Morgunblaðið - 03.07.2021, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. JÚLÍ 2021
www.kofaroghus.is - Sími 553 1545
TIL Á LAGER
Ítarlegarupplýsingarog teikningarásamtýmsumöðrumfróðleik
máfinnaávefokkar
STAPI - 14,98 fm
Tilboðsverð
697.500kr.
25%
afsláttur
BREKKA34 - 9 fm
Tilboðsverð
369.750kr.
25%
afsláttur
NAUST - 14,44 fm
Tilboðsverð
449.400kr.
30%
afsláttur
VANTAR
ÞIGPLÁSS?
Afar einfalt er að reisa
húsin okkar. Uppsetning
tekur aðeins einndag
TILBOÐÁGARÐHÚSUM!
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson
menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Hraun tók að flæða á nýjan leik í
Geldingadölum síðdegis í gær. Fyrr
um daginn var eins og slokknað væri
í aðalgíg gosstöðvanna og töldu jarð-
fræðingar að merkja mætti upphaf
endaloka gossins.
Magnús Tumi Guðmundsson,
jarðeðlisfræðingur hjá Háskóla Ís-
lands, sagði við mbl.is í gær að
mögulega væri komið að endalokum
gossins. Að minnsta kosti væri
minna af kviku en áður.
„Þessi hegðun núna síðustu daga
passar alveg við það að við erum að
sjá endalokin, eða byrjunina á enda-
lokunum. Það er að minnka fram-
boðið á kviku. Það er tvennt sem
kemur til greina; annaðhvort er
kvikan að leita sér að leið einhvers
staðar annars staðar á svæðinu eða
framboð á kviku er að minnka. Að
magnið í upptökunum sé farið að
minnka vegna þess að það er alveg
kyrrð. Þetta ber öll einkenni þess að
það sé að farið að draga mikið úr
gosinu, en það er engu hægt að slá
föstu ennþá og þetta kemur allt í
ljós. En þetta líkist því að nú sé
þrýstingur að minnka neðanjarðar
og framboð á kviku að verða búið.“
Endalok eldgossins í augsýn?
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Eldgos Engu er hægt að slá föstu að sinni, segir jarðeðlisfræðingurinn.
- Tvennt sem
kemur til greina,
segir Magnús Tumi
Hólmfríður María Ragnhildardóttir
hmr@mbl.is
Rúmlega 50 ára gömul fótspor frá
tímum eldsumbrota í Surtsey verða
rannsökuð þegar hópur jarðvísinda-
manna á vegum Náttúrufræðistofn-
un Íslands fer þangað í sumarleið-
angur fimmtudaginn 15. júlí.
Um er að ræða hefðbundna ferð
jarðfræðinga til Surtseyjar sem farið
er í annað hvert ár en hópurinn mun
meðal annars fylgjast með rofi eyj-
arinnar og breytingum á jarðhita í
gjóskubunkunum. Verður einnig
haldið áfram með rannsóknir á bor-
holum auk þess sem eyjan verður
mynduð með drónum og landmæl-
ingar gerðar.
Lengi vitað af sporunum
Fótsporin hafa hingað til aldrei
verið mæld þó lengi hafi verið vitað
um þau.
„Sporin eru eftir jarðvísindamenn
sem voru að skoða Surtsey á meðan
eldgosið var í gangi. Þeir hafa verið
að ganga upp og skilið eftir sig fót-
spor í gjóskunni, þá varðveitast þessi
spor. Maður sér alveg greinilega
hvar þeir hafa gengið á stuttum
kafla,“ segir Lovísa Ásbjörnsdóttir,
jarðfræðingur Náttúrustofu Íslands
og leiðangursstjóri ferðarinnar.
Spurð hvort vitað sé hverjum
þessi spor tilheyra segir Lovísa það
ekki ljóst. „Okkur grunar að þetta
séu fótspor Guðmundar Sigvaldason-
ar jarðfræðings en við getum ekki
verið 100% viss. Mögulega gætu þau
einnig verið frá Sigurði Þórarins-
syni, sem var þekktur jarðvís-
indamaður, en þetta þykja frekar
stór fótspor.“
Meðal vísindamannanna er banda-
ríski steingervingafræðingurinn
Raúl Esperante frá Colorado sem
sérhæfir sig í risaeðlufótsporum.
Hann hafði frétt af leiðangrinum í
gegnum Birgi Óskarsson jarðfræð-
ing sem er einnig með í för og óskaði
Raúl í kjölfarið eftir því að fá að fara
með hópnum.
Raúl mun mæla og skoða fótsporin
á jarðvísindalegan hátt og vonar
Lovísa að út frá þeim mælingum
verði meðal annars hægt að meta
hæð og þyngd þeirra sem sporin til-
heyra. „Það er örugglega hægt að
lesa heilmikið út úr þessu. Ég held
að aðferðirnar við að mæla manna-
spor og risaeðluspor séu ekkert svo
ólíkar,“ segir Lovísa og hlær við.
Listfræðingur með í hópnum
Með vísindamönnunum í för er
myndlistarmaðurinn Þorgerður
Ólafsdóttir en hún vinnur nú að sýn-
ingu sem mun standa opin í Surts-
eyjarstofu. Fjallar verkefni hennar
um hvernig staður verður til í menn-
ingarlegu samhengi. Þorgerður hef-
ur undanfarið verið að kynna sér
sögu Surtseyjar og þótti henni
áhugavert að skoða áhrif manna á
eyjuna sem hefur að miklu leyti verið
haldið ósnortinni.
Fyrstu ummerki manna á eyjunni
sem vitað er um voru árið 1963 þegar
gosið var nýhafið. Þá laumuðust þrír
Frakkar í land um hánótt, stungu
niður frönskum fána og lýstu yfir
franskri nýlendu. Í dag eru þó helstu
áhrif mannsins í formi plastrusls sem
skolað hefur á land en Þorgerður
mun meðal annars safna plastinu og
nýta það í sýninguna.
Rannsaka fótspor í Surtsey
- Jarðfræðingar á vegum Náttúrufræðistofu Íslands halda í leiðangur til Surtseyjar um miðjan júlí
Ljósmynd/Erling Ólafsson
Surtsey Náttúran á eyjunni er að miklu leyti ósnortin og þurfa vísindamenn að sýna aðgát við rannsóknir sínar.
Þessi börn voru að leik við tjald-
stæðið á Hömrum í Eyjafirði þeg-
ar ljósmyndara Morgunblaðsins
bar að garði. Mikill fjöldi gesta
gistir tjaldstæðið þessa helgina.
N1-mótinu í knattspyrnu, sem
haldið er á Akureyri, lýkur í dag
og segir Valtýr Steinar Hreið-
arsson tjaldvörður að mótinu
fylgi aukin aðsókn að Hömrum.
„Þessi mikli fjöldi er blanda af
N1-mótinu og svo góða veðrinu,“
segir Valtýr og bætir við að
margir gestir hafi bókað pláss
fram til morgundagsins. Hann
segir einnig að ekki sé fullbókað
á tjaldstæðinu en þó sé orðið
„verulega þröngt“ á svæðinu.
„Við getum tekið á móti um
það bil þrjú þúsund manns ef allt
pláss er nýtt, en við erum með yf-
ir tvö þúsund manns á svæðinu
núna.“
„Blanda af
N1-mótinu
og veðrinu“
Morgunblaðið/Margrét Þóra
Héraðsdómur Reykjaness hefur
dæmt Mohamed Hicham Rahmi í
þriggja ára fangelsi fyrir skipulagn-
ingu og fjármögnun umfangsmikils
fíkniefnasmygls. Einnig var Moha-
med gert að greiða málsvarnarlaun
auk annars kostnaðar. Heildar-
upphæðin er því 2.177.955 krónur.
Laugardaginn 19. desember og
sunnudaginn 20. desember voru þrír
aðilar handteknir á Keflavíkur-
flugvelli með umtalsvert magn af
fíkniefnum í sinni vörslu. Í heildina
4.832 grömm af hassi, 5.087 stykki
af MDMA-töflum, 100 stykki af LSD
og 255,8 grömm af metamfetamíni.
Fundust efnin falin innvortis í
smokki, í dömubindi og í ferðatösku.
Allir þrír farþegarnir lýstu því
hvernig Mohamed hefði skipulagt
og fjármagnað smyglið. Mohamed
sagðist ekki kannast við neinn af
þremenningunum þrátt fyrir að
rannsóknargögn hefðu sýnt fram á
símasamskipti við þremenningana
og að hann hefði millifært peninga á
einn þeirra.
Skipulagði og fjár-
magnaði smygl