Fiskifréttir - 02.05.1986, Blaðsíða 3
föstudagur 2. maí
3
þorskur. Siglfirðingur er nýfarinn
til Þýskalands til viðgerðar og tók
hann með sér 60 tonn frá Suður-
eyri sem seld verða ytra. Nú eru
grásleppukarlar farnir af stað en
fremur lítið hefur fengist í netin
hingað til. Bolungarvík: Dagrún
landaði 140 tonnum þann 25.
apríl eftir 4 - 5 daga en aflinn var
grálúða. Sólrún kom með 50 - 60
tonn af rækju eftir 16 daga veiði-
ferð og fóru um 15 tonn aflans á
Japansmarkað. Heiðrún landaði
þann 21. apríl 20 tonnum af
blönduðum afla og fór hluti í gám.
Skipið kom inn vegna brælu á
miðunum en sömu sögu er að
segja af Hugrúnu sem kom eftir
tvo daga með 6 tonn af rækju.
Línubátar hafa fengið góðan afla
að undanförnu og er aflinn að
mestu steinbítur. Sæmilegt hefur
verið hjá netabátunum. Isafjörð-
ur: Guðbjartur landaði 137 tonn-
um þann 24. eftir 10 daga og var
aflinn grálúða og karfi. Guðbjörg-
in landaði sem fyrr segir 230
tonnum þann 26. eftir 10 daga og
var aflinn grálúða. Skipið fékk um
200 tonn aflans á ljórum dögum
og var hluta hans landað í þrjá
gáma. Páll Pálsson landaði 180
tonnum þann 25. apríl eftir 4
daga og var hluta aflans sem var
grálúða skipað í eina sjö gáma.
Netabáturinn Orri dró upp laug-
ardaginn 26. þ.m. en Víkingur III
og Guðný eru enn að steinbíts-
veiðum og hafa fengið þetta 10 -
12 tonn í róðri. Júlíus Havsteen er
enn á rækju en landaði ekki í vik-
unni. Súðavík: Bessi kom með 95
tonn þann 21. þ.m. eftir viku
veiðar og var aflinn grálúða eins
og hjá öðrum Vestfjarðatogurum.
Sett var í tvo gáma úr Bessa. Mjög
dræm veiði hefur verið hjá rækju-
bátum sem róa í Djúpið og hafa
þeir ekki náð uppi skammtinn.
Hólmavík: Þar var þokkalegt veð-
ur í s.l. viku en undir lok vikunn-
ar fór að gæta brælu á miðunum.
Arnarborgin landaði 7 tonnum í
vikunni, Ásbjörg 7, Grímsey 7 og
Sæbjörg 1 tonn. Hólmadrangur er
að veiðum. Fremur tregt hefur
verið hjá grásleppubátunum og
hafa gæftir verið óhagstæðar.
Norðurland
Hvammstangi: Netabátarnir
Glaður og Haförninn komu með
samtals um 50 tonn í vikunni og
er aflinn nær eingöngu þorskur úr
Húnaflóanum. Rækju- og skel-
fiskveiðum er nú lokið í bili. Sig-
urður Pálmason landaði í þessari
viku og verður sagt frá afla hans í
næsta tölublaði Fiskifrétta.
Skagaströnd: Litlar fréttir eru frá
Skagaströnd þessa vikuna þar sem
ekki náðist samband við tíðinda-
menn Fiskifrétta. Arnar landaði
58,4 tonnum þann 22. apríl eftir 6
daga veiðiferð og var aflinn að
mestu þorskur. Sauðárkrókur:
Skafti landaði 140 tonnum þann
26. apríl eftir viku veiðar og var
megnið af aflanum grálúða en
eitthvað var af karfa. Hegranesið
landaði í þessari viku og verður
sagt frá því síðar. Frá Sauðárkróki
róa nú 10-20 trillur og smábátar
og hefur afli þeirra verið góður
þegar gefur. Að sögn heimilda-
manns Fiskifrétta þar nyrðra hafa
netabátar verið að fá stærðar
„aldamótaþorska“ í netin og
margir hafa fengið 1 - 2 tonn í
umvitjun á smærri bátunum.
Grásleppuveiðin hefur ekki verið
góð það sem af er og telja menn að
gangan sé lítil í ár og mun það
hafa sést snemma þar sem rauð-
maga varð minna vart en áður.
Olafsfjörður: Sigurfari kom aftur
til heimahafnar eftir heimsókn í
Breiðafjörðinn s.l. tvær vikur og
landaði 24 tonnum þann 25.
apríl. Aflinn var þorskur. Sigur-
björg kom með 80 tonn af freð-
fiski í s.l. viku eftir þriggja vikna
útiveru. Dragnótabátar hafa feng-
ið uppí 6 tonn í róðri. Siglufjörð-
ur: Stálvík landaði 61 tonni þann
21. apríl og voru rúmlega 40 tonn
aflans þorskur. Skjöldur landaði
15 tonnum af rækju í vikunni en
Sigluvík fékk á sig brotsjó eins og
mönnum er kunnugt og kom til
hafnar með um 100 tonn af grá-
lúðu. Siglfirðingur landaði 115
tonnum þann 26. apríl. Guðrún
Björg sem stundar netaveiðar
landaði um 22 tonnum í vikunni
og Dröfn sem stundar sams konar
veiðartæpum lOtonnum. Dalvík:
Björgúlfur landaði þann 25. apríl
102 tonnum eftir 9 daga og Baldur
landaði 34 tonnum þann 21. eftir
10 daga veiðar. Bliki kom með 15
tonn af rækju þann 26. eftir 5 daga
veiðar. Eftirtaldir netabátar lönd-
uðu afla á Dalvík í vikunni: Stef-
án Rögnvaldsson, 23,6 tonn, Otur
21,5 , Haraldur 17,5 , Sæljónið
15,2 , Sænesið 17,6 , Njörður 11,0
, Búi 14,0 , Kristján 13,4 , Sveinn
11,4 og Sindri 8,5 tonnum. Akur-
eyri: Þar voru einungis tvær tog-
aralandanir í vikunni. Hrímbakur
landaði 138 tonnum þann 21. og
voru 60 tonn karfi, 26 grálúða og
22 tonn ýsa. Aflaverðmæti:
1.896.000 Kaldbakur landaði 115
tonnum þann 23. apríl og voru 48
tonn karfi, ufsi 39 tonn en þorsk-
ur 13 tonn. Aflaverðmæti:
1.463.000 Grenivík: Þar höfðu 6 -
8 smábátar samtals 14 tonn yfir
vikuna en þeir munu hafa róið
alla daga vikunnar. Grásleppu-
veiði er hafin frá Grenivík en sem
annars staðar hefur uppskeran
verið heldur rýr. Hrísey: Þar hafa
gæftir verið fremur þokkalegar
undanfarna viku og bárust 4,2
tonn af þorski þar á land, 800 kg
ýsa, 700 kg steinbítur og 600 kg
koli. Grásleppukarlar bera sig illa
á eyjunni og hefur afli verið lítill.
Grímsey: Þar bárust 35 tonn af
netafiski frá fimm bátum á land
og var aflinn eingöngu þorskur.
Ekki náðist samband við aðrar út-
gerðir á staðnum og má því vera
að meiri fiskur hafi borist á land.
Þar hefur verið fremur erfitt tíðar-
far - fremur hvasst en þó gaf á sjó
flesta daga vikunnar. Húsavík:
Þar bárust alls 272,943 kg á land í
vikunni sem leið. Þar af var Kol-
beinsey með 101 tonn sem landað
var þann 21. apríl s.l. og var sá afli
eftir 5 daga veiðar. Aflinn var
aðallega þorskur eða 98,5 tonn.
Þokkalegur afli hefur verið hjá
bátunum og gaf á sjó flesta dag-
ana. Afli er nú mikið að glæðast
hjá handfærabátum og bárust t.d.
22 tonn á land frá trillum og
smærri bátum sunnudaginn 27.
apríl. Nú eru komin 46 tonn af
grásleppu á land það sem af er
þessari vertíð og hefur verið saltað
í 328 tunnur. Þetta telst lélegur
afli ef miðað er við fyrri ár en til
gamans má geta þess að þegar
mest var saltað var fjöldi tunna
um 1400! Þórshöfn: Því miður
náðist ekki samband við Þórshöfn
í tæka tíð og verða því aflafréttir
þaðan að bíða betri tíma. Raufar-
höfn: Rauðinúpur landaði 131
tonni þann 23. apríl eftir rúmlega
viku veiðar og var mest af ufsa í
aflanum eða 79 tonn. Trillur og
smábátar höfðu samtals 16 tonn í
s.l. viku.
Austurland
Seyðisfjörður: Engin löndun
var á Seyðisfirði í síðustu viku
utan að netabáturinn Nýfari fékk
2 tonn. Fáskrúðsfjörður: Tregt
var hjá smábátum á netum við
Fáskrúðsfjörð í síðustu viku en
kropp var hjá einum tíu tonna bát
sem er á steinbítsveiðum. Guð-
mundur Kristinn landaði 33,6
tonnum í síðustu viku. Ljósafell
kom með 35,8 tonn 25.4. eftir 5
daga að veiðum og Hoffell land-
aði 83,4 tonni 21.4. eftir 8 daga að
veiðum. Heildarverðmæti aflans
voru kr. 1.472.000. Eskifjörður:
Lítið var um afla á Eskifirði. Eitt
skip landaði þar í síðustu viku,
Hólmanes sem kom með 105
tonn 21.4. eftir viku að veiðum.
Smábátar gátu lítið farið út vegna
veðurs. Höfn í Hornafirði: Frekar
tregt var um afla hjá bátum sem
gera út frá Höfn. Heildarafli báta í
síðustu viku var 336,6 tonn í 43
sjóferðum og skiptist aflinn þann-
ig: Árný 6,9, Bjarni Gíslason
22,5, Erlingur 59,3, Freyr 881 kg.
en Freyr er kominn á troll núna.
Garðey fékk 8,9 tonn, Hvanney
16,2, Lyngey 31,1, Sigurbjörg 4,1,
Sigurður Ólafsson 8,6, Skógey
52,9, Steinunn 6,1, Vísir 16,1,
Þinganes 38,9, Þórir 48,6, Æskan
5,1 og Fáfnir 10,1,. Töluvert
margir bátar eru búnir með kvót-
ann og af þeim sem nefndir eru
hér að ofan eru þessir búnir: Freyr
(kominn á troll), Hvanney, Sig-
urður Ólafsson Steinunn og Æsk-
an, sem er komin á snurvoð.
Vopnafjörður: í síðustu viku
veiddust 17 tonn af grásleppu-
hrognum en 7-8 trillur eru nú á
grásleppuveiðum frá Vopnafirði
og hafa þær haft ágætis afla. Brett-
ingur landaði 72 tonni 21.4. eftir
sjö daga að veiðum. Þar af voru
30 tonn af þorski og 30 tonn af
ufsa, afgangur blandaður. Fiska-
nes aflaði 44 tonna yfir vikuna og
var aflinn að mestu þorskur og
ufsi. Reyðarfjörður: Snæfugl kom
með 94,2 tonn 20.4. eftir 8 daga
að veiðum. Þorskur var í stórum
hluta, 35,5 tonn, karfi 17 tonn,
ufsi 34 tonn og ýsa 6 tonn. Stöðv-
arfjörður: Þar var landað trillu-
fiski í síðustu viku, 4.8 tonnum og
var þar mest um steinbít að ræða.
Neskaupstaður: Þokkalegt veður
var þar í síðustu viku og hafa
netabátar veitt mjög vel. Netabát-
ar höfðu 51,3 tonn í síðustu viku,
og dragnótabátar fengu rúmlega
10 tonn,- Bjartur landaði 72,5
tonnum í Neskaupstað 21.4. eftir
7 daga að veiðum. 34 tonn aflans
voru þorskur og afgangur ufsi og
karfi. Barði kom með 98,7 tonn
að landi 25.4. eftir 8 daga að veið-
um. Þar af voru 27 tonn þorskur
og afgangur skiptist milli ufsa og
karfa.
FRIOGAS KÆLIMIÐLAR
R-12, R-22, R-502
OG MARGAR FLEIRI TEGUNDIR
KÆLIMIÐLA
LITÆKNI
SÚÐARVOGI 20 - 104 REYKJAVÍK - SÍMAR 91-84580 - 30031
Hirtshals Vod- og
Trawlbinderi
Fabrikerer alle slags fiskeredskaber
for det sógáende fiskeri, til fartojer
fra 50 hk til 5000 hk motorer.
Redskabeme fremstilles af nylon,
polyester eller polyethylenenet.
Speciale: REJETRAWL
Modelleme SPUTNIK -
SKJERV0Y
BASTARD og KALUT
fremstilles i alle storrelser.
Indhent tilbud
HIRTSHALS VOD-OG TRAWLBINDERI AfS
Notkajen 2 - 9850 Hirsthals - Tlf. 08-94 19 77 Telex 67769