Morgunblaðið - 03.07.2021, Side 32

Morgunblaðið - 03.07.2021, Side 32
32 MESSUR á morgun MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. JÚLÍ 2021 Minningar ÁRBÆJARKIRKJA | Sumarhelgi- stund kl. 11. Félagar úr kór Árbæjar- kirkju leiða sönginn undir stjórn Kriszt- inu Kalló Szklenár organista. Sr. Petrína Mjöll Jóhannesdóttir prédikar og þjónar fyrir altari. ÁSKIRKJA | Guðsþjónustur í Laugar- dalsprestakalli í sumar verða í Laug- arneskirkju kl. 11 alla sunnudaga frá 13. júní til og með 8. ágúst. Næsta guðsþjónusta í Áskirkju verður sunnu- daginn 15. ágúst 2021. BESSASTAÐASÓKN | Sumarmess- ur í Garðakirkju, alla sunnudaga kl. 11. Bessastaðasókn tekur þátt í Sum- armessunum. Sjá Garðakirkja hér á síðunni. BÚSTAÐAKIRKJA | Kvöldmessa sunnudag kl. 20. Tónlistarflutning ann- ast félagar úr Kammerkór Bústaða- kirkju ásamt Jónasi Þóri kantor. Séra Eva Björk Valdimarsdóttir þjónar ásamt messuþjónum. DÓMKIRKJAN | Sunnudaginn 4. júlí er messa klukkan 11. Séra Jón Ásgeir Sigurvinsson hérðasprestur prédikar og þjónar fyrir altari. Dómkórinn syngur og Kári Þormar er dómorganisti. FRÍKIRKJAN Hafnarfirði | Sumar- messur í Garðakirkju alla sunnudaga kl. 11. Fríkirkjan tekur þátt í Sumar- messunum. Sjá Garðakirkja hér í síðunni. GARÐAKIRKJA | Sr. Hans Guðberg Alfreðsson prédikar, þjónar fyrir altari og fermir barn. Margrét Gunnarsdóttir djákni og Vilborg Ólöf Sigurðardóttir lesa ritningarlestur og flytja bæn. Org- anisti er Jóhann Baldvinsson, Guðrún Þórarinsdóttir leikur á víólu og félagar úr kór Vídalínskirkju leiða sönginn. Sumarsunnudagaskólinn verður á Króki. Eftir messu er boðið upp á kaffi, djús og hjónabandssælu í hlöðunni á Króki, safnið opið og svo verður farið í skemmtilega spurningakeppni. Streymi á facebook.com/sumarmess- ur. GRAFARVOGSKIRKJA | Sunnudag- inn 4. júlí verður kaffihúsamessa. Kaffihúsamessur eru sumarmessur og verða á sunnudögum kl. 11 út ágústmánuð. Forsöngvari, prestur, organisti og kirkjuvörður annast þjón- ustuna. Kaffi og meðlæti. GRENSÁSKIRKJA | Nú getum við loksins haft messu með altarisgöngu. Hún verður sunnudaginn 4. júlí kl. 11. Guðspjall dagsins fjallar um konur sem voru lærisveinar Jesú. Organisti er Ásta Haraldsdóttir, félagar úr kór Grensáskirkju leiða almennan messu- söng. Séra Eva Björk Valdimarsdóttir þjónar. GRINDAVÍKURKIRKJA | Kósý- messa sunnudag kl. 20. Almennur söngur við gítarslátt. Hugvekja og bæn. Sr. Sigurður Grétar Sigurðsson þjónar. GUÐRÍÐARKIRKJA í Grafarholti | Kvöldguðsþjónusta sunnudag kl. 20. Sr. Pétur Ragnhildarson þjónar og pré- dikar fyrir altari. Organisti er Hrönn Helgadóttir og kór Guðríðarkirkju syng- ur. Kirkjuvörður er Guðný Aradóttir. Kaffisopi í boði eftir messuna. HAFNARFJARÐARKIRKJA | Sumar- messur í Garðakirkju alla sunnudaga kl. 11 í júní, júlí og ágúst. Hafnarfjarð- arkirkja tekur þátt í Sumarmessum í Garðakirkju. Streymt er frá messun- um. Sjá Garðakirkja hér á síðunni. HALLGRÍMSKIRKJA | Orgelsumar hefst í Hallgrímskirkju laugardag kl. 12. Tómas Guðni Eggertsson leikur á orgelið. Messa sunnudag kl. 11. Altarisganga. Sr. Sigurður Árni Þórðarson prédikar og þjónar fyrir altari. Hópur messu- þjóna aðstoðar. Forsöngvarar syngja og leiða safnaðarsöng. Organisti er Björn Steinar Sólbergsson. HÁTEIGSKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11. Að þessu sinni verður guðsþjón- ustan haldin í safnaðarsal kirkjunnar (gengið inn að norðan). Við fáum góða gesti sem er hinn danski drengjakór sem nú er í heimsókn hér á landi. Félagar úr Kordíu kór Háteigskirkju syngja sömuleiðis. Organisti er Guðný Einarsdóttir. Prestur er Eiríkur Jó- hannsson. KEFLAVÍKURKIRKJA | Sunnudag kl. 20 er sumarmessa í Grindavíkurkirkju. Keflavíkurprestakall tekur þátt í sum- armessum. Sjá Grindavíkurkirkja hér á síðunni. KIRKJUVOGSKIRKJA Höfnum | Sumarmessa í Grindavíkurkirkju kl. 20. Njarðvíkurprestakall tekur þátt í sumarmessunum. Sjá Grindavíkurkirkju hér á síðunni. LINDAKIRKJA í Kópavogi | Sunnu- dagaskóli kl. 11. Sr. Guðni Már Harð- arson leiðir stundina ásamt sunnu- dagaskólakennurum. Guðsþjónusta kl. 20. Óskar Einarsson tónlistarstjóri og Ragna Björg Ársælsdóttir sjá um tónlistina. Sr. Guðni Már Harðarson þjónar. MOSFELLSKIRKJA | Sumarguðs- þjónusta sunnudag kl. 11. Prestur er Ragnheiður Jónsdóttir. Hrönn Helga- dóttir organisti spilar undir almennum safnaðarsöng. NESKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11. Prestur er Skúli S. Ólafsson. Félagar úr Kór Neskirkju leiða safnaðarsöng. Kaffisopi á Torginu að lokinni guðs- þjónustu. NJARÐVÍKURKIRKJA Innri-Njarð- vík | Sumarmessa í Grindavíkurkirkju kl. 20. Njarðvíkurprestakall tekur þátt í sumarmessunum. Sjá Grindavíkurkirkju hér á síðunni. SELJAKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11, sr. Bryndís Malla Elídóttir prédikar og þjónar fyrir altari, félagar úr Kór Selja- kirkju leiða almennan safnaðarsöng. Guðsþjónustan er síðasta gönguguðs- þjónusta Breiðholtssafnaðann, gengið verður frá Breiðholtskirkju kl. 10, veg- legt messukaffi í lokin. VÍDALÍNSKIRKJA | Sumarmessur í Garðakirkju alla sunnudaga kl. 11. Vídalínskirkja tekur þátt í Sumarmess- unum. Sjá Garðakirkja hér í síðunni. VÍÐISTAÐAKIRKJA í Hafnarfirði | Sumarmessur í Garðakirkju alla sunnudaga kl. 11. Víðistaðakirkja tek- ur þátt í Sumarmessunum. Sjá Garða- kirkju hér á síðunni. YTRI-Njarðvíkurkirkja | Sumar- messa í Grindavíkurkirkju kl. 20. Njarðvíkurprestakall tekur þátt í sum- armessunum. Sjá Grindavíkurkirkju hér á síðunni. Morgunblaðið/Sigurður Ægisson Papeyjarkirkja ✝ Sigrún Ágústsdóttir fæddist í Grinda- vík 25. ágúst 1936. Hún lést á Land- spítalanum í Foss- vogi 2. júní 2021. Foreldrar Sigrún- ar voru Matthildur Sigurðardóttir húsmóðir, f. á Akrahóli í Grinda- vík 1. júní 1914, d. 10. september 2005 og Svein- björn Ágúst Sigurðsson, skip- stjóri og útgerðarmaður í Grindavík, f. 11. ágúst 1906, frá Þúfnavöllum á Skaga- strönd, d. 28. júní 1975. Systk- ini Sigrúnar eru Bjarni Guð- mann, f. 1931, d. 2012, Ólafur, f. 1935, d. 2019, Hallbera Árný, f. 1938, Alda, f. 1940, Bára f. 1940, d. 2020, Ása, f. 1941, Þórdís, f. 1942, Sigríður Björg, f. 1946, Sigurður Magn- ús, f. 1948, Hrönn, f. 1951, Matthildur Bylgja, f. 1952, d. 2009, Sveinbjörn Ægir, f. 1954 og Sjöfn, f. 1956. Guðlaugur Óskarsson fædd- ist á Siglufirði 7. júní 1935. Hann lést á Landspítalanum í Fossvogi 5. júní 2021. For- eldrar Guðlaugs voru Guð- björg Sigríður Jóhannesdóttir, f. á Garði á Skagaströnd 14. Sigrúnu Guðnýju Jónsdóttur. Þau eiga 2 börn: a) Guð- laugur, giftur Hugrúnu Ósk Óskarsdóttur. Þau eiga eina dóttur, Eddu, en Guðlaugur á tvær dætur, Sögu og Brynju, frá fyrra hjónabandi með Sig- ríði Önnu Ólafsdóttur. b) Gígja, gift Atla Geir Júlíus- syni. Þau eiga 2 börn, Patrek og Hildigunni. 3) Guðbjörg Sigríður Guðlaugsdóttir, f. 1960, gift Birgi Emil Jóhanni Egilssyni. Þau eiga tvö börn: a) Guðbjörg, í sambúð með Steinari Davíð Ásgeirssyni. b) Egill, í sambúð með Önnu Guðmundsdóttur. Þau eiga einn son, Emil Birgi. 4) Jó- hanna Helga Guðlaugsdóttir, f. 1966, gift Guðmundi Ás- mundssyni. Þau eiga tvö börn: a) Hildur, í sambúð með Bjarka Þór Friðleifssyni. b) Ásgrímur. Sigrún og Guðlaugur bjuggu í Grindavík allt til árs- ins 1998 og ráku útgerðina Hópnes hf. ásamt tveimur öðr- um fjölskyldum frá 1965-1995. Þau fluttu í Lautasmára í Kópavogi árið 1998 og bjuggu þar til ársins 2017 þegar þau fluttu að Hraunvangi í Hafnarfirði. Útför Guðlaugs og Sigrúnar fór fram í kyrrþey. júlí 1904 og Rósant Óskar Sveinsson, f. 24. október 1903, sjómað- ur á Siglufirði. Bróðir Guð- laugs sam- mæðra er Æg- ir Einarsson, f. 1928, d. 2002. Systkini Guðlaugs sam- feðra voru sjö: Helgi, f. 1925, d. 2012, Kristján Hólm, f. 1929, d. 2020, Sigurjón Hólm, f. 1929, d. 2009, Guðmunda Sigríður, f. 1938, d. 2003, Haukur, f. 1941, Guðlaug, f. 1942 og Guðfinna, f. 1946, d. 2009. Sigrún og Guðlaugur giftu sig 31. desember 1956. Þau áttu fjögur börn: 1) Gunn- hildur Guðrún, f. 1955, sam- býlismaður Sævar Reynisson. Gunnhildur á tvö börn frá fyrra hjónabandi sínu með Kristni Benediktssyni: a) Hild- ur Sigrún, gift Pétri Lentz. Þau eiga 2 börn, Evu Maríu og Tómas. b) Jóel, giftur Mar- iu Sharga. Jóel á einn son, Jó- el Þór, frá fyrra hjónabandi sínu með Lindu Þóru Grét- arsdóttur. 2) Eyjólfur Þór Guðlaugsson, f. 1959, giftur Það var vissulega mikið högg að missa foreldra sína með þriggja daga millibili en líka ljúfsárt í ljósi þess hversu samrýnd og samtaka hjón þau höfðu alltaf verið. Alla tíð máttu þau vart sjá hvort af öðru, voru miklir vinir og leit- uðust alltaf við að ræða málin og skiptast á skoðunum ef svo bar undir. Þau voru samtaka í öllu sem þau tóku sér fyrir hendur hvort sem það var í leik eða starfi. Þau byggðu upp fyr- irmyndarútgerðarfyrirtæki, Hópsnes hf, ásamt hjónunum Eðvarð Júlíussyni og Elínu Al- exandersdóttur og Jens Ósk- arssyni og Báru Ágústsdóttur, systur mömmu. Þau seldu fyrirtækið árið 1995, en þá keyptu Eðvarð og fjölskylda hans húsnæði þess og hafa byggt þar upp fyrirmyndarfyr- irtæki sem ber sama nafn. Mamma og pabbi byggðu sum- arbústaðinn sinn í Grímsnesinu með miklum myndarbrag og þar var oft glatt á hjalla og ófáar stundirnar sem við fjöl- skyldan áttum þar saman. Þau áttu líka hús á Spáni í 15 ár þar sem þau nutu þess að vera í sólinni og spila golf. Við fjöl- skyldan nutum góðs af húsinu þar sem við fengum afnot af því í okkar fríum. Besta ferðin þangað var þó án efa þegar við öll fjölskyldan fórum þangað að fagna 70 ára afmæli pabba. Það var dásamleg ferð og mamma og pabbi í essinu sínu með hóp- inn sinn. Hér áður fyrr voru þau mikið í laxveiði og fóru mikið á skíði. Vissulega var alltaf farið vel með peningana en þau kunnu þó svo sannar- lega að njóta lífsins og nutu þess að gera skemmtilega hluti saman. Það besta við mömmu og pabba var þó að þau voru ávallt til staðar fyrir okkur öll. Þau voru einfaldlega góðar manneskjur og miklar fyrir- myndir. Mamma og pabbi kenndu mér mikið. Vissulega var ég örugglega ekki auðvelt barn og unglingur. Ég var jú yngst og dekurrófan á heimilinu sem hafði miklar skoðanir á hlutum. Þau voru þó ótrúlega þolinmóð við mig og þreyttust aldrei á að gefa manni góð ráð þrátt fyrir dauf eyru á stundum. Þessi ráð snerust um það hversu mik- ilvægt það var að mennta sig, vera duglegur og standa sig í hverju því sem maður tók sér fyrir hendur. Síðast en ekki síst aldrei að skrópa í skóla, í vinnu og mæta á réttum tíma. Ég vil trúa því að ég hafi reynt að fylgja þeirra ráðum og gildum í hvívetna. Við Gummi og börnin okkar eyddum miklum tíma með mömmu og pabba. Við vorum saman öll aðfangadagskvöld og áramót. Við eyddum miklum tíma með þeim í bústaðnum og fórum einar fjórar ferðir með þeim í húsið þeirra á Spáni. Þau voru hreint dásamleg við börnin okkar og það verður seint fullþakkað. Síðustu 10 ár höfum við búið erlendis og þau hafa heimsótt okkur á hverju ári og stundum tvisvar. Það var alltaf gott að vera með þeim, við nutum þess að vera saman, spiluðum mikið golf og börnin okkur nutu þess að vera með þeim. Það verður án efa skrýtið fyrir okkur að halda jólin hér eftir án þeirra. Elsku mamma og pabbi, takk fyrir allt. Við eigum eftir að sakna ykkar mikið en erum glöð að þið séuð saman og treystum því að þið séuð að gera eitthvað skemmtilegt sam- an. Elska ykkur. J. Helga Guðlaugsdóttir. Ástkærir tengdaforeldrar mínir Sigrún og Gulli eru nú fallin frá með einungis þriggja daga millibili. Segja má að það undirstriki vel hversu samrýmd þau voru að kveðja þetta jarð- ríki svo til á sama tíma. Tengdaforeldrar mínir voru einstakar persónur sem gott var að umgangast eins og varð raunin hjá mér og minni fjöl- skyldu. Aldrei bar skugga á okkar samband og ég man að ég sagði þeim um síðustu ára- mót hversu vænt mér þótti um að okkur hefði aldrei orðið sundurorða þó að samvera við þau hefði verið mikil. Sem dæmi þá vorum við saman um jól og áramót í rúmlega 30 ár. Ógleymanlegar minningar eru um hversu hress og glöð þau voru um síðustu áramót þrátt fyrir erfið veikindi hjá Gulla þar á undan. Börnunum mínum Ásgrími og Hildi þóttu afar vænt um afa sinn og ömmu. Þau báru mikla virðingu fyrir þeim og sóttust eftir félagsskap þeirra. Undan- farið höfum við orðið vitni að því hversu missir þeirra er mikill og sár. Gulli og Sigrún kunnu að njóta lífsins á meðan þrek og heilsa leyfðu og það voru ófáir golfhringirnir sem við spiluð- um saman bæði hér á landi og erlendis. Sigrún var mikil keppnismanneskja í golfi og var dugleg við að segja manni til þótt sjálfur hafi ég haldið að þess þyrfti ekki. Ef boltinn flaug ekki í réttum sveig eftir misheppnað högg var hún fljót að sjá sjá björtu hliðarnar, annaðhvort með því að hrósa fyrir gott högg eða með því að segja: „Ohhh, vindurinn tóḱann.“ Gulli og Sigrún byggðu sér sumarbústað í Grímsnesinu þar sem við áttum ófáar gleði- stundir saman. Gulli var vand- virkur verkmaður sem ég kynntist vel við ýmis verkefni í tengslum við bústaðinn. Allt var mælt og gert 100 prósent. Stundum þurfti að sitja á strák sínum ef manni fannst ekki göslast nógu hratt áfram. Nei! Allt var gert af mikilli vand- virkni og það varð að hafa það þótt hlutirnir tækju tíma. Ég held að allt það sem hann tók sér fyrir hendur um ævina hafi einmitt einkennst af því að gera hlutina vel og af mikilli vandvirkni. Elsku Sigrún og Gulli, takk fyrir alla vináttuna, uppeldið og lærdóminn sem fjölskylda mín naut með því að umgangast ykkur. Ég veit að þið eruð nú saman að njóta þess sem sá staður hefur upp á að bjóða. Kannski eruð þið að spila golf eða á skíðum en allavega veit ég að þið eruð að gera þann stað betri með góðvild ykkar og væntumþykju. Guðmundur Ásmundsson. Sérstakur dagur 2. júlí 2021, jarðarfaradagur minna elsku- legu tengdaforeldra. Ég og mín fjölskylda eigum þeim svo ótalmargt að þakka. Dásamlegar manneskjur sem báru hag okkar barna sinna svo sannarlega fyrir brjósti. Þau voru mjög ólík en al- gjörlega óaðskiljanleg. Kom svo sem ekki á óvart að þau færu í samfloti hönd í hönd inn í Sumarlandið, hún 2. júní og hann þremur dögum síðar, 5. júní. Amma Sigrún var alltaf í stuði og til í allt og sá alltaf það jákvæða og skemmtilega á meðan elsku afi Gulli var traustur og yfirvegaður, kvíð- inn fyrir hinu og þessu. Saman voru þau samt ein eining sem við sem eftir lifum megum taka til fyrirmyndar. Dásamlegt samband þeirra við börnin okkar Eyfa yljar manni svo sannarlega. Ekkert kynslóðabil. Ógleymanlegar stundir með stórfjölskyldunni í sumarbú- staðnum og í húsinu Höfða á Spáni verða varðveittar vel í minningabankanum. Það var bara ekki hægt ann- að en að elska þessi hjón. Elsku Sigrún og Gulli, góða ferð í Sumarlandið og hafið þökk fyrir allt og allt. Ykkar tengdadóttir Sigrún. Elsku amma mín og afi minn. Mikið er sárt að þurfa að kveðja ykkur. Ég hef kviðið fyrir þessum degi lengi, og fannst ótrúlegt að hugsa til þess að þið yrðuð ekki alltaf hér. Ég er svo þakklát fyrir þær ótal dýrmætu stundir og minningar sem við sköpuðum. Hvort sem það var heima hjá ykkur, í sumarbústaðnum, í Ameríku eða í Kaupmanna- höfn. Þið voruð svo dugleg að ferðast og njóta lífsins, sem ég dáist að í dag, þó að ég hafi oftar en ekki grátið í koddann þegar þið voruð að fara til Spánar í 6 vikur. Það bara virtist endalaus tími án ykkar. Þið voruð alltaf til staðar fyrir mig og ykkar faðmur var alltaf hlýjastur. Amma, þú varst alltaf tilbú- in að bjóða mér í saltfisk, grjónagraut eða kjötsúpu og sitja og spjalla um daginn og veginn. Þér fannst ekkert skemmtilegra en að hlusta á okkur tala um allt og ekkert og vildir allt vita. Ég mun sakna þess svo sárt að spjalla, hlæja og skála eins og okkur var ein- um lagið. Afi, þú varst alltaf svo stolt- ur af okkur og passaðir upp á að við vissum af því. Alltaf tilbúinn að nudda tærnar mínar þegar mér var kalt og skutlast út um allan bæ. Alltaf svo hlýr og áhugasamur, en líka hnytt- inn og oftar en ekki var skotið á okkur (þá aðallega ömmu) og því fylgt eftir með miklu glotti í áttina að mér. Ég mun sakna þess svo sárt að spjalla um íþróttir, fá tásunudd og grínast með allt og ekkert. Þið voru mínir klettar og okkar samband var einstakt. Ég mun halda ykkar heiðri á lofti um ókomna tíð, enda hafið þið verið stór partur af því að móta mig í þá manneskju sem ég er í dag. Það er huggun í því að vita að þið dansið saman á sólríkum stað, á leiðinni í golf, með góða drykki við hönd. Þó ég fái ekki að snerta þig veit ég samt að þú ert hér, og ég veit að þú munt elska mig geyma mig og gæta hjá þér. Og þó ég fengi ekki að þekkja þig þú virðist alltaf geta huggað mig það er eins og þú sért hér hjá mér og leiðir mig um veg. Og þegar tími minn á jörðu hér, liðinn er þá er ég burtu fer, þá ég veit að þú munt vísa veg og taka á móti mér. (Ingibjörg Gunnarsdóttir) Takk fyrir allt, elsku amma mín og elsku afi minn. Sjáumst síðar. Hildur. Sigrún Ágústsdóttir og Guðlaugur Óskarsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.