Fiskifréttir - 02.05.1986, Side 8
8
föstudagur 2. maí
TYPE
BX300
SKIPSTJÓRASTÓLUNN
SEM HÆFIR
ÖLLUM SKIPUM
SKIPPER má leggja saman.
SKIPPER vegur aðeins 43 kg.
SKIPPER er fóðraður með taui.
SKIPPER er hægt að snúa 360°.
SKIPPER er mjög vandaður og
þægilegur — algjörlega ryðfrír.
AHar upplýsingar fást hjá okkur:
SK/MSMÍÐASTÖÐIN
SK/PAVÍKHF.
Stykkishólmi — Simi 93-8400
Við veitum beztu fáanlega þjónustu á
fiskmörkuðum í Bretlandi.
Við höfum áratugareynslu við sölu á ferskum
fiski og önnumst sölu beint úr fiskiskipum
eða úr gámum.
Umboðslaun okkar eru:
Fyrir gámafisk
Fyrir fisk úr fiskiskipum:
Af sölu að verðmæti GBP allt að 50.000
af sölu milli 50.000 og 90.000
af sölu yfir 90.000
Aðalsteinn Finsen sér um þessa þjónustu
og er hægt að hafa samband við hann í skrifstofusímum
9044 482 227178 og 9044 482 27396.
Heimasími Aðalsteins er 9044 472 887619.
BREKKES (fish sales) Ltd.
William Wright Dock Hull HU3 4PB England
Telephone 0482 27396 Telex 592109
2%
2,25%
2,00%
1,75%
Erlendarfréttir
Færeyjar:
Nýr verksmiðjutogari
fyrir kolmunna veiðar
Hinn aflasæli færeyski skip-
stjóri Mortan Johannesen fékk
nýlega afhentan fyrsta nýja
versksmiðjutogarann til veiða, að-
gerðar og frystingar á kolmunna.
Þetta er 60 metra langur skut-
togari byggður hjá Langsten
skipasmíðastöðinni í Alasundi í
Noregi og hefur fengið nafnið
Andrias í Hvannasundi.
Togarinn er með 4100 ha Wart-
sila vél og áæltað er að hann fram-
leiði 5000 tonn árlega af fiskflök-
um, með roði eða roðlaus, ásamt
hakkaðri fiskframleiðslu.
Það eru helst bresk og vestur-
þýsk fyrirtæki sem kaupa þessa
vélframleiddu kolmunna-frysti-
vöru.
Færeyingar hafa veitt kol-
munna undanfarin 14 ár og náð
góðum tökum á bæði veiðum og
meðferð þessa litla frænda þorsks-
ins, og eftirspurn eftir kolmunna
hefur aukist hjá fiskkaupendum.
Færeyingar hafa aukið kol-
munnaframleiðsluna jafnt og þétt
og nýlega hefur verðið hækkað
um 50 af hundraði.
Skip Johannesens er fyrst af 19
nýjum skipum sem færeyskir út-
gerðarmenn hafa áætlanir um að
kaupa fyrir alls 95 milljónir
punda (5,8 milljarða ísl. kr.). Þar
á meðal eru þrír kolmunnatog-
arar í viðbót, fjórir rækjutogarar,
eitt eða tvö hörpudisks- veiðiskip
og fjögur línu- og frystiskip, auk
skipa til endurnýjunar á eldri
grunnslóðarflota.
Þess má geta í lokin að Johann-
esen er einn af mikilhæfustu tog-
araskipstjórum í Færeyjum með
440 tonna skipin RANKIN og
SUÐUROYINGUR.
Græniendingar:
70-falda hörpudiskaflann
meö hjálp íslendlnga
Segja má að með aðstoð Islend-
inga hafi Grænlendingum tekist
að ná tökum á hörpudiskveiðum
og árangurinn sést á því, að á
árinu 1985 veiddu þeir á annað
þúsund tonn af hörpudiski, en árið
1984 nam veiðin aðeins 19 tonn-
um.
Þessi mikla aflaaukning á rætur
sínar að rekja til þess að vorið
1984 fóru Hrafnkell Eiríksson
fiskifræðingur og Kristján Láren-
tínusson skipstjóri úr Stykkis-
hólmi til Nuuk á vesturströnd
Grænlands og fundu og kortlögðu
hörpudiskmiðin þar utan við. Var
það metið svo að miðin þyldu
1300 tonna veiði á ári og kvaðst
Hrafnkell hafa haft af því fregnir,
að sá kvóti hefði verið fylltur í
fyrra, en hafði að öðru leyti ekki
nákvæmar tölur um heildarafla-
magn Grænlendinga, því hörpu-
diskur veiðist víðar við ströndina.
Samtímis íslendingunum voru
þarna einnig Færeyingar sömu
erinda en Færeyingarnir komu
ekki með veiðarfæri með sér eins
og íslendingarnir og gengu veið-
arnar hjá þeim ekki eins vel. Var
því fyrst og fremst byggt á tölum
íslendinganna við mat á stærð
stofnsins, en Færeyingar og ís-
lendingar unnu sameiginlega að
þessu verkefni.
Skelfiskmiðin utan við Nuuk
eru islaus allt árið og því ráðgera
Grænlendingar að stunda þessar
veiðar einkum á veturna þegar ís
hamlar öðrum veiðum. Ein
vinnslustöð er í landi en auk þess
er skel unnin um borð í nokkrum
bátanna.
Lesið
Fiskifréttir