Morgunblaðið - 10.07.2021, Qupperneq 18
18 FRÉTTIR
Viðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. JÚLÍ 2021
HURÐIR
Tunguháls 10, 110 Reykjavík, sími 567 3440, vagnar@vagnar.is, vagnar.is
• Stuttur afhendingartími
• Hágæða íslensk
framleiðsla
• Val um fjölda lita í
RAL-litakerfinu
• Vindstyrktar hurðir
Bílskúrs- og iðnaðarhurðir
Iðnaðarhurðir
Iðnaðarhurðir með gönguhurð
Bílskúrshurðir
Hurðir í trékarma
Tvískiptar hurðir
Smíðað eftir máli
Fyrsta flokks þjónusta og ráðgjöf
BAKSVIÐ
Baldur S. Blöndal
baldurb@mbl.is
ON og Reykjavíkurborg bíða enn
eftir ákvörðun kærunefndar útboðs-
mála um frestun réttaráhrifa úr-
skurðar um ógildingu samnings milli
aðilanna tveggja. Kærunefndinni
barst einnig ósk um endurupptöku
málsins þar sem athugasemdir voru
gerðar við forsendur ákvörðunarinn-
ar.
Málið varðar útboð sem Reykja-
víkurborg hélt um rekstur hleðslu-
stöðva á nánar tilgreindum bílastæð-
um víðsvegar um borgina. Orka
náttúrunnar bauð best og síðan þá
hefur félagið sett upp fjölda stöðva á
grundvelli samnings þar um. Kæru-
nefnd útboðsmála barst kvörtun um
útboðið þar sem það var sagt hafa
brotið í bága við EES-rétt og fleiri
reglur. Kærunefndin féllst á það og
hefur ógilt samninginn og gert borg-
inni að greiða sektir. ON hefur síðan
þá rofið strauminn til stöðvanna.
ON og borgin bíða átekta
Breki Logason, forstöðumaður
samskiptasviðs OR, segir Orku nátt-
úrunnar bíða átekta en vonast til
þess að úrskurðurinn verði endur-
skoðaður og þjónusta hleðslustöðv-
anna hefjist að nýju. Það sé hagur
allra að hleðslustöðvarnar komist í
gagnið.
Guðmundur B. Friðriksson, skrif-
stofustjóri á skrifstofu umhverfis-
gæða hjá Reykjavíkurborg, er á
sama máli: „Við viljum koma þessu
upp sem allra, allra fyrst og fá þetta í
notkun. Skyldur sveitarfélagsins eru
helst að þjónusta þá sem ekki eiga
lóð til að hlaða. Þar þurfum við nátt-
úrlega að byggja upp aðstöðu þannig
að þessir aðilar geti farið í orku-
skipti, það er það sem við erum að
fókusa á með þessum tuttugu stöðv-
um á ári.“
Útboðin tímafrek
Fari svo að kærunefndin fresti
ekki réttaráhrifum úrskurðarins né
taki málið upp að nýju yrði Reykja-
víkurborg að ráðast í nýtt útboð.
Guðmundur segir það ekki vænlegan
kost: „Það tekur náttúrlega svolítinn
tíma að bjóða út og semja við nýja
aðila. Ef það kemur nýr aðili að verk-
inu þarf náttúrlega að rífa allt í burtu
og setja upp nýtt, í síðasta útboði
veittum við fjóra mánuði til þess að
setja upp búnað.“
ON myndi aftur senda tilboð
Breki segir að ON myndi taka þátt
í því útboði. Það liggur ljóst fyrir að
ef tilboð ON yrði ekki fyrir valinu
þyrfti að fjarlægja þann búnað sem
ON hefur þegar sett upp. Reykjavík-
urborg hafði áætlað að kostnaður við
uppsetningu stöðvanna næmi rúm-
um 42 milljónum króna án virðis-
aukaskatts. Breki segir ON gera ráð
fyrir að verða skaðlaus af samningi
sínum við Reykjavíkurborg, með til-
liti til undirbúnings og framkvæmda
sem hafa farið fram. Hann vildi þó
ekki staðfesta neinar tölur um út-
lagðan kostnað við framkvæmdirnar
hingað til.
Sé miðað við nýtt útboð nú í júlí
gæti verið langt í að stöðvarnar kom-
ist í notkun: „Ef við myndum fara í
útboð núna í júlí þá erum við alltaf að
horfa á að við gætum verið komin
með nýjar stöðvar í lok janúar.
Nema þá ef ON býður aftur í verkið
og er lægst í sérleyfisútboði á EES-
markaðnum. Þá gætu stöðvarnar
staðið og allt gengi hraðar. Við för-
um auðvitað í útboð með það fyrir
augum að allir séu jafnir þar,“ segir
Guðmundur en úrskurðarins má
vænta á næstu dögum.
Straumlausar stöðvar
Morgunblaðið/Íris Jóhannsdóttir
Spennufall Hleðslustöðvar ON standa ónothæfar í borginni.
- Hleðslustöðvar ON í Reykjavík gætu staðið ónothæfar fram í janúar - Útboð
eru tímafrek - Áætlaður kostnaður uppsetningar stöðvanna 42 milljónir
Hleðslustöðvar
» Ákvörðun kærunefndar út-
boðsmála mun skipta sköpum
um framtíð hleðslustöðva
borgarinnar.
» Fari svo að úrskurðurinn
standi óbreyttur gætu stöðv-
arnar staðið straumlausar
fram á næsta ár.
» Þá gæti þurft að fjarlægja
þær stöðvar sem ON hefur
þegar smíðað og nýjar byggðar
í stað þeirra.
í tilboðsbók B, sem tók við mun
stærri áskriftum, var ákveðið 20.
Dagslokagengi bréfanna reyndist
24,6 eftir hóflegar sveiflur innan
dagsins sem byggðust á nærri 500
viðskiptum. Því er ljóst að þeir
sem tóku þátt í tilboðsbók A og
seldu á því gengi nutu 36,7%
ávöxtunar af þátttöku sinni og
þeir sem tóku þátt í tilboðsbók B
og seldu hafa þá notið 23% ávöxt-
unar á fjárfestingu sinni. Markaðs-
virði Play er 17,2 milljarðar
króna.
Hlutabréf flugfélagsins Play voru
tekin til viðskipta á First North-
markaði Kauphallarinnar í gær-
morgun. Skráningarinnar hefur
verið beðið með nokkurri eftir-
væntingu í kjölfar þess að mikil
umframeftirspurn reyndist eftir
þeim bréfum sem boðin voru til
sölu í hlutafjárútboði sem félagið
réðst í fyrir skemmstu.
Opnunargengi bréfa félagsins
var 26 en í fyrrnefndu útboði gátu
þeir sem fjárfestu í tilboðsbók A
keypt bréf á genginu 18 og gengið
Play hækkar um 37% frá útboðsverði
- Markaðsvirði félagsins 17,2 milljarðar
Morgunblaðið/Eggert
Háloftin Birgir Jónsson, forstjóri Play, hringdi viðskiptin inn um borð.
« Íslandsbanki gerir ráð fyrir því að
vísitala neysluverðs muni hækka um
0,1% í júlímánuði og að ársverðbólgan
muni þá mælast 4,2%. Er það nokkuð
mildari spá en Landsbankinn hefur birt
og fjallað var um í Morgunblaðinu í gær
en hagfræðideild bankans gerir ráð fyr-
ir að vísitalan hækki um 0,3% og að
árstaktur verðbólgunnar fari þá í 4,4%.
Greining Íslandsbanka gerir ráð fyrir
að sumarútsölur muni vega upp á
móti verðhækkunum á eldsneyti og
flugfargjöldum. Gerir bankinn ráð fyr-
ir að húsnæðisverð haldi áfram að
hækka en að það muni gerast hægar
en verið hefur. Þá er gert ráð fyrir að
verðbólgan verði við 2,5% markmið
Seðlabankans á þriðja fjórðungi næsta
árs.
Íslandsbanki spáir
4,2% verðbólgu í júlí
10. júlí 2021
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 123.57
Sterlingspund 169.93
Kanadadalur 98.28
Dönsk króna 19.673
Norsk króna 14.052
Sænsk króna 14.362
Svissn. franki 134.87
Japanskt jen 1.1266
SDR 175.94
Evra 146.3
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 177.035
Hrávöruverð
Gull 1810.25 ($/únsa)
Ál 2435.0 ($/tonn) LME
Hráolía 74.67 ($/fatið) Brent
Íslenski vafra-
smiðurinn Viv-
aldi, sem Jón
von Tetzchner er
forstjóri og eig-
andi að, er í hópi
14 fyrirtækja
sem ritað hafa
Evrópu-
sambandinu og
yfirvöldum í
Bandaríkjunum
opið bréf þar sem ESB er hvatt til
að banna auglýsingar sem byggj-
ast á eftirliti og upplýsingaöflun
um þá sem þeim er beint að og þá
eru Bandaríkin hvött til að koma á
fót alríkislöggjöf um friðhelgi
einkalífsins.
Í bréfinu segir að auglýsinga-
markaður sem byggi á eftirliti
með viðskiptavinum gangi of nærri
einkalífi fólks. Þá sé umhverfið
eins og það hefur þróast til þess
gert að gefa fáum stórum fyrir-
tækjum vafasamt samkeppnis-
forskot með því að þau geti safnað
gögnum vítt og breitt um inter-
netið og þjónustur sem þar eru
veittar. Þá geti fyrirtæki sem eru
ráðandi í netheimum misnotað
stöðu sína og veitt vörum sínum
og þjónustu forgang á kostnað
annarra.
Ógn við lýðræðið
„Þessar aðferðir grafa undan
samkeppni og svipta höfunda efnis
greiðslum fyrir sköpun sína,“ segir
jafnframt í bréfinu og að þetta
komi niður á hagsmunum neytenda
og fyrirtækja og geti jafnvel grafið
undan hornsteinum lýðræðisþjóð-
félagsins.
„Á sama tíma og við viðurkenn-
um að auglýsingar eru mikilvæg
uppspretta tekna fyrir framleið-
endur efnis og útgefendur á netinu
þá réttlætir það ekki það gríð-
armikla auglýsingaeftirlit sem
komið hefur verið á laggir til að
„birta rétta auglýsingu réttu
fólki“.
Auk Jóns eru það m.a. forstjórar
Fastmail Pty Ltd., DuckDuckGo,
Disconnect og Nextcloud GmbH
sem undirrita bréfið. ses@mbl.is
Kalla eftir banni við auglýs-
ingum sem byggjast á eftirliti
Jón von
Tetzchner
- Vafrasmiðurinn Vivaldi í hópi fyrirtækja sem senda ákall til ESB
« Ný sjóðfélagalán lífeyrissjóðanna,
að teknu tilliti til upp- og umfram-
greiðslna, voru neikvæð um 6,2 millj-
arða króna í maímánuði. Þetta kemur
fram í hagtölum Seðlabankans. Mest
munar um að sjóðfélagar með verð-
tryggð lán hjá sjóðunum hafa greitt
þau upp af miklum móð. Hófst sú þró-
un um mitt ár í fyrra og hefur reynst
stöðug og mikil frá þeim tíma. Síðustu
tólf mánuði nema upp- og umfram-
greiðslur umfram nýjar lántökur hjá
sjóðunum 59 milljörðum króna. Ríf-
lega 67 milljarðar hafa þannig verið
greiddir upp af verðtryggðum lánum
umfram nýjar lántökur en ný óverð-
tryggð sjóðfélagalán eru enn jákvæð
sem nemur 8,8 milljörðum á síðustu
tólf mánuðum. Heildarfjöldi útlána hjá
sjóðunum var 34.670 í lok maímán-
aðar og hafa þau ekki verið færri síð-
an í júlí 2017. Flest urðu sjóð-
félagalánin í marsmánuði í fyrra eða
40.614 og hefur þeim því fækkað um
tæplega 6.000 á síðastliðnu rúmu ári.
Lántakendur yfirgefa
lífeyrissjóðina áfram
STUTT