Morgunblaðið - 04.06.2021, Qupperneq 32
Paella er líklega sá rétt-
ur sem flestir tengja við
Spán enda er þetta eins
konar þjóðarréttur
þeirra Spánverja. Guð-
rún Lilja notar uppskrift
sem hún fékk frá Sössu
Eyþórsdóttur iðjuþjálfa.
2,5 dl ólífuolía
salt
250 g vorlaukur skorinn
í bita
150 g strengjabaunir
150 g ferskar snjóbaun-
ir
500 g risarækjur
250 g tómatamauk eða
raspaðir tómatar
1 msk. paprikuduft
3-4 þræðir af saffran
2 lítrar fiskisoð (má nota
grænmetissoð)
1 tsk. colorante
Risarækjupaella
500 g hrísgrjón – helst
paellugrjón
1 sítróna
1 lítið búnt af steinselju
Olían hituð og rækj-
urnar steiktar og teknar
til hliðar. Laukur og hvít-
laukur fer á pönnu í eina
mínútu og svo er tómat
bætt við og steikt í eina
mínútu í viðbót.
Kryddinu bætt við og
steikt í stutta stund.
Þá er gott að setja
matinn á kanta pönn-
unnar og steikja hrís-
grjónin í eina mínútu á
miðri pönnunni.
Þá er öllu blandað var-
lega saman og soðinu
hellt yfir og saltað eftir
smekk. Suðan látin koma
upp og soðið hressilega í
fimm til sjö mínútur áður
en hitinn er lækkaður.
Fylgjast þarf með að
maturinn brenni ekki.
Látið malla þar til
mestur vökvi er horfinn,
þá er rækjunum dreift
yfir grjónin og hitinn
hækkaður í nokkrar mín-
útur til að ná fram kara-
melliseringu (socaratt) á
botninn á grjónunum.
Skemmtilegt er að
skreyta barmana með sí-
trónu og dreifa ferskri
steinselju yfir.
Það má bæta öðru
fiskmeti við svo sem
humri, hörpudiski, kræk-
lingi eða öðrum stinnum
fiski. Þá er komin sjáv-
arréttapaella.
Í
Skammadal eru gömul garðyrkjulönd sem
Mosfellsbær leigði Reykvíkingum sem vildu
rækta kartöflur fjarri borginni. Hér áður
fyrr þurftu borgarbúar að leggja á sig svo-
lítið ferðalag til að komast í Skammadal en
nú á tímum er lítið mál að skjótast þangað á
góðum degi á hvaða tíma árs sem er. Fólk sem
leigði garð undir ræktunina gat líka fengið smá
land til leigu undir skúr til að dvelja í og hefur
myndast þar þyrping pínulítilla og krúttlegra
húsa.
Þessi staður hefur heillað konur eins og Guð-
rúnu Lilju sem kann vel við sig í skapandi um-
hverfi náttúrunnar.
Guðrún Lilja starfar á Borgarbókasafninu
þar sem hún leiðir stefnumótun og nýsköp-
unarverkefni bókasafnsins. Sjálf hefur hún tek-
ið þátt í alls konar hönnunarverkefnum, meðal
annars á árunum 2005 til ársins 2015 þegar hún
rak hönnunarstúdíó í gamla Alliance-húsinu.
Þar framleiddi hún og seldi íslenska hönnun og
tók þátt í að hanna búðir og ilmvatnsflöskur fyr-
ir rússneskt snyrtivörumerki.
„Garðurinn í Mosfellsbænum er dásemd-
arstaður fyrir andrými og uppskeru nálægt
borgarmörkum. Lóðirnar á þessum stað eru al-
mennt í kringum 300 fermetrar en okkar lóð er
eitthvað aðeins stærri.
Þessi garður kom til okkar af algjörri til-
viljun. Við vorum í Mosskógum í Mosfellsdal
fyrir fimm árum og ákváðum að keyra upp í
Skammadal því við höfðum aldrei komið þang-
að. Í stuttu máli þá heilluðumst við af þessu
svæði, sem minnti mjög á þessi litlu garðlönd
með kofum sem maður sér víða í Evrópu og er
einstakt hér á landi. Daginn eftir vorum við búin
að kaupa kofa sem stendur þar á leigulóð.“
Tekur fimmtán mínútur að keyra í garðinn
Guðrún Lilja býr nærri Laugardalnum í
Reykjavík en þar sem fjölskyldan býr er ekki
garður.
„Það tekur ekki nema fimmtán mínútur að
keyra í Skammadal. Það má segja að ég noti
garðinn mest til að fá útrás fyrir að smíða en ég
lærði húsgagnasmíði á sínum tíma og finnst mér
fátt jafn skemmtilegt og að sjá árangur af því að
búa til eitthvað nýtt úti í náttúrunni.
Manninum mínum finnst best að hugsa um
gróðurinn, hvort sem það er að grisja, gróð-
ursetja eða snyrta, og er frábær í því svo verka-
skiptingin er nokkuð skýr þó að við gerum auð-
vitað margt saman líka.“
Hvernig notið þið garðinn?
„Á fallegum sólríkum degi fer fjölskyldan í
garðinn til að leyfa hundinum að hreyfa sig.
Stundum förum við í garðinn til þess að hella
upp á kaffi, spjöllum saman og slökum á. Svo
eru auðvitað vinnudagar þarna upp frá þar sem
gott getur verið að gera eitthvað úti og sjá ár-
angur. Við erum búin að smíða lítinn sólkofa til
að sitja inni í á haustin og vorin eða þegar
sumarnæturnar eru kaldar. Við erum langt
komin með útiborðstofu og eldhús.
Hvort tveggja er hugsað sem skjól en samt
þannig að maður geti verið nálægt náttúrunni.
Við gerðum girðingu úr viði sem var grisjaður á
lóðinni og skjólgirðingu á milli lóða. Þetta er allt
mjög klassískt. Kofinn sjálfur sem er á lóðinni
er gamall og lúinn en þar er hvorki vatn né raf-
magn svo að maður hverfur inn í annað tímabil
um leið og maður mætir á staðinn.“
Ætla að klára útieldhúsið í sumar
Hvað ætlar þú að gera í sumar?
„Í Skammadal er markmiðið að klára útield-
húsið en „borðstofu“-hlutinn af því er búinn og
mjög mikið notaður. Svo þarf að snyrta tré og
runna, laga til í beðum og byrja mögulega á að
undirbúa að endurgera kofann á lóðinni. Við
eyðum stórum hluta af sumarfríinu þarna en
svo ætla ég að stinga af og fara í tvær göngu-
ferðir. Eina um svæðið í Landmannalaugum og
aðra fyrir austan, þar sem gengið verður um
Víknaslóðir og Stórurð. Svo verða örugglega
margar stundir eftir vinnu hér í garðinum því
það er svo gott að skreppa í tvo til þrjá tíma og
láta daginn líða úr sér í náttúrunni og fugla-
söng.“
Hvað ræktið þið á landinu ykkar?
„Við ræktum ekki mikið þar enn þá. Mesta
vinnan hefur farið í að snyrta lóðina því það var
svo mikill gróður á henni. Það þurfti að grisja
tré og endurhugsa hana eftir okkar þörfum.
Lóðin hafði ekki verið notuð í 10 ár svo hún var í
algerri órækt þegar við tókum við henni. Við er-
um samt búin að forrækta smávegis grænmeti
„Minnti á þessi
litlu garðlönd
með kofum“
Guðrún Lilja Gunnlaugsdóttir er búsett í Reykjavík en er með
garðland með kofa í Skammadal í Mosfellsbænum þar sem nú
hefur myndast þyrping pínulítilla og krúttlegra húsa.
Elínrós Líndal | elinros@mbl.is
Í Skammadal eru gömul garð-
yrkjulönd sem Mosfellsbær
leigði til Reykvíkinga. Fjöl-
skyldan keypti sér lítinn kofa á
lóð sem hún leigir af bænum.
Guðrún Lilja Gunnlaugs-
dóttir kann vel við sig í
garðinum í Mosfellsbæ.
Paella er spænskur réttur frá Val-
encia þar sem hrísgrjón og risa-
rækjum er blandað við saffran
krydd og grænmeti.
32 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. JÚNÍ 2021