Fiskifréttir - 02.05.1986, Page 6
Lakari netafiskur á mánudögum:
„ Viö munum ekki
gefa helgarfríin eftir“
— segir Óskar Vigfússon formaður
Sjómannasambandsins. Kristján Ragnarsson
formaður LÍÚ telur koma tilálita
að skylda menn tilað vitja um netin
um helgar eða taka þau upp ella
Ríkismat sjávarafurða hefur
ítrekað bent á það með súluritum í
vikulegum fréttabréfum sínum,
hversu miklu stærri hluti af afla
netabátanna fari í annan og þriðja
flokk á mánudögum en öðrum
dögum, og er skýringanna að
sjálfsögðu að leita í því, að þá er
verið að koma með tveggja nátta
fisk að landi eftir helgarfrí, því
ekki er vitjað um netin á sunnu-
dögum. Hér er auðvitað ekki um
nein ný sannindi að ræða, heldur
segist Ríkismatið aðeins vilja
benda á þessa staðreynd með
skýrum hætti, ef það gæti orðið
mönnum enn frekar til umhugsun-
ar og leiðir fyndust til úrbóta.
Helgarfrí eins og aðrir
„Ef þessir ágætu menn sem búa
til þessi súlurit sjá einhverja leið
til lausnar í þessu máli, svo sem
að sækja fiskinn með eigin hendi
meðan sjómenn eru í fríi, þá er
það gott og blessað" sagði Óskar
Vigfússon formaður Sjómanna-
sambands íslands, er Fiskifréttir
leituðu álits hans á þessu máii,
,,en sjómenn ætla sér að fá ein-
hverja hvíld frá sínum störfum
eins og aðrir þjóðfélagsþegnar og
gefa helgarfríin ekki eftir.“
Hann sagði, að auðvitað væri
tveggja nátta fiskur lakari en nýrri
fiskur, en eina leiðin til að ráða
bót á þessu væri að taka öll veið-
arfæri í land fyrir helgarfrí og það
hefði stóraukna slysahættu í för
með sér. „Það væri að bjóða hætt-
unni heim að ætla sér að draga öll
net um borð í skipin í misjöfnum
veðrum um hávertíðina. Það er
staðreynd sem enginn hefur treyst
sér til þess að mótmæla enn“
sagði Óskar. Þá bætti hann við að
tveggja nátta fiskurinn væri
kannski ekki eins slakt hráefni og
menn vildu vera láta, því þessi
fiskur hefði hingað til þótt góður í
saltfiskverkun.
Óskar Vigfússon kvaðst telja
það hið mesta böl, ef sjómenn
færu að gefa eftir sín samnings-
bundnu frí að þessu leyti og benti
á að vinnuverndarlög giltu um all-
ar stéttir nema sjómannastéttina.
Hann sagði, að það hefði kostað
geysilega baráttu að koma helgar-
fríunum á á sínum tíma. Til að
byrja með voru þau í apríl og maí,
síðan bættist mars við og núna
fyrir þremur árum hefðu komið
helgarfrí í janúar og febrúar líka.
Nú hefði náðst fram að sjómenn
hefðu 4 frídaga í mánuði, hvaða
fiskveiðar sem þeir stunduðu.
Þetta væru 24 klukkustundir í
viku hverri, það væri allt og sumt.
„Það hefur oft komið upp í
samningaviðræðum við útvegs-
menn, sérstaklega eftir að kvóta-
kerfið komst á, að þessu yrði
breytt með einhverjum hætti, en
við höfum bent á vinnulöggjöfina
í landi gagnvart því fólki sem þar
starfar“ sagði Óskar. „Það er
spurning hvort ferskfiskeftirlitið
þurfi ekki að líta örlítið nánar á
það, hvernig farið er með hráefnið
eftir að í land er komið og kannski
geymt yfir helgar í húsunum
óunnið.“
Þarf að leita leiða
„Úr því að við erum með tak-
markaðan kvóta er náttúrlega
ekkert vit í að skemma fiskinn
með því að láta hann liggja of
lengi í netunum“ sagði Eiríkur
Tómasson útgerðarstjóri í
Grindavík í samtali við Fiskifrétt-
ir, „en hins vegar verða sjómenn
að fá frí eins og aðrir, og eina ráð-
ið er að allir aðilar, sjómenn, út-
Úr fréttabréfi Ríkismatsins um vikuna 12. —18. apríl. Óstrikuðu súlurnar sýna þann afla sem fór í f. flokk
hvern dag, en skástrikuðu súlurnar sýna 2. og 3. flokk. Hlutfallslega mest í lakari flokkana á mánudögum.
Dæmigerð línurit fyrir verstöðvar SV-lands.
„Lokateygjurnar”
— rætt viöAöalstein Einarsson
skipstjóra á Hring GK
færði sig fyrir tveimur til þremur
vikum vestur i Breiðaljörð þar
sem aflavon var meiri. Aflanum
er síðan ekið suður til Hafnar-
fjarðar til vinnslu.
Aðalsteinn á Hring er búinn að
fá um 600 tonn af þorski og ýsu á
vertíðinni. Hann er á sóknar-
marki. Hann bjóst við að vera á
netum fram eftir maímánuði en
síðan myndi báturinn liggja í tvo
til tvo og hálfan mánuð í sumar og
fara á línu í haust. Áhöfnin er 10
manns, mjög gott fólk segir Aðal-
steinn.
Myndirnar voru teknar í róðri á
mánudegi í síðustu viku en þá var
aflinn 20 tonn eftir tvær nætur.
Aðalsteinn var inntur álits á um-
ræðunni um ,,mánudagsfiskinn“
og svaraði hann því til að í lagi
væri að landa tveggja nátta fiski
núna þegar fiskurinn væri orðinn
svona ,,sterkur“ en öðru máli
gegndi um það þegar hann var
fullur af loðnu í vetur. Annars
sagði hann að bátarnir við Breiða-
fjörð tækju yfirleitt upp megnið af
trossunum fyrir heglarfrí, skildu
aðeins eftir 2-3 trossur. Þetta
gerðu þeir út af kvótanum. „Þetta
tíðkast ekki fyrir sunnan, en hér í
Breiðafirði er miklu meiri fiskur
og mönnum því ekki eins annt um
staðina sína sagði Aðalsteinn.
„Við höfum verið að undan-
förnu með þetta 11 tonn að jafnaði
í róðri úr 8 trossum. Annars hefur
aflinn verið að minnka. Ætli þetta
séu ekki lokateygjurnar“ sagði
Aðalsleinn Einarsson skipstjóri á
Hring GK frá Hafnarfirði í sam-
tali við Fiskifréttir, en hann hefur
verið á netaveiðum á Breiðafirði
að undanförnu og landað ýmist í
Ólafsvík eða á Rifi.
Heiðar Marteinsson skrapp í
róður með honum í síðustu viku
og tók þá meðfylgjandi myndir
fyrir Fiskifréttir. Hringur GK var
á línu í janúar og febrúar en fór
síðan á net, fyrst fyrir sunnan en
vegsmenn og fiskverkendur setjist
niður og ræði málin".
Eiríkur sagði, að þetta væri ekki
auðvelt mál að leysa, og til dæmis
væri ekkert vit í því að skylda
minni bátana til að draga net sín
upp um hverja helgi. Um gæði
tveggja nátta fisks sagði hann, að
hann nýttist að vísu í salt en færi í
lakari gæðaflokka en ella. Svona
fiskur hefði oft verið ágætur í
skreið fyrir nokkrum árum, en
þeir tímar væru liðnir.
„Ég tel að við ættum að reyna
að ná einhverju samkomulagi um
þessi mál fyrir næstu vertíð“ sagði
Eiríkur Tómasson að lokum.
Frjálst humarverð?
„Við höfum lengi haldið því
fram að það samrýmist ekki veið-
um, þar sem veiðarfæri er skilið
eftir í sjó, að hafa helgarfrí. Þetta
er nánast fyrirfram ákveðin
skemmd á fískinum“ sagði Krist-
ján Ragnarsson formaður LIÚ í
samtali við Fiskifréttir. „I vetur
hafa bátar á Snæfellsnesi tekið
hluta af netum sínum upp um
helgar, vegna þess hve vel hefur
fiskast. Ég held að það komi alveg
til álita að gera mönnum þetta
skylt, þótt ég sé nú ekki mikið
fylgjandi boðum og bönnum. En
það myndi leiða til þess að menn
sæu að þetta gengi ekki.“
Kristján nefndi einnig að regl-
urnar um helgarfrí kæmu sér sér-
staklega illa á humarveiðum á
sumrin. Þá væri helgarfrí aðra
hverja helgi og allir bátarnir
kæmu inn á föstudögum og síðan
geymdist afinn í landi yfir helg-
ina. Engin vara glataði eins miklu
verðmæti hlutfallslega og humar-
inn við geymslu.
„Ég vona að breytt viðhorf geti
skapast með frjálsari verðlagn-
ingu,“ sagði Kristján, „við erum
að íhuga að gefa humarverð frjálst
í sumar. Við teljum að það sé næg
samkeppni um vöruna til að
skapa eðlilegt verð. Þá held ég að
það kæmi sterklega til greina að
vinnslustöðvarnar greiddu tiltek-
ið verð fyrir humarinn á föstudög-
um og annað á mánudögum.
Að ofan: Aðalsteinn
skipstjóri í brúnni. Til
vinstri: Bjarni Helgason
háseti og aldursforseti á
Hring, 66 ára, með vænan
þorsk í fanginu.
Um borð í Hring GK á Breiðafirði. Talið frá vinstri: Ásbjörn Árnason 2. vélstjóri,
Magnús Þórisson stýrimaður, Finnbogi Ólafsson háseti og Ingólfur Helgason
háseti.
Ljósmyndir: Heiðar Marteinsson
7
SJÓLASTÖÐIN HF.
ÓSEYRARBRAUT 5-7 220 HAFNARFIRÐI
SÍMI: 91-651200
ÚTGERÐ:
B/vOTUR HF16
B/v DREKI HF 36
STARFRÆKJUM:
HRAÐFRYSTIHÚS
FISKVERKUN
ÍSFRAMLEIÐSLU
KAUPUM ALLAN FISK TIL VINNSLU
SELJUM ÍS
MONO MERLIN
LENSIDÆLUR
Það er engin tilviljun að Mono-
dælur séu enn í gangi eftir 40
ára notkun
Mono-dælur eru heimsþekkt
gæðavara sem þú getur treyst
Þú ert öruggur með Mono,
það sýnir reynslan
lensidælur með
afköst frá
2400-25000 l/klst.
HAMAR HF
Borgartúni 26, 105 Reykjavík.
Sími 22123.