Skólablaðið - 01.04.1979, Side 9
-HUGLEIÐINGAR UM UPPHAF
KVENNAKÚGUNAR
HRUN MCÐRAVELDISINS.
FEÐRAVELDIÐ.
Með uppgötvun nýrra málma, s.s. brons og járns, leið
iiffiðraveldið undir lok. Með tilkomu betri verkfæra úr þess-
um málmum urðu stórstígar framfarir í akuryrkju og farið
var að gera áveitur, sem nú um stundir mun alvanalegt að
telja fyrsta vísi að menningarsamfélögum. Konur reðu vel
við léttari ræktunaraðferðir steinaldarinnar en karlarnir,
sem vanir voru áhaldasmíði og vopnanotkun, gerðu nú inn-
reið í akuryrkjuna með stórvirkari tól sín. Veiðiferðir
urðu nú ekki lengur þær undirstöður fæðuöflunar sem áður,
því uppskeran varð mun meiri og jafnari. Þar sem þessi
breyting atvinnuhátta var af efnahagslegum toga spunnin,
hefur varla komið til beinna átaka á milli kynjanna. Þræla-
hald hófst að öllum líkindum á þessum tíma, og bendir ein-
dregið til baráttu á milli einstakra ættflokka um landrými,
Gamfara nýjum háttum fóru menn að eigna sér land og hin
hatramma barátta um einkaeignina hófst. Með því karlmaður-
inn komst upp með að eiga jörðina sem hann ræktaði grös á,
vildi hann eigna sér allt annað; konan var hans, bömin
líka. Karlinn vildi nú vera viss um að eignir hans kæmust
í hendur niðja af hans eigin holdi og blóði, og gerði því
þær kröfur til konunnar að hún ætti böm rreð honum einum.
Eins og við mátti búast breyttúst trúarbrögðin nú
einnig. Við hlið gyðjunnar kom goð; annað hvort sonur
hennar eða elskhugi, nena hvor tveggja vaaei. ösíris varð
rraður Isis og Hórus sonur; Adonis við hlið Astarte; Seifur
Hinar elstu heimildir sem við höfum undir höndum, eru
allar ritaðar eftir að feðraveldið var orðið fast í sessi.
Við það að missa heilagleika sinn stóðu konur eftir ireð
bannhelgina eina: Nú voru þær óhreinar. Bölvun heimsins
mátti rekja beint til þeirra. Eva kynnti mannkyr.inu syndina
og Pandora gat ekki stillt sig um að opna keraldið sem
geymdi allar þær sóttir og meinsemdir sem síðan hafa hrjáð
nennina.
„Reglan, ljósið og karlmaðurinn eru af hinu góða, en
óreiðan, myrkrið og konan af hinu vonda," irælti Pýþagóras.
Og lögin, jafnt indversk, grísk,sem rómversk gera konuna
réttlausa og Kóraninn lítur á konuna með einskærri fyrir-
litningu. Engu að síður þóttu konur nauðsynlegar, og ef
að þær giftust (= gáfust) og beygðu sig þannig undir vald
karlmannsins, þóttu þær hreint ekki svo afleitar, enda er
hjónabandið einn af homsteinum feðraveldisins.
Ragnheiður Ingibjörg Bjamadóttir.
ríkti með Heru.
©