Morgunblaðið - 04.06.2021, Qupperneq 46
L
iljur eru falleg
blóm og stolt
margra garð-
eigenda. Liljuættin er
ætt einkímblaða lauk-
jurta með regluleg
þrídeild blóm.
Plantan sendir upp
eina blómstöng sem
hefur allt að 12 vax-
kennd blóm. Þær
geta verið í garðinum
árið um kring og eru
ilmandi og fallegar
ásýndar. Ekki er
mælt með
þessum
blómum í
garði þar
sem eru
dýr eða
börn að
leik þar sem
blómin geta
verið eitruð.
Liljur vallarins setja
svip á umhverfið
Ljósmynd/Colourbox
Lilja vallarins
er vinsælt
blóm í dag.
Lilja vallarins er eins og
grænt gras þar til hvítu
blómin spretta fram á
sumrin. Á veturna ligg-
ur blómið í dvala.
Þeim sem vilja vera með garð sem líkist hallargarði er
bent á liljur vallarins, en glæsilegri blóm er vart að finna.
Elínrós Líndal | elinros@mbl.is
46 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. JÚNÍ 2021
Lífræn hreinsistöð
• Fyrirferðalítil fullkomin
sambyggð skolphreinsistöð
• Uppfyllir ýtrustu kröfur um
gæði hreinsunar
• Engin rotþró eða siturlögn
25 ára ábyrgð
• Tæming seyru á þriggja til
fimm ára fresti
• Engir hreyfanlegir hlutir
• Stærðir frá 6 – 55 persónueiningar
Tunguhálsi 10 - 110 Reykjavík
Sími 517 2220 - petur@idnver.is
G
ra
fi
k
a
19
H
vernig hefur garðhegðun lands-
manna breyst eftir að veiran fór
að gera fólki lífið leitt?
„Það sem hefur breyst hjá
okkur í pottasölunni eftir Covid
er að við seljum meira af pottum. Allar teg-
undir, og þá frekar stærri potta en minni.
Enda hefur fólk verið meira heima, meira
saman og vill eiga stóra góða potta, þar sem
öll fjölskyldan getur verið saman og notið lífs-
ins. Það sem við finnum fyrir er að fólk er
gjarnan með æfingaaðstöðu heima við, notar
hana og smellir sér svo í pottinn og tekur
teygjuæfingarnar í pottinum ásamt slökuninni
eftir æfingar,“ segir Kristján og játar að fólk
sé farið að hugsa allt öðruvísi en áður.
„Salan hefur tekið rosalegan kipp. Við höf-
um reyndar alltaf selt mikið af pottum, en þó
sérstaklega mikið undanfarin tvö ár. Mér sýn-
ist ekki að það eigi eftir að minnka næstu ár-
in. Það er líka komið að endurnýjun margra
potta sem seldir hafa verið á Íslandi und-
anfarin 15-20 ár. Íslendingar eru duglegir að
endurnýja, enda gefa pottarnir svo mikið frá
sér, hlýju, vellíðan og nándina við fjölskyldu-
meðlimi og vini,“ segir hann.
Hverju er fólk að leita eftir?
„Við seljum mikið af rafmagnspottum og þá
sérstaklega saltvatnspottum. Saltvatnspott-
arnir eru mjög vinsælir núna, en þá ertu að
notast við saltblöndu í stað klórs. Þeir eru all-
ir tengdir við þráðlaust net og getur fólk
fylgst með pottinum, til dæmis ef potturinn er
staðsettur í sumarbústað. Þeir sem eru með
ofnæmi, eða viðkvæmir fyrir klór, eða eru
með einhver húð-
vandamál eins og til
dæmis soriacis, exem
eða einhvern annan
húðsjúkdóm, þeir
finna síður fyrir
sjúkdómnum í salt-
vatni en klórvatni.
Klórpottar seljast
samt vel. „Plug and
Play“ hitaveitupottar
seljast rosalega vel.
Þeir koma tilbúnir til
notkunar og ekkert
mál að tengja þá.
Píparinn þarf bara
að tengja tvö rör.
Vatnið að, og vatnið frá. „Plug and Play“
koma alveg tilbúnir, með einangrun, led-
ljósum, burðargrind og klæðningu. „Plug and
Play“ eru líka 100% músheldir, en litlu
nagdýrin vilja oftast halda sig þar sem
er heitt, svo þau lifi af veturinn, og þá
halda þau sig undir hitaveituskelj-
unum. Í „Plug and Play“ komast þau
hvergi að og potturinn geislar engum
hita frá sér, vegna einangruninnar.“
Einhvers staðar heyrði ég að fólk
væri mest að fá sér tvo potta í garðinn
um þessar mundir, kaldan pott og heit-
an pott. Hefur þú orðið
var við það?
„Já. Það hefur orðið
sprenging í sölu á
köldum pottum. Þeir
eru uppseldir eins og
er, en von á stórri
sendingu innan fárra
daga. Persónulega skil
ég þetta ekki með
kalda vatnið. Mér
finnst bara óþægilegt
að fara í kalt vatn. En
fólk sem er að stunda
þetta segir að þetta sé
himneskt. Endurnýjun
er hraðari á vöðvum
og þetta er meinhollt.
Ég ætla mér bara að
láta mér nægja að
selja vöruna,“ segir
hann og skellihlær.
Hvernig heitir pottar eru í tísku núna?
„Saltvatnspottarnir og stærri pottar. Fólk
vill viðhaldsfría klæðningu sem kallar á minna
viðhald, það er það sem er að seljast best
núna.“
Er eitthvert sérstakt form sem fólk sækist í
núna sem það hefur ekki viljað áður?
„Já, fólk vill meira mótaða potta þar sem
setið er í góðum legusætum. Legubekkir
halda sínum velli og eru um 30% sem vilja
bara potta með legubekk. Potturinn verður að
hafa legubekk. Það eru margir á þeim vagni.“
Ert þú með pott í þínum garði?
„Já, ég er með Arctic Spas Ocean, sund-
laugarpott sem er 5.500 lítra. Þetta er salt-
vatnspottur með hljómtækjum. Í sumarhús-
inu mínu er ég með Arctic Spas Summit XL
sem er 2.200 lítra saltvatnspottur,“ segir hann
og játar að hafa keypt nýjan heitan pott heim
í veirunni.
„Stóri potturinn fór heim í upphafi Covid.
Þá vissi ég að fjölskyldan yrði meira saman,
krakkarnir ekki í skólanum og við yrðum mik-
ið heima. Krakkarnir eru búnir að halda fjöl-
mörg pottapartý í garðinum heima síðastliðin
ár.
Ég er ekki uppáhaldspabbinn í götunni,
held frekar í hverfinu. Ég hef ekki tölu á
hversu margir krakkar eru búnir að koma
heim í pottinn. Ætli ég hafi ekki talið mest yf-
ir 20 krakka þegar mest gekk á. Saltvatnið er
búið að halda vel utan um vatnið í pottinum
og hann er tandurhreinn, enda saltið algert
undraefni í viðhaldi ferskleika vatnsins.Vatnið
er ávallt sem nýkomið úr krananum,“ segir
Kristján.
Myndi aldrei fá
sér kaldan pott
Kristján Ásgeirsson, eigandi fyrirtækisins Heitirpottar.is,
segir að fyrirtækið hafi sjaldan selt fleiri heita potta en á
veirutímum. Vinsældir kaldra potta eru líka töluverðar þótt
hann myndi aldrei fjárfesta í slíkum potti fyrir sjálfan sig.
MartaMaría | mm@mbl.is
Það skiptir máli að hafa
umhverfið í kringum heita
pottinn notalegt. Hér
kemur jólasería að góð-
um notum til að búa til
heillandi stemningu.
Kristján Ásgeirs-
son eigandi
Heitirpottar.is.