Morgunblaðið - 10.07.2021, Síða 14

Morgunblaðið - 10.07.2021, Síða 14
14 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. JÚLÍ 2021 Smáratorgi 1, 201 Kóp., s. 588 6090, vl@verkfaeralagerinn.is Verkfæralagerinn Mán.-fim. kl. 9-18, fös. kl. 9-18:30, lau. kl. 10-18, sun. kl. 12-17 Ennþá meira úrval af listavörum Listverslun.is Ný stjórn MBA-náms Háskóla Ís- lands og Viðskiptafræðistofnunar tók til starfa 1. júlí sl. Nýr formaður stjórnar er Ásta Dís Óladóttir dósent og varafor- maður er Hersir Sigurgeirsson dós- ent. Aðrir í stjórninni eru Sigurjóna Sverrisdóttir, verkefnastjóri hjá Meet in Reykjavík, Haukur C. Bene- diktsson, lektor og framkvæmda- stjóri fjármálastöðugleika hjá Seðla- banka Íslands, og Sigrún Gunnars- dóttir, prófessor í Viðskiptafræði- deild. Viðskiptafræðistofnun Háskóla Íslands er fræðslu- og rannsóknar- stofnun sem er starfrækt í umboði Viðskiptafræðideildar Háskóla Ís- lands. Stofnunin heldur úti MBA- námi en MBA-námið við Háskóla Ís- lands er alþjóðlega viðurkennt nám frá Association of MBÁs en um er að ræða óháð samtök sem hafa það að markmiði að efla gæði menntunar á sviði stjórnunar og reksturs. Fram kemur í tilkynningu að MBA-námið sé kennt í samstarfi við Yale School of Management í Bandaríkjunum og IESE Business School of Navarra í Barcelona. Stjórnarmenn Ný stjórn MBA-náms HÍ sem tók til starfa um mánaðamótin. Ný stjórn MBA-náms - MBA-nám Háskóla Íslands kennt í samstarfi við tvo erlenda háskóla Stefán E. Stefánsson ses@mbl.is Flugfélagið Play hefur nú veitt tveimur þotum af gerðinni Airbus A321Neo viðtöku og sú þriðja bíður þess að komast í hendur sérhæfðra mál- ara í Texas áður en henni verður flogið til Kefla- víkur og inn á vaxandi leiðakerfi félagsins. Vélarnar þrjár sem Play hyggst byggja starf- semi sína á fyrstu mánuðina eru allar sömu gerðar, smíðaðar sama ár, 2018 og taka jafn- marga farþega eða 192. Þá eru þær búnar sömu- hreyflategund, frá fyrir- tækinu CFM og nefnast LEAP1A. Arnar Már Magnússon, flugstjóri og framkvæmda- stjóri flugrekstrarsviðs hjá Play, segir að vélarnar tvær sem nú eru komnar í flotann hafi farið í gegnum nákvæm- lega sama undirbúningsferlið og að þriðja vélin sé nú í slíku ferli. Það er gert undir merkjum leigusala vélanna, AerCap. Viðamikið samþykktarferli „Allar vélarnar fara í gegnum stóra við- haldsskoðun og prófanir, þ.m.t. hreyflar, lendingarbúnaður, búkurinn og aðrir íhlutir. Að því ferli loknu, sem tekur um 6-8 vikur, fer vélin í málun þar sem hún er sett í ein- kennisbúning PLAY en það er lokahnykk- Ljósmynd/Play Athygli Rauði liturinn, sem flugvélamálararnir í Texas þekja skrokka, stél og vængi vélanna með, er afgerandi. Morgunblaðið/Eggert Arnar Már Magnússon Ljósmynd/Play urinn áður en PLAY fær vélina afhenta,“ seg- ir Arnar Már. Bendir hann á að í ferlinu sé öll saga vélanna yfirfarin, tæknigögn og íhlutir. Þá þarf þriðji aðili auk Samgöngustofu að taka allt ferlið og vélarnar í úttekt áður en þær fá útgefið lofthæfiskírteini. Fyrsta vélin sem Play tók við ber einkenn- isstafina TF-AEW. Önnur vélin, sem nýverið bættist í hópinn, ber stafina TF-PLA og þriðja vélin mun fljúga undir einkennisstöf- unum TF-PLB. Floti Play tekur á sig lit sem vekja mun óskipta athygli Ljósmynd/Play Karakter Án hárauða litarins eru vélarnar fremur lítilfjörlegar á að líta.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.