Morgunblaðið - 03.07.2021, Síða 28

Morgunblaðið - 03.07.2021, Síða 28
28 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. JÚLÍ 2021 Meðgöngubelti Fagfólk STOÐAR veitir nánari upplýsingar og ráðgjöf. Tímapantanir í síma 565 2885. Trönuhrauni 8, Hafnarfirði, stod.is Í júní 2012 lauk um- ræðunni um rík- isábyrgðina sem ætlað var að tryggja vitlausa fjármögnun Vaðlaheið- arganga og vonlausan rekstur þeirra gegnt Akureyri. Steingrími J. og Oddnýju G. Harðar- dóttur tókst með fals- rökum, og tilefnis- lausum árásum á Vestfirðinga, Austfirðinga- og Sunn- lendinga, að plata Alþingi til að sam- þykkja að þessu áhættusama mann- virki yrði haldið utan samgönguáætlunar þótt ákveðið hefði verið að byrja á Norðfjarðar- og Dýrafjarðargöngum, sem Jó- hanna Sigurðardóttir og Ólína Þor- varðardóttir töldu brýnustu verk- efnin. Meirihluti alþingismanna sem samþykkti þetta fjármögn- unarhneyksli Steingríms J. og Odd- nýjar, tekur nú gleði sína og óskar stuðningsmönnum Vaðlaheiðar- ganga til hamingju, með árásirnar á Austfirðinga og Vestfirðinga. Full- víst þykir að allar vega- framkvæmdirnar sem þáverandi samgöngu- ráðherra, Kristján L., lofaði landsmönnum á 11 stöðum að loknum kosningum 2007 verði afskrifaðar. Þar er upp- byggður heilsársvegur um Öxi sem Djúpa- vogsbúum var lofað þetta sama ár ekkert undanskilinn. Flokks- bróðir fyrrverandi sjáv- arútvegsráðherra sem sat í stól samgönguráðherra, sá sóma sinn í því að snúast gegn þessu svika- brigsli. Engin svör fengust þegar spurt var, hvort Steingrímur og Oddný hefðu með hjálp þáverandi stjórnarandstæðinga, teymt Alþingi á asnaeyrunum. Það skiptir fyrrver- andi ráðherra VG enn minna máli, ef aurskriður sunnan einbreiðu Múla- ganganna, í Almenningum vestan gömlu Strákaganganna, og norðan Siglufjarðar eyðileggja eftir nokkur ár alla vegtengingu Fjallabyggðar, við landsbyggðina án þess að hann vilji fá tvíbreið jarðgöng, 1-2 km norðan Dalvíkur og undir Siglufjarð- arskarð næstu áratugina. Svör sem fengust þegar jarðfræðingurinn úr Þistilfirði var spurður að því, hvernig hann gæti þvingað Eyfirðinga til að samþykkja sameiningu, við Fjalla- byggð og komið Siglufirði, Ólafsfirði, Dalvík og Akureyri um leið inn á eitt samfellt atvinnusvæði einkenndust, af hroka, útúrsnúningi og hnútuköst- um. Án þess að tvíbreið veggöng í stað Múlaganganna komi til álita næstu áratugina verður þessi sam- eining Eyjafjarðar og nýja sveitarfé- lagsins norðan Lágheiðar dæmd dauð og ómerk. Fyrr mun einangrun Fjallabyggðar við Eyjafjörð og Skagafjörð komast í fréttirnar, eftir að þáverandi stjórnarandstæðingar gengu í lið með fyrrverandi sjávar- útvegs- og fjármálaráðherra, til að troða Vaðlaheiðargöngum fram fyrir önnur þarfari verkefni sem hafa allt of lengi setið á hakanum. Norðan Dalvíkur voru byggðir snjóflóða- skápar sem koma aldrei í veg fyrir að hrina jarðskjálfta, aurskriður og snjóflóð kosti mörg mannslíf um ókomin ár. Aðferðafræðin sem notuð er til að sýna fram á, að rekstur Vaðlaheiðarganga standi undir sér og launum starfsmanna með inn- heimtu vegtolla á hvern bíl gengur aldrei upp. Hún vekur upp falskar vonir heimamanna um að með- alumferð á dag undir heiðina verði jafnmikil og í Hvalfjarðargöngunum sem hafa stytt vegalengdina milli höfuðborgarsvæðisins og Vest- urlands um 45 km. Milli Eyjafjarðar og Fnjóskadals er þessi stytting þrisvar sinnum minni með tilkomu Vaðlaheiðarganga sem útilokað er, að fjármagna á viðskiptalegum for- sendum. Kröfur fyrrverandi stjórn- arflokka-stjórnarandstæðinga og hjá Vegagerðinni, um að flýta sem fyrst framkvæmdum við Norðfjarðar- og Dýrafjarðargöng, urðu sífellt hávær- ari í tíð Ögmundar Jónassonar þá- verandi innanríkisráðherra. Á Vest- fjörðum, Mið-Austurlandi og í Suðurkjördæmi sem eiga að hafa for- gang, er ástandið með versta móti og engum bjóðandi. Mikil snjódýpt og veðurhæð sem getur náð meira en 80 metrum á sekúndu, á Dynjandisheiði veldur því að starfsmenn Vegagerð- arinnar taka enga áhættu, til að tryggja öruggar vetrarsamgöngur milli byggðanna á sunnanverðum og norðanverðum Vestfjörðum. Á suð- urfjörðum Austurlands, norðan Fagradals, og í Fjarðabyggð vantar líka mikið upp á til að allir Austfirð- ingar, fái betra aðgengi að Fjórð- ungssjúkrahúsinu í Neskaupstað. Sjálfgefið er það ekki, að yfirmenn Vegagerðarinnar og fjárveit- ingavaldsins vilji leika sér með fleiri mannslíf til að halda illviðrasömum og snjóþungum heiðum opnum í meira en 500 m hæð þegar enginn treystir veðurspánum. Þá breytir það engu þótt stuðningsmenn Ax- arvegar og Hálendisvegarins vilji op- inbera vanþekkingu sína, á láglend- isvegum og stuttum veggöngum. Eftir Guðmund Karl Jónsson » Aðferðafræðin sem notuð er til að sýna fram á, að rekstur Vaðlaheiðarganga standi undir sér og laun- um starfsmanna með innheimtu vegtolla á hvern bíl gengur aldrei upp. Guðmundur Karl Jónsson Höfundur er farandverkamaður. Steingrímur J. plataði Alþingi Ég undirritaður milljóneri, að vísu í lægri kantinum, hef verið með böggum hildar undanfarið (nei, það er ekki hljómsveit). Ég, eins og margir aðrir, hef haft áhyggj- ur af ýmsum málum sem hafa verið í deigl- unni. Fjöldinn lætur í ljós skoðanir sínar um hvaðeina, sumir með sárri kveinan, aðrir jafnvel með sturlan stórri, svo við vitnum í Hallgrím Pétursson. „En þegar aðrir þenja kjapt, þá vil ég tala líka,“ orti KN forðum. Þjóð hefur tjáð sig um Trump, róstur, stjórnarskrá, Kínverja, út- gerðir, kaþólsku kirkjuna, hálend- isþjóðgarð, kófið og „sjalla“ eins og „samminn“ GA Thor- son kallar okkur. Sumir hafa og leyft sér að fetta fingur út í skrif meistarans í Morg- unblaðinu, okkar ást- sæla fyrrverandi leið- toga íslenzku þjóðarinnar, sjálfan Davíð. Við milljónerar lesum greinar hans af mestu ánægju. Hann hefur sannlega leitt okkur yfir margan hjallann á und- anförnum árum og áratugum. Vissu- lega hefur hann alltaf haft yndi af því að „pissa menn af“, eins og við segjum á nútímaíslensku. Um Trump er það að segja að dugnaður hans var með ólíkindum. Hann rústaði „óbamaker“, þeirrar skoðunar að venjulegt fólk, hvað þá lúserar, þyrfti vart á heilsugæslu að halda. Hún væri allt of dýr og kommavilla að auki. Hann lækkaði meira að segja skattana hjá banda- rískum billjónerum, sem ekki veitti af til þess að halda efnahags- og at- vinnulífinu gangandi. Þess vegna eigum við bágt með að skilja hvers vegna hann var látlaust lagður í ein- elti. Það var að vísu óheppilegt þeg- ar æstur múgur hertók Kapitolið og einstaka veifaði meira að segja Jesú í þeirri innrás. Þó þykir okkur millj- ónerum illskárra að hálfsturlaðir hægrimenn ráðist á þinghús fremur en stjórnlausir stjórnarskrárkomm- ar. En nú er rétt að gera grein fyrir okkur milljónerum og áhugamálum okkar. Þá er fyrst að telja, að við er- um þessi níu prósent landsmanna sem eiga næstum allt á Íslandi, bæði landið og miðin. Það erum við, þessi sömu níu prósent, sem eigum Sjálf- stæðisflokkinn. Reyndar er slatti af milljónerum í Viðreisn, einir sjö í Miðflokknum og a.m.k. fjórtán í Framsókn, en þær tölur allar eru nokkuð á reiki. Útgerðarmenn hafa verið nokkuð milli tanna á fólki, sem er skamm- arlegt. Undirritaður veit ekki betur en að sumir þeirra hafi beinlínis bjargað útgerðum í Hull, Grimsby, Bremerhaven, Cuxhaven og gott ef ekki Hamborg og Malasíu. Síðan tóku menn sig til og aumkuðu sig yf- ir blessaða blámennina í Namibíu og kenndu þeim að beita og fara með net. Svo skemmtu menn sér kon- unglega á sjóstöng, við kaffi og koní- ak, þar sem Jóhannes var veislu- stjóri. Þetta minnir óneitanlega á söguna um miskunnsama Samherj- ann, er segir frá í ritningunni. Það að vera milljóneri er sérstök náðargáfa úthlutuð fám af Mammón (sbr. Lúkas 16:9). Stundum vilja þó læðast að okkur áhyggjur ef inn- streymi og flæði er ekki nógu mikið því við verðum helst að þéna þrjár til fjórar millur á dag, eins og þeir segja í fótboltanum. Kúnstin er í rauninni afar einföld og felst í því, eins og ég hef áður sagt í ræðu og riti, að raka saman fé, skara eld að eigin kökum, láta greipar sópa o.s.frv. Við erum náttúrulega sannir afkomendur safnara og hirðingja. Við elskum tign og völd og erum sérdeilis þakklátir fasteignasölum sem eru seigir við að selja húseignir okkar ávallt með góðum hagnaði fyr- ir báða aðila. Fasteignasalar eru ítem þeirrar náttúru að geta setið báðum megin borðs án þess að nokkur taki eftir því. Gunnar Smári velti um daginn vöngum yfir fylgi þeirra flokka, sem ganga til samstarfs við okkur sjalla í ríkisstjórn, þ.e. um afdrif þeirra í næstu kosningum á eftir. Það er ekki að orðlengja, að þeir gjalda yf- irleitt afhroð. En, í hverju sem á gengur blívur fylgi Sjálfstæðisflokks- ins ávallt býsna stöðugt. Ég vil benda Gunnari Smára á það, að þetta á sér eðlilegar skýr- ingar. Fylgi flokksins er alla jafna milli tuttugu og fimm til þrjátíu pró- sent í alþingiskosningum, stundum meira og stundum minna. Þetta staf- ar af því, að við, þessi níu prósent, sem eigum flokkinn, erum alltaf til staðar. Við þetta bætast svo önnur níu til tíu prósent „vonarmilla“, sem eru að reyna að læra af okkur en það gengur hægt þótt einstaka lánist það þegar okkur þóknast. Þá kjósa okkur fimm til tíu prósent hús- kvenna og griðkarla, sem velja flokkinn ýmist af trúarástæðum eða þora ekki annað af ótta við að særa okkur. Þetta fólk ber hitann og þungann af starfi okkar og er sann- arlega hin breiðu bök flokksins og samfélagsins auðvitað á sæmilegum lágmarkslaunum. Margir kjósa líka flokkinn af því að langafi og langamma gerðu það. Amma kaus t.d. alltaf rétt af því að afi hennar sagði henni að gera það. Mig grunar reyndar að þessu sé svipað varið í öðrum pólitískum trúflokkum. Að lokum þetta: Við viljum engan hálendisþjóðgarð sakir þess að þar liggja virkjunarmöguleikar sem víð- ast. Þá höfum við fregnað að Kín- verjar hafi enn áhuga á að koma sér upp stærri stasjón á þeim slóðum, svona til að skoða betur norðurljósin. Við viljum alls ekki nýja stjórnar- skrá vegna þess að við eigum fiskana og miðin. Við viljum einka- væða hjúkrunarheimilin svo það borgi sig að reka þau. En eins og all- ir vita þurfum við milljónerar ekki á þeim að halda. Við viljum fara þess á leit við fjölmiðla að fjalla ekki framar um flóttamenn og fátækt því það er svoddan „törn off“, því eins og við milljónerar vitum þá er engin fátækt á Íslandi, aðeins mismunandi „alls- nægt“. Við styðjum byggingu þjóð- arleikvangs í knattspyrnu og viljum skora á þá milljónera í boltanum, sem þéna milljón á dag ef ekki á tímann, að þeir leggi af mörkum ríf- lega. Hér á landi ríkir sá misskilningur að bankar séu fyrir fólk en þeir eru fyrir okkur milljónera og arðtaka. Látum oss nú biðja með hæstvirt- um utanríkisráðherra að hér verði aldrei framar vinstristjórn, það kost- ar aðeins kauphækkanir og kaos. Sömuleiðis þökkum við Mammón af öllu hjarta fyrir hjálp hans við að „afkomma“ vinstri-græna og vonum að þeir gjaldi ekki mikið afhroð í næstu kosningum. Eigum við að segja að þeir fái sjö prósent. Við elskum nefnilega lýðræðið ólíkt Lýð- ræðisflokknum í BNA, svo fremi að við verðum alltaf í stjórn. Vér milljónerar Hannes Örn Þór Blandon »En nú er rétt að gera grein fyrir okkur milljónerum og áhuga- málum okkar. Þá er fyrst að telja, að við er- um þessi níu prósent landsmanna sem eiga næstum allt á Íslandi, bæði landið og miðin. Hannes Örn Blandon Höfundur er milljóneri í lægri kant- inum og áhugamaður um gróðafíkn.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.