Fiskifréttir - 02.05.1986, Side 11
föstudagur 2. maí
11
Skiptaverð fyrir gámafisk íBretiandi:
67% hærra fyrir þorsk—232% fyrir kola
Samanburöur LIU á gámafiski
og heimalönduðum afla
Að beiðni Fiskifrétta hefur Sveinn Hjörtur Hjartarson
hagfræðingur LIU reiknað út hagkvæmni þess að selja
ferskan fisk í gámum til Bretlands miðað við að landa
aflanum heima til vinnslu. Fram kemur að fyrir þorsk þarf
að fá a.m.k. 39 kr/kg. í Bretlandi til þess að sala borgi sig,
en ef verðið er 58 kr/kg., eins og algengt er um þessar
mundir, er skiptaverðmæti 67% meira en ef aflanum væri
landað heima. Á sama hátt er skiptaverð á kola 232%
hærra en við heimalöndun, ef reiknað er með 45 kr/kg.
meðalverði erlendis. Svona horfir gámasalan við útvegs-
mönnum og sjómönnum. Ekkert mat skal lagt á þjóðhags-
lega hagkvæmni þessa útflutnings, enda virðast fáir treysta
sér til að nefna tölur í því sambandi. En hér á eftir fer
greinargerð hagfræðings LÍÚ í heild:
Hér fara á eftir þrjú dæmi um sölu þorsks og kola úr gámum er-
lendis. í þeim dæmum er gert ráð fyrir að í hverjum gámi sé ein-
ungis þorskur eða koli, svo og í gámunum séu um 14 tonn, þegar á
markað sé komið. Fyrir þorskinn er erl. salan gerð upp annars
vegar með því að gera ráð fyrir 58 kr. per. kg., sem talið er meðal-
verð um þessar mundir. Hinsvegar 39 kr. per kr. sem ætla má að
sé nokkurn veginn það lágmarksverð, sem útgerðin verður að fá til
þess að fá sömu heildartekjur og við heimalöndun. Lágmarksverð
pr. kr. af þorski í I. fl. er 29.75 kr. og kolaverð um 10.06 kr. um
þessar mundir, en meðalverð í Englandi er um 45 kr. per kg.
Skiptaverðmæti af heildartekjum við heimalöndun er 70%, en
af brúttósöluverðmæti erlendis kemur 60% til skipta af þorski en
52% vegna hærri tolla af kola.
Dæmi 1. Meðalverð á þorski 39 kr/kg. í Englandi og
heimalöndun m.v. einn gám.
Heima sala Erl. sala Mism. %
kr. kr.
Heildartekjur Áætl. kostnaður 416.500 546.000 31
frádrag v/erl. sölu. (1) 123.500
Samanburðarhæfar tekjur 416.500 422.500 1.4
Skiptaverðmæti 291.000 327.600 12.6
(1) Þessi liður samanstendur af kostnaði vegna m.a. fraktar,
tolla, umboðslauna. ískostnaðar, kassakostnaðar m.m. Þessi
kostnaður er fundinn með því að athuga kostnað við útflutning á
gámum og tekið mið af reynslutölum.
Eins og fram kemur í dæmi 1 eru 39 kr/kg. það lágmarksverð,
sem útgerðin verður að fá erlendis til að geta haft sambærilegar
tekjur og við heimasölu á þorski.
Dæmi 2. Meðalverð á þorski 58 kr/kg. í Englandi og heima-
löndun m.v. einn gám.
Heima sala Erl. sala Mism. %
kr. kr.
Heildartekjur Áætl. kostnaður frá- 416.500 812.000 95
drag v/erl. sölu. (1) 135.500
Samanburðarhæfar tekjur 416.500 676.500 62.5
Skiptaverðmæti 291.000 487.200 67.4
(1) Þessi kostnaður er aðeins hærri en í dæmi 1, vegna þess að
umboðslaun og tollar eru ákv. % af heildarverðmæti, þótt kostn-
aðurinn minnki hlutfallslega mun meira við hærri sölu. Úr 22,6%
í dæmi 1 í 16,7% i dæmi 2.
Að lokum er hér dæmi um gám sem í er koli og sendur er á Eng-
landsmarkað. Vegna hærri tolla er meiri tilkostnaður því fylgjandi
að flytja út kola, en þorsk. 15% tollur er á kola en 3,7% tollur af
þorski. Þennan mismun þyrfti að leiðrétta til Iækkunar.
Athyglisvert er að á kolaflökum er aftur á móti ekki þessi hái
tollur, en þrátt fyrir þetta hafa ekki fengist sambærileg verð fyrir
kolaflök, sem héreru seld.
Dæmi 3. Meðalverð á kola 45 kr/kg. í Englandi og heimalönd-
un m.v. einn gám.
Heima sala Erl. sala Mism. %
kr. kr.
Heildartekjur Áætl. kostnaður frá- 140.840 630.000 347%
drag v/erl. sölu. 196.500
Samanburðarhæfar tekjur 140.840 443.000 207%
Skiptaverðmæti 98.600 327.600 232%
Þau dæmi sem hér að framan eru sýnd gefa til kynna hversu
hagkvæmt það getur verið fyrir útgerð að senda afla á markað er-
lendis í gámi. Þó ber rækilega að undirstrika að eðli frjáls markað-
ar getur verið þannig að gæði vörunnar, framboð og eftirspurn
gera það að verkum, að sá er kann að haga sér í samræmi við lög-
mál frjáls markaðar hámarkar tekjur sínar. En við búið er að
skussinn sitji í súpunni og fái ekki einu sinni fyrir flutningskostn-
aði. Meðal mikilvægustu þáttanna eru gæðin og stýring á fram-
boði vörunar í samræmi við eftirspurn. Hvað gæðum viðkemur er
vert að geta þess að margir kaupendur erlendis skrá hjá sér
hvernig meðhöndlun Fisksins er hjá einstökum seljendum. Þeir
sem ná ávallt að skila frá sér gæðafisk fá því að meðaltali hærra
verð.
Jón Kjart-
ansson
frystir
rækju
Jón Kjartansson SU kom ný-
lega til Eskifjarðar með 72 tonn af
frystri rækju eftir 14 daga veiði-
ferð. Af þessum 72 tonnum fóru
27 tonn í pakkningar en 45 tonn í
blokk. Þetta var önnur veiðiferð
skipsins á rækjuveiðar eftir að
loðnuveiðum lauk.
BúrfellKE
með yfir
900 tonn
Búrfell KE er komið með yfir
900 tonn af fiski frá áramótum, að
sögn Þorsteins Erlingsspnar hjá
Saltveri hf. í Njarðvíkum. Búrfell-
ið hefur róið á línu og með net.
Skipstjóri er Örn Einarsson,
kunnur aflamaður sem var um
tíma með Pétur Inga KE.
Þetta er í fyrsta skipti í nokkur
ár sem bátur frá Keflavík er kom-
inn með yfir 900 tonn á vetrarver-
tíð í kringum 20. apríl. Þorsteinn
Erlingsson, er þekktur sem skip-
stjóri á loðnu og var með Erling
KE í vetur sagði, að Suðurnesin
væru afskipt í kvótamálum og það
væri athugunarefni hve mikinn
hluta loðnu, síldar og rækjuaflans
bátar frá Suðurnesjum lönduðu til
vinnslu fyrir utan Suðurnesin.
Einnig nefndi hann að viðmiðun-
arárin varðandi kvótakerfið væru
Suðurnesjunum óhagstæð, og
nefndi að Erling KE hefði engan
þorskkvóta.
AUSTURSKILJA
H.V. 0,5
Framleiðum
austurskiljurfyrir
skip.
Austurskiljan er
þegar kominn í 50
togara og flutn-
ingaskip.
Dieselvélaviðgerðir - Járnsmíði - Svartolíukerfi
Vökvakerfi - Upphitunarkerfi - Austurskiljur
Tökum að okkur viðgerðir og nýsmíði
Gerum föst verðtilboð í flest verkefni
ejCcvi í
Mýrargötu 28 101 Reykjavík Sími 91-28922
r
RENOLD
Þekking Reynsla Þjónusta
FÁLKIN N
SUPURLANDSBRAUT 8, SIMI 84670
®
4