Morgunblaðið - 20.07.2021, Síða 4

Morgunblaðið - 20.07.2021, Síða 4
4 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. JÚLÍ 2021 Sími 555 2992 / 698 7999 Hátt hlutfall Omega 3 fitusýra Gott fyrir: • Maga- og þarmastarfsemi • Hjarta og æðar • Ónæmiskerfið • Kolesterol • Liðina Læknar mæla með selaolíunni Selaolían fæst í: Apótekum, Þín verslun Seljabraut, heilsuhúsum, Fjarðarkaupum, Fiskbúðinni Trönuhrauni, Hafrúnu ogMelabúð Óblönduð – meiri virkni Selaolía Ég heyrði fyrst um Selaolíuna í gegnum kunningja minn en konan hans hafði lengi glímt við það sama og ég, - stirðleika í öllum liðum og tilheyrandi verki. Reynsla hennar var það góð að ég ákvað að prufa. Fyrstu tvo mánuðina fann ég litlar breytingar, en eftir þrjá mánuði var ég farin að geta gengið niður stiga á vinnustað mínum sem ég hafði ekki getað áður. Ein góð „aukaverkun“ fylgdi í kjölfarið, ég var með frekar þurra húð um allan líkamann, en eftir að ég fór að nota Selaolíuna hvarf sá þurrkur og húð mín varð silkimjúk. Ég hef nú notað Selaolíuna í eitt og hálft ár og þakka henni bætta líðan og heilsu. Guðfinna Sigurgeirsdóttir. „Eftir þrjá mánuði var ég farin að geta gengið niður stiga á vinnustaðmínum sem ég hafði ekki getað áður.“ Guðni Einarsson gudni@mbl.is Gosmóða var viðvarandi á höfuð- borgarsvæðinu frá því í fyrradag og fram eftir degi í gær. Móðunnar varð vart víða sunnan- og vestanlands. Þetta var lengsta samfellda meng- unartímabilið með jafn háum topp- um og þá mældust síðan eldgosið í Geldingadölum hófst 19. mars. Upplýsingamiðlun um gasmengun verður aukin, að því er sagði í til- kynningu frá Umhverfisstofnun (UST) og Veðurstofu Íslands til al- mennings. Formlegar viðvaranir verða ekki sendar út fyrr en þriggja klukkutíma meðaltal SO2 fer yfir 500 µg/m3. Nánar má lesa um þetta á facebooksíðu Veðurstofunnar. Loftmengun frá eldgosinu í Geld- ingadölum hefur ítrekað mælst, sér- staklega á Suðurnesjum og höfuð- borgarsvæðinu. Í tilkynningunni kemur fram að gosmengunin hafi hingað til mest verið af völdum brennisteinsdíoxíðs (SO2). Leiðbein- ingar til almennings hafa verið sett- ar fram í því sem hefur verið kallað SO2-skammtímatafla. Leiðbeining- arnar hafa miðast við að maður sé út- settur fyrir menguninni í tíu mínút- ur. Þær hafa dugað vel til þessa því háir toppar hafa venjulega staðið stutt yfir. Í gosmóðunni er ekki aðeins brennisteinsdíoxíð (SO2) á gasformi heldur einnig súlfatagnir (SO4). Agn- irnar mælast á svifryksmælum. Þeg- ar bæði SO2 og SO4 eru til staðar og þegar mengunartoppar vara klukku- stundum saman má búast má við að fólk geti fundið fyrir meiri einkenn- um en lýst er í SO2-töflu. Þetta eru ekki það há gildi að öll- um almenningi sé ráðlagt að halda sig innandyra. En ekki er ráðlagt að láta ungbörn sofa úti í vagni. Fólk sem er viðkvæmt og finnur fyrir ein- kennum ætti að hafa hægt um sig og forðast áreynslu utandyra. Gildin voru það há í gærmorgun að ekki var hægt að mæla með því fyrir heilbrigt fólk að reyna mikið á sig utandyra eins og t.d. í langhlaupi. Sara Barsotti, fagstjóri eldfjalla- vár hjá Veðurstofu Íslands, sagði að í gosmóðunni væri blanda af gasi, brennisteinsdíoxíði (SO2) og ögnum brennisteinssambanda. Mengunin er mæld á mælistöðvum Umhverfis- stofnunar, sem ekki eru víða. Nið- urstöður mælinga sjást á loftgaedi.is Morgunblaðið/Unnur Karen Kópavogur Mistrið lá yfir í gær. Síðdegis sýndi loftgæðamælir í Dalsmára að loftið var óhollt fyrir viðkvæma. Talsverð gosmóða - Viðvarandi gosmóða var á höfuðborgarsvæðinu í fyrradag og fram eftir degi í gær - Upplýsingamiðlun verður aukin SENTINEL/Veðurstofa Íslands Mengun Hvítu deplarnir tákna SO2, því hvítari þess meira af efninu. Myndin var tekin kl. 12.22 í gær. Þá var mengunin mest næst Geldingadölum en dreifðist austur með landinu. Gosmengun mældist í Færeyjum á sunnudag. Steinar Ingi Kolbeins steinar@mbl.is Frétt birtist í Morgunblaðinu í gær sem sagði frá veiðiferð hjónanna Ólafs Vigfússonar og Maríu Önnu Clausen á Austurland nú fyrir helgi. Umfjöllunin fór fyrir brjóstið á mörgum og sáu þeir sig knúna til þess að senda Ólafi skilaboð sem hann lýsir einfaldlega sem haturs- skilaboðum. „Ég átti nú ekki von á þessu, en það er bara búið að hrauna yfir mig alveg hægri-vinstri í allan dag,“ seg- ir Ólafur. Hann segir mörg þeirra skilaboða sem honum hafa borist hreinlega hafa farið langt yfir strik- ið. „Það er bara fullt af veiku fólki þarna úti, fólki sem segir alls konar hluti sem það myndi aldrei segja við mann persónulega.“ Ólafur telur samfélagsmiðlana hafa orðið til þess að fólk geti hreinlega sagt það sem það vill. „Við sjáum þetta í umræðu um nafngreinda og ónafngreinda menn, þessu alveg óskylt, bara hvernig fólk talar og tjáir sig á net- inu.“ Ekki í fyrsta sinn Hann segir þetta ekki í fyrsta sinn sem þau hjónin lenda í svona út- reið, en María fór í veiðiferð fyrir nokkrum árum til Skotlands með vinkonum sínum og fengu þær í kjöl- farið holskeflu hatursskilaboða. „Þetta voru nánast bara morðhót- anir, sagt að það ætti að skjóta þær og þar fram eftir götunum.“ Ólafur telur einnig að mikillar vanþekkingar gæti í orðræðu þessa fólks. Hann segir borgarsamfélagið hafa þróast þannig að fólk sé orðið verulega vantengt náttúrunni og „geri sér ekki grein fyrir því um hvað veiði snýst“. Veiðistjórnun sé skynsamleg „Við erum bara að veiða okkur til matar. Það er ekki þannig að maður sé þarna hlaupandi uppi dýr- in hlæjandi og skríkjandi,“ segir Ólafur. Honum finnst þó verst að sé fólk mótfallið þessu eða annarrar skoðunar þá sé umræðan tekin á svona lágt plan. Hann segist ekki ætla að tilkynna nein ummæli til lög- reglu. Að lokum bendir hann á að stjórnun hreindýraveiða sé afar góð. „Vísindamenn stýra þessu alfarið og svo er gefinn út kvóti. Menn eru ekki þarna spólandi á hjólum og skjót- andi allt sem þeir sjá. Þessu er stýrt á skynsaman hátt.“ „Hraunað yfir mig alveg hægri-vinstri“ - Frétt um veiðiferð vakti hörð við- brögð - Fékk hatursfull skilaboð Veiði Hjónin María Anna Clausen og Ólafur Vigfússon með tarf. Bjarni Benediktsson fjármála- og efnahagsráðherra segir ÁTVR at- hafna sig í krafti þeirrar sérstöku stöðu sem verslunin nýtur að lög- um. Verslunin hafi einkaleyfi á smásölu áfengis og því hreyfi hún sig samkvæmt því og túlki lögin með hliðsjón af þeirri staðreynd. Hann vill ekki ganga svo langt að segja ÁTVR hafa farið út fyrir vald- svið sitt með því að leggja inn kæru um meint skattsvik Arnars Sigurðs- sonar, eiganda Sante ehf. og franska félagsins Santewines SAS. „Þær breyt- ingar sem eru að verða á verslun með áfengi á Ís- landi með net- versluninni, mér finnst það nú ekki vera fyrir utan þeirra vald- svið að spyrja spurninga um mörk þess sem ÁTVR gerir hvað smásöluna snert- ir,“ segir Bjarni. Ekki utan valdsviðs ÁTVR að spyrja spurninga Bjarni Benediktsson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.