Morgunblaðið - 20.07.2021, Síða 2
2 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. JÚLÍ 2021
Verið velkomin
í sjónmælingu
Hamraborg 10, Kópavogi, sími 554 3200
Opið virka daga 9.30–18
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson
menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Jónas Erlendsson
Vík í Mýrdal
Ferðaþjónustufyrirtækið Viking
Park Iceland ehf. í Mýrdalshreppi
hefur gert leigusamning við Mýr-
dalssand ehf., eiganda jarðarinnar á
Hjörleifshöfða, vegna uppbyggingar
á víkingagarði við Hjörleifshöfða.
Þar verður sögutengd og fjöl-
breytt afþreying fyrir alla fjölskyld-
una, sem búist er við að hafi jákvæð
áhrif á atvinnuuppbyggingu og
ferðaþjónustu í Mýrdalshreppi.
Eigendur Viking Park vilja m.a.
vekja athygli á sögu Hjörleifs Hróð-
marssonar sem grafinn er á toppi
Hjörleifshöfða, en hann var fóst-
bróðir Ingólfs Arnarsonar, fyrsta
landnámsmanns Íslands. Næstu
skref eru að fara í nauðsynlega og
kostnaðarsama uppbyggingu innviða
og vernd náttúrunnar með því að
laga og merkja vegslóða inn á svæð-
ið, gera aðgengileg bílastæði, lag-
færa göngustíga, smíða víkingaskip
og fleira, að því er framkvæmdastjóri
Viking Park, Jóhann Vignir Hró-
bjartsson, segir.
Aðgengið ekki heft
Fyrirtækið mun hvorki loka né
hefta aðgengi almennings að Hjör-
leifshöfða né upp að Hafursey. Þvert
á móti er verið að byggja upp ferða-
þjónustu í heimabyggð, bæta að-
gengi og auka öryggi. Sett verða upp
upplýsingaskilti til að koma í veg fyr-
ir utanvegaakstur og landskemmdir,
sérstaklega á slóðum sem liggja að
og í kringum Hafursey sem eru að-
eins færir fjórhjóladrifnum jeppum
og ofurjeppum á vetrartíma.
Ferðaþjónustuaðilar, kvikmynda-
fyrirtæki og aðrir sem gera út skipu-
lagðar endurteknar ferðir í atvinnu-
skyni inn að Hafursey, og nýta þá
innviði sem eigendur Viking Park
eru skuldbundnir til að halda við,
gera það með skriflegu leyfi Viking
Park Iceland ehf. Á síðustu árum
hefur orðið sprenging í ferðum að og
í kringum Hafursey og má áætla að
yfir 50.000 ferðamenn fari í skipu-
lagðar ferðir um slóðann árlega. Þörf
er á miklu viðhaldi á vegslóðum
vegna stóraukinnar umferðar stórra
jeppa auk þess sem slóðinn er að
stórum hluta niðurgrafinn og virkar
því eins og árfarvegur í leysingum og
miklum rigningum og rennur þá úr
brautinni.
Samstarf við fyrirtæki, verktaka
og aðra ferðaþjónustuaðila í Mýr-
dalshreppi mun skapa störf, atvinnu-
tækifæri og auka fjölbreytta afþrey-
ingu fyrir alla sem heimsækja
Mýrdalshrepp og koma í heimsókn í
Víkingagarðinn við Hjörleifshöfða.
Hægt verður að nálgast upplýs-
ingar á heimasíðu félagsins https://
vikingagardurinn.is/
Morgunblaðið/Jónas Erlendsson
Hjörleifshöfði Eigendur Viking Park, f.v. Victor Berg Guðmundsson. Páll Tómasson og Jóhann Vignir Hróbjartsson.
Víkingagarður á
sögufrægum slóðum
- Sögutengd afþreying hjá Viking Park í Hjörleifshöfða
Gunnhildur Sif Oddsdóttir
Baldur S. Blöndal
Ragnhildur Þrastardóttir
Þrátt fyrir að breyta þurfi verklagi á
Keflavíkurflugvelli vegna hertra að-
gerða á landamærunum er ekki útlit
fyrir að breytingarnar muni tefja
mikið fyrir störfum flugstöðvar-
deildar lögreglunnar á Suðurnesj-
um. Þetta segir Arngrímur Guð-
mundsson, aðstoðaryfirlögreglu-
þjónn deildarinnar. Ríkisstjórnin
kynnti hertar aðgerðir á landamær-
um í gær en þær taka gildi 26. júlí
næstkomandi. Þær felast í því að
bólusettir ferðamenn þurfa að fram-
vísa neikvæðum niðurstöðum úr
PCR-prófi við komuna. Þeir voru áð-
ur undanskildir slíkri reglu. Einnig
verður mögulegt að framvísa nei-
kvæðu mótefna-hraðprófi.
Þar að auki verður mælst til þess
að þeir sem búsettir eru hér á landi
eða hafa hér tengslanet fari í sýna-
töku sólarhring eftir komuna til
landsins. Það verður þó ekki skylda
frekar en framvísun PCR-prófa.
„Þessi PCR-vottorð sem allir
þurfa að sækja sér breyta í sjálfu
sér ekki miklu fyrir það fyrirkomu-
lag sem er hjá okkur á vellinum í
dag,“ segir Arngrímur í samtali við
Morgunblaðið.
„Þetta ætti ekki að tefja neitt
mikið fyrir okkur. Við þurfum nátt-
úrlega klárlega að breyta verklagi.
Ég reikna með að þessi mannskapur
sem er í dag dugi til verksins en við
erum í sjálfu sér bara að skoða þessa
framkvæmd á hverjum degi í sam-
ræmi við fjölgun farþega.“
Farþegum sem hingað koma hef-
ur fjölgað verulega að undanförnu.
Aðspurður segir Arngrímur ganga
vel þótt stundum sé fjöldinn nokkuð
mikill. „Með fjölgun farþega mynd-
ast raðir á ákveðnum dögum og á
ákveðnum tímum þegar mesta álag-
ið er, en þetta gengur vel,“ segir
Arngrímur.
Kári reiknar með því
að aðgerðirnar dugi
Ellefu kórónuveirusmit greindust
innanlands á sunnudag og fimm á
landamærum. Um helmingur þeirra
sem greindust innanlands var full-
bólusettur. Eins og áður hefur kom-
ið fram virðist bólusetning gegn Co-
vid-19 vernda fólk vel fyrir
alvarlegum veikindum. Eins og
kortið hér til hliðar sýnir eru alls
tæplega 47.000 manns, 12 ára og
eldri, enn óbólusettir og því ekki
varðir fyrir alvarlegum veikindum
Covid-19. Tekið skal fram að stærst-
ur hluti hópsins, 16.316 manns, eru
börn á aldrinum 12 til 15 ára sem
hafa ekki verið boðuð í bólusetningu
gegn Covid-19.
Kári Stefánsson, forstjóri Ís-
lenskrar erfðagreiningar, sagði í
samtali við Morgunblaðið í gær-
kvöldi að hann væri ánægður með
nýju takmarkanirnar á landamær-
unum. „Ég held að það hafi verið
skynsamlegt að gera þetta svona og
ég reikna með að það dugi,“ sagði
Kári.
Hann telur afléttingar sumarsins
hafa verið þarfa tilraun. „Það varð
að prófa hvort við gátum lifað í
frjálsum samskiptum við umheim-
inn, við vorum fyrsta landið í Evr-
ópu til að reyna slíkt. Ríkisstjórnin
hefur farið að tillögum sóttvarna-
læknis allan þennan tíma og úr varð
að við gátum opnað á undan öllum
öðrum Evrópulöndum.“
Kári sagði að af þeim sökum væri
engin ástæða til þess að vefengja
mat Þórólfs Guðnasonar sóttvarna-
læknis: „Það sem hann leggur til er
ekki bara þjóðinni allri til bóta held-
ur líka allri ferðaþjónustunni.“
Kári sagði mikilvægt að hafa í
huga að fimmtungur þjóðarinnar
væri enn óbólusettur. „Ferðamenn
sem koma hingað inn geta borið
veiruna með sér og smitað þá sem
eru ekki enn bólusettir.“
Í samtölum ráðherra við blaða-
menn eftir ríkisstjórnarfundinn í
gær mátti greina minni einingu um
sóttvarnaaðgerðir en áður. Áslaug
sagði ákvörðunina þungbæra og
Bjarni Benediktsson fjármálaráð-
herra sagðist spyrja sig hvort það að
aðgerðirnar ættu að vera fyrir-
byggjandi væru nægilega sterk rök
fyrir takmörkunum á ferðafrelsi.
Svandís Svavarsdóttir heilbrigðis-
ráðherra sagði um mjög mildar að-
gerðir að ræða og Katrín Jakobs-
dóttir forsætisráðherra tók undir
það.
Skoða framkvæmdina daglega
- Hertar aðgerðir á landamærunum taka gildi í næstu viku - Ekki er útlit fyrir að þær muni tefja
mikið fyrir störfum lögreglu á vellinum - Enn hafa tæplega 47.000 manns ekki fengið bólusetningu
COV
ID
-19
VAC
CIN
E
16.316
12.345
10.321
4.843
1.991
818
75 142 44
Fjöldi óbólusettra eftir aldri
12-15 ára 16-29 ára 30-39 ára 40-49 ára 50-59 ára 60-69 ára 70-79 ára 80-89 ára 90+ ára
Heimild: Covid.is
Uppfært: 15. júlí 2021
Alls eru nú
46.895
íbúar 12 ára og eldri
óbólusettir á Íslandi
Unnur Freyja Víðisdóttir
unnurfreyja@mbl.is
Skemmtiferðaskipið Crystal
Endeavor er lagt af stað í tíu daga
jómfrúarsiglingu í kringum Ísland.
Skipið lagði úr Reykjavíkurhöfn á
sunnudag. Ferðin er sú fyrsta af
fimm lúxussiglingum sem farnar
verða í kringum landið en eins og
Morgunblaðið greindi frá í apríl mun
snekkjan, sem er í eigu Crystal
Cruises, koma við í nokkrum höfnum
á landsbyggðinni á leiðinni.
Crystal Endeavor rúmar 200 gesti
í 100 svítum og er stærsta, hrað-
skreiðasta og kraftmesta snekkja
sinnar tegundar að sögn talsmanna
Endeavor.
Gestum snekkjunnar ætti ekki að
leiðast á ferð sinni í kringum landið
en um borð í Endeavor er að finna 18
Zodiac-báta, 14 sjókajaka, snorkl-
búnað og tvær sex manna þyrlur
sem gerðar eru út beint frá snekkj-
unni. Á öllum viðkomustöðum
snekkjunnar í Íslandsferðunum er
boðið upp á skoðunarferðir undir
stjórn náttúrufræðinga sem tilheyra
leiðangursteymi skipsins. Með í för
eru einnig tveir atvinnuljósmyndar-
ar, sérfræðingar í heimskautaleið-
öngrum og listamaður sem mun
hvetja gesti til að fanga ferðaminn-
ingarnar í formi ljósmynda og teikn-
inga. Samkvæmt tilkynningu Cryst-
al Cruises eiga ferðirnar að varpa
ljósi á „hrífandi strandlengjur og
friðlönd dýralífs, risavaxna jökla og
óteljandi fossa, hugguleg þorp og
töfrandi arfleifð íslenskra þorpa og
eyja“.
Jómfrúarsigling
í kringum landið
- Fyrsta lúxussiglingin af fimm