Morgunblaðið - 04.06.2021, Blaðsíða 43
aður og þá sérstaklega á kolagrilli. Upp-
gufunin sem verður þegar safi úr kjöti og
grænmeti fellur á kolin gefur okkur þetta ein-
staka bragð sem einkennir kolagrillaðan mat.
Ég gæti aldrei nefnt einhvern einn mat sem
mér þykir bestur eða hvað er best að grilla.
Sem einstakur áhugamaður um flestan mat
verður nett skammhlaup í hausnum þegar ég
er spurður um besta eða uppáhaldsmatinn
minn. Eina stundina er maður í stuði fyrir
nautasteik og þá næstu nýveiddan fisk og hina
alvöru sveitagerða hrossasperðla (hrossa-
bjúgu). Hins vegar hef ég alltaf elskað ham-
borgara. Þeir eru klassískir á grillið og hægt að
gera óendanlega margar útfærslur af þeim.
FÖSTUDAGUR 4. JÚNÍ 2021 MORGUNBLAÐIÐ 43
Ylplast / Gróðurhúsaplast eru margra laga
plastplötur úr polycarbonate, með gott
einangrunargildi. Plöturnar henta mjög vel
fyrir stórar og smáar byggingar.
Þykktir á lager eru 6, 10 og 16 mm, í glæru og
hvítlituðu (opallitað). Hægt að útvega aðrar þykktir og liti.
Selt í heilum plötum, og einnig niðurskorið að þínum þörfum.
Að auki bjóðum upp á alla fylgihluti fyrir uppsetningu,
svo sem gúmílista állista, dropalista, öndunartape og áltape.
Þekking, reynsla, þjónusta.
Nánari upplýsingar hjá söluráðgjöfum Fást í síma 587 6677.
Gróðurhúsaplast
fyrir íslenskar aðstæður
Fást ehf Köllunarklettsvegi 4,104 Reykjavík Sími:587 6677 Netfang:fast@fast.is www.fast.is
Þ
essa dagana og mánuði hefur lítið
farið fyrir grilli þar sem ég og fé-
lagar mínir Sigvaldi Jóhannesson,
eða Silli kokkur eins og hann er
vanalega kallaður, og Róbert Aron
Magnússon opnuðum hamborgarastaðinn 2Gu-
ys á Klapparstíg 38 fyrir rúmum tveimur mán-
uðum. Mér fannst vanta upp á að hægt væri að
fá alvöru bragðgóða „smash“-borgara hér á
landi og dýfði mér í djúpu laugina í miðju
kórónuveirufári. Viðtökurnar hafa verið það
góðar að það hefur fátt annað komist að síðan
við opnuðum.“
Fékk áhugann í eldhúsi móður sinnar
Hjalti fékk áhuga á eldamennsku í gegnum
Dagnýju Magnúsdóttur móður sína sem á og
rekur veitingastaðinn Hendur í höfn í Þorláks-
höfn.
„Frá því ég man eftir mér hefur eldhúsið ver-
ið hennar staður og þetta hefur því eflaust kom-
ið með móðurmjólkinni. Veiðiáhuga og áhuga á
villibráð og fiski fékk ég svo frá pabba og er æv-
inlega þakklátur fyrir hversu vel við höfum
tengst í gegnum það. Einn af hápunktum ársins
er þriggja daga veiðiferð okkar feðga og vina.“
Það var svo vorið 2016, þegar Hjalti og vinur
hans fóru að tala saman um grill og bestu að-
ferðirnar við að grilla, að þeir uppgötvuðu að
það var enginn
vettvangur til
umræðu um slíkt
á samfélags-
miðlum.
„Það varð til þess að
við stofnuðum Grill-
samfélagið sem telur í dag yfir
9.000 meðlimi á Facebook.“
Hjalti fann mikla vitundarvakningu í landinu
í kjölfar þess að þeir stofnuðu síðuna.
„Innflutningur á grillum hefur aukist og
framboð á kjöti sem áður var óþekkt orðið
meira.
Meðfram þessu varð svo grilldúettinn Grill-
feðurnir til og vorum við duglegir að sýna fólki
frá öllu grilltengdu á samfélagsmiðlum.“
Kolagrillaður matur í uppáhaldi
Hver er skoðun þín á grillum?
„Að mínu mati er flestallur matur betri grill-
Það er rosalega fátt sem slær út góðan vel gerð-
an borgara.“
Hvernig gerir maður hina fullkomnu steik á
grillið?
„Hin fullkomna steik er elduð á lágum óbein-
um hita. Þá ekki yfir hitagjafanum hvort sem
það eru kol í kolagrilli eða brennari á gasgrilli.
Steikin er grilluð þar til þrjár til fimm gráður
eru í kjarnhita. Þá er grillið sett í botn og steik-
in elduð yfir hitagjafanum þar til hún hefur
fengið fallega áferð og kjarnhita er náð.
Marinering er frábær leið til að bragðbæta
allt prótín sem endar á grillinu; kjöt, kjúkling
og fisk. Möguleikarnir eru bókstaflega enda-
lausir.“
Íslenska lambið er ein-
staklega gott á grillið í sum-
ar.
Hjalti Vignisson stofnaði Grillsamfélag Ís-
lands á Facebook þar sem nú má finna níu
þúsund meðlimi sem deila góðum ráðum og
uppskriftum.
Hjalta þótti vanta alvöru bragð-
góða „smash“-borgara á Íslandi
og stofnaði því 2Guys á Klapp-
arstíg 38 með félögum sínum.
„Fátt sem slær
út góðan vel
gerðan borgara“
Það er ekki bara kjöt og fiskur
sem verður betri á grillinu.
Brauðið fær einnig á sig einstakt
bragð á kolagrillinu.
Það jafnast fátt á
við góða kolagrill-
aða T-bone-steik.
Surf and turf að hætti
Hjalta. Steikin er grilluð
á kolagrilli eftir kúnst-
arinnar reglum.
Hjalti Vignisson er ástríðugrillari og annar stofnenda Grillsamfélags
Íslands á Facebook. Hann gerir einstaklega girnilega hamborgara
og veit í raun fátt skemmtilegra en að grilla á góðum sumardegi.
Elínrós Líndal | elinros@mbl.is
Hjalti Vignisson er
ástríðukokkur sem
veit fátt betra en
mat grillaðan á
kolagrilli í góðu
veðri úti í garði.