Morgunblaðið - 10.07.2021, Page 2

Morgunblaðið - 10.07.2021, Page 2
2 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. JÚLÍ 2021 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. www.kofaroghus.is - Sími 553 1545 TIL Á LAGER Ítarlegarupplýsingarog teikningarásamtýmsumöðrumfróðleik máfinnaávefokkar STAPI - 14,98 fm Tilboðsverð 697.500kr. 25% afsláttur BREKKA34 - 9 fm Tilboðsverð 369.750kr. 25% afsláttur NAUST - 14,44 fm Tilboðsverð 449.400kr. 30% afsláttur VANTAR ÞIGPLÁSS? Afar einfalt er að reisa húsin okkar. Uppsetning tekur aðeins einndag TILBOÐÁGARÐHÚSUM! Steinar Ingi Kolbeins steinar@mbl.is Skipulags- og samgönguráð Reykjavíkurborgar samþykkti í vikunni tillögu skrrifstofu sam- göngustjóra og borgarhönnuðar um fyrsta áfanga innleiðingar há- markshraðaáætlunar. Í henni felst að hámarkshraði verður lækkaður í 40 km á klukkustund á þremur veg- arköflum í borginni og í 30 km á 17 vegarköflum. Í tillögunni kemur fram að lögð sé áhersla á, við þennan fyrsta áfanga, að byrja á götum þar sem börn eru á leið til eða frá skóla eða frístundum sem og götur þar sem að fjöldi vegfarenda er mikill. Á þremur vegarköflum verður hámarkshraði færður niður í 40 km/klst. Það eru Snorrabraut, milli Burknagötu og Grettisgötu. Fjall- konuvegur milli Gullinbrúar og Frostafoldar og einnig milli Jökla- foldar og Hallsvegar. Á sautján vegarköflum verður hámarkshraðinn 30 km/klst. Til dæmis á Snorrabraut, hluta Borg- artúns, stórum köflum í Laugardal, auk stöku vega í efri byggðum. Í bókun fögnuðu fulltrúar meiri- hlutans í nefndinni væntanlegri innleiðingu áfangans og bentu á að lækkun umferðarhraða bæti hljóð- vist, öryggi og stuðli að meiri lífs- gæðum fyrir íbúa. Tveir fulltrúar Sjálfstæðisflokksins greiddu at- kvæði gegn tillögunni. Þeir segja í bókun að nauðsynlegt sé að lækka hámarkshraða vegna öryggissjón- armiða og nálægðar við skólastarf, en lækkunin eigi ekki við alls stað- ar. Rökstuðningur hefði mátt fylgja hverri og einni breytingu sem lögð væri til og ákjósanlegra væri að kjósa um hverja götu fyrir sig. Stækka göngugötuna Skipulags- og samgönguráð sam- þykkti einnig að hluti Laugavegar, milli Frakkastígs og Klapparstígs, og hluti Vatnsstígs, milli Laugaveg- ar og Hverfisgötu, yrði gerður að göngugötum. Fulltrúar meirihlutans í ráðinu kusu með tillögunni, en Marta Guðjónsdóttir og Jórunn Pála Jónasdóttir, Sjálfstæðisflokki, greiddu atkvæði gegn henni. Katrín Atladóttir, fulltrúi Sjálfstæðisflokks- ins, sat hjá í atkvæðagreiðslu. Fulltrúar meirihlutans sögðu í bókun nauðsynlegt að breyta yfir- bragði götunnar smám saman á þann veg að ökumenn þeirra bíla sem þar má aka upplifi sig sem gesti í gangandi rými, en ekki öfugt. Marta og Jórunn sögðu hins vegar í bókun að ákvörðunin um að gera Laugaveg að göngugötu væri keyrð áfram á of skömmum tíma og þvert á vilja íbúa. Lægri hámarkshraði og göngugata Morgunblaðið/Unnur Karen Fjallkonuvegur Til stendur að lækka hámarkshraða á Fjallkonuvegi í Foldahverfi niður í 30 km/klst. - Þrjár götur með 40 km hámarkshraða - Hluti Vatnsstígs verði göngugata - Umferð bönnuð um Kirkjustræti - Meirihlutinn lýsir ánægju í bókunum sínum - Alþingi heimilar undantekningar Alþingi óskaði eftir því að ráðið tæki fyrir tillögu sem myndi banna umferð vélknúinna farar- tækja á Kirkjustræti, milli Póst- hússtrætis og Tjarnargötu, og einnig í Templarasundi norðan Kirkjutorgs, nema með leyfi skrifstofu Alþingis. Ráðið sam- þykkti það í heild sinni. Í bókun meirihlutans var bent á að skrif- stofa Alþingis fengi heimild til að gera undantekningar á bann- inu, en mikilvægt væri að þær væru fáar og vel skilgreindar. Almenningur eigi að upplifa svæðið sem torg en ekki götu. Umferð bönnuð TORG EN EKKI GATA Bræðurnir Tristan Leó Guðmundsson Valencia og Gabríel Ágúst Guðmundsson Valencia nutu veðurblíð- unnar á tjaldsvæðinu á Flúðum í gær. Þar var um fimmtán stiga hiti og margt um manninn. Veðrið hefur leikið við landsmenn víða undanfarna daga og samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofunni verður líklega ekki mikil breyting þar á um helgina. Áfram er gert ráð fyrir björtu og hlýju veðri fyrir austan en í höfuðborginni er ólíklegt að sólin láti sjá sig. Þar verður skýjað en að mestu þurrt og hiti um 15 stig. Fyrir norðan er spáð allt að 22 gráðum og á Vest- fjörðum verður um 15 stiga hiti. Morgunblaðið/Eggert Bræðurnir Tristan og Gabríel nutu góða veðursins á Flúðum í gær líkt og landsmenn á tjaldsvæðum víða um land. Áfram veðursæld um helgina Sjúkratryggingar Íslands hafa kraf- ið háls-, nef- og eyrnalækninn sem missti starfsleyfið vegna ónauðsyn- legra aðgerða um fjögurra milljóna króna endurgreiðslu. Læknirinn, Hannes Þröstur Hjartarson, fékk greitt frá Sjúkra- tryggingum fyrir þær aðgerðir sem hann framkvæmdi en alvarlegar at- hugasemdir hafa komið fram um að tólf aðgerðanna hafi verið ónauðsyn- legar. Að sögn Ingibjargar K. Þor- steinsdóttur, sviðsstjóra réttinda- sviðs Sjúkratrygginga, voru þær ekki gerðar samkvæmt þeim reglum sem gilda um endurgreiðslur. Maðurinn starfaði á Handlækna- stöðinni en áður var honum meinað að framkvæma aðgerðir á Landspít- alanum vegna veikinda. Landspítalinn upplýsti ekki Eiríkur Orri Guðmundsson, stjórnarformaður Handlæknastöðv- arinnar, segir að sér sárni að Land- spítalinn hafi ekki upplýst þau um málið. „Þeir sem tóku þessa ákvörð- un vissu alveg að hann var að gera aðgerðir hjá okkur.“ Engar kvartanir höfðu borist frá sjúklingum Hannesar. „Ég veit ekki betur en að hann hafi verið mjög vel liðinn af sínum sjúklingum,“ segir Eiríkur. Það voru samstarfsmenn Hannesar sem tilkynntu möguleg brot hans. Í tilkynningu Hannesar til fjölmiðla í gær segist hann ekki ætla að tjá sig um málið en hann muni fara yfir það með lögmönnum sínum. Endurgreiði 4 milljónir - Tólf aðgerðir sagðar ónauðsynlegar og ekki eftir reglum

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.