Morgunblaðið - 10.07.2021, Page 12
12 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. JÚLÍ 2021
Hægindastóll
model 7227
Leður – Stærðir XS-XL
Verð frá 389.000,-
NJÓTTU
ÞESS AÐ SLAKA Á
Skeifunni 8 | Sími 588 0640 | casa.is
CASA býður upp á vaxtalausar raðgreiðslur (með Visa / Euro) í allt að 6 mánuði.
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
S
jósundið virkaði vel á mig,“
segir Erna Héðinsdóttir.
„Ég hef lengi haft vefjagigt
sem meðal annars hefur
fylgt þrálátur höfuðverkur. Að fara í
kaldan sjóinn gaf mér allt annað líf
og betri heilsu. Almennt styrkir
þetta ónæmiskerfið og kemur en-
dorfíni – vellíðunarhormóninu – í
gang. Þegar verkir og þreyta hrjá
mig er sjórinn allra meina bót. End-
urræsing á líkama og sál.“
Líðandi sumar er hið þriðja sem
Erna stendur fyrir sjósunds-
námskeiðum sem njóta sífellt meiri
vinsælda. Sjórinn heillar og margir
leita leiða til að auka vellíðan sína í
sjónum.
Fataskipti í fjörunni
„Sjósund er fyrir marga hrað-
ferð út úr þægindarammanum. Vin-
sældir þessarar íþróttar eða sports
aukast sífellt, meira að segja svo að
oft mynduðust biðraðir eftir að kom-
ast í aðstöðuna við Ylströndina í
Nauthólsvík á meðan fjöldatakmark-
anir giltu. Ég fór því að horfa til þess
að fara með mitt fólk á námskeið-
unum á nýja staði. Slíkt köllum við
villisund. Við förum í sjó til dæmis
við Skarfaklett nærri Sundahöfn,
Geldinganes í Grafarvogi, hjá golf-
vellinum á Seltjarnarnesi og við Sjá-
land í Garðabæ. Þarna hefur fólk
fataskipti í fjörunni og fer svo út í
sjó,“ segir Erna og heldur áfram:
„Yfirleitt er nokkuð lygnt í
Fossvoginum og auðvelt að synda
þar. Við Skarfaklett gætir hins vegar
úthafsöldunnar og því eru þessir
staðir ólíkir. Við Sjálandið er nauð-
synlegt að synda á flóði því þar eru
grynningar á fjöru sem sjósundsfólk
þarf að taka með í reikninginn. Yfir
þessi atriði öll, áhrif kælingar í köld-
um sjónum á líkmann og fleira slíkt,
er farið í bóklega hlutanum á nám-
skeiðunum hjá mér, það er áður en
farið er í sjóinn. Við förum líka vel yf-
ir öryggisatriði sem skipta máli, svo
sem að synda aldrei einn, vera vel
sýnilegur og passa vel upp á hvert
annað. Í fyrstu tímunum er stóra
áskorunin helst sú að hjálpa fólki að
yfirvinna kuldann. Annars er sjórinn
hér við borgina þessa dagana um 14°
heitur svo sundið er þægilegt.“
Konur þola kulda vel
Konur eru í meirihluta þeirra
sem stunda sjósund; eða 80-90%
þátttakenda. „Konur hafa alla jafna
þykkara fitulag á líkamanum en
karlar og eru því betur gerðar en
karlarnir að þessu leyti til að þola
kulda. Annars er sjósundið fyrir alla
og afar skemmtilegt,“ segir Erna
sem kynnir sig og sitt á Facebook
undir titlinum Sjósundsnámskeið
Ernu.
„Sjósund kemur víða og æ
sterkar inn. Við erum með öflugt sjó-
sundsfélag hér í Reykjavík sem
stendur fyrir viðburðum, svo sem
Fossvogssundum og sundi út í Viðey.
Úti á landi er svo verið að mynda
hópa fólks sem stundar sjóinn, svo
sem í Stykkishólmi, á Þingeyri og
Þórshöfn á Langanesi. Þá eru frá
náttúrunnar hendi fínar aðstæður til
sjósunds við Þorlákshöfn þar sem ég
var með kynningu og námskeið fyrir
nokkrum dögum. Vonandi rúllar
þessi bolti áfram; sjósund er
skemmtilegt og hefur gefið mér
margt,“ segir Erna Héðinsdóttir að
síðustu.
Kaldur sjórinn gaf mér annað líf
Ögrun! Sjósund er hrað-
ferð út úr þæginda-
ramma, segir Erna
Héðinsdóttir. Verkir
hverfa og vellíðunarhorm-
ón streyma fram. Villi-
sund er vinsælt. Konur
eru allt að 90% iðkenda í
sportinu sem stundað er
víða um land og er í sókn.
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Sund Áskorun að yfirvinna kulda, segir Erna Héðinsdóttir sem er þriðja frá hægri á þessari mynd sem tekin var í Nauthólsvík í vikunni. Þessa dagana, um
hásumarið, er sjórinn við Reykjavík um það bil 14° heitur sem er þægilegt, svo flestir ættu að geta prófað sjósund, sem sagt er bæta, hressa og kæta.
Busl Sjósund er fyrir alla, en konur eru þó í meirihluta meðal iðkenda. Hér
eru konur úr sjósundklúbbi Ernu undir Skarfakletti við Sundahöfn.
Nærri 20 tónlistarmenn koma fram
á fjölskylduhátíðinni Kótelettunni
sem haldin verður á Selfossi um
helgina, nú í ellefta sinn. Við sam-
komustaðinn Hvíta húsið, sem er
vestan Ölfusárbrúar, stíga á svið
Páll Óskar, Bríet og Herra Hnetu-
smjör. Einnig koma fram Stuðla-
bandið, Sprite Zero Klan, Love Guru,
GDRN ásamt hljómsveit, Jói Pé &
Króli, DJ Rikki G og fleiri.
Barna- og fjölskyldudagskrá Kóte-
lettunnar verður í Bæjargarðinum,
sem er miðsvæðis á Selfossi og rétt
sunnan við Ölfusárbrú. Þar verða
með atriði Sveppi, Benedikt Búálfur,
Íþróttaálfurinn og Solla stirða.
Á Kótelettunni verður Styrktar-
félag krabbameinssjúkra barna í
samstarfi við Mömmumat, SS og
Kjarnafæði með sölu á kótelettum á
laugardag milli kl. 13-16. Ráðherr-
arnir Sigurður Ingi Jóhannsson og
Bjarni Benediktsson verða svo við
grillið og raunar fleira fólk af vett-
vangi stjórnmálanna. Þá verða sölu-
básar uppi á hátíðinni auk þess sem
gestir geta kynnt sér og keypt kjöt
og annað á grillið; bestu afurðirnar
sem íslenskir framleiðendur bjóða.
Bæjarhátíð með grilli, gleði og góðum listamönnum
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Selfoss Fjölbreytt dagskrá og áhugaverðir viðburðir í bænum um helgina.
Kátt á Kótelettunni á Selfossi
GDRN Páll Óskar