Morgunblaðið - 10.07.2021, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 10.07.2021, Blaðsíða 11
FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. JÚLÍ 2021 Boðað hefur verið til landsfundar Sjálfstæðisflokksins dagana 27.-29. ágúst, tæpum mánuði fyrir alþingis- kosningar. Hann fer að venju fram í Laugardalshöll. Miðstjórn Sjálfstæðisflokksins ákvað á fundi í gær að boða til þessa 44. landsfundar flokksins, en hann er æðsta vald í málefnum flokksins. Samkvæmt skipulags- reglum Sjálfstæðisflokksins ber að halda landsfund ekki sjaldnar en annað hvert ár, en hann fór síðast fram vorið 2018. Til stóð að halda landsfund í fyrra, en honum var frestað vegna heimsfaraldurs kór- ónuveirunnar. Á landsfundi Sjálfstæðisflokksins eiga vel á annað þúsund fulltrúar manns seturétt, en hann er þannig langfjölmennasta reglulega stjórn- málasamkunda landsins. Á fund- inum er mörkuð heildarstefna flokksins í landsmálum, æðsta for- ysta flokksins er kosin, auk þess sem fundurinn kýs stjórnir málefna- nefnda, sem annast málefnastarf flokksins á milli landsfunda. Hvert félag innan flokksins kýs fulltrúa til setu á fundinum, auk landssambanda og fulltrúaráða í samræmi við árangur flokksins í kosningum. Boða til landsfundar í ágúst - Sjálfstæðismenn halda landsfund í fyrsta sinn frá 2018 Morgunblaðið/HAR Lýðræðishátíð Landsfundur Sjálfstæðisflokksins er fjölmennasta stjórnmálasamkunda landsins. Enn er gosóróinn í Geldingadölum í dvala. Ekkert hraun hefur flætt úr gíg eldgossins síðan 5. júlí, en um er að ræða lengsta hlé gossins frá því það hófst í mars. „Óróinn er ennþá niðri eins og er, hann er ekkert að stíga upp. Það er þoka svo maður sér lítið í myndavél- unum, en það sást glóð um klukkan 2 í (fyrinótt) og það rennur enn hraun undan gígnum. Það er enn þá einhver virkni í gangi,“ segir Lovísa Mjöll Guðmundsdóttir, náttúruvársérfræð- ingur á Veðurstofu Íslands. Lovísa segir of snemmt að segja til um það hvort hegðun gossins hafi breyst eða hvort virknin hafi minnkað. „Það er of snemmt að segja því hraunið er enn að fara eftir þessum lokuðu rásum undan gígnum og við erum ekki komin með nýjar mæl- ingar frá Háskólanum um hversu mikið af hrauni hefur komið upp, við bíðum spennt eftir þeim tölum. Það er of snemmt að segja til um hvort það sé að hægja á þessu eða ekki á meðan það er ekkert að koma upp úr gígnum,“ segir Lovísa. Lítið fyrir ferðamenn að sjá Lovísa segir að von sé á mæling- um Háskóla Íslands á rúmmáli hraunsins á næstu dögum. Mæling- arnar eigi að geta gefið vísbending- ar um framhaldið. „Það virðist sem þetta sé eitthvað nýtt. Það byrjar 28. júní að fara upp og niður en núna frá 5. júlí er þetta í fyrsta skipti svona langt bil. Það er spurn- ing hvort þetta haldi áfram svona og taki sig svo aftur upp, eða hvort þetta verði bara svona; að það flæði bara undan gígnum,“ segir Lovísa. Svo það er ekki mikið fyrir ferða- menn að sjá á gossvæðinu? „Í rauninni ekki, nema bara hraunjaðarinn. Það hefur verið að sjást glóð í gígnum á nóttunni ef fólk er að fara þá, þá er hægt að sjá eitthvað smávegis,“ segir Lovísa. Morgunblaðið/Eggert Hraunrennsli Hraun rennur enn frá eldstöðvunum í Geldingadölum. Óróinn er þó ekkert að stíga upp sem stendur. Áfram eldvirkni þótt ekk- ert hraun flæði úr gígnum - Hraun rennur í lokuðum rásum - Mæla rúmmál hrauns Atvinna Skipholti 29b • S. 551 4422 Skoðið laxdal.is Opið laugardag kl. 11-15 Dúnúlpa 22.330 ENN MEIRI AFSLÁTTUR 30-50% Skoðið // hjahrafnhildi.is Engjateigi 5 // 581 2141 // hjahrafnhildi.is Nett rafskutla sem hægt er að brjóta samanmeð fjarstýringu og því auðveldlega hægt að taka í ferðir. Verð aðeins 249.000 kr. JBH RAFSKUTLA BL ehf Sævarhöfða 2 / 110 Reykjavík / 525 8000 / www.bl.is Samanbrjótanleg rafskutla FRÍ HEIMSENDING á höfuðborgarsvæðinu ef pantað er í vefverslun www.bl.is/vefverslun 180Wmótor – 288wH rafhlaða 125 kg burðargeta – Fallvörn að aftan Eigin þyngd 31 kg Passar samanbrotin í flest bílskott JBH Nú finnur þú það sem þú leitar að á FINNA.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.