Fiskifréttir - 02.05.1986, Blaðsíða 2
2
föstudagur 2. mai
Aflabrögðin
Togarar á Vestfjörðum
í grálúðunni
— dauft hljódígrásleppukörlum fyrir noröan
SKIN OG SKÚRtR Vl€> SOI*»VRRSÍ©UNJR
"HÉR ‘SKlL'iT RÐ ÞROÆTLI 5T TIL
PESS R9 PÚ &EP\R OKKUR SRMflN"
í síðustu viku voru gæftir frem-
ur risjóttar víðast hvar um landið
en þó gaf á sjó flesta daga vikunn-
ar. Á Vestfjörðum var togaraafli
víðast hvar góður og landaði
Guðbjörg t.d. 230 tonnum en 200
tonn aflans fengust á aðeins fjór-
um dögum. Mikið ber á grálúðu í
afla Vestfjarðatogara en karfinn
er áberandi hjá togurum sunnan
og vestan lands. Þorlákshafnar-
bátar fengu góðan ýsuafla í vik-
unni og var sá góðfiskur áber-
andi í þeim afla sem þar barst á
land en um 48% aflans var þorsk-
ur. Grásleppukarlar bera sig illa
víðast hvar á landinu og hefur afli
þeirra verið rýr það sem af er.
Vopnfirðingar eru þó öllu hressari
enda hefur grásleppan veiðst vel
þar um slóðir. Nú eru nær allir
bátar við Breiðafjörð búnir með
kvótann og aðkomubátar sem
þangað þyrptust í hrotunni farnir
að tínast heim á leið. Þar sem
hraða verður vinnslu Fiskifrétta
vegna fimmtudagsfrídaganna náð-
ist ekki samband við allar ver-
stöðvarnar og verða aflafréttir frá
þeim stöðum að bíða betri tíma.
Vestmannaeyjar
Aflaleysi var við Eyjar í síðustu
viku og má segja að það litla sem
veiddist hafi farið í gáma. Suðurey
landaði tæplega 89 tonnum í vik-
unni og Bjarnarey var með 47
tonn. Þetta mun hafa verið með
því skásta sem kom í síðustu viku.
Minni bátar fengu um 2-3 tonn.
Valdimar Sveinsson fékk 17 tonn
í einni ferð og landaði tæpum 26
tonnum á laugardaginn. Krist-
björg fékk 16,3 tonn. Halkion
landaði 63,6 tonnum 21.4., Sindri
135,2 einnig 21. og Vestmannaey
kom með 29,6 tonn sama dag. 36
gámar voru sendir út til Bretlands
í síðustu viku eða um 550 tonn og
einn gámur var sendur til Þýska-
lands.
Suðvesturland
Grindavík: Þar ríkti aflaleysi í
siðustu viku. Hrafn GK 12 fékk
48,8 tonn í vikunni, Kópur var
með 66 tonn og Oddgeir 49,0,
hver um sig í fimm róðrum. Aðrir
bátar voru að meðaltali með um
40 tonn yfir vikuna. Gaukur fékk
66 tonn í fjórum róðrum og
Skúmur var með 80 tonn í fjórum
róðrum. Þeir bátar sem eitthvað
höfðu sóttu djúpt úti í kanti á yfir
200 föðmum og segjast menn í
Grindavík ekki bjartsýnir á betri
afla á næstunni. Keflavík: Dag-
stjarnan landaði 115 tonnum
25.5, eftir 10 daga að veiðum.
Þessir bátar komu með afla í síð-
ustu viku: Höfrungur II 23,9 tonn,
Geirfugl 22,8, Albert Ólafsson
23.2, Binni í Gröf 22,6, Búrfell
56.5, Arnar 7,8, Bliki 24,5, Ágúst
Guðmundsson 22,8, Akurey 28,3,
Arney 40,1, Árni Geir 23,9 en
hann er að fiska í gáma og landar
aðeins hluta aflans. Barði 34,1,
Guðmundur Ólafsson 4,8, Gull-
þór 17,0. Gunnar Hámundarson
29,1, Jóhannes Jónsson 24,9,
Mummi 24,6, Rán 20,9, Ólafur
14.8, Skagaröst 48,8, Stafnes
63,4, Svanur 23,8, Sæborg RE
11.6, Vonin 24,1, Þorsteinn 25,2,
Vörðufell 1,7 og Þorbjörn 32,0.
Sandgerði: Dauft var yfír afla-
brögðum í Sandgerði í vikunni
sem leið. Færatrillum hefur fjölg-
að þar mikið og hafa þær eitthvað
verið að reyta en þeir bátar sem
fiskað hafa best hafa verið að
veiðum vestur í Breiðafirði.
Minni bátar voru með á bilinu
2-4 tonn á dag í byrjun síðustu
viku en afli fór minnkandi eftir
því sem á vikuna leið. Trollbátur-
inn GeirGoði fékk 32 tonn, Elliði
24.9, Reynir 15,2 og Jón Gunn-
laugsson 7,4. Netabátar lönduðu
sem hér segir: Víðir 9,7, Barðinn
4.2, Sandgerðingur 16,9, Bergþór
22.9, Þorkell Árnason 33,7,
Hólmsteinn 17,8, Hafnarberg
30,3, Grunnvíkingur 31,4, Guð-
finnur 11,5, Ægir Jóhannsson
18,9 og Sæmundur 13,5. Þorláks-
höfn: Heildarafli báta frá Þorláks-
höfn var í síðustu viku tæplega
1.371 tonn. Þar af öfluðu netabát-
ar 1189 tonna, trollbátar 134,5
sem fór að mestu leyti í gáma og
einn dragnótabátur fékk 47,1
tonn. Aflahæstu bátarnir voru
Höfrungur III með 61 tonn í fimm
löndunum, dragnótabáturinn
Dalaröst var með 47,1 tonn í
einni löndun, Hásteinn 46,2 tonn,
Arnar 45,1, Jón á Hofi 39 tonn og
Skálavík var með 38,9 tonn. Fjór-
ir aflahæstu bátar frá áramótum
eru: Höfrungur III með 817,5
tonn, ísleifur IV 814,5, Friðrik
Sigurðsson 800,8 og Arnar 763,6.
Ein togaralöndun var í Þorláks-
höfn í síðustu viku. Þorlákur
landaði 78,3 tonni þann 25.4. eft-
ir 8 daga að veiðum. 31 tonn afl-
ans var þorskur, 23 tonn ufsi og
22 tonn karfi. Hafnarfjörður:
Hafsvala kom með 1,5 tonn,
Hjörvar 780 kg., Auðbjörg 490
kg. Anna 2,0 tonn, Lóa 700 kg.
Sætindur 1,3 tonn, Hafbjörg 2,2,
Frosti og Fróði 800 kíló hvor,
Haukur 1,3 tonn, Birkir 550 kg.,
Neptúnus 600 kg.Júlíana einnig
600 kg. Páll Jónsson 2 tonn og
Silla 800 kg. Guðrún fékk 54,5
tonn, Sandafell 15,3 tonn, Hring-
ur 30 tonn og Þorvaldur fékk 400
kg. - Togarinn Otur landaði í
Hafnarfirði 26.4. á milli 190-200
tonnum eftir 11 daga að veiðum.
Einir landaði 12 tonnum 22.4. og
Breki kom með 11,2 tonn, Sæljón
21,3 og Guðbjörg 34,1. Reykja-
vík: Þar var einnig tregur afli í síð-
ustu viku. Heildarafli í vikunni
var 134,9 tonn og mestan afla í
vikunni hafði Sæljón, 26,5 tonn.
Mestan afla í róðri hafði Valur,
8,9 tonn. Togarinn Jón Baldvins-
son landaði 165,9 tonnum 21.4.
eftir 11 daga að veiðum. 124 tonn
aflans voru karfi, 29 tonn ufsi, 3,8
ýsa, 3,8 grálúða og 2,2 þorskur.-
Heildarverðmæti kr. 2.722.000.-
Ottó N.Þorláksson kom með 86
tonn 22.4. eftir 9 daga að veiðum.
75 tonn aflans voru karfi og 8,8
tonn grálúða. Heildarverðmæti
aflans voru kr.993.138.- Auk
þessa aflaði Ottó N.Þorláksson
tæplega 98 tonna af grálúðu sem
fór í gáma. - Ásþór landaði 23.4.
150,6 tonnum eftir 8 daga að
veiðum. Þar af voru 143 tonn
karfi, 2,8 ýsa, 2,1 ufsi og 1,6
þorskur. Heildarverðmæti:
1.947.042.- Ásgeir kom með
tæplega 197 tonn 25.4. Hafði
hann þá verið 10 daga að veiðum.
Mestur hluti aflans var karfi, 96
tonn, 4 tonn voru af ufsa, 2,8
þorskur, 1,5, ýsa og 1,5, blálanga.
Heildarverðmæti kr. 1.378.100,-
Viðey landaði 107 tonnum þann
21. eftir 8 daga að veiðum og
Vigri kom inn vegna bilunar í síð-
ustu viku og landaði þá um 60
tonnum.
Vesturland
Akranes: Tregt var hjá litlu
bátunum í síðustu viku og fengu
þeir frá hálfu upp í 2,5 tonn í
róðri. Þeir stærri hættu flestir
25.apríl. Höfðu þeir fengið að
meðaltali frá 7 upp í 20 tonn.
Skipaskagi landaði 73 tonnum
21.4., Krossvík kom með 72 tonn
22.4., Haraldur Böðvarsson 107
tonn 23.4. og Sturlaugur H.Böðv-
arsson landaði 202 tonnum 24.4.
Rif: Veiði er nú farin að minnka
fyrir vestan enda flestir bátanna
búnir með kvótann sinn. Sjö
handfærabátar fengu samtals 16,4
tonn í vikunni sem leið. Rifsnes er
enn að veiðum og er að fiska fyrir
Þorlákshöfn. Hafði hann fengið
36,1 tonn í síðustu viku. Hamra-
svanur var með 22,2 tonn, Bára
6,0, Anna 2,8, Sigurfari 25,5,
Þverfell 6,2, Klukkutindur 3,2,
Haförn 8,7, Hrappur 15,8 og línu-
báturinn Guðrún Ágústsdóttir
fékk 4,5 tonn. Ólafsvík: Bátar í
Ólafsvík eru nú allir hættir nema
hvað einn bátur er enn að veið-
um. Hringur SH. Jón Jónsson og
Steinunn eru á rækjuveiðum og
fengu þeir 16,5 tonn hvor í síð-
ustu viku. Hringur fékk 91,2 tonn
í sex róðrum, Jói á Nesi var með 3
tonn í 2 róðrum og Hringur GK
var með 56 tonn í fjórum róðrum.
Smábátar fengu sem hér segir:
Trausti 4,0, Auðunn 6,6, Jón
Guðmundsson 9,0, Bára 9,0. Jón
Bjarnason 21,5, Þorbjörn GK
42.5 í þremur róðrum Sæfinnur
6.5 og Hafliði 3,0. Dragnótabátar
öfluðu sem hér segir: Auðbjörg
13,5, Auðbjörg II 6,5, Hugborg
400 kg. Skálavík 400 kg. og Gull-
toppur 4,5 tonn. Handfæratrillur
fengu 41 tonn í 63 róðrum en afli
samtals í Ólafsvík var 350 tonn í
síðustu viku.
Vestfirðir
Góður afli var hjá Vestfjarða-
togurum s.l. viku og var uppistaða
aflans grálúða. Guðbjörgin land-
aði t.d. 230 tonnum af grálúðu
þann 26. og var einungis fjóra
daga að veiða 200 tonn af aflan-
um. Ekki fengust upplýsingar um
afla Patreksfjarðarbáta áður en
Fiskifréttir fóru í prentun.
Tálknafjörður: Tálknfirðingur
landaði 90 tonnum þann 19. apríl
og varaflinn blandaður. Illa hefur
viðrað fyrir smærri báta en þó
hafa þeir fiskað vel þegar gefið
hefur. Bíldudalur: Sölvi Bjarna-
son landaði tvisvar í vikunni fyrst
þann 23. apríl 120 tonnum eftir 5
daga veiðiferð og síðan aftur þann
26. þá 40 tonnum eftir 2 daga.
Aflinn var að mestu grálúða.
Sölvi er nú farinn til Reykjavíkur
til þess að fá sérstaka ísvél og hef-
ur verið frá veiðum þessa viku af
þeim sökum. Jörundur Bjarnason
landaði tvisvar í s.l. viku samtals
12 tonnum. Þingeyri: Framnesið
landaði 130 tonnum þann 26.
apríl eftir 4 daga og var aflinn grá-
lúða. Framnesið landaði einnig
54 tonnum í Hafnarfirði í s.l.
viku. Sléttanesið mun hafa landað
í þrjá gáma á ísafirði. Til Þingeyr-
ar bárust einnig 3,7 tonn af stein-
bít frá Gísla Páli og 3,4 tonn frá
Tjaldi en báðir þessir þátar
stunda línuveiðar. Flateyri: Gyllir
landaði 170 tonnum þann 25.
apríl og var hluta aflans landað á
ísafirði. 90 tonn fóru í sjö gáma og
var aflinn aðallega grálúða. Línu-
bátar fóru fjóra daga á sjó í s.l.
viku og höfðu þetta 6-10 tonn í
róðri - aðallega steinbít. Á Flat-
eyri hefur verið nóg að gera að
undanförnu og var t.d. unnið all-
an laugardaginn 26. og hluta
sunnudagsins 27. þ.m. Suðureyri:
Elín landaði 143,5 tonnum þann
26. apríl eftir fjóra sólarhringa og
var aflinn grálúða. Sæmilegur afli
hefur verið hjá línubátum og er
steinbítur mest áberandi í aflan-
um en þó eru um 20% aflans
FRÉTTIR
Útgefandi:
Frjálst framtak hf.
Reykjavik
Ritstjóri og ábyrgöarmaður:
Guöjón Einarsson
Blaðamaður: Eiríkur S. Eiriksson
Ritstjórn: Ármúla 38,
simi:685380
Auglýsingastjóri:
HildurKjartansdóttir
Auglýsingar, áskrift og
innheimta:
Ármúta 18, simi 82300.
Pósthólf 8820
128 Reykjavik.
Setningogprentun:
Prentstofa G. Benediktssonar
Áskriftarverð: 1.130 kr.
Jan.-april innanlands.
Hvert tðlublað í áskrift: 67,80 kr.
Lausasöluverð: 79 kr.