Morgunblaðið - 03.07.2021, Page 31

Morgunblaðið - 03.07.2021, Page 31
UMRÆÐAN 31 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. JÚLÍ 2021 Allur arður af þjónustunni rennur til reksturs kirkjugarðanna Tökum á móti ástvinum í hlýlegu og fallegu umhverfi Vesturhlíð 2 | Fossvogi | s. 551 1266 | utfor@utfor.is | utfor.is Öll aðstaða í samræmi við tilefnið. Hlýlegt og fallegt húsnæði og nýir glæsilegir bílar. Sjá nánari upplýsingar á utfor.is Útfararþjónusta Við veitum alla þjónustu tengda andláti ástvina – Þjónusta um allt land og erlendis – Þjónusta í heimahúsi og á stofnunum í yfir 70 ár Guðný Hildur Kristinsdóttir Framkvæmdastjóri Ellert Ingason Sálmaskrár, útfararþjónusta Emilía Jónsdóttir Félagsráðgjöf, útfararþjónusta Guðmundur Baldvinsson Útfararþjónusta Lára Árnadóttir Útfararþjónusta Sigurður Bjarni Jónsson Útfararþjónusta Magnús Sævar Magnússon Útfararþjónusta Jón G. Bjarnason Útfararþjónusta Helga Guðmundsdóttir Útfararþjónusta Eftir komuna til Medínu gerðist Mú- hameð árásar- og land- vinningagjarn. Á þess- um tíma tók hann að fá nýjar opinberanir, sem iðulega boðuðu stríð og önnur átök í nafni Al- lahs og siðarins, sem honum tengdist. Nokkur dæmi úr Kóraninum: „Berjist við þá, uns lokið er skurðgoðadýrkun og trúin á Allah ríkir ein öllum ofar.“ (Vers 8:39, þýð. Helga Hálfdanarsonar, HH.) „Berjist gegn þeim sem þegið hafa ritningarnar (Gyðingar, Kristnir) en trúa hvorki á Allah né hinn Efsta Dag, þeim sem banna ekki það sem Allah hefur bannað og Sendiboði Hans, þeim sem rækja ekki hina sönnu trú, þar til þeir reiða af hendi skatt og ganga yður á vald.“ (Vers 9:29, þýð. HH.) „Ó, þér trúaðir, herjið á hina van- trúuðu sem búa í grennd við yður. Látið þá kenna á hörku yðar. Vitið að Allah stendur með hinum rétt- látu.“ (9:123, þýð. HH.) Dæmi úr hadith-ritunum (þau fjalla um orð og gerðir Múhameðs og hafa helgi á við Kóraninn): „Sendiboði Allahs sagði: Mér hef- ur verið boðið að berjast gegn mönn- um þar til þeir samsinna því, að eng- inn sé guð nema Allah, að Múhameð sé sendiboði Allahs.“ (Sahih Muslim, 1:33, þýð. höf.) „Sendiboði Allahs sagði: Ógn (ter- ror) hefur fært mér sigur.“ (Sahih Bukari 52:220, þýð. höf.) „Morguninn eftir morðið á Ashraf (skáld, sem hafði farið móðg- andi orðum um íslam) lýsti spámaðurinn þessu yfir: „Drepið hvern þann Gyðing, sem kemst yður á vald.““ (Tabari 7:97, þýð. höf.) „Berjist við alla á vegum Allahs og drep- ið þá sem hafna trú á Allah.“ (Ibn Ishaq/ Hisham 992, þýð. höf.) Í þessum anda var framganga Múhameðs og fylg- ismanna hans árin, sem hann réð Medínu. Ránsmaður og stríðsherra Eftir komuna til Medínu tók Mú- hameð að stunda launsátur fyrir úlfaldalestum, sem leið áttu um eyðimörkina. Herfang var meg- inástæðan: úlfaldar, vara, vopn og menn, sem voru Múhameð nauðsyn í sókn hans að markmiðum sínum. Herfanginu var skipt svo, að einn fimmti hluti kom í hlut spámanns- ins, en öðru var skipt milli þeirra, sem þátt tóku hverju sinni og þá bæði skepnum, mönnum og fé. Múhameð efndi líka tíðum til bardaga við ættbálka, sem ekki gengu honum fúslega á hönd. Hann gerði þeim þá kosti, að lúta sér eða berjast. Með þessum hætti jók hann áhrifasvæði sitt og réð um hálfum Arabíuskaganum fyrir and- lát sitt. Meiriháttar bardaga háði Mú- hameð líka, svo sem orrustna við Badr árið 624, þar sem fámennt lið múslima sigraði mun fjölmennari her Mekku-búa. Einnig, þegar Mekku-menn sendu mikinn her á hendur Múhameð og fylgismönnum árið 627 og hugðust ganga end- anlega frá hreyfingu hans, en tókst ekki. Sjálfur hélt Múhameð í her- ferð gegn Mekku árið 630 og náði borginni á sitt vald. Hann mætti engri mótspyrnu og ekki kom til blóðsúthellinga. Sama ár (630) háði Múhameð orrustu við Hunayu og sigraði her íbúa Ta’if, borgar, sem er sunnan við Mekku. Múhameð hafði gert þeim þá kosti að taka við boðskap hans eða berjast. Árið eftir (631) efndi Múhameð til herferðar gegn borginni Tabuk, sem er á norðvest- urhorni Arabíuskagans. Múhameð var ekki með í för, en mælti fyrir um allan framgang. Ekki kom til bardaga, því að her borgarinnar yf- irgaf hana átakalaust og músl- imarnir lögðu hana og landsvæðið umhverfis hana undir sig. Hér er langt í frá allt upp talið um hernaðarumsvif Múhameðs. Hann er talinn hafa barist í átta meiriháttar orrustum árin, sem hann ríkti í Medínu, hafa leitt átján ránsferðir og skipulagt þrjátíu og átta hernaðaraðgerðir, sem aðrir leiddu í samræmi við fyrirmæli hans. Múhameð fór í pílagrímsferð til Mekku árið 632 og flutti þá lokaprédikun sína. Hann sneri aft- ur til Medínu. Þar veiktist hann fáum mánuðum síðar og andaðist 8. júní sama ár. Að Múhameð látnum Eftir daga Múhameðs tók við tímabil, sem múslímar kalla „hið gullna“. Það stóð í tíð fyrstu kalíf- anna, sem voru Abu Bakr (632-634), Umar (634-644), Uthman (644-656) og Ali (656-661), en þeir eru kallaðir rashidun og taldir „hinir réttleiddu“. Valdatíð þessara kalífa ber sama heiti. Mikill ágreiningur kom upp á meðal múslíma á þessum tímum, en einnig voru þeir tímabil landvinn- inga, sem urðu enn meiri að rashid- un-kalífunum gengnum. Lönd og ríki, sem múslímarnir náðu á sitt vald, voru mörg hver að miklu leyti kristin og innan þeirra ríkti víða menning runnin af grísk- um rótum. Þeir brutu landsvæðin undir sig með hernaði og voru oftast fámenn valdastétt, sem ríkti í skjóli hers og beitti ýmsum þvingunum til þess að koma á skipulagi sínu og trú. Til almennrar stjórnsýslu nýttu múslímar lengi framan af hina betur menntuðu íbúa landanna, sem þeir tóku herskildi. Þessir menn voru gjarnar kristnir eða Gyðingar. Framgangur íslams byggðist á hernaði, sem reyndar var ótrúlega árangursríkur. Á furðulega skömm- um tíma – til þess að gera fáum ár- um – höfðu múslímar þanið út ríki sitt svo, að um miðja áttundu öld náði það allt frá núverandi Spáni, um Miðjarðarhafsströnd Afríku, austur í átt til Indlands og norður undir nú- verandi Tyrkland. Auk þessa náðu herferðir þeirra víða út fyrir þessi landsvæði. Slíkur var framgangur íslams á upphafstímum sínum – og það er enn að. Eftir Hauk Ágústsson » Allt frá upphafi var hernaður aðal- útbreiðsluleið íslams. Haukur Ágústsson Höfundur er fyrrverandi kennari. Hernaður íslamsOPCC- og Parísar-liðið byggir al- farið í tölvulíkönum, ekki sögunni, og líkönin segja m.a. að Miðjarðar- hafssvæðið mundi skrælna ef hiti hækkaði aftur um eina og hálfa til tvær gráður, eða sem svarar því hitastigi sem ríkti á dögum Róm- verja. Ekki aðeins eru fjölmargar ágæt- ar samtímaheimildir til úr fornöld um loftslagið á svæðinu, heldur líka fornminjar og aðrar mannvistar- leifar. Norður-Afríka var þá miklu grónari en nú. Þaðan komu fílar Hannibals og villidýrin í hringleika- húsin. Þarna eru líka enn yfirgefnar borgir í sandinum þar sem áður var helsta kornforðabúr Rómaveldis. Einnig mætti t.d. nefna rómverskar vínpressur við Hadrianusar-múrinn á mörkum Skotlands o.fl. Þetta eru ekki tölvulíkön, heldur raunverulegar staðreyndir. Ég minnist þess að í æsku minni var oft talað um hlýindin á bó- realska tímanum enda voru margar þær staðreyndir sem ég hef bent á hér þá alkunnar og raunar sumar kenndar í skólum. Því er aug- ljóslega hætt og margir sam- tímamenn mínir virðast alveg hafa gleymt þessu, jafnvel menn sem set- ið hafa í háum stöðum. Sumir þeirra reyna nú að hindra ímyndaða end- urhlýnun plánetunnar með skatt- lagningu. Hvers vegna í ósköpunum er ann- ars verið að berjast gegn þeirri blessun sem endurhlýnun væri? Ekkert bendir til að loftslag sé að hlýna til lengri tíma, því miður. Nú- verandi hlýskeið er þegar búið að ná meðallengd og því má búast við nýju jökulskeiði (ísöld) á þessu ár- þúsundi eða því næsta, jafnvel á þessari öld. Kílómetraþykkur jökull mun þá enn einu sinni leggjast yfir löndin í hundrað þúsund ár. Höfundur stundar ritstörf. vey@talnet.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.