ Björn er hrifinn af berjarunnum, kirsuberja- og eplatrjám. „Svo vil ég benda fólki á að finna góðan stað fyrir eik, beyki, álm og önnur gæðatré sem verða mörg hundruð ára gömul. Það má alveg hugsa líka um næstu kynslóðir.“ Mikilvægt að byrja snemma Ertu að lifa drauminn? „Þegar ég fór og lærði landslagsarkitektúr þá var draumurinn alltaf sá að stofna fyrirtæki sem byði bæði upp á hönnun og framkvæmd í görðum. Þannig gæti ég fylgt verkefnum eftir þar til framkvæmdum væri lokið. Þetta varð aldrei að veruleika en nú hefur Urban Beat tekið höndum saman við Garðaþjónustu Reykjavíkur til að bjóða upp á svona heildarþjónustu. Framkvæmdastjórinn hjá Garðaþjónustunni heitir Eiríkur Garðar Einarsson og vísa ég gjarnan fram- kvæmdum til hans þannig að hann geti boðið í verk- efnið. Ef hann fær svo verkefnið þá er eftirfylgni mín innifalin í tilboðinu hans. Ég mæti þá á vikulega verkfundi og hitti þar iðnaðarmennina, verkstjóra og eigendur til að svara spurningum sem upp koma og til að hnykkja á útfærslum. Stundum þarf að breyta teikningum aðeins og þá er það innifalið í þeirri ráð- gjöf. Þannig hef ég tækifæri til að fylgja verkefnum frá hugmynd að veruleika.“ Áttu gott garðaráð? „Já að gefa sér góðan tíma í að undirbúa garð- framkvæmdir. Hið fullkomna ferli er að nota sumarið í rannsókarvinnu, bóka hönnuðinn um haustið og vera tilbúinn í framkvæmdir um leið og frost fer úr jörðu. Haustið er líka góður tími fyrir framkvæmdir en þá þarf teikning helst að liggja fyrir veturinn áður.“ Af hverju ekki að setja gufubað í garðinn? Eldstæði í garðinum er vinsælt.Fallegur sjávargarður er gulls ígildi. Sumir vilja fjárfesta í garðinum heima hjá sér.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.