Fiskifréttir - 02.05.1986, Qupperneq 9
föstudagur 2. maí
9
Fréttir
Þrir Japanstogarar í klössun og breytingu ihaust
Breytingar og niðursetning á
tækjabúnaði í japönsku togarana
verða boðnar út nú upp úr mán-
aðamótum. Það er FJAS - Félag
japanskra skuttogaraeigenda, sem
stendur að útboðinu en í því er
gert ráð fyrir að boðið verði í
breytingar á nokkurs konar
„staðalskipi“, sem sameinar flest
það sem gera á við þá sex togara
sem fyrirhugað er að breyta.
Að sögn Eiríks Ólafssonar, for-
manns FJAS, munu þau fimm
fyrirtæki sem eiga hagstæðustu
tilboðin í „staðalskipið“, fá sér-
gögn fyrir breytingar á hverju
skipi fyrir sig og geta þá boðið í
þau verk sem þau hafa áhuga á.
FJAS var búið að fá tilboð í
bæði vélar og spilbúnað og eru
vélarkaupin frágengin að mestu
leyti. Vélarnar verða keyptar frá
japanska fyrirtækinu Niigata en
öllu óljósara er með spilbúnað-
inn. Viðræður vegna þess hluta
munu þó hefjast fljótlega.
Stefnt er að því að fyrstu þrjú
skipin fari í breytingar á haust-
mánuðum, en allir japönsku tog-
aranna innan FJAS, að Drangey
og Rauðanúpi undanskildum
munu fara í þessa miklu klössun.
Birgir Albertsson
trillukarl á
Stöðvarfirði:
Hefur komist
Í40ródra
i vetur!
— Það hefur bókstaflega ekk-
ert gengið að undanförnu. Eg hef
gert út á steinbít allan aprílmánuð
og aflinn hefur mestur orðið um
hálft annað tonn á sjö línur. Flann
hefur líka farið allt niður í 100
kíló, sagði Birgir Albertsson,
trillukarl á Stöðvarfirði og stjórn-
armaður í samtökum trillukarla er
við forvitnuðumst um aflabrögð.
Að sögn Birgis fór hann í eina
15 róðra í apríl og var aflinn alls
um tíu tonn af steinbít. Þegar allt
er talið fást um 16 til 17 krónur
fyrir kílóið en hraðfrystihúsið á
staðnum hefur keypt steinbítinn
og flutt hann ísaðan til Bretlands.
Sagði Birgir að verð þar hefði ver-
ið lágt að undanförnu. Kostnaður
vegna útgerðarinnar er talsverður
og t.a.m. kostar kílóið af loðnu í
beitu, 15 krónur. Fyrir beitingu
borga menn 340 til 350 krónur á
línuna.
Birgir Albertsson er búinn að fá
tæp 28 tonn frá áramótum, þar af
tíu tonn af steinbít. Að hans sögn
var febrúarmánuður mjög góður
en almennt hefði veturinn verið
ágætur.
— Það hefði þótt tíðindum sæta
ef menn hefðu getað farið í 40
róðra að vetrarlagi hér fyrir
nokkrum árum. Menn máttu
þakka fyrir að komast í svo marga
róðra á sumri, sagði Birgir Al-
bertsson.
SJÁLFVIRK OG HANDSTÝRÐ
:l
ÍHÚSOGSKIP
— Við útvegum allt viðurkennt efni í fullbúin
Halon- slökkvikerfi í hús og skip.
— Sérþjálfaðir og iðnlærðir menn annast uppsetningu,
eftirlit og viðhald á kerfunum.
— Við sjáum um tafarlausa endurfyllingu á tæmdum
halonflöskum í eigin áfyllingarstöð eða
með áfylltum flöskum af lager.
Meltubúnaður
íHeiðrúnu ÍS
Brátt verður lokið niðursetn-
ingu meltubúnaðar um borð í
Heiðrúnu frá Bolungarvík. Heið-
rún er annað skipið í Bolungarvík
sem fær metlubúnað, því slíkur
búnaður hefur verið Dagrúnu um
alllangt skeið. Að sögn Einars K.
Guðfinnssonar útgerðarstjóra hef-
ur meltubúnaðurinn í Dagrúnu
gefið góða raun.
UMBOÐ
Á ÍSLANDIFYRIR
DANSK FIRE
EATER APS
SKAINIIS %
NORRÆN VIÐSKIPTI
Laugavegi 59
101 Reykjavík Sími 21800