Morgunblaðið - 10.07.2021, Blaðsíða 45
MENNING 45
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. JÚLÍ 2021
»Leikarar, leikkonur,
leikstjórar, framleið-
endur og aðrir þeir sem
koma að kvikmyndum
alþjóðlegu kvikmynda-
hátíðarinnar í Cannes,
sem og gestir hennar,
hafa notið sólarinnar og
sviðsljóssins frá því
hátíðin hófst 6. júlí.
Að venju hafa frægir
sem og aðrir minna
þekktir verið ljósmynd-
aðir í bak og fyrir á
rauðum dreglum og víð-
ar í tengslum við frum-
sýningar á hinum ýmsu
kvikmyndum. Hátíðinni
lýkur 17. júlí.
Cannes iðar af lífi enda stendur þar nú yfir alþjóðlega kvikmyndahátíðin sem kennd er við bæinn
AFP
Skærbleikur Bandaríski leikstjórinn Spike Lee mætti í fagurbleikum jakkafötum á frumsýningu opnunarmyndar-
innar Annette. Hann fer fyrir aðaldómnefnd hátíðarinnar og sést hér með öðrum í nefndinni, frá vinstri þeim
Kleber Mendonca Filho, Melanie Laurent, Mati Diop, Jessicu Hausner og Mylene Farmer. Lengst til hægri er svo
menningarmálaráðherra Frakka, Roselyne Bachelot, sem situr að vísu ekki í dómnefndinni.
Höfuðprýði Rússneska athafna- og sjónvarpskonan Elena Lenin fór ekki
troðnar slóðir í höfuðskrauti fyrir frumsýningu Tout s’est Bien Passe.
Glæsileg Breska leikkonan Jodie Turner-Smith mætti prúðbúin á rauða
dregilinn fyrir frumsýningu á kvikmyndinni After Yang sem hún leikur í.
Eldhressar Franska leikkonan og leikstjórinn Charlotte Gainsbourg
skemmti sér vel með móður sinni, bresku leik- og söngkonunni Jane Birkin,
í myndatöku vegna heimildarmyndar Gainsbourg, Jane par Charlotte.
Sumarleg Farhana Bodi, indverskur áhrifavaldur, var sumarleg til fara á
frumsýningu Annette 6. júlí sem var opnunarmynd hátíðarinnar.
Fyrsti gjörningurinn í gjörninga-
röðinni King og bong verður fram-
inn í Kling & Bang í Marshall-
húsinu í kvöld kl. 20. Er yfirskrift
hans King og Kling og Bong og
Bang: Glæsistundir og listamenn
þau Kjáni Thorlacius, Sölvi Sr.
Sérrí, Ísabella Lilja og Sean Pat-
rick O’Brien.
„Næsta mánuðinn mun lista-
mannarekna galleríið King og
bong taka yfir Kling & Bang. Á
þeim tíma verða níu gjörninga-
viðburðir þar sem hátt í þrjátíu
listamönnum
verður boðið að
fremja gjörning.
Gjörningarnir
gerast utan
veggja gallerís-
ins en þeim verð-
ur streymt inn í
rými Kling &
Bang. Sestu í
sófa og fylgstu
með úr öruggri
fjarlægð,“ segir um gjörningaröð-
ina í tilkynningu.
Fyrsti gjörningur hjá King og bong
Sean Patrick
O’Brien
Aðrir tónleikar ársins í tónleika-
röðinni Velkomin heim verða
haldnir í Hörpu í dag kl. 14. Á þeim
mun Halldór Bjarki Arnarson
semballeikari leika Goldberg-til-
brigðin eftir J.S. Bach sem eru 30
talsins. Segir í tilkynningu að líta
megi á þau sem hápunkt tilbrigða-
listar barokktímabilsins en þau
voru skrifuð fyrir sembal með
tveimur hljómborðum.
Heyra má í tilbrigðunum hvernig
hægt er að nýta eina bassalínu til
hins ýtrasta með því að flétta inn öll
möguleg tónlistarform, litbrigði og
dansrytma, segir í tilkynningu og
að í gegnum verkið sýni Bach yfir-
burði sína í kontrapunktslistinni en
einnig vald sitt á hræringum hinnar
mannlegu sálar.
Halldór spilar reglulega með
barokksveitum á Íslandi og á meg-
inlandinu, er meðal annars með-
limur í íslenska barokkhópnum sem
kenndur er við Symphonia Angel-
ica og hinum margverðlaunaða
Amaconsort-kvartett frá Þýska-
landi. Hann stundar nú meistara-
nám í semballeik í Sviss við Schola
Cantorum Basiliensis undir leið-
sögn Andrea Marcon.
Semballeikari Halldór Bjarki Arnarson.
Hápunktur tilbrigðalistar barokksins