Fiskifréttir - 02.05.1986, Qupperneq 12
FRÉTTIR
16. tbl. föstudagur 2. maí
SANDBL'ASTUR HF
Kostur sem borgar sig
153917
Fyrrum eigendur Hafnareyjar:
Kaupa skip í Svíþjóð
fyrir 40 milljónir króna
Fyrrum eigendur Hafnareyjar
SF 36 sem sökk í höfninni á Höfn
í Hornafirði, eftir árekstur við
togarann Þórhall Daníelsson í
vetur, hafa nú fest kaup á skipi í
Svíþjóð. Gengið var frá kaupunum
sl. mánudag eftir að lánafyrir-
greiðslur komust á hreint.
Samkvæmt upplýsingum Gísla
Páls Bjömssonar eins eigenda út-
gerðarfélagsins Krosseyjar hf:, er
skipið um 100 brúttólestir að
stærð, smíðað í Svíþjóð 1983.
Hafnarey var hins vegar 81 tonna
eikarbátur, smíðaður 1961.
Kaupverðið er nálægt 40 milljón-
um króna en skipið verður afhent
nýju eigendunum í Svíþjóð eftir
u.þ.b. mánuð.
Að sögn Gísla hafa Krosseyjar-
menn ýmis áform uppi varðandi
útgerð skipsins, sem hann taldi
ekki timabært að skýra nánar frá.
Skipið er nú útbúið til togveiða og
vel búið siglingartækjum en ýmis-
legt vantar þó um borð s.s. línu-
spil. Fyrirtækið Daníel Þorsteins-
son og Co. hafði milligöngu um
þessi skipakaup.
Fjörugt i Mjóafiröi:
Póstbáturinn mokfískar!
— nær oft tveim hölum ípóstferöum
Nokkur hundruö kíló af pósti
og 60 tonn af þorski. Þetta eru
flutningar póstbátsins Anny SU
71 frá Mjóafirði frá áramótum.
Þetta þætti ekki í frásögur færandi
ef áhöfn bátsins hefði ekki sjálf
aflað þessara 60 tonna, en bréfin
hafa hins vegar Mjófirðingar og
aðrir seð um að skrifa.
Að sögn kunnugra er póstbátur-
inn í Mjóafirði, eini báturinn á
Austfjörðum sem hefur fiskað að
ráði. Egill Stefánsson, eigandi
bátsins staðfesti það að fiskeríið
hefði gengið framar öllum vonum
en Anny hefur verið á snurvoð.
Báturinn er 13 tonna plastbátur
og hefur aflinn mestur orðið 8.5
tonn eftirtvo daga.
— Þeir hafa aðallega fengið
aflann yst í Seyðisfirði undir
svonefndu Bjargi, segir Egill en
samkvæmt upplýsingum hans
hafa póstflutningarnir tafið bátinn
talsvert frá veiðum. Farið er með
póst til Neskaupsstaðar tvisvar í
viku en oftar en ekki hefur Jóhann
sonur Egils sem er með bátinn,
náð einu til tveim hölum á leið-
inni. Ef svo heldur sem horfir
verður Jóhann fljótur að fylla
kvótann sem er um 120 tonn. Má
því búast við því að fiskilyktin á
bréfum Mjófirðinga dvíni þegar
líða tekurá árið.
Margrét EA farin tiiNoregs:
Breytingarnar kosta
175 milljónir króna
Norska blaðið Fiskaren skýrir
frá því að togaranum Margréti EA
verði breytt í verksmiðjuskip hjá
skipasmíðastöðinni A/S Mjellem
og Karlsen í Bergen og muni
kostnaðurinn nema um 30 mill-
jónum norskra króna en það svar-
ar til 175 milljóna ísl. króna.
Fram kemur í fréttinni að
skrokkurinn verði lengdur um 12
metra, allur búnaður á dekki end-
urnýjaður og ný vél sett í skipið.
Þá segir að fiskvinnsluvélarnar
verði þýskar en aðalvél og annar
búnaður komi frá norskum fram-
leiðendum. Gert er ráð fyrir að
verkinu ljúki í lok október.
Fiskifréttum tókst ekki að ná
sambandi við Samherja hf. til þess
að fá þessa frétt staðfesta en þess
má geta að Margrét EA hélt áleið-
is til Noregs síðastliðinn sunnu-
dag.
Skipið sem Hornfirðingar hafa keypt í Svíþjóð í stað Hafnareyjar,
ÉCA/*JUDENJCZ LITASONAR
MODEL
Eftirtalin skip eru
búin litasónar:
Arni Friðriksson
Hrafn GK 12
Hákon ÞH 250
Súlan EA 300
Guðmundur
Ólafur ÓF 91
2C International skipamálning ísérflokki simi: 16550