Morgunblaðið - 03.07.2021, Side 16

Morgunblaðið - 03.07.2021, Side 16
16 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. JÚLÍ 2021 Unnur Freyja Víðisdóttir unnurfreyja@mbl.is „Þetta inniheldur allt það sem ég elska í tónlist,“ segir Reynir Hauks- son um tónlistarstefnuna flamenkó. Hann ferðast nú um landið með spænskum listamönnum og spilar flamenkótónlist fyrir Íslendinga. Tónleikaferðalagið er hluti af verk- efninu Flamenkó á Íslandi. Reynir kemur einnig að fjögurra daga fla- menkódansnámskeiði sem haldið er í Dansverkstæðinu Hjarðarhaga þessa dagana þar sem hann er dans- kennara námskeiðsins, Paco Fern- ández, til halds og trausts. Takturinn og túlkunin heillaði Reynir komst fyrst í kynni við fla- menkó þegar hann flutti til Noregs fyrir nokkrum árum. „Það var þá sem ég uppgötvaði að þetta inniheld- ur allt það sem ég elska í tónlist, þ.e. takt og túlkun,“ segir hann. „Í fla- menkó fann ég allt það sem ég hafði leitað að um ævina.“ Flamenkó heillaði Reyni raunar svo mikið að hann endaði á að flytja til Spánar til að læra meira um tón- listarstefnuna sem varð til og þróað- ist að mestu leyti í Andalúsíu á Spáni á milli 18. og 20. aldar. Þar komst hann í kynni við aðra tónlistarmenn og hefur starfað þar sem flamenkói æ síðan. Nú er hann þó kominn heim til þess að kynna flamenkó fyrir Ís- lendingum í þriðja sinn. Halda sýningar víða um land „Þetta er ótrúlega djúpt fyrirbæri og rík tónlist,“ segir Reynir. „Ég er mjög spenntur fyrir því að kynna flamenkó fyrir Íslendingum.“ Tónleikaferðalagið sem stendur nú yfir er haldið í tilefni útgáfu fyrstu íslensku flamenkóplötu Reyn- is en hún er titluð „El Reino de Gra- nada“ eða „Konungsríkið Granada“. Plötuna er að finna á streymisveit- unni Spotify. Á tónleikaferðalaginu mun Reynir spila á gítar ásamt spænska gítarleikaranum Jorge el Piaso. Með þeim verða Spánverj- arnir Cheito á slagverki, söngvarinn Jacób de Carmen og dansarinn Paco Fernández. Hópurinn mun halda sýningar víðs vegar um landið dagana 1. til 11. júlí. Í dag, laugardag, verða þeir með sýningu í Fjarðarborg á Borg- arfirði eystri kl. 20:30. Næsta sýning þar á eftir verður í Frystiklefanum á Rifi 9. júlí kl. 21:00. Miðar eru fáan- legir á tix.is og er verðið á þeim frá 3.500 til 4.900 kr. Enn er opið fyrir skráningu á fla- menkódansnámskeiðið en skrán- ingin fer fram á Facebook undir við- burðinum „Flamenco-dansnámskeið“. Fullt skráningargjald er 20.000 kr. Á námskeiðinu er farið í grunnspor og beitingu líkamans í flamenkódansi. Fyrri kunnátta í dansi er óþörf. Dans Dansarinn Paco Fernández kennir þátttakendum námskeiðsins undirstöðuatriðin í flamenkódansi. Einbeiting Þátttakendur námskeiðsins hlusta af athygli. „Þetta er ótrúlega djúpt fyrirbæri“ - Reynir Hauksson kynnir flamenkótónlist og -dans fyrir Íslendingum - Í flamenkó fann ég allt það sem ég hafði leitað að um ævina, segir hann - Stendur fyrir námskeiði og tónleikaferðalagi um landið Morgunblaðið/Eggert Samvinna Reynir er dansaranum Paco Fernández til halds og trausts. Fimmtán umsóknir bárust um prestsstarf í Fossvogsprestakalli, í Reykjavíkurprófastsdæmi vestra, en umsóknarfrestur rann út um mánaðamótin. Fimm óskuðu nafnleyndar en aðrir umsækjendur eru Árni Þór Þórsson, mag. theol., sr. Bolli Pétur Bollason, sr. Bryndís Svavarsdóttir, Erna Kristín Stefánsdóttir, mag. theol., dr. Guðlaug Helga Ásgeirs- dóttir sjúkarhúsprestur, Hilmir Kolbeins, mag. theol., Hjördís Perla Rafnsdóttir, mag. theol., Kristján Ágúst Kjartansson, mag. theol., Þorgeir Albert Elíeserson, mag. theol., og sr. Þorvaldur Víðisson biskupsritari. Kjörnefnd Fossvogsprestakalls kýs prest úr hópi umsækjenda, að loknu valferli kjörnefnda. Foss- vogsprestakall er myndað af tveim- ur sóknum, Bústaða- og Grensás- sókn. Við prestakallið þjóna þrír prestar ásamt tveimur djáknum, organistum, kirkjukórum, messu- þjónum og framkvæmdastjóra sem starfar með báðum kirkjum. Fimmtán sóttu um í Fossvogsprestakalli Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson Bústaðakirkja Fimmtán sóttu um starf prests í Fossvogsprestakalli.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.