Morgunblaðið - 10.07.2021, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 10.07.2021, Blaðsíða 26
26 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. JÚLÍ 2021 Forvarnir nauðsynlegar Ekkert skal til sparað að takmarka losun „gróðurhúsaloftteg- unda“ út í andrúms- loftið. Þetta verkefni er flókið, fyrirhafnarmikið, kostnaðarsamt og að sumu leyti umdeilt. Hins vegar sjá flestir að forvarnir á þessu sviði eru nauðsyn- legar. Stjórnmálamenn eru ekki síst uppteknir af efninu. En hvernig hafa þeir staðið sig í aðgerðum gegn al- gengum og vel þekktum sjúkdómi sem mögulegt er að fyrirbyggja hjá okkur Íslendingum? Í þessari grein er sjónum beint að krabbameini í ristli (og endaþarmi). Afstaða til forvarna Fullyrða má að Covid-19- veirufaraldurinn hefur hreyft við okkur öllum. Óvissan um flesta þætti þessa vágests mun vafalaust breyta atferli okkar í framtíðinni og afstöðu til forvarna almennt. Markviss stjórnun, skipulag og þekking á smitvörnum auk skiln- ings og virkrar þátttöku almenn- ings er það sem þarf til að ná ár- angri. Þetta allt nær hæstu hæðum í frábæru skipulagi bólusetninga hér á landi, sem er til fyrirmyndar. Að ná tilætluðum árangri Vandamálið er oft augljóst og lausnaleiðin skýr, en samt sveigjum við af braut og missum tökin. Þannig höfum við að vissu marki brugðist okkar besta hugvits- og atorkufólki sem af eldmóði barðist fyrir og hóf skimun eftir legháls- og brjósta- krabbameini hjá okkar kæru konum. Þekking og reynsla Aldrei má vanmeta þekkingu og reynslu. Ljóst er af atburðarás síð- ustu ára og missera að slíkt hefur hins vegar átt sér stað varðandi skimanir eftir krabbameini hér á landi. Við höfum farið í þann óheilla- farveg að leita að „nýj- um“ hugmyndum og lausnum. Vonandi höf- um við að lokum lært það sem þarf í barátt- unni við Covid-19- faraldurinn og látum þekkingu ráða för á því sviði. Fagfólk okkar stenst án efa þær kröf- ur sem við gerum til þess. Fræðsluátak í Evrópu Árið 1999 var mikil vakning í Evrópu í baráttunni gegn algengum sjúkdómum sem meltingarlæknar voru að kljást við. Það skorti fræðslu til fólksins um fyrirbyggj- andi aðgerðir, um einkenni, grein- ingu og meðferð sjúkdómanna. Þá hófst mikil fræðsluherferð (Public Awareness Campaign) í Evrópu um vélindabakflæði og ristilkrabba- mein, vandamál sem voru íþyngj- andi heilbrigðisvandamál. Margra ára undirbúningur Þetta fræðsluátak lagði grunninn að þeirri starfsemi sem nú er hafin í flestum löndum, þ.e.a.s. skipulagðri skimun eftir krabbameini í ristli og endaþarmi. Að evrópskri fyrirmynd var farið í markvisst fræðsluátak hér á landi sem nefnt var „vitundar- vakning“. Íslensk heilbrigðisyf- irvöld sýndu þessu átaki lítinn áhuga. Á nýliðnu þingi evrópskra meltingarlækna, haldið í Barcelona (2019), var rætt um stöðu skimunar eftir ristilkrabbameini m.a. í Evr- ópu (IARC, The International Agency for Research on Cancer). Þar var gerð grein fyrir margra ára undirbúningi heilbrigðisyfirvalda í ýmsum löndum. Ísland var hvergi á blaði. Færri greinast, fleiri deyja Augljóst er að krabbamein í ristli og endaþarmi meðal Íslendinga er gríðarlega stórt vandamál. Þetta er annað til þriðja algengasta krabba- mein meðal Íslendinga og það greinast 187 einstaklingar að með- altali með sjúkdóminn árlega, með- alaldur um 70 ár. Ristilkrabbamein er önnur algengasta dánarorsök af völdum krabbameins en 68 ein- staklingar deyja árlega. (Mynd 1.) Gróft áætlað er kostnaður við greiningu, stigun sjúkdómsins og meðferð, auk annarra afleiða, senni- lega um tveir milljarðar (var 1,5 milljarðar 2015) á ári hverju. Greindum tilfellum hefur fjölgað um rúmlega 30% á síðustu 12 árum og dánartíðni hefur lítið breyst. Þjóð okkar er hlutfallslega ung, en mun eldast hratt á næstu áratug- um. Tilfellum mun þar af leiðandi fjölga mikið í framtíðinni ef engum skipulögðum og fyrirbyggjandi að- gerðum verður hrint í framkvæmd hið fyrsta. (Mynd 2.) Við gætum sparað þjóðfélaginu tugi milljarða næstu áratugina ef við hefðum nægan áhuga á að hefja markvissar forvarnir gegn þessu krabbameini. Hvers vegna? Ef litið er um farinn veg síðustu 30 árin vakna spurningar sem áhugavert er að fá svör við. Hvers vegna hafa íslensk heilbrigðisyfir- völd ekki haft áhuga á að beita markvissum forvörnum gegn einu algengasta og útgjaldamesta krabbameini meðal karla og kvenna á Íslandi? Nú hefur skimunarráð skilað sínum tillögum. Vænst er að bestu skimunaraðferðum verði beitt til að fyrirbyggja og greina þetta krabbamein. Barnaleikur einn Eftir aðgerðir okkar gegn Co- vid-19-faraldrinum ætti vel skipu- lögð forvarnarstarfsemi gegn þessu krabbameini ekki að vefjast fyrir okkur. Vonandi gera stjórnendur heilbrigðismála sér grein fyrir því, að mögulegt er að fækka dauðs- föllum af völdum þess um 70-80%. Margra ára aðgerðaleysi hefur leitt til ótímabærra dauðsfalla af völdum þessa krabbameins. Eðlileg krafa Fjármagn og markvissar aðgerð- ir til að hefja skimun, án frekari tafa, eftir þessu krabbameini er nú eðlileg krafa fólksins hér á landi. Ástæðan er sú að þetta er eitt af fáum krabbameinum sem mögulegt er að fyrirbyggja ef réttum skim- unaraðferðum er beitt. Eftir hverju erum við að bíða? Getum við treyst því að nú verði hafist handa? Eftir Ásgeir Theódórs »Mikil umræða hefur verið um ýmiss konar forvarnir á und- anförnum áratugum. Umhverfismál og umræðan um hlýnun jarðar hefur nú náð háum hæðum. Ásgeir Theódórs Höfundur er læknir, sérfræðingur í meltingarlækningum og heilbrigðisstjórnun. atheodor@simnet.is Mynd 1 Samkvæmt upplýsingum frá Krabbameinsskrá Íslands greindust á árunum 2015-2019 að meðaltali um 187 tilfelli með þetta krabbamein. Það létust 68 einstaklingar að meðaltali. Forvarnir, þekktar eða óþekktar? Mynd 2 Fjöldi krabbameina eykst í aldursflokkunum yfir 60 ára vegna aukningar á fjölda einstaklinga í þeim hópi. Nú hefur eldgosið á Reykjanesi staðið í hátt á fjórða mánuð. Það hefur tekið sér nokkrar kúnstpásur upp á síðkastið en fremur en fyrr þá get- um við lítið sagt um hvernig það á eftir að haga sér. Lýkur því á morgun? Stendur það í 50 ár? Hvar kemur það upp næst? Eitt er víst að allt er breytt. Eldstöð á Reykja- nesskaganum hefur rumskað af löngum svefni og við vitum ekki hvert framhaldið verður. Samgöngu- ráðherra hefur rætt um að það þurfi að fara að huga að nýrri flóttaleið af Suðurnesjum þar sem hraun gæti mögulega lokað Suðurstrandarvegi á næstu vikum. Við þurfum fleiri flugvelli Við þurfum að vera meðvituð um mikilvægi þess að byggja upp annan alþjóðaflugvöll í nálægð við Reykja- vík. Í nóvember 2019 kom út skýrsla um flugvallakosti á suðvesturhorni landsins. Sú skýrsla var unnin fjarri hugmyndum um jarðhræringar eða eldgos á Reykjanesi. Í skýrslunni kemur fram sú meginforsenda að á suðvesturhorni landsins verði tveir flugvellir sem séu bæði fyrir milli- landa- og innanlandsflug. Það er talið mikilvægt upp á samkeppnishæfni landsbyggðar og höfuð- borgar. Þá segir í skýrslunni að það styrki viðskiptatækifæri og þjónustu við landsmenn. Þá er tæpt á í skýrslunni að það þurfi varaflugvöll fyrir Keflavíkurflugvöll, hann getur lokast, ýmist vegna veðurs, náttúru- hamfara eða slysa. Akureyrarflugvöllur og Egilsstaðaflugvöllur hafa verið notaðir sem varaflugvellir og mikil- vægi þeirra dregur enginn í efa í þeim efnum. Þá þarf áfram að styrkja í framhaldinu á þeim atburðum sem hafa orðið á Reykjanesi. Ísland er eldfjallaeyja, eldstöðin á Reykjanesi hefur rumskað, hvað er þá til ráða? Það er mikilvægt að stjórnvöld bregðist við eins og sam- gönguráðherra hefur nú þegar gert með því að hugsa um nýja flóttaleið fyrir íbúa Reykjaness vegna yfirvof- andi atburða. Nú þarf að horfa til framtíðar og við verðum að undirbúa okkur undir að finna nýja staðsetn- ingu á alþjóðlegum flugvelli. Núver- andi staðsetning er frábær við þær aðstæður sem hafa verið uppi á suð- vesturhorninu en það þarf að hugsa upp nýjar sviðsmyndir. Með fjölgun ferðamanna og auknu millilandaflugi er ekki óraunhæft að hafa tvo al- þjóðaflugvelli á suðvesturhorninu, hvort sem er fyrir eldsumbrot eða ekki. Svæðið í kringum Borgarnes er aðlaðandi Loks er farið að hilla undir stór- huga framkvæmd við Sundabraut sem bætir tengingu milli höfuðborg- arsvæðis, Vesturlands og Norður- lands. Unnið er að tvöföldun Vestur- landsvegar upp í Borgarnes. Sundabraut gæti verið lokið árið 2030 ef allt gengur eftir og opnar mögu- leika á greiðar og góðar heilsárs- samgöngur, þá sér í lagi við allt Vest- urland. Við þessar samgöngubætur er ný staðsetningin fyrir alþjóða- flugvöll á Vesturlandi raunhæfur kostur. Kannski er hentugt að setja niður nýjan alþjóðarflugvöll vestur á Mýrum? Einhverjir hrökkva kannski við vegna þessara skrifa. Eitt er víst, við verðum að þora að setjast niður og horfa til framtíðar út frá nýjum en reyndar aldagömlum staðreyndum um náttúru landsins. Orð eru til alls fyrst. Nýr alþjóðaflugvöllur vestur á Mýrum? Eftir Höllu Signýju Kristjánsdóttur Halla Signý Kristjánsdóttir » Það er mikilvægt að stjórnvöld bregðist við eins og samgöngu- ráðherra hefur nú þegar gert með því að hugsa um nýja flóttaleið fyrir íbúa Reykjaness vegna yfirvofandi atburða. Höfndur er alþingismaður Fram- sóknarflokksins í NV-kjördæmi. Fyrsta hugsun morgunsins er að teygja sig í fréttatakkann og vita hvernig gosinu hafi reitt af. Hvort allt sé í lagi, hraunstraumur eðlileg- ur, órói mátulegur og að það sé glóð. Þetta er gosið okkar og við viljum hafa það sem lengst. Það má ekki segja neitt misjafnt um gosið. Það er eins og ofdekraður krakki, það skemmir ekkert og það er engum til ama. Þó að hraun breið- ist yfir land og mosi troðist undir og vegir séu í hættu, þá er mönnum í mun að gosið haldi áfram. Oft eru menn að bölva svifryks- mengun og hafa sett upp mæla og vilja banna bæði nagladekk og bíla, en þetta sem kemur úr gosinu er bara sent af forsjóninni og best að ræða það ekki. Það gæti náð að fréttast út í heim. Það er líka heppilegt að gösin hafa blandast og hvarfast og mælarnir ná þeim ekki og menn verða bara að finna þau á sjálfum sér og koma sér inn Og Jóni eldklerki myndi varla þykja taka því að biðja almættið að stöðva þessa litlu spýju, væri hann á dögum, heldur biðja um meira gos eins og fréttafólkið. Sunnlendingur. Velvakandi Svarað í síma 569-1100 frá kl. 10-12. Hvernig hefur gosið það? Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Eldgosið í Geldingadölum hefur vakið athygli hérlendis sem og erlendis.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.