Morgunblaðið - 10.07.2021, Blaðsíða 40
40 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. JÚLÍ 2021
Guðbjörg Jóna Bjarnadóttir var að-
eins 8/100 úr sekúndu frá því að
komast í undanúrslit í 200 m hlaupi
kvenna á Evrópumóti U23 ára í
Tallinn í Eistlandi í gær. Guðbjörg,
sem er 19 ára gömul, varð í 27. sæti
á 24,40 sekúndum en 24 fyrstu
komust í undanúrslitin. Íslandsmet
hennar er 23,45 sekúndur en sá tími
hefði fært henni fimmta sætið í
gær. Í dag keppa Erna Sóley Gunn-
arsdóttir, í kúluvarpi, og Baldvin
Þór Magnússon, í 5.000 m hlaupi,
síðust Íslendinganna á mótinu í
Tallinn.
Guðbjörg nærri
undanúrslitum
Ljósmynd/Þórir Tryggvason
EM23 Guðbjörg Jóna Bjarnadóttir
keppti í Tallinn í gær.
Phoenix Suns er komið í 2:0 í ein-
vígi sínu gegn Milwaukee Bucks í
úrslitum NBA-deildarinnar í körfu-
knattleik. Liðin mættust í Phoenix í
fyrrinótt þar sem Phoenix hafði að
lokum betur, 118:108.
Devin Booker var stigahæstur
Phoenix-manna með 31 stig, fimm
fráköst og sex stoðsendingar en hjá
Milwaukee var Giannis Antetoko-
unmpo stigahæstur með 42 stig og
tók tólf fráköst. Liðin mætast nú
tvisvar í Milwaukee, næst annað
kvöld, en fjóra sigra þarf til að
vinna meistaratitilinn.
AFP
Phoenix Devin Booker stöðvar
Giannis Antetokounmpo.
Staða Phoenix
er mjög góð
FYLKIR – HK 1:2
1:0 Daði Ólafsson 31.
1:1 Birnir Snær Ingason 60.
1:2 Martin Rauschenberg 73.
MM
Birkir Valur Jónsson (HK)
M
Aron Snær Friðriksson (Fylki)
Daði Ólafsson (Fylki)
Orri Hrafn Kjartansson (Fylki)
Þórður Gunnar Hafþórsson (Fylki)
Helgi Valur Daníelsson (Fylki)
Birnir Snær Ingason (HK)
Arnþór Ari Atlason (HK)
Martin Rauschenberg (HK)
Dómari: Jóhann Ingi Jónsson – 7.
Áhorfendur: 780.
FÓTBOLTINN
Jóhann Ingi Hafþórsson
johanningi@mbl.is
HK galopnaði botnbaráttuna í Pepsi
Max-deild karla í fótbolta með 2:1-
útisigri á Fylki í leik, sem frestað
var, í gærkvöldi. Fyrir leikinn hafði
HK aðeins unnið einn leik í sumar.
Í stöðunni 1:0 Fylki í vil í fyrri
hálfleik munaði átta stigum á lið-
unum, en Daði Ólafsson kom Fylki
yfir á 30. mínútu með marki beint úr
aukaspyrnu. HK neitaði hins vegar
að gefast upp, sneri taflinu sér í vil,
og vann sterkan sigur. Birnir Snær
Ingason jafnaði á 60. mínútu og
danski varnarmaðurinn Martin
Rauschenberg tryggði sigurinn á 74.
mínútu.
HK er nú aðeins tveimur stigum
frá bæði Leikni úr Reykjavík og
Fylki og þremur á eftir FH í áttunda
sæti. Með tapi hefði staðan verið
ansi svört fyrir HK, en þess í stað er
liðið einum sigri frá því að fara úr
fallsæti og aðeins fjórum stigum frá
Keflavík sem er í sjötta sæti, en
neðri hluti deildarinnar er gríðar-
lega þéttur.
Fylkismenn hefðu með sigri getað
slitið sig verulega frá fallsætunum,
en þess í stað er liðið komið á hættu-
legar slóðir.
„Það hefði verið auðvelt fyrir HK
að brotna í stöðunni 0:1 enda lítið
sem hefur fallið með liðinu í sumar. Í
staðinn þjöppuðu þeir sér saman og
unnu góðan og afar dýrmætan sigur
enda hefði tap í kvöld sett liðið í
veruleg vandræði.
Fylkismenn geta nagað sig í hand-
arbökin fyrir að hafa ekki fengið
neitt út úr leiknum. Þeir fengu hvert
dauðafærið á fætur öðru í leiknum
og hefðu hæglega getað verið þrem-
ur til fjórum mörkum yfir þegar HK
jafnaði metin,“ skrifaði Bjarni
Helgason m.a. um leikinn á mbl.is.
_ Birnir Snær Ingason varð í gær
fyrstur til að skora 10 mörk fyrir
HK í efstu deild.
_ HK-ingurinn Eiður Atli Rún-
arsson lék sinn fyrsta leik í efstu
deild er hann kom inn á í lokin.
HK galopnaði
botnbaráttuna
- HK-ingar sneru taflinu við í Árbæ
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Miðjubaráttan HK-ingurinn Ólafur Örn Eyjólfsson sækir að Helga Val
Daníelssyni úr Fylki á Würth-vellinum í Árbænum í gærkvöldi.
Pepsi Max-deild karla
Fylkir – HK............................................... 1:2
Staðan:
Valur 12 8 3 1 21:11 27
Breiðablik 11 7 1 3 28:15 22
Víkingur R. 11 6 4 1 17:9 22
KR 11 5 3 3 18:13 18
KA 10 5 2 3 15:7 17
Keflavík 10 4 1 5 14:19 13
Stjarnan 12 3 4 5 12:18 13
FH 11 3 3 5 14:17 12
Fylkir 11 2 5 4 15:19 11
Leiknir R. 11 3 2 6 11:18 11
HK 11 2 3 6 14:21 9
ÍA 11 1 3 7 11:23 6
Markahæstir:
Nikolaj Hansen, Víkingi R ....................... 10
Sævar Atli Magnússon, Leikni R .............. 8
Joey Gibbs, Keflavík ................................... 7
Lengjudeild karla
ÍBV – Grótta ............................................. 0:1
Þór – Þróttur R......................................... 5:1
Fjölnir – Selfoss ....................................... 2:1
Víkingur Ó. – Grindavík........................... 2:2
Afturelding – Fram.................................. 0:2
Staðan:
Fram 11 10 1 0 33:9 31
ÍBV 11 7 1 3 20:11 22
Grindavík 11 5 4 2 22:20 19
Fjölnir 11 5 2 4 13:12 17
Kórdrengir 10 4 4 2 16:14 16
Vestri 10 5 1 4 16:19 16
Þór 11 4 3 4 23:18 15
Grótta 11 4 2 5 21:19 14
Afturelding 11 3 4 4 21:23 13
Selfoss 11 2 3 6 19:27 9
Þróttur R. 11 2 1 8 20:28 7
Víkingur Ó. 11 0 2 9 14:38 2
2. deild karla
Leiknir F. – Fjarðabyggð........................ 2:0
Þróttur V. – KV ........................................ 1:0
Reynir S. – ÍR........................................... 1:1
Staðan:
Þróttur V. 11 7 3 1 25:11 24
Njarðvík 10 5 5 0 26:11 20
KV 11 5 4 2 22:16 19
ÍR 11 4 4 3 22:18 16
Haukar 10 4 3 3 25:19 15
Reynir S. 11 4 3 4 22:21 15
Völsungur 10 4 2 4 21:23 14
KF 10 4 2 4 15:17 14
Leiknir F. 11 4 0 7 17:27 12
Magni 10 2 4 4 19:23 10
Kári 10 1 3 6 14:24 6
Fjarðabyggð 11 0 5 6 6:24 5
Lengjudeild kvenna
FH – Afturelding...................................... 1:1
Staðan:
KR 9 7 1 1 25:11 22
Afturelding 9 5 4 0 23:10 19
FH 9 6 1 2 19:8 19
Víkingur R. 9 3 3 3 16:16 12
Haukar 9 3 2 4 13:14 11
Grótta 9 3 1 5 13:18 10
ÍA 9 3 1 5 9:20 10
HK 8 2 2 4 11:18 8
Grindavík 9 0 5 4 11:18 5
Augnablik 8 1 2 5 10:17 5
Norðurlandamót U16 kvenna
Leikið í Abenraa í Danmörku:
Danmörk-2 – Ísland................................. 0:1
Ísabella Sara Tryggvadóttir 25.
_ Ísland gerði jafntefli 1:1 við Svíþjóð í
fyrsta leik og mætir A-liði Dana í síðasta
leik á mánudaginn.
>;(//24)3;(
Vináttulandsleikur karla
Þýskaland – Brasilía ........................... 36:26
- Alfreð Gíslason þjálfar Þýskaland.
Vináttulandsleikur kvenna
Ungverjaland – Brasilía....................... 34:31
E(;R&:=/D
KNATTSPYRNA
Úrvalsdeild kvenna, Pepsi Max-deildin:
SaltPay-völlur: Þór/KA – ÍBV............... S14
Eimskipsv.: Þróttur R. – Tindastóll ...... S16
1. deild karla, Lengjudeildin:
Domusnovav.: Kórdrengir – Vestri ...... L14
2. deild karla:
Vodafonev.: Völsungur – Njarðvík ....... L14
Ólafsfjarðarvöllur: KF – Haukar.......... L16
Akraneshöll: Kári – Magni .................... L16
3. deild karla:
Sauðárkrókur: Tindastóll – KFS .......... L12
Þorlákshöfn: Ægir – Höttur/Huginn.... L14
Nesfiskvöllur: Víðir – Einherji.............. L14
Dalvík: Dalvík/Reynir – Augnablik ...... L16
Sindravellir: Sindri – KFG .................... L16
2. deild kvenna:
Þróttarvöllur: SR – Einherji ................. L14
Boginn: Hamrarnir – Álftanes .............. L14
Framvöllur: Fram – Fjarð/Hött/Leik .. L14
Sindravellir: Sindri – ÍR......................... S16
FRJÁLSÍÞRÓTTIR
Íslandsmót fatlaðra í frjálsíþróttum fer
fram í Kaplakrika um helgina. Keppt er frá
11.30 til 15.30 í dag og frá 12 til 14 á morg-
un.
UM HELGINA!
FH og Afturelding skildu jöfn, 1:1, í
Lengjudeild kvenna í fótbolta í
gærkvöldi, 1. deild. Fyrir leikinn
voru liðin í öðru og þriðja sæti,
bæði með 18 stig, fjórum stigum
eftir KR. Það var því ljóst að sig-
urliðið myndi minnka forskot KR-
inga á toppnum niður í eitt stig.
Að lokum skiptu þau hins vegar
stigunum á milli sín.
Elín Björg Norðfjörð Símonar-
dóttir, sem byrjaði á bekknum hjá
FH en lék seinni hálfleikinn, skor-
aði fyrsta markið eftir tæplega
klukkutíma leik og kom heimakon-
um yfir.
Afturelding neitaði hins vegar að
gefast upp og hin bandaríska Jade
Gentile jafnaði á 80. mínútu og þar
við sat.
Afturelding og FH eru sjö stigum
á undan Víkingi í fjórða sæti og
stefnir í þriggja hesta kapphlaup
hjá KR, Aftureldingu og FH um tvö
efstu sætin sem gefa sæti í efstu
deild.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Barningur FH-ingurinn Brittney Lawrence í baráttunni í gærkvöldi.
Jafnt í toppslagnum
Það virðist fátt geta komið í veg
fyrir að Fram fari með öruggan
sigur af hólmi í 1. deild karla í fót-
bolta, Lengjudeildinni. Fram vann
sinn tíunda sigur í ellefu leikjum er
liðið heimsótti Aftureldingu og
vann 2:0-sigur í gærkvöldi. Óskar
Jónsson og Indriði Áki Þorláksson
gerðu mörk Fram. Þar sem Grinda-
vík og ÍBV misstigu sig jókst for-
skot Framara á bæði annað og
þriðja sætið.
Eftir fimm sigra í röð í deildinni
þurfti ÍBV að sætta sig við 0:1-tap
fyrir Gróttu í Vestmannaeyjum.
Axel Sigurðarson skoraði sigur-
markið á 54. mínútu og tryggði
Gróttu annan sigurinn í röð.
Í Ólafsvík gengu væntanlega
bæði lið svekkt af velli eftir 2:2-
jafntefli. Grindavík mistókst að
komast einu stigi frá ÍBV í öðru
sæti og Víkingur var hársbreidd
frá nauðsynlegum sigri í botnbar-
áttunni. Sigurður Hallsson kom
Grindavík yfir áður en Emmanuel
Keke og Kareem Isiaka sneru tafl-
inu við. Grindavík átti hins vegar
lokaorðið því Sigurjón Rúnarsson
jafnaði í uppbótartíma. Víkingar
hafa sýnt batamerki eftir að Guðjón
Þórðarson tók við liðinu.
Þórsarar blésu til veislu á heima-
velli gegn Þrótti og unnu 5:1-sigur.
Fannar Daði Gíslason gerði tvö
mörk fyrir Þór og þeir Ólafur Aron
Pétursson, Ásgeir Marinó Baldvins-
son og Jóhann Helgi Hannesson
komust einnig á blað. Keiro Ed-
wards-John skoraði mark Þróttar
er hann jafnaði í 1:1 í fyrri hálfleik.
Þá vann Fjölnir 2:1-heimasigur á
Selfossi. Ragnar Leósson og Jó-
hann Árni Gunnarsson gerðu mörk
Fjölnis áður en Gary Martin klóraði
í bakkann.
Framarar juku for-
skotið á toppnum
Morgunblaðið/Eggert
Óstöðvandi Framarar eru með gott
forskot á toppi deildarinnar.