Morgunblaðið - 04.06.2021, Page 36
36 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. JÚNÍ 2021
JARÐGERÐARÍLÁT
BÚÐU TIL ÞÍNA EIGIN MOLTU !
www.gamafelagid.is 577 5757 igf@igf.is
Jarðgerðarílátið er 310 lítra og er
hugsað fyrir þá sem vilja prófa sig áfram
við moltugerð.
Um það bil 30-35% af heildarmagni
heimilissorps er lífrænn úrgangur sem
má jarðgera. Afurð jarðgerðarinnar,
moltan, nýtist sem næringarríkur
áburður fyrir garðinn.
Jarðgerðarílátið er hægt að panta í
vefverslun okkar eða í síma 577 5757.
25 ár og rak blómabúð með foreldrum mín-
um í um 20 ár. Það kemur fyrir að ég taki að
mér að útbúa skreytingar fyrir vini og
vandamenn, t.d. fyrir brúðkaup, skírnir og
útfarir, og þá handskrifa ég einnig á útfar-
arborða.“
Hvernig lýsir þú garðinum í kringum
Gamla bæinn?
„Garðurinn í kringum Gamla bæinn er
mjög fallegur, þegar hann loks kemur undan
snjó ár hvert! Hann er ákaflega stór og gró-
inn með hávöxnum öspum og birkitrjám.
Þegar allt er í fullum blóma er dásamlegt að
vera í garðinum og ekki síst þegar skyggja
fer og við kveikjum á seríum um allan garð,
þá má segja að ævintýraljómi leiki við hverja
trjágrein. Við bjóðum gestum afnot af tun-
nusána og heitum potti í garðinum og er það
mjög vinsælt, ekki síður á veturna þegar allt
er á kafi í snjó og norðurljósin dansa!“
Elskar að gera upp gamlar byggingar
Hvaðan kemur áhugi þinn á viðskiptum og
því að gera upp hús?
„Ég hef alla tíð haft áhuga á gömlum hlut-
um og endurnýtingu. Það sem einn er hætt-
ur að nota getur annar nýtt sér. Áhugi minn
á gömlum húsum kom þegar ég var um tví-
tugt og fór ég þá þegar að huga að gömlum
húsum sem mig langaði að eignast seinna
meir. Við höfum gert upp og/eða betr-
umbætt nokkur hús hér á Dalvík og nutum
alltaf aðstoðar og ráðlegginga Hólmsteins
Snædal heitins sem var meistari meist-
aranna við endurgerð gamalla húsa. Það er
eitthvað svo mikið við það að verki loknu að
sjá fyrir-og-eftir-myndir og fara yfir ferlið
allt, hvort sem það var stórt eða smátt, og
minnast alls erfiðisins og þakka fyrir hvern-
ig til tókst.
Við endurgerðina á Gamla bænum árið
2008 kviknaði sú hugmynd að fara út í ferða-
þjónustu og bjóða upp á gistingu í því húsi.
Árið 2010 bættust við þrjú smáhýsi sem við
staðsettum rétt við Gamla bæinn og sama ár
keyptum við Gimli sem er stórt hús í miðju
bæjarins og breyttum því í gistiheimili.
Seinna bættum við við einu húsi á Siglufirði
sem við tókum í gegn og leigjum út.
Enn eitt hús bíður okkar og mikilla end-
urbóta og munum við ráðast í það fljótlega.
Þar er mikið verk fyrir höndum en verður
ótrúlega gaman að sjá lokaútkomuna. Ég hef
lengi gengið með þann draum í maganum að
eignast kirkju; gamla afhelg-
aða kirkju sem þarfnast end-
urbóta og ekki verra ef hægt
væri að flytja hana til Dalvík-
ur. Kannski ég auglýsi bara
eftir henni hérna.“
Hvetur landsmenn til að
ferðast í sumar
Ertu mikið fyrir að ferðast
sjálf?
„Ég hef alveg svakalega
Fallegur grasflötur og
einföld stétt er sjarm-
erandi í sveitinni.
Kristín notar blómin úr
garðinum í kökurnar sínar.
Kristín bakar girnilegar
kökur og skreytir þær með
blómum úr garðinum.
Í framtíðinni sé ég
fyrir mér að ég
verði mikil garð-
yrkjukona og geti
ræktað það græn-
meti og kryddjurtir
sem ég nota á
kaffihúsinu.