Morgunblaðið - 10.07.2021, Qupperneq 16
16 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. JÚLÍ 2021
PON er umboðsaðili
PON Pétur O. Nikulásson ehf.
Melabraut 21, 220 Hafnarfjörður
Sími 580 0110 | pon.is
Við bjóðum alla Jungheinrich eigendur velkomna!
GÆÐI OG ÞJÓNUSTA
Nýjasta nýtt hjá Ölgerðinni er Egils
Sódavatn í dós, en varan sem slík á
sér þó langa sögu. „Sykurlausir
drykkir sækja stöðugt á og eru slíkir
drykkir nú orðnir um 2/3 hlutar alls
drykkjarvörumarkaðarins,“ segir
Gunnar B. Sigurgeirsson, aðstoð-
arforstjóri Ölgerðarinnar. „Vitund
um heilsu og hollustu sykurminni og
sykurlausra drykkja ræður að sjálf-
sögðu miklu um þessa framvindu,
sem við svörum með vöruþróun og
nýjungum í framleiðslu.“
Fyrstu íslensku gosdrykkjaverk-
smiðjurnar sem hófu starfsemi í
kringum 1900 fóru strax út í fram-
leiðslu á sódavatni. Eigandi Ölgerð-
arinnar, Tómas Tómasson, beið
átekta og vildi ekki í samkeppni við
Gísla Guðmundsson, vin sinn hjá
Sanitas. Eftir að Gísli féll frá árið
1928 keypti Ölgerðin hins vegar
Saftgerðina Síríus og hefur framleitt
Egils Sódavatn óslitið síðan.
Nýjar umbúðir mikilvægar
Algengur misskilningur er, segir
Gunnar, að sódavatn sé einungis kol-
sýrt vatn. Ekki megi gleyma söltum,
sem gera drykkinn basískari. Sóda-
vatn sé því ekki bara svalandi, held-
ur hafi það oft verið sagt gott við
brjóstsviða og bakflæði. Því hefur
drykkurin verið eftirsóttur meðal
barnshafandi kvenna. Söltin gera
sódavatnið líka hentugt í kokteila.
„Þá er sódavatnið líka vinsæll
svaladrykkur, sem við í Ölgerðinni
töldum mikilvægt að setja í nýjar
umbúðir. Plastflöskurnar hafa verið
ráðandi til þessa, en nú bætast dós-
irnar við,“ segir Gunnar.
Hjá Ölgerðinni telst mönnum til
að á markaðinum í dag hafi sykur-
lausir kóladrykkir 35% hlutdeild og
sykraðir slíkir 22%. Vatnsdrykkir
koma þó æ sterkar inn - hjá Ölgerð-
inni sódavatnið og Kristall, sem fæst
í sjö bragðtegundum og umbúðirnar
eru af ýmsum gerðum og stærðum.
Vatnsdrykkir sprungið út í sölu
„Að vara eins og sódavatn haldist í
framleiðslu og góðri sölu í um heila
öld er í raun alveg einstakt. Mat-
vörumarkaðurinn er mjög kvikur og
bregðast þarf fljótt og vel við óskum
neytenda, með tilliti til hollustu eða
annarra þátta. Sífellt eru að koma
upp ný viðhorf, en svo eru líka í
þessu fastar stærðir og sígilt vöru-
merki. Drykkir þar sem vatnið er
uppistaðan hafa alveg sprungið út í
sölu á síðustu árum og sú þróun
verður tæpast stöðvuð,“ segir Gunn-
ar B. Sigurgeirsson.
Sódavatnið nú í dósum
- Í framleiðslu og sölu í bráðum heila öld - Einstakt hjá Öl-
gerðinni - Í kokteila og vinsælt meðal barnshafandi kvenna
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Sódavatn Gunnar B. Sigurgeirsson með drykkinn góða, sem nú er kominn í
dósir og selst vel. Drykkjarvörumarkaðurinn er í sífelldri, hraðri þróun.
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Nú í vikunni hófst við Staðarskála í
Hrútafirði jarðvinna vegna uppsetn-
ingu hraðhleðslustöðva fyrir bíla. N1
stendur að þessu verkefni og áform-
að er að stöðvarnar sem eru á
hlaðinu fyrir framan skálann verði
komnar í gagnið um miðjan ágúst,
segir Hinrik Örn Bjarnason, fram-
kvæmkvæmdastjóri félagsins, í sam-
tali við Morgublaðið.
Fyrr á þessu ári var samið um
kaup N1 á 20 hleðslustöðvum frá
Innogy e Station, en þær eru allt að
400 kw og þær öflugustu á landinu.
Sex þessara stöðva verða í Stað-
arskála. Nú þegar eru hleðslu-
stöðvar við þjónustustöðvar N1 í
Mosfellsbæ, Borgarnesi, Blönduósi,
Staðarskála, Hvolsvelli, Vík og Eg-
ilsstöðum og á Akureyri og við versl-
un Krónunnar í Lindum.
Hlöður verða víða um landið
Nýju hlöðurnar í Staðarskála eru
fyrir allar gerðir bíla og þannig stað-
settar á plani að auðvelt verður fyrir
ökumenn stærri bíla að koma að. Er
þar meðal annars horft til stórra
flutningabíla, sem svo tugum skiptir
fara um Hrútafjörðinn á hverjum
degi. Slíkir bílar eru enn ekki raf-
knúnir en verða væntanlega í næstu
framtíð og það er einmitt þess sem
N1 horfir nú til.
Þegar hlöðurnar í Staðarskála
verða konar í gagnið verður slíkum
komið fyrir á fleiri þjónustustöðvum
N1 við hringveginn, svo sem í Borg-
arnesi, Vík og á Egilsstöðum. Á
nokkrum stöðum á landinu þar sem
N1 er með starfsemi verður upp-
setning að bíða, enda mikil eftir-
spurn eftir rafhleðslustöðvum og
biðtími langur hjá framleiðendum
slíkra tækja.
„Ætlun okkar er að N1 sé í for-
ystu í orkuskiptum í samgöngum.
Verkefnið í Staðarskála er hluti af
því. Við þurfum að fylgja þróun í raf-
bílavæðingu með uppsetningu
hleðslustöðva. Framtíðin verður
ekki stöðvuð,“ segir Hinrik Örn.
Breyttar þjónustustöðvar
Að hlaða bíl fyrir 100 km akstur
tekur 20-30 mínútur, svipaðan tíma
og fólk stoppar gjarnan á þjón-
ustustöðvum við þjóðvegina. Eðli
þeirra er að breytast. Þar var áður
mest áhersla lögð á sölu eldneytis og
skyndibita. Nú er hlutverkið fjöl-
breyttara, s.s. rafhleðslur, og nýjast
er að nú eru seld lausasölulyf í Stað-
arskála, eins og sagði frá í Morgun-
blaðinu fyrr í viknunni.
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Þjóðvegurinn Jarðvinna við Staðarskála fyrr í vikunni. Aðgengi fyrir flutningabíla að rafhleðslustöðvum verður gott, enda fara margir tugir slíkra bíla um Hrútafjörðinn á degi hverjum.
Grafið fyrir fleiri hlöðum á hlaðinu
- Straumur í Staðarskála - Aðstaða og afgreiðsla fyrir
rafbíla bætt - N1 vill hafa forystu í orkuskiptum
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Orka Hinrik Örn Bjarnason hér við
eina af rafhleðslustöðvum N1.
Tófur eru ekki algengar innan-
bæjar. Þetta segir Steinar Smári
Guðbergsson, hjá Meindýraeyði Ís-
lands, um tófu sem sást til við grjót-
varnargarðinn hjá Sæbrautinni í
Reykjavík sl. fimmtudag.
Hann segir afar ólíklegt að tófan
hafi farið í gegnum borgina. Hún
gæti hafa komið frá Fossvoginum
en hann hallist frekar að því að hún
hafi komið niður með Elliðaánum í
leit að æti.
Líklega sé um gelddýr að ræða
eða hlaupadýr, en það heiti er not-
að um tófur sem taka ekki þátt í
tímgun. Hæpið væri að tófa með
yrðlinga í greni myndi ferðast svo
langt til að finna æti. Steinar segist
aldrei hafa heyrt um að tófur angri
mannfólk eða fari inn á heimili.
Þær séu miklar mannafælur.
Tófa í ætisleit við Sæbrautina í Reykjavík
Morgunblaðið/Hólmfríður María
Óvænt Tófan er líklega gelddýr eða
hlaupadýr, þ.e. ekki með yrðlinga í greni.