Fiskifréttir - 02.05.1986, Qupperneq 1
BUNKERS WORLD WIDE
Day/night economic bunkering whatever
the time — wherever the port.
Við launum tryggum viðskiptavinum /fa*
með hagstæðum kjörum. WN;
FINA MARINE LUBRICATING V.'S
FAROEOIL
COMPANY P/F S
TraðargBta 38 - Postboks 2029 - Argir
FR-3800Tór*havn - Faroe Islands
Phone (009) 298 1 77 66 - Telex 81210 faroil fa
S______________________________________S
ÞORSKANET
GRÁSLEPPUNET
FLOT OG BELGIR
TEINAOG FÆRATÓG
ÞJÓNUSTUMIDSTÖD SJÁVARÚTVEGSINS
101 Reykjavtk.
011 skreiðarsala
undir einn hatt?
Viðræður og hugmyndir hafa
verið í gangi um að sameina
skreiðarframleiðendur og setja
skreiðarsölu undir einn hatt.
Fiskifréttir hafa fregnað að þrýst-
ingur sé frá Seðlabankanum í
þessa átt.
Ólafur Björnsson hjá Samlagi
skreiðarframleiðenda staðfesti í
samtali við blaðið að viðræður
hefðu átt sér stað og væri hug-
myndin sú að Sölusamband ís-
lenskra fiskframleiðenda (þ.e.
sölusamtök saltfiskframleiðenda)
yfirtaki söluna á skreið, en SÍF
færi þó varla út í slíkt nema fá
alla söluna.
í landinu eru á fjórða hundrað
þúsund pakkar af skreið og hert-
um þorskhausum óseldir, en sú
tala á eftir að lækka eitthvað mið-
að við þær afskipanir sem nú
standa yfir. Ólafur Björnsson
sagði, að margir aðilar í Nígeríu
væru að reyna að opna ábyrgðir
og vonandi kæmist skriður á þessi
mál bráðlega.
LÍÚ íhugar
frjálst humarverð
„Við erum alvarlega að íhuga
að gefa humarverð frjálst í sum-
ar“, sagði Kristján Ragnarsson
formaður LÍÚ í samtali við Fiski-
fréttir. „Við teljum að það sé næg
samkeppni um vöruna til að skapa
eðlilegt verð.“
Ef humarverð verður gefið
frjálst, yrði það ekki í fyrsta skipti
sem fiskseljendur byðu fiskkaup-
endum sjálfdæmi um verðlagn-
ingu, því útvegsmenn hafa áðUr
boðið upp á frjálst loðnuverð og
síldarverð. Fiskkaupendur hafa
hins vegar ekki treyst sér til að
þiggja sjálfdæmi í verðlagningu,
en samkvæmt lögum þarf að vera
samkomulag í Verðlagsráði sjáv-
arútvegsins til þess að fiskverð
verði frjálst.
Kristján gat þess, að frjálst
humarverð kynni m.a. að hafa
það í för með sér að mismunandi
verð yrði greitt fyrir humarinn á
mánudögum og föstudögum.
Sjá nánar bls. 6
Endurnýjun loðnuflotans:
Sex skip eftir
sömu teikningu?
Eigendur sex íslenskra loðnu-
skipa hafa verið í viðræðum við
fulltrúa sambands skipasmiðja á
vesturströnd Noregs um smíði á
nýjum skipum og hefur verið rætt
um að sameinast um eina teikn-
ingu. Þeir aðilar sem hér er um að
ræða eru eigendur Alberts GK,
Hrafns GK, Hákonar ÞH, Helgu
II RE, Péturs Jónssonar RE og
Arnar KE.
„Þetta er á algjöru frumstigi og
ekki búið að koma sér niður á
teikningu ennþá, en Norðmenn-
irnir vita hvað við viljum og eru
að vinna í þessu máli,“ sagði Þór-
arinn Árnason útgerðarmaður Al-
berts GK í samtali við Fiskifréttir.
Rætt er um skip með 1000-1 100
tonna burðargetu á loðnu, um 56
m breið og 12 m löng. Vandamál-
ið er hins vegar það, hvernig losna
á við gömlu skipin. Norðmenn-
irnir treysta sér ekki til að taka
þau upp í nýsmíðina, a.m.k. ekki
öll þeirra, enda þurfa þeir að losa
sig við þau úr landi aftur, því
bannað mun vera að flytja inn til
Noregs svo gömul skip. Því er
vandséð hvernig þetta mál leysist.
Þess má geta að um síðustu
helgi voru sænskir skipasmíða-
menn hér á landi og áttu m.a. við-
ræður við eigendur ofangreindra
loðnuskipa. Þeir töldu mögulegt
að taka gömlu skipin upp í, en
nefndu engin verð í því sambandi
og mun þetta allt vera nokkuð í
lausu lofti.
Verðsamanburður á gámafiski
og heimalönduðum afla — bls. 11
Skipverjar á Náttfara ÞH hafa aflað mjög vel að undanförnu. Líkt og svo margir aðrir hafa þeir landað
mestum aflanum í gáma í Hafnarfjarðarhöfn. Á dögunum fengu Náttfaramenn 3 stórlúður í trollið á tog-
slóð úti fyrir Snæfellsnesi. Á meðfylgjandi mynd sem Jens Alexandersson tók eru löndunarmenn að taka
lúðurnar frá borði, en hver lúða vó vel á annað hundrað kíló.
Frystur karfi til Kóreu
Togarinn Hólmadrangur ST
landaði nýlega 160 tonnum af
frystum fiski að verðmæti um 13
milljónir króna eftir 22 daga
veiðitúr, þar af voru 10 tonn af
smákarfa fyrir markað í Kóreu.
Högni Halldórsson útgerðar-
stjóri tjáði Fiskifréttum að karfinn
fyrir Kóreu-markað hefði verið
heill með haus, 300-500 grömm
og 500-800 grömm að þyngd, og
ekki afhreistraður.
Að sögn Ólafs Jónssonar hjá
Sjávarafurðadeild Sambandsins
eru möguleikar á sölu á frystum
fiski nokkrir í Kóreu. Við höfum
selt í litlu magni á þennan markað
síðastliðin tvö ár og fengið þokka-
legt verð, einkum fyrir karfa.
Því má svo bæta við, að afla-
verðmæti Hólmadrangs á síðasta
ári var 157 milljónir króna og
gekk reksturinn nokkuð vel, að
sögn útgerðarstjórans. Skipstjóri á
Hólmadrangi er Hlöðver Haralds-
son.