Morgunblaðið - 03.07.2021, Blaðsíða 1
Ætla að
verða
eldri!
Enn for-dómar tilstaðar
Sigurbjörn Árni Arngrímsson hefur
sett sér skýrt markmið eftir að hann
greindist með fjórða stigs krabbamein
í upphafi árs: Hann ætlar að verða
eldri! Veikindin hafa til þessa lítið
truflað hann við dagleg störf sem
skólameistari á Laugum og bóndií Mývatnssveit og hann er áleið á ÓL í Tókíó að lýsafrjálsum íþróttum ísjónvarpinu. 10
4. JÚLÍ 2021
SUNNUDAGUR
Óheflaðieðlukóngurinn
Carl Nassibvarð á dögunumfyrsti NFL-leikmaður-inn til aðkoma út úrskápnum. 20
Orðið
maður í
eldlínu
Lára Magnúsardóttirtelur varasamt að ýtaorðinu maður til hliðarvegna kröfu um kynhlut-leysi í ræðu og riti. 8
Fimmtíu ár frá sviplegu andláti
rokkgoðsins Jims Morrisons. 28L A U G A R D A G U R 3. J Ú L Í 2 0 2 1
.Stofnað 1913 . 154. tölublað . 109. árgangur .
BJUGGU TIL
PORTRETT AF
LISTAMANNI
FANN ALLT
SEM HANN
HAFÐI LEITAÐ
FLAMENKÓ 16JÓHANN JÓHANNSSON 42
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Eigendur yfir 20 jarða í Kelduhverfi
eiga í deilu við ríkið um eignarhald á
mörgum hundruðum hektara lands
sem þeir telja vera hluta jarða sinna.
Nú rúmum þremur árum eftir að rík-
ið stefndi bændunum er málið aftur
komið á byrjunarreit.
Hjörleifur B. Kvaran hrl. er lög-
maður hluta landeigenda. Hann
sagði að bændur í Kelduneshreppi
hefðu árið 1939 afsalað Sandgræðslu
ríkisins, síðar Landgræðslu ríkisins,
lítt grónu landi til uppgræðslu.
Landspildunum sem ríkið fékk var
aldrei skipt út úr viðkomandi jörðum
og hafa landeigendur greitt af þeim
opinber gjöld alla tíð.
Uppgræðslan tókst ágætlega og
árið 1967 afhenti landgræðslustjóri
nokkrum jarðeigendum aftur alls
209 hektara fullgróins lands. Deilt
hefur verið um hvort landinu hafi
verið skilað eða það einungis afhent
til afnota.
Ríkið stefndi yfir 20 eigendum
jarða í apríl 2018 og krafðist þess að
staðfestur yrði eignarréttur ríkisins
á landinu sem bændurnir afsöluðu
Sandgræðslunni til uppræðslu.
Nokkrir jarðeigendur gagnstefndu
ríkinu til viðurkenningar á því að
þeir ættu landið sem þeim var afhent
eftir uppgræðsluna.
Ríkið vill eiga landið
- Jarðeigendur í Kelduhverfi afhentu Sandgræðslunni land
til uppgræðslu - Ríkið krefst nú staðfestingar á eignarrétti
Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson
Kelduhverfi Jarðirnar sem um ræð-
ir voru í Kelduneshreppi.
MRíkið ásælist land … »12
Hugsað er fyrir tækni nýrra tíma við
breikkun hringvegarins í Ölfusi.
Lagnir og tækjabrunnar ætlaðir fyr-
ir búnað sem styður við akstur sjálf-
keyrandi bíla eru í veginum, sem er
hannaður eftir öllum nýjustu stöðl-
um og viðmiðum. Alls er umræddur
vegur 7,2 km langur og gerð hans er
stórverkefni sem alls fimmtíu manns
vinna nú við.
„Við í Vegagerðinni vitum ekki
frekar en aðrir hvenær sjálfkeyr-
andi bílar, sem eru ein birtingar-
mynd fjórðu iðnbyltinarinnar, kom-
ast í gagnið. En möguleikinn til að
geta svarað nýjum áskorunum þarf
að vera til staðar,“ segir Guðmundur
Valur Guðmundsson, fram-
kvæmdastjóri þróunarsviðs Vega-
gerðarinnar. »4
Morgunblaðið/Unnur Karen
Suðurland Áfram veginn og fjöldi
tækja notaður við framkvæmdir.
Tæknivegur
lagður
í Ölfusinu
Kríuungar klekjast nú úr eggjum sínum við sjáv-
arsíðuna víða um land. Fyrstu fjórar vikur ævi-
skeiðsins eru þeir háðir foreldrum sínum áður
en þeir fljúga svo úr hreiðrinu. Jóhann Óli Hilm-
arsson fuglafræðingur segist telja kríustofninn
ágætlega á sig kominn nú í sumar.
Krían flýgur lengst allra farfugla og segir Jó-
hann meðalkríuna fljúga yfir ævina vegalengd
„sem nemur þremur ferðum til tunglsins“.
Morgunblaðið/Ómar
Sandsíli í gogginn fyrir langt ferðalag fram undan
VAR & HVENÆR SEM ER
ýningarsalurinn okkar er alltaf opinn!
www.hekla.is
s
H
Vef
HEKLA · Laugavegur 170 · Sími 590 5000 · www.hekla.is Í sumar er opið alla virka daga hjá HEKLU á Laugavegi og Kletthálsi en lokað er á laugardögum.
ÍÞRÓTTA- OG FJÖLSKYLDUHÁTÍÐ
Skráning í fullum gangi á ulm.is
Unglingaland
smót
Selfossi um verslunarmanna
helgina
_ Ratað yrði í
ógöngur ef hrófl-
að væri um of við
notkun orðsins
maður og á það
sérstaklega við í
lögum og opin-
berum texta.
Þetta er niður-
staða Láru Magn-
úsardóttur dr.
phil. í grein í
sunnudagsblaðinu. Tilefni grein-
arinnar eru „tilraunir til þess að ná
fram kynhlutlausri ræðu með því að
forðast notkun á orðinu og segja og
skrifa þess í stað annað orð, oftast
fólk eða manneskja“. Lára rekur
rannsóknir sínar á merkingu orðsins
í aldanna rás og segir þær sýna að í
lögum sé þegar hlutlaust hugtak,
orðið maður, sem ekki geri manna-
mun eftir kynferði eða öðru.
Í ógöngur ef hróflað
er við orðinu maður
Lára
Magnúsardóttir