Fiskifréttir - 02.05.1986, Blaðsíða 4
föstudagur 2. maí
Eigum fyrirliggjandi
T riple Lock
6 tommu ýsunet
• Sá sem einu sinni hefur
notað TRIPLE LOCK net,
notar aldrei annað.
• Spyrjið þá sem reynt hafa.
Englendingar
i sumarskapi
— en „ vetrarverö11 í Þýskalandi
Þorri SU fékk ágætt verð fyrir
afla sem seldur var í Grimsby á
sumardaginn fyrsta. Uppistaða
aflans var þorskur en fyrir 58.9
tonn fengust rúmar 3.1 milljón
krónur. Meðalverð fyrir kíló var
58.33 kr.
Verð á ferskfiskmörkuðum í
Þýskalandi hefur verið í lægri
kantinum og hefur meðalverð fyr-
ir karfa og ufsa verið frá rúmum
35 kr. upp í rúmar 45 kr. Þannig
fékk Drangey tæpar sex milljónir
kr. fyrir tæp 130 tonn, sem seld
voru í Cuxhaven 22. apríl. Meðal-
verð var 45.51 kr. Ottó Wathne
seldi í Bremerhaven á sumardag-
inn fyrsta og fyrir rúm 147 tonn
greiddu þýskir fiskkaupmenn
tæpar 5.9 millj. kr. Meðalverð
39.81 kr. Karlsefni seldi í Cux-
haven sl. mánudag og fékk lágt
verð fyrir aflann. Fyrir tæp 194
tonn fengust tæpar sjö millj. kr.
eða aðeins 35.80 fyrir kílóið.
MARCOhf
Langholtsvegi 111 — 124 Reykjavík
P.O. Box 4330 - Símar 687970 687971
Apelco rafeindatæki
Nú er APELKO-lóraninn DXL-6000 aftur
fáanlegur. Fyrirferðalítill, en ótrúlega
fjölhæfur.
Ennfremur video-litamælar á mjög góðu
verði, að ógleymdum APELCO-
radarnum, þeim minnsta í heimi.
Pantið tímanlega.
APELCO umboðið.
BALDUR HALLDÓRSSON skipasmiður
Hlíðarenda - Pósthólf 451 - 602 Akureyri - Simi 96 23700
Skyndiskoöun fiskiskipa:
Athugasemdir gerðar
við 186 atriði
Dagana 15.-18. apríl sl. fór
fram skyndiskoðun á fiskiskipum
í verstöðvum á Suður-og Vestur-
landi. Farið var um borð í 86 skip
og skoðuð og prófuð samtals 621
atriði í búnaði skipanna.
Athugasemdir voru gerðar við
186 atriði af þeim sem skoðuð
voru. I sex skipum var krafist taf-
arlausra lagfæringa á ákveðnum
búnaði, en í allmörgum öðrum
skipum var mönnum gert að bæta
úr hið allra fyrsta og verður eftir
því gengið. Af einstökum atriðum
sem ábótavant var má nefna legu-
færi, björgunarvesti og björgunar-
hringi, lokunarbúnað lesta og
vatnsþéttra rýma og brunadælur,
slöngur og stútar.
Siglingamálastofnunin mun á
næstunni láta fara fram skyndi-
skoðanir af þessu tagi í öðrum
verstöðvum landsins.
MERMAID
bátavélar 70 — 250 ha.
til afgreiðslu með stuttum fyrirvara.
Gott verð og greiðsluskilmálar.
16 vélar seldar á síðastliðnu ári.
VÉLORKAHF.
Garðastræti 2-121 Reykjavík
Símar 91 -62-12-22, 91-10773.