Morgunblaðið - 04.06.2021, Page 34
„Dreymir um
fótlaug Bakka-
bræðra nærri
fjöruborðinu“
34 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. JÚNÍ 2021
K
ristín Aðalheiður Símonardóttir
og Bjarni Gunnarsson á Dalvík
eru miklir frumkvöðlar og fram-
taksöm en einnig fjölskyldufólk
og eiga þrjár dætur og eitt barna-
barn.
„Sú elsta var að flytja ásamt fjölskyldu
sinni til Svíþjóðar, miðjudóttirin býr ásamt
manni sínum í Kópavogi og sú yngsta og
hennar kærasti eru í Háskóla Íslands á vet-
urna en hér heima á sumrin.“
Hvað getur þú sagt mér um Gamla bæinn?
„Gamli bærinn var byggður árið 1914 og
er eitt af elstu húsunum á Dalvík.
Langamma mín og langafi bjuggu þar frá
árinu 1924 til ársins 1947. Það var í þeirra
minningu sem við réðumst í gagngerar end-
urbætur á bænum árið 2008 og nutum lið-
sinnis Hólmsteins heitins Snædal og Vé-
steins Finnssonar.“
Hvernig var húsið og hvað gerðuð þið fyr-
ir það?
„Þegar við keyptum íbúðarhúsið á Vega-
mótum árið 2004 fylgdi Gamli bærinn með í
kaupunum þar sem hann stendur í garðinum
eða öllu heldur var íbúðarhúsið byggt í garði
Gamla bæjarins. Bærinn var illa farinn og
þarfnaðist nokkurra endurbóta en hann
hafði verið notaður sem geymsla þegar við
eignuðumst hann en eftir að hætt var að búa
í honum um miðja síðustu öld var hann not-
aður í tengslum við búskap og meðal annars
nýttur fyrir kýr og kindur.“
Hvað tók langan tíma að gera húsið upp?
„Upphaflegu endurbæturnar á Gamla
bænum tóku um níu mánuði, en málning-
arvinnan og breytingarnar núna tóku um
það bil sex vikur með vinnu og mörgum öðr-
um verkefnum sem alltaf er nóg af.“
Ætla að bjóða upp
á fótalaug Bakkabræðra
Hvað með Kaffihús Bakkabræðra – hvert
er þemað þar?
„Jú við opnuðum Kaffihús Bakkabræðra
fyrir um átta árum eða árið 2013 og til-
einkum þeim bræðrunum frá Bakka í Svarf-
aðardal, Gísla, Eiríki og Helga, það. Þemað
þar er að sjálfsögðu sögur Bakkabræðra og
markmiðið er að halda þeim á lofti svo þær
fái að lifa um aldur og ævi.
Þar erum við alla daga að segja sögur úr
afar litríku lífi þeirra bræðra. Kaffihúsið er
innréttað í gömlum stíl þar sem munir koma
úr öllum áttum en gætu hafa verið í eigu
þeirra bræðra. Það er okkur mikilvægt að
halda úti menningartengdri ferðaþjónustu
þar sem við varðveitum og pössum upp á
þessa gömlu muni, sögurnar í kringum þá og
tengjum við annað merkilegt í sveitarfé-
laginu. Við höfum fengið mikið af gömlum
munum gefins og kunnum við fólki bestu
þakkir fyrir sem færir okkur endalaust
þessa fallegu fjársjóði sem þessir munir eru.
Fólk kemur með þetta til okkar þegar það er
að losa sem dæmi geymslur og getur alls
ekki hugsað sér að henda. Enda eru mun-
irnir til sýnis hjá okkur og allir mega snerta
og jafnvel prófa.
í gegnum árin höfum við verið ákaflega
dugleg að bjóða upp á menningartengda við-
burði á kaffihúsinu svo sem tónleika, ljóða-
upplestur, leiklist, tónlistarviðburði, mynd-
listarsýningar og fleira.
Framtíðarsýnin er svo að útbúa fótlaug
Bakkabræðra norðan við kaffihúsið nærri
fjöruborðinu þar sem gestir og gangandi
geta baðað sig í fótlaug þeirra bræðra sem
og í heitum og köldum pottum.“
Erfitt að reka ferðaþjónustufyrirtæki núna
Hvernig er að vera með ferðaþjónustufyr-
irtæki núna?
„Það er afar erfitt að reka ferðaþjónustu-
fyrirtæki núna eins og staðan hefur verið,
hvað þá tvö fyrirtæki. En við höfum reynt að
halda í jákvæðnina og bjartsýnina og ekki
síst núna þegar við förum að sjá til lands og
lífið færist hægt og rólega í átt að eðlilegu
lífi.
Ég reyni að horfa á það jákvæða í þessu
ástandi, það þýðir ekkert annað. Margt gott
kom út úr þessum tíma þegar allt var lokað
meira og minna. Upp úr stendur hversu
margar og ómetanlegar samverustundir við
áttum með dætrum okkar og þeirra fjöl-
skyldum sem og foreldrum okkar og vinum.
Við eignuðumst yndislegt barnabarn sem við
gátum varið mikilvægum tíma með sem ekki
hefði annars verið eins auðvelt í okkar til-
felli.
Ég nýtti líka tímann líka og prjónaði tölu-
vert á litla prinsinn en það er ákaflega ró-
andi og slakandi að grípa í prjónana og ná
sér örlítið niður eftir mikla vinnu og álag
sem verið hafði fyrir Covid. Maður fer að
meta tímann öðruvísi og kannski horfa inn á
við og minna sig á hvað er það dýrmætasta
sem maður á.
Við vorum svo heppin í haust í enn einni
lokuninni þegar manninum mínum bauðst
vinna í Húsasmiðjunni þar sem hann starfar
enn ásamt því að sinna ferðaþjónustu-
fyrirtækinu á kvöldin og um helgar.“
Fallegur garður í kringum Gamla bæinn
Ertu mikil garðkona?
„Ég vildi ég gæti sagt já því ég hef áhuga
á blómum og garðrækt en því miður er eng-
inn tími til þess. Í framtíðinni sé ég fyrir
mér að ég verði mikil garðyrkjukona og geti
ræktað það grænmeti og kryddjurtir sem ég
nota á kaffihúsinu.
Afskorin blóm hef ég unnið með í næstum
Fallegur krans
með blómum og
grasi úr garðinum.
Í Gamla bænum mætast
gamli og nýi tíminn.
Gamli bærinn var smíðaður á
fyrri hluta síðustu aldar.
Gamli bærinn er með
fallegu útsýni yfir
stóra græna grasflöt.
Einföld blóm eru í
pottum í garðinum.
Kristín Aðalheiður Símonardóttir, ráðskona Bakka-
bræðra á Dalvík, er um þessar mundir að undirbúa ferða-
sumarið. Hún er með skemmtilegar hugmyndir um hvað
má gera í garðinum og er garðurinn í kringum Gamla bæ-
inn, sem hún gerði upp á sínum tíma, einstaklega fallegur.
Elínrós Líndal | elinros@mbl.is