Morgunblaðið - 04.06.2021, Side 43

Morgunblaðið - 04.06.2021, Side 43
aður og þá sérstaklega á kolagrilli. Upp- gufunin sem verður þegar safi úr kjöti og grænmeti fellur á kolin gefur okkur þetta ein- staka bragð sem einkennir kolagrillaðan mat. Ég gæti aldrei nefnt einhvern einn mat sem mér þykir bestur eða hvað er best að grilla. Sem einstakur áhugamaður um flestan mat verður nett skammhlaup í hausnum þegar ég er spurður um besta eða uppáhaldsmatinn minn. Eina stundina er maður í stuði fyrir nautasteik og þá næstu nýveiddan fisk og hina alvöru sveitagerða hrossasperðla (hrossa- bjúgu). Hins vegar hef ég alltaf elskað ham- borgara. Þeir eru klassískir á grillið og hægt að gera óendanlega margar útfærslur af þeim. FÖSTUDAGUR 4. JÚNÍ 2021 MORGUNBLAÐIÐ 43 Ylplast / Gróðurhúsaplast eru margra laga plastplötur úr polycarbonate, með gott einangrunargildi. Plöturnar henta mjög vel fyrir stórar og smáar byggingar. Þykktir á lager eru 6, 10 og 16 mm, í glæru og hvítlituðu (opallitað). Hægt að útvega aðrar þykktir og liti. Selt í heilum plötum, og einnig niðurskorið að þínum þörfum. Að auki bjóðum upp á alla fylgihluti fyrir uppsetningu, svo sem gúmílista állista, dropalista, öndunartape og áltape. Þekking, reynsla, þjónusta. Nánari upplýsingar hjá söluráðgjöfum Fást í síma 587 6677. Gróðurhúsaplast fyrir íslenskar aðstæður Fást ehf Köllunarklettsvegi 4,104 Reykjavík Sími:587 6677 Netfang:fast@fast.is www.fast.is Þ essa dagana og mánuði hefur lítið farið fyrir grilli þar sem ég og fé- lagar mínir Sigvaldi Jóhannesson, eða Silli kokkur eins og hann er vanalega kallaður, og Róbert Aron Magnússon opnuðum hamborgarastaðinn 2Gu- ys á Klapparstíg 38 fyrir rúmum tveimur mán- uðum. Mér fannst vanta upp á að hægt væri að fá alvöru bragðgóða „smash“-borgara hér á landi og dýfði mér í djúpu laugina í miðju kórónuveirufári. Viðtökurnar hafa verið það góðar að það hefur fátt annað komist að síðan við opnuðum.“ Fékk áhugann í eldhúsi móður sinnar Hjalti fékk áhuga á eldamennsku í gegnum Dagnýju Magnúsdóttur móður sína sem á og rekur veitingastaðinn Hendur í höfn í Þorláks- höfn. „Frá því ég man eftir mér hefur eldhúsið ver- ið hennar staður og þetta hefur því eflaust kom- ið með móðurmjólkinni. Veiðiáhuga og áhuga á villibráð og fiski fékk ég svo frá pabba og er æv- inlega þakklátur fyrir hversu vel við höfum tengst í gegnum það. Einn af hápunktum ársins er þriggja daga veiðiferð okkar feðga og vina.“ Það var svo vorið 2016, þegar Hjalti og vinur hans fóru að tala saman um grill og bestu að- ferðirnar við að grilla, að þeir uppgötvuðu að það var enginn vettvangur til umræðu um slíkt á samfélags- miðlum. „Það varð til þess að við stofnuðum Grill- samfélagið sem telur í dag yfir 9.000 meðlimi á Facebook.“ Hjalti fann mikla vitundarvakningu í landinu í kjölfar þess að þeir stofnuðu síðuna. „Innflutningur á grillum hefur aukist og framboð á kjöti sem áður var óþekkt orðið meira. Meðfram þessu varð svo grilldúettinn Grill- feðurnir til og vorum við duglegir að sýna fólki frá öllu grilltengdu á samfélagsmiðlum.“ Kolagrillaður matur í uppáhaldi Hver er skoðun þín á grillum? „Að mínu mati er flestallur matur betri grill- Það er rosalega fátt sem slær út góðan vel gerð- an borgara.“ Hvernig gerir maður hina fullkomnu steik á grillið? „Hin fullkomna steik er elduð á lágum óbein- um hita. Þá ekki yfir hitagjafanum hvort sem það eru kol í kolagrilli eða brennari á gasgrilli. Steikin er grilluð þar til þrjár til fimm gráður eru í kjarnhita. Þá er grillið sett í botn og steik- in elduð yfir hitagjafanum þar til hún hefur fengið fallega áferð og kjarnhita er náð. Marinering er frábær leið til að bragðbæta allt prótín sem endar á grillinu; kjöt, kjúkling og fisk. Möguleikarnir eru bókstaflega enda- lausir.“ Íslenska lambið er ein- staklega gott á grillið í sum- ar. Hjalti Vignisson stofnaði Grillsamfélag Ís- lands á Facebook þar sem nú má finna níu þúsund meðlimi sem deila góðum ráðum og uppskriftum. Hjalta þótti vanta alvöru bragð- góða „smash“-borgara á Íslandi og stofnaði því 2Guys á Klapp- arstíg 38 með félögum sínum. „Fátt sem slær út góðan vel gerðan borgara“ Það er ekki bara kjöt og fiskur sem verður betri á grillinu. Brauðið fær einnig á sig einstakt bragð á kolagrillinu. Það jafnast fátt á við góða kolagrill- aða T-bone-steik. Surf and turf að hætti Hjalta. Steikin er grilluð á kolagrilli eftir kúnst- arinnar reglum. Hjalti Vignisson er ástríðugrillari og annar stofnenda Grillsamfélags Íslands á Facebook. Hann gerir einstaklega girnilega hamborgara og veit í raun fátt skemmtilegra en að grilla á góðum sumardegi. Elínrós Líndal | elinros@mbl.is Hjalti Vignisson er ástríðukokkur sem veit fátt betra en mat grillaðan á kolagrilli í góðu veðri úti í garði.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.